Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1947, Qupperneq 8
30
TÍMARIT V.F.I. 1947
Heitvatnsgeymar á Öskjuhlíð og hluti af aðalæð. Reyklaus bær í baksýn til hægri.
The hot water reservoirs and main pipe-line. View over the smokless town after the erection of the Heating Plant.
Öskjuhlíðinni við æðina frá geymunum til bæjarins.
Þessi dælustöð getur aukið þrýstinginn í bænum um
10—20 m, þegar þörf gerist, en sé ekki þörf fyrir
viðbótarþrýsting, rennur vatnið sjálfkrafa framhjá
dælunum.
I bæjardælustöðinni eru þrjár vélasamstæður eins
og í aðaldælustöðinni á Reykjum, ein fyrir hvora
pípu og ein til vara, sem dælt geta inn á hvora píp-
una sem vera skal. Hver dæla getur afkastað allt að
250 1/sek., og hreyflarnir eru 75 hestöfl hver. Stöðv-
arhúsið er úr járnbentri steinsteypu 31,0 m langt og
6,75 m breitt, þar af er vélasalurinn 20,5 m langur,
Bæjardælustöð (bakhlið), bærinn í baksýn. Fremst á myndinni
er stokkur með leiðslum frá geymunum.
The boosting pumping station (from behind). View over the
town. Front: cliannels with lines leading from the tanks.
en í suðurhluta hússins er spennistöð, snyrtiklefi,
geymslur og salur fyrir mælaprófunarstöð.
Bæjarkerfið (sjá uppdrátt á bls. 34—35) hefur
það hlutverk að veita hæfilega miklu heitu vatni út
í hverja einstaka götu í bænum og tryggja hæfi-
legan þrýsting á vatninu. Það greinist eins og
fyrr er sagt út frá gatnamótum Hringbrautar og
Miklubrautar. Pípuvíddir þess eru frá 1” upp í
18’' og samanlögð lengd þeirra tæpir 40 km. Það
nær til alls meginhluta bæjarins, þar sem byggð er
sæmilega þétt, eða alls svæðisins innan Hringbrautar
og auk þess Norðurmýrar og þess hluta Melanna,
sem þéttbyggður er, þ. e. Víðimels og Reynimels.
Þrjár aðalæðar liggja gegnum bæinn, en víðar þver-
æðar tengja þær saman á nokkrum stöðum, og er
það gert til þess að minni truflanir verði á rekstrin-
um, þótt gera þurfi við aðalæð. Um 300 vatnslokar
eru á götuæðunum, svo að loka megi fyrir einstakar
götur eða götukafla, ef þörf krefur. Þá er fjöldi
lofthana og tæmingarhana líkt og á aðalæð.
Frá götuæðunum liggja heimæðar inn í einstök
hús (sjá uppdrátt á bls. 29). Þær eru flestar
%” víðar, 1” er þó allvíða, en gildasta heim-
æðin er og fæðir hún miðstöðvarkerfi, sem
er sameiginlegt fyrir 31 hús. Heimæðarnar eru
víða sameiginlegar á kafla fyrir 2 eða fleiri hús,
sérstaklega þar sem hús standa langt frá götu eða
um bakhús er að ræða. Samanlögð lengd heimæða
utanhúss er um 21 km, en þar við bætist svo innan-
húslögn inn að katli eða kötlum. Alls voru keyptir
82 km af %” pípum og hafa þær verið notaðar að
mestu. Alls voru keyptir 170 km af pípum til hita-
veitunnar, og er þá ekki tvítalið það, sem kaupa varð
oftar en einu sinni af ófriðarorsökum.
I húsunum er hveravatninu veitt beint inn í mið-