Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Qupperneq 16
7 6 MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 2004
Sport DV
Bandaríska golfstúlkan Miehelle Wie þykir vera
sú efnilegasta sem komið hefur fram í golf-
heiminum í mörg herrans ár. Wie, sem er ný-
orðin Qórtán ára gömul og er 183 cm á hæð,
þykir hafa sveiflu sem minnir á sveifluna hjá
Suður Afríkumanninum Ernie Els en Wie er
þegar komin í hóp högglengstu kvenna á PGA-
mótaröð kvenna.
Bandaríska stúlkan Michelle Wie er aðeins fjórtán
ára gömul en hún er þegar orðin eitt helsta
umtalsefni þeirra sem hafa áhuga á golfi. Wie, sem
býr á Havaí, er dóttir kóreskra innflytjenda og var ekki
gömul þegar ljóst var að þar væri ekki venjulegur
kylfingur á ferðinni. Hún var aðeins tíu ára gömul
þegar hún lék 18 holur á 67 höggum og sama ár varð
hún yngsta í sögunni til að komast inn á mót á
áhugamannamótaröð kvenna í Bandaríkjunum. Hún
vann fyltósmót Havaí f höggleik ári seinna og hún
komst inn á PGA-mótaröði kvenna þegar hún var tólf
ára og tók þátt í Takefuji Classic mótinu.
Heimurinn tók þó ekki virkilega við sér fyrr en hún
fékk boð um að spUa á Opna Sony Intemational
mótinu á Havaí um síðustu helgi en það mót er hluti
af bandarísku PGA-mótaröð karla. Hún var eina
konan sem keppti á mótinu og strax áður en það
byijaði voru keppinautar hennar famir að lofsyngja
hana. Suður Afrfltumaðurinn Emie Els, sem lék
æfingahring með henni fyrir mótið, var mjög hrifinn
afþvísem hannsá.
Aldrei séð slíka sveiflu hjá konu
„Þótt hún sé ekki eldri en hún er þá hef ég aldrei
séð konu sveifla kylfu eins og hún gerir. Þegar ég var
fjórtán ára þá var ég ennþá að spila á fremri teigum
en hér er Michelle að spila á PGA-mótaröðinni,“ sagði
Els.
Sveiflan hjá Wie þykir vera einstök, stundum lfkt
við sveiflu áðumefrids Els, og það er hún sem gerir
þaö að verkum að menn hafa margir hverjir trú á því
að hún getí keppt við karla á nánast
jafnréttisgrundvelli. Upphafshögg hennar vom að
meðaltali um tuttugu metrum lengri en sænsku
stúlkunnar Anniku Sörenstam, sem af flestum er talin
vera besti kvenkylfingur heims, á síðasta ári og landar
hennar Davis Love III og Fred Couples, sem hafa
marga fjöruna sopið í golfheiminum, spömðu ekki
stóra orðin þegar þeir vom lýsa sveiflunni hjá hennL
„Hún er með einhverja þá fallegustu sveiflu sem ég
hef á ævinni séð,“ sagði Davis Love III á meðan Fred
Couples játaði að það væri ekkert sem gæti undirbúið
menn fyrir það að sjá hana slá bolta.
Einu höggi frá niðurskurðinum
Það var mikil pressa á Wie þegar hún hóf keppni á
Opna Sony Intemational mótinu síðastliðinn
fimmtudag. Henni gekk ágætlega fyrri daginn og lék
þá á 72 höggum eða tveimur yfir pari vallarins. A
Wt • -i '■ ' T 1 " '
öðrum degi sýndi hún hins vegar mátt sinn og megin
þegar hún lék á 68 höggum eða tveimur undir pari
vallarins. Hún endaði á 140 höggum eða pari og var
aðeins einu höggi frá því að komast í gegnum
niðurskurðinn.
,Aðeins einu höggi minna og ég hefði komist
áfram. Hugsunin um það drepur mig,“ sagði Wie eftir
mótið. Ef það er að drepa hina fjórtán ára gömlu Wie
hvemig ætli Jim Furyk, sigurvegara Opna bandaríska
meistaramótsins í fyrra, líði en hann lék holumar 36 á
jafnmörgum höggum og Wie.
Skiptar skoðanir um þátttöku Wie
Það vom ekki allir jafiisáttir við að Wie skyldi spila
á þessu mótí. Ólflct þ\d sem var uppi á teningnum
þegar hin sænska Annika Sörenstam spilaði á PGA-
mótaröðinni í fyrra þá skipti kynið eklá máli í tílfelli
Wie. Margir vom ósáttir við að hún fengi að keppa þar
sem hún væri svo ung og að hún heföi ekki unnið fyrir
því að keppa á slfku móti. Aðrir segja hins vegar að
það sé bull og vitleysa því að íþróttamenn vinni sér
rétt til að spila með atvinnumönnum með því að vera
góðir, markaðsvænir og áhugaverðir fyrir styrktaraðila
móta. Wie keppti eingöngu á mótinu þar sem henrn
var boðin þátttaka af styrktaraðilum mótsins en það
er mál manna að hún hafi sannað tilverurétt sinn
meðal þeirra bestu.
