Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Qupperneq 25
DV Sport MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 25 Reglur Alþjóða dómaranefndarinnar gera það að verkum að besti dómari heims, ítalinn Pierluigi Collina, þarf að hætta að dæma á alþjóðavettvangi vegna aldurs en reglurnar leyfa dómurum ekki að dæma alþjóðlega leiki eftir að þeir hafa náð 45 ára aldri. Einhverjir myndu segja að Collina væri að hætta langt fyrir aldur fram. Það er væntanlega ekki á neinn hallað þdtt því sé haldið fram að ítalski dómarinn Pierluigi Collina sé besti dómari heims um þessar mundir. Collina hefur reyndar borið höfuð og herðar yfir flesta kollega sína undanfarin ár en það færir honum ekkert fram yfir aðra dómara þegar kemur að því að hætta vegna aldurs. Collina, sem heldur upp á 44 ára afmæli sitt í næsta mánuði á nefnilega bara eitt ár eftir sem alþjóðlegur dómari og þarf að hætta í júní á næsta ári. Reglur dómaranefndar Alþjóða knattspyrnusambandsins kveða á um að enginn megi dæma alþjóðlega leiki ef hann er orðinn 45 ára gamall og því verður Collina að hlýða líkt og einn besti dómari íslenskrar knattspyrnu frá upphafi, Gylfi Orrason, en þeir munu báðir syngja sinn svanasöng í dómgæslu á alþjóðlegum vettvangi á næstunni, Gylii í lok þessa árs og Collina um mitt næsta ár. „Ég verð 45 ára í júní á næsta ári og þá mun ég hætta eins og reglurnar segja til um. Því er hins vegar ekki að leyna að ég vildi glaður halda áfram," sagði Collina við fréttaþjónustuna Anza. „Ég get að vísu ekki sagt annað en að það sé svolítið sérstakt að ákveða þetta út frá kennitölum manna. Ég mun þó að sjálfsögðu hlýða þessu því að dómarar eru menn laga og reglna," sagði Collina. Ógnandiaugnaráð Collina er langþekktasti knatt- spyrnudómarinn í heiminum í dag og honum hefur verið treyst fyrir gífurlega erfiðum verkefnum á undanförnum árum. Hann dæmdi úrslitaleik Ólympíuleikanna í Atlanta árið 1996, úrsiitaleikinn á HM í Japan og Suður Kóreu íyrir tveimur árum og hinn eldfima leik Tyrkja og Englendinga í undan- keppni EM í Istanbúl í október. Collina, sem er þekktur fyrir nauða- sköllótta höfuðkúpu og ógnandi augnaráð, hefur komist frá öllum þessum verkefnum með glans. Hann var valinn dómari ársins á Ítalíu í síðustu viku annað árið í röð en það var eingöngu fyrir tilviljun að hann byrjaði að dæma og vegna meiðsla. Eftir að hafa farið í gegnum neðri deildarnar á Ítalíu dæmdi Collina fyrsta leik sinn í efstu deild í desember 1991. Síðan þá hefur hann vart litið til baka og átt stórkostlegan feril. Pressa á dómaranefndinni Það ætti ekki að koma á óvart þó að dómaranefndin verði sett undir nokkra pressu að breyta reglunum þegar kemur að því að Collina þarf að leggja flautuna á hilluna. Það hefur þó aldrei verið gefin undantekning frá þessari reglu og ólíklegt að reglugerðarbákn eins og Alþjóða knattspyrnusambándið fari að gefa eftir út af einum sköllóttum ítölskum dómara - þótt góður sé. PIERLUGI COLLINA Fæddun 13. febrúar 1960 í Bologna á (talíu. Fjölskylda: Eiginkona hans er Gianna Collina og hann á tvær dætur, Fransescu og Carolinu. Uppáhaldslið: Fortuna Bologna i efstu deild ítalska körfuboltans. Fyrsti leikur (efstu deild: Ver- ona-Ascoli 15 .desember 1991. Collina sjálfur bendir á að margir leikmenn hafi haldið áfram að spila í hæsta gæðaflokki þrátt fyrir að vera eldri en gengur og gerist. „Ég get bent á Dino Zoff, fyrirliða ítala á HM 1982. Hann var fertugur þá og lyfti heimsmeistaratitlinum. Hann var frábær fyrirmyhd og það hefði verið fráleitt að segja honum að hætta 35 ára," sagði Collina. Beckham í uppáhaldi Collina er gífurlega vinsæll meðal leikmanna og á margar treyjur bestu leikmanna heims eins og Ronaldo, Davids Beckhams