Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDACUR 21. JANÚAR 2004 Sport DV Hagnaður hjá Birmingham Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Birm- ingham brosa breitt þessa dagana en félagið tilkynnti í gær að 3,3 milljóna punda hagnaður fyrir skatta hefði verið á rekstri félagsins á tólf mánaða tímabili sem endaði í ágúst á síðasta ári. Birmingham lék sitt fyrsta tímabil í langan tíma í úrvafsdeildinni og jókst veltan um um rúmar tutt- ugu milljónir punda, upp í 36,5 milljónir punda. David Sullivan, stjórnarformaður Birmingham, var að vonum sáttur við þessa útkomu. „Þetta hefur verið gott ár fyrir félagið bæði innan vallar sem utan og ég er gríðarlega ánægður með það sem hefur verið að gerast hjá okkur," sagði Sullivan. Birmingham keypti leikmenn fyrir þrett- án milljónir punda á þessu tímabili og sagði Sullivan að Steve Bruce, knatt- spyrnustjóri liðsins, ætti ekki hvað stærstan þátt í þessum árangri. ÍBV mætir frönsku liði Kvennalið ÍBV mætir franska liðinu Havre Athletic Club í 16 liða úr- slitum Áskorendakeppni Evrópu en ÍBV sló út búlg- arska liðið Etar Tavarno um síðustu helgi. Franska liðið þykir vera mjög öflugt og er í þriðja sæti frönsku 1. deildarinnar. Frakkar eru ríkjandi heimsmeistarar í kvennahandbolta þannig að Eyjastúlkur eiga erfltt verkefni fyrir höndum. Rosickyáleið til Chelsea Tékkneski miðju- maðurinn Tomas Rosicky, sem leikur með Borussia Dortmund í Þýskalandi, segist vera búinn að gera samkomulag um að ganga til liðs við enska úrvals- deildarliðið Chelsea. Dort- mund á í miklum fjárhags- vandræðum og sagði Ros- icky að félögin tvö ættu bara eftir að komast að samkomulagi um kaup- verðið. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari ætlar að bíða eins lengi og leyfilegt er með það að tilkynna inn 15 manna hóp og segist Guðmundur ekki enn vera búinn að ákveða hvaða tveir leikmenn verða fyrir utan liðið. Guömundur óákveðinn Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari I hand- knattleik, hefur ekki enn ákveðið hvaða fimmtán leikmenn hann tilkynnir inn til mótshaidara i Celje fyrir fyrsta leik liðsins gegn Slóvenum annað kvöld en hann er ánægður með batann hjá fyrirliða iiðsins, Degi Sigurðssyni. DV-mynd Pjetur Ekki búinn að velja15 manna hóp íslenska landsliðið hefur leik á Evrópumótinu í handbolta á fimmtudaginn í Celja og mótherj- arnir eru heimamenn í Slóveníu. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari valdi 17 menn áður en liðið fór frá Danmörku en ætlar að bíða með það eins lengi og hann getur að tilkynna inn til mótshaldara þá 15 leikmenn sem verða í liðinu í upphafi keppn- DV, CELJE innar. Tveir leik- menn úr þessum 17 manna hópi munu byrja fyrir utan liðið en vegna meiðsla leikmanna í hópnum hefur Guðmundur ákveðið að bíða með að ákveða sig þar til eftir æfingar liðsins í dag en íslenska liðið mun þá æfa tvisvar í nýrri og glæsilegri íþróttahöll í Celje. Óvissa með Dag Óvissan er mest í kringum fyrir- liðann, Dag Sigurðsson en einnig eru meiðsli Rúnars Sigryggssonar áhyggjuefni en hann meiddist í leiknum gegn Egyptum á laugardag- inn. Sigfús Sigurðsson virðist vera búinn að ná sér af sínum meiðslum en Snorri Steinn Guðjónsson hefur aftur á móti bæst á meiðslalistann. „Ég er ekki búinn að ákveða hvaða 15 menn ég tilkynni