Wie var sjálf mjög ánægð með spilamennsku sína á
mótinu og sagði að það hefði hjálpað sér roikið að
spila æfingahringi með Emie Els fyrir mótið. „Ég var
afskaplega stressuð áður en ég byijaði að spila með
Emie Els því að ég vildi ekki verða mér til skammar.
Mér gekk hins vegar vel með honum og það róaði
mig. Þessir hringir gerðu það að verkum að ég var
mjög róleg þegar mótið byrjaði á fimmtudaginn. Mér
fannst ég spila mjög vel. Púttin duttu ekki hjá mér
fyrsta daginn en ef þau hefðu gert það eins og annan
daginn þá hefði ég komist í gegnum niðurskurðinn.
Seinni daginn náði ég tveimur fuglum á síðustu
þremur holunum þannig að ég get verið stolt af sjálfri
mér,“ sagði Wie.
Getur hún keppt viö karlmenn?
Stóra spumingin er hins vegar hvort hún geti
keppt við karlmenn regluiega. Hin metnaðargjama
Wie hefur þegar lýst því yfir að hún vilji spila helming
ársins á kvennamótaröðinni og hinn helminginn með
körlum og þjálfari hennar, Gary Gilchrist, er ekki í
nokkrum vafa um að hún eigi möguleika á þvf.
„Éghef alist upp og spilað með mörgum af bestu
karlkylfingum hehns og hun er betri núna heldur en
þeir vom á hennar aldri," sagði Gilchrist. Emie Els,
sem er einn af mestu aðdáendum er heldur ekki í vafa
um að hún hefur flest allt til að bera til að spila með
körlum daginn út og daginn inn.
„Hún hefur allt til að bera til að geta spiiað á PGA-
mótaröðinni. Ef hún fær tíma til að styrlja sig og bæta
leik sinn þá sé ég ekki að það sé hægt að koma í veg
fyrir að hún verði á mótaröðinni þegar fram líða
stundir. Hún hefur allan grunninn, líkamsstaðan er
rétt, hún heldur rétt á kylfunni - það er allt ftillkomið.
Hún býr yfir ótrúlegum hæfileikum. Það er bara
tfrnaspursmál hvenær hún nær að nýta alla þessa
hæfileika og þá mun golfheimurinn taka eftír því svo
um munar," sagði Els.
Spilað með jafningjum
Wie er í dag alltof góð til aö spila við jafiialdra sína.
Það er hreinlega ekki gaman fyrir jafnmikla
keppnismanneslqu og hún er að hafa yfirburði á meðal
imgjinga. Það er hægt að líkja henni við
knattspymuundrið Freddy Adu, sem er jafngamall og
Wie. Hann skrifaði undir atvinnumannasamning fyrir
skemmsm og það er því rökrétt skref fyrir hana að spiia
gegn atvinnumönnum. Hún hefur flest til að bera og
lítur frekar út fyrir að vera 25 ára, bæði í útliti og fasi,
heldur en 14 ára. Hún er orðin álflca vinsæl og Tiger
Woods og Annika Sörenstam innan golfheimsins og
mun trekkja að áhorfendur hvar sem hún mtm spila.
Það er því erfitt að finan rök gegn því að htin spili á
eins mörgum atvinnumótum og hún getur.
Gagnrýni á föðurinn
Faðir hennar hefur verið gagnrýndur af mörgum
fyrir að reka hana of harkalega áfram. Þær raddir
heyrast að ekkert ijórtán ára gamalt bam ætti að
þurfa að takast á við pressuna sem fyigir því að keppa
sem atvinnumaður. Hann segistþó ekki gera það og
Wie segist sjálf hafa gaman af því sem hún er að gera.
Það kemur varla nokkrum manni við hvað fer ffam
innan fjölskyldunnar en spumingin er hvort Wie
muni gera uppreisn þegar hún er sextán ára, brenna
út þegar hún er átján ára, hætta í golfi þegar hún er 21
árs og búin með skólann eða hreinlega vinna eitt af
stóm mótunum fjórum áður en hún verður þrftug -
hjá körlunum að sjálfsögðu.
oskar@dv.is
r
„Þótt hún sé ekki etdrí en
hún erþá hefég aídrei sé
konu sveifía kylfu eins og
hún gerir. Þegar ég var
fjórtán ára þá varég
ennþá að spila á fremri
teigum en hér er Michelte
aðspilaáPGA-
mótaröðinni"
É:>' y v -
ÉÉlffláÍÉ
Jillíi
isiliií
SiBíísíS;