Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Síða 18
Fókus DV 18 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 Skemmtanir* Kiukkan2o hefst dagskrá í Salnum í Kópavogi þar sem greint er frá niðurstöðum úr ljóðasamkeppni á vegum Lista-og menningarráðs Kópavogs. I október síðastliðnum var aug- lýst eftir ljóðum í ijóðasamkeppnina “Ljóðstafur Jóns úr Vör“. Dagskráin hefst með því að Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður Lista- og menningarráðs, setur sam- komuna. Hjörtur Pálsson les upp ijóð. Þá minnist bæjar- stjóri, Sigurður Geirdal, Jóns úr Vör. Ólafur Kjartan Sigurðarson, barítón og Jónas Ingimundarson, píanóleik- ari, flytja nokkur lög. Formaður dómnefndar, Matthías Johannessen, gerir síðan grein fyrir niðurstöðum nefndarinnar og formaður Lista-og menningarráðs afhendir verðlaunin. Dagskránni lýkur svo með veitingum í boði Lista- og menningarráðs Kópavogs. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Fundir og fyrirlestrar • Stefán Ingi Stefánsson, nýráð- inn framkvæmdarstjóri UNICEF á fslandi, heldur fyrirlestur um starf UNICEF, stofnun og markmið ís- lensku landsnefndarinnar á Fé- lagsvísindatorgi í Þingvallastræti 23, stofu 14, í dag klukkan 16.30. • Kristileg skólasamtök (KSS) standa fyrir kynningarfundi á svokölluðu Alfa námskeiði í kvöld í húsi KFUM og KFUK við Holta- veg 28 klukkan 20. Námskeiðið sjálft hefst í næstu viku og fjallar um grunnatriði kristinar trúar og leitast við að svara spurningunni um tilgang lífsins. Allir eru vel- komnir. Ruth hjá Sirrý Lífið eftir vinnu Sýningar* Gauthier Hubert og Guðný Rósa Ingimarsdóttir hafa opnað sýningu í Nýlistasafn- inu. Hún stendur til 17. febrúar. • Rósa Sigrún Jónsdóttir hefur opnað sýningu í Gallerí Hlemmi. Verkið sem Rósa sýnir heitir „Um fegurðina" og samanstendur af um það bil 10.000 samansaumuð- um eyrnapinnum og vídeói. • Þýski myndlistarmaðurinn Ingo Fröhlich er með sýningu sína Strich + Linie / Lína + strik í Gall- erí Kling og Bang, Laugavegi 23. Sýning Ingo stendur til 8. febrúar. Styttist í útsölu Útsalan í verslunum Skífunnar í byrjun árs er alltaf vinsæll við- burður enda er þá meirihlutinn af vörum boð- inn til sölu á talsvert lægra verðien venju- lega. Útsalan verður að- eins seinna á ferð í ár en venjulega og hefst 3. febrúar næstkomandi. Stúdentaleikhúsið er þessa dagana að æfa 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason og er uppsetningin að hluta til spuni. Formað- ur Stúdentaleikhússins og einn leikenda er Ástbjörg Rut Jónsdótt- ir sem utan æfinga leggur stund á nám í táknmálstúlkun. Astbjörg Rut Jónsdóttlr I táknmálstúlkun þarf maöur oft að standa fyr- ir framan mikið affólki og segja frá þvísem hinn heyrnarlausi er að tjá. Þá þarfmað- ur að hafa góða raddbeitingu og skýran framburð á islensku, en hið sama á einnig við um leikara." Survivor-maraþon Það styttist í að áttunda þáttaröðin af Survivor, Stjömu-Survivor, hefjist á SkjáEinum. Af því tÚ- efni hefiir stöðin ákveðið að vera með maraþon- sýningar á gömlu þátta- röðunum. Sýningarnar verða firá næsta mánu- degi, 26.janúar til 1. febrúar, frá morgni tii kvölds. Nákvæmar upp- lýsingar um sýningar- tfma má finna á www.sl.is. „Ég hef mjög lengi haft áhuga á leiklist, og áhuginn á táknmálstúlkun spratt síðan út frá því,“ segir Ástbjörg Rut Jónsdóttir, formaður Stúdentaleikhúss Háskólans og nemi í táknmálstúlkun. „I táknmálstúlkun þarf maður oft að standa fyrir framan mikið af fólki og segja frá því sem hinn heyrnarlausi er að tjá. Þá þarf maður að hafa góða raddbeitingu og skýran framburð á íslensku, en hið sama á einnig við um leikara." Ástríður var áður í nemendaleikhúsi MH, og tók þá