og Zinedine Zidane. Hann heldur mikið upp á Diego Maradona, Roberto Baggio, Raul og besta leikmann kvennaknattspyrnunnar í heim- inum, hina bandarísku Miu Hamm, en uppáhaldsleikmaður hans er David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins og leikmaður Real Madrid. Þessi virðing er gagnkvæm því að Beckham lýsir Collina sem besta dórnara heims í ævisögu sinni „Mín hlið“. Það verður eftirsjá af þessum litríka dómara sem er ef til vill sá besti sem hefur nokkurn tíma komið fram. Aldurinn skiptir ekki máli Gylfa Orrasonar, sem heftir verið í framvarðarsveit íslenskra knatt- spyrnudómara á undanförnum árum, bíða sömu örlög og Collina. Gylfi verður 45 ára á þesu ári og er þetta því síðasta ár hans á alþjóðlegum vettvangi. Gylfl sagði í samtali við DV Sport í gær að hann væri enn á sömu skoðun og hann var fyrir nokkrum árum að aldurinn ætti ekki skipta höfuðmáli. „Það er mín skoðun að ef menn geta hlaupið jafnlangt þegar þeir eru fimmtugir og þegar þeir voru fertugir þá eiga þeir að fá að dæma. Það er fáránlegt að miða þetta við aldur og það sem menn ættu gera væri að herða reglurnar sem gilda um form manna. Þá myndi aldurinn ekki skipta öllu máli svo framarlega sem menn myndu halda sér í formi,“ sagði Gylfi. Tólfgóð ár Gylfi sagðist ekki geta kvartað en viðurkenndi að hann myndi koma til með að sakna þess að dæma alþjóðlega leiki. „Ég hef verið alþjóðlegur dómari undanfarin tólf ár og átt góða siglingu á þeim tíma. Ég er tiltölulega sáttur við mitt á þessum tímamótum en það er alveg ljóst að ég mun koma til með sakna þess að geta ekki lengur dæmt alþjóðlega leiki. Þeir hafa verið skemmtileg viðbót við dómgæsluna hérna heima," sagði Gylfi. Aðspurður um hvort hann myndi ekki dæma í tvö til þrjú ár í viðbótar á alþjóðlegum vettvangi ef reglunum yrði breytt svaraði Gylfi því játandi ef að hann væri ennþá talinn nægilega góður. Þarf að setja mörk Halldór B. Jónsson, formaður Dómaranefndar KSÍ, sagði í samtali við DV Sport í gær að hann væri ekki viss um að það væri endilega rétt að að láta dómara hætta 45 ára en að það væri nauðsynlegt að setja mörk. „Við höfum ekki gert neinar tillögur í þessum efnum en þess ber þó að geta að menn geta dæmt hér á landi þar til þeir eru orðnir fimmtugir. Ég veit ekki hvort að það er rétt að láta menn hætta 45 ára en ég held hins vegar að menn verði að setja I mörk. Hvar þau mörk eru erfitt að segja en einhvern veginn sé ég ekki sextugan mann fyrir mér dæma leik á alþjóða vettvangi. Það er auðveldara að láta aldurinn skera úr um þetta heldur en eitthvað annað en auðvitað eru til dómarar sem geta haldið lengur áfram. Það er oft þannig að þegar menn eldast þá verða þeir rólegri, yfirvegaðri og oft á tíðum betri dómarar. Það er hins vegar engan veginn algilt og því hef ég ekkert út á þessar reglur að setja," sagði Halldór B. Fagmaður Hann sagði að Collina yrði vænantlega saknað en að karlinn væri orðinn ríki í ríkinu. „Það skiptir engu máli hvernig hann dæmir, það er allt frá- bært hjá honum. Það er hins vegar enginn vafi á því að hann er frábær fyrirmynd fyrir unga dómara, mikill fagmaður og sennilega vinsælasti dómari heims í dag. Hans verður saknað," sagði Halldór B. Jónsson. oskar@dv.is „Það er mín skoðun að ef menn geta hlaupið jafnlangt þegar þeir eru fimmtugir og þegar þeir voru fertugir þá eiga þeir að fá að dæma." Melstaradelldin: Dæmdi úrslitaleik Manchester United og Bayern Múnchen í Barcelona árið 1999. Fleimsmeistarakeppnin: Dæmdi úrslitaleikinn á milli Brasilíu og Þýskaland í síðustu keppni í Yokohama í Japan. Collina kveður Italski dómarinn Pierluigi Collina mun hætta að dæma á Iþjóðavettvangi á næsta ári. Reuters

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.