inn og vil sjá hvernig ákveðnir menn koma út á æfingunum á morgun (í dag). Ég var mjög ánægður með hvernig Dagur kom út í leiknum gegn Dön- um á mánudagskvöldið og ég ætla reyna að halda öllu opnu fram í lengstu lög," sagði Guðmundur í samtali við DV í gær en ekki var al- veg ljóst hvenær lokafresturinn til að tilkynna liðið rennur út. Sálfræðistríðið hafið Eins og áður sagði eru Slóvenar fyrstu mótherjar íslenska landsliðs- ins og það má segja að sálfræði- stríðið sé þegar hafið en 30 töskur urðu eftir í Vín þegar íslenski hóp- urinn flaug yfir til Ljubliana. Sló- venarnir lofuðu úrbótum sem fyrst en það er ljóst að þessu fylgja mikil óþægindi fýrir íslenska hópinn ekki síst þar sem tölvugreiningarbúnað- ur landsliðsins varð eftir í Austur- ríki. Alls flutti íslenski hópurinn með sér 900kg af farangri til Slóven- íu. henry@dv.is Gætu selt Smith Forráðamenn Leeds gætu þurft að selja vinsælasta leikmann félagsins, Alan Smith, til að lifa af. Reuters Leeds leitast við lækka launakostnað Þurfa að selja Smith nema launalækkun leikmanna komi til Forráðamenn Leeds fengu vikufrest til viðbótar til að forða félaginu frá greiðslustöðvun á mánudaginn og leita nú allra leiða til að finna þær fimm milljónir punda sem vantar til að félagið fari ekki í greiðslustöðvun. Þeir hafa farið þess á leit við leikmenn liðsins að þeir taki á sig tímabundna 30% launalækkun en leikmennirnir hafa ekki tekið þeirri uppástungu fagnandi þrátt fyrir að Trevor Birch, starfandi stjórnarformaður félagsins, hafi sagt að launin verði færð aftur f sama horf eftir að tímabilinu lýkur. Ekki einfalt mál Vandamál leikmanna er að sögn ensku leikmannasamtakanna að leikmennirnir borga um helming núvernandi launa sinna í eftirlaunasjóð og þurfa að standa skil á þeim greiðslum burtséð frá því hvaða laun þeir eru með. Gordon Taylor, fram- kvæmdastjóri leikmannasamtak- anna, sagði að það væru ekki allir leikmenn liðsins með sextíu þúsund á viku eins og Mark Viduka og því væri málið ekki einfalt. „Ég hef trú á því að málið leysist því að leikmenn gera sér grein fyrir því að félagið verður hvorki fugl né fiskur ef það fer í greiðslustöðvun. Leikmenn eru tilbúnir til að seinka greiðslum til að hjálpa félaginu en það er erfitt fyrir þá að gefa frá sér peninga sem þeir fá sennilega aldrei aftur. Geta selt Smith Annar kostur hjá forráða- mönnum félagsins er að selja framherjann snjalla Alan Smith en Newcastle hefur áhuga á að kaupa hann fyrir þrjár milljónir punda. Það myndi væntanlega ekki verða vinsælt hjá stuðningsmönnum liðsins enda Smith í dýrlingatölu hjá þeim auk þess sem Eddie Gray, knattspyrnustjóri liðsins, hefur lýst því yfir að Smith sé maðurinn sem geti leitt liðið út úr þeim innan- vallarógöngum sem liðið er komið í en það situr í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Tvö tilboð ekki gengið upp Það hafa borist tvö tilboð í féalgið, eitt frá Al-Khalifa frá Barein upp á 35 milljónir punda og annað frá fyrrverandi aðstoðarstjórnar- formanni félagsins, Allan Leighton, en lánadrottnar félagsins töldu það tilboð ekki nægilega gott tU að hægt væri að taka því. Forráðamenn Leeds eru því í kapp við tímann og verður fróðlegt að fylgjast með því hvort þeir hafi betur í því kapphlaupi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.