meðal annars þátt í uppsetningu á Dýrabæ, en hefur undanfarin ár verið í Stúdentaleikhúsinu og tekið þátt í uppsetningum á Upprisu holdsins og Sweeney Todd, meðal annara verka. Næsta verkefni Stúdentaleikhúss- ins er leikgerð bókarinnar 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason. „Síðasta verkefni okkar, 1984, var hápólítsk ádeila og stórt og mikið í sniðum. Þó að það hafi heppnast mjög vel viidum við gera eitthvað hæglátara og léttara í þetta skiptið." Það gekk þó ekki með öllu eftir áætlun. „Upp- runalega ætluðum við að búa til spunaverk, en leikstjór- inn komst svo ekki í verkefnið vegna anna heimafyrir. Við höfðum þá samband við Hjálmar Hjálmarsson, sem stakk upp á að taka fyrir bók Hailgríms. Við fengum svo leyfl frá Hallgrími síðasta föstudag. Æfingar hófust síðan strax í gær, en yflrleitt líða tveir til þrír mánuðir frá því að verkið er valið og þangað til æflngar hefjast." Leikgerð 101 verður þó ólík kvikmyndinni. „Þetta verður að hluta til spuni og að hluta til upp úr bókinni, en þó verður ávallt stuðst við efni bókarinnar og mynd- in höfð til hliðsjónar. En það voru ýmsar senur og ýmsir karakterar sem komu ekki fyrir í myndinni, þannig að þetta verður talsvert öðruvísi." Þessa dagana stendur yfir menningarvika Háskólans, og Stúdentaleikhúsið verður með uppákomur. „Við aug- lýsum aldrei fyrirfram dagskrá, heldur dúkkum við upp hér og þar. Ætlunin er að fólk viti ekki hvort um er að ræða garnan eða alvöru. 1 fyrra þóttumst við vera grafal- varlegur kór, en svo sungu allir rammfalskt, og svo buð- um við upp á rúnstykki með rjóma." í vor vonast leikhúsið eftir að komast til Svíþjóðar. „Ætlunin er að hafa samstarfsverkefni með leikhóp í Sví- þjóð, og við myndum verða sirka viku þar og þeir svo koma hingað, og svo myndum við setja upp spunaverk sem væri búið til á þessum tíma. En þetta veltur allt á hvort við fáum styrk. Ef einhver vill gerast styrkgjafi er honum frjálst að hafa samband.“ Endimörk hugdirfskunnar Söguþráðurinn í Last Samurai er einfaidur. Tom Cruise er fullur og at- vinnulaus heima í Bandaríkjunum. Tom Cruise fær tiiboð um að þjálfa heri Jap- anskeisara gegn uppreisnargjömum Samúræjum. Tom Cruise er handtekinn í bardaga af téðum Samúræjum, og eftir margar senur þar sem hann slæst við þá, leikur við börnin þeirra og horfir á kon- ur þeirra, gengur hann til liðs við þá. Farið er í ICvikmyndir gegnum allar klisjurnar, en myndin virkar þó, og það vel. Fyrir þessu eru tvær ástæður. Annars vegar sá að söguþráðurinn, þótt einfaldur sé, gengur upp. Tom Cmise er í óþekktu landi, og það eina sem gerir hann hliðhollan keisaranum er kaupið. Þegar svo bætist ofan á að honum er í nöp við amerískan yfirboðara sinn vegna fjöldamorðs hans á indjánum, og að hann þarfnast sjálfur lausnar vegna þátttöku sinnar í téðum morðum, er auðvelt að skilja hvers vegna hann skipt- ir um lið. Persónur allar em trúar sjálf- um sér, og maður velkist aldrei í vafa um hvers vegna þær gera það sem þær gera, jafnvel þegar þær gera áras á fallbyssur með spjótum. Sérstaklega vel heppnuð er persóna Katsumoto, sem er ekki ein- ungis harðsvíraður hermaður eins og Japanir eru yfirleitt í slíkum myndum, heldur vflar ekki fyrir sér að bregða á leik í veislum og virkar þannig á mann sem manneskja. En það sem gerir bíóið að upplifun er mögnuð sviðsmyndin. Um miðbik hennar, þegar okkar menn kljást við árás ninja-hermanna virðist myndin ætla að verða meiri Kill Bill en Kurosawa, en lokaáitlaup Samrúræja gegn nútímaher keisarans hlýtur að vera með því magnaðra sem sést hefur á hvíta tjaldinu. Um það þarf ekki að hafa fleiri orð, að horfa á fornaldarherinn vera sallaðan niður af vélbyssum segir allt sem segja þarf. Hinar fornu dyggðir hermennskunnar, heiður og hugrekki, eiga ekki lengur við. Nútímahernaður gengur út á að ýta á takka, og hugdirfska dugir skammt gegn sprengikúlum. Ef aðeins myndin hefði endað hér. Fjórar stjömur liefðu varla verið nóg. En nei, Tom Cmise stendur upp ósnertur af kúlnaregninu sem drap alla félaga hans, og fær keisarann til að skipta um skoð- un. Alltaf þarf hetjan að sigra að lokum, þvert á alla sagnfræði jafnt sem heil- brigða skynsemi. Braveheart dó fyrir málstaðinn og vinnur þannig móralsk- an sigur en, ó nei, það kemur náttúm- lega í ljós að hann barnaði Englands- drottningu fyrst þannig að afkomendur hans munu sitja á krúnunni uni ókomna framtíð. Og Gladiator deyr ekki einungis hetjudauða, heidur er lýðveld- ið í Róm endurreist að honum látnum. Ætíi næsta Kristsmynd, sem Mel Gibson vinnur nú hörðum höndum að, endi ekki á því að hann barni dóttur keisar- ans eða káli öllum Rómveijunum með krossinum? The Last Samurai Sýnd í Sambíóunum og Háskólabió Það er annars hressandi að sjá hvað myndin er almennt lítið hrifin af út- þenslustefnu Bandarikjanna, ólíkt til dæmis Gladiator, sem hefst á að Russel Crowe siðmenntar barbara með orra- hríð. Bandaríkin drepa indíána, Banda- ríkin þvinga Japani til undirgefni, og gegn þessu stendur sjálfur gulldrengur Bandaríkjanna, Tom Cmise. En í raun vom það ekki Samúræjar, heldur um- bótasinnar sem höfðu rétt fyrir sér. Að- eins með því að tileinka sér efnahag og hemaðartækni Vesturlanda gátu þeir haidið fast í sjálfstæði sitt og siði. Stund- um þarf maður að gera eins og óvinur- inn, úl að forðast að vera eins og hann. Valur Gunnarsson Fólk með Sirrý er að sjálfsögðu á dagskrá SkjásEins í kvöld klukkan 21.Ævisög- ur verða til umfjöll- unar í þættinum í kvöld og Jæja verður meðal anars rætt við Ruth Reginalds og Rikey mömmu hennar en þær mæðgur hafa sent hvorri annarri tóninn eftir að ævisaga Ruthar kom út fyrir jólin. • Á Kjarvalsstöðum stendur yflr sýningin Ferðafuða, sem er sýning á míníatúrum eftir fjölmarga ís- lenska listamenn. Þar stendur einnig yfir sýningin „Myndlistar- húsið á Miklatúni - Kjarvalsstaðir í 30 ár“. Báðum þessum sýningum lýkur 25. janúar. • Sýning á málverkum eftir Braga Ásgeirsson stendur yfir í forkirkju Hallgrímskirkju. Bragi sýnir stór óhlutbundin oiíuverk þar sem hann vinnur með ljósið og þau birtuskil sem framundan eru. Sýningin stendur til 25. febr- úar. Sigur Rós Upptökur á næstu plötu ganga vel og má búast við henni I haust. Upptökur ganga vel Upptökur á nýrri plötu Sigur Rósar ganga vel og á fréttasíðu sveitarinnar kemur fram að grunn- ur hefur verið lagður að sex lögum. Á síðunni segir að sveitin vinni plötuna öðruvísi en þá síðustu, nú semji þeir lögin jafnóðum í stúdíó- inu öfugt við síðast þegar þau voru öll tilbúin þegar í hljóðverið var kontið. Búast má við að platan verði tilbúin t' haust. Eins og DV greindi frá á dögunum gerði Sigur Rós ný- verið stóran samning við útgáfuris- ann EMI sem gefur út næstu plötu þeirra í Evrópu. Sigur Rós fagnaði um þarsíðustu helgi tíu ára afmæli sínu og bauð af því tilefni vinum og velunnurum sínum til heljarinnar veislu á Mojitos. Fyrsta At ársins Fyrsti þáttur Ats í Ríkissjónvarp- inu á nýju ári er í kvöld. Að vísu fengum við einn upprifjunarþátt snemma í janúar en nú er komið að fyrsta hefðbundna þættinum. Pétur pókus kíkir í heimsókn og hljóm- sveitin Hölt hóra tekur lagið auk þess sem karókígræjur ýmiss konar eru skoðaðar og passar það ágæt- lega nú þegar Idol-æðinu er að ljúka. Þátturinn hefst kiukkan 20.45 og umsjónarmenn eru sem fyrr þau Villi og Sigrún.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.