Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Qupperneq 32
 Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090 SKAFTAHLÍÐ24 105 REYKJAVÍK[STOFNAÐ 1910 ] SÍMI550 5000 <'jr • Uppákoman á málþingi í Nýlistasafninu þegar Hannesi Lárussyni var meinað að hafa þar í frammi gjörning virðist ekki ætla að draga dilk á eftir sér. Finnur Amar myndlistar- maður, sem reyndi að fleygja Hannesi út með aðstoð Krist- ins G. Harðarssonar starfs- bróður síns, segist vera alinn upp við að vera góður við þá sem séu veikir. Allir á mál- þinginu hafi verið búnir að fá nóg af gjörningi Hannesar sem bersýnilega hafi ætlað sér það eitt að vekja athygli á sjálfum sér og gera lítið úr þeim sem á málþinginu voru: „Þetta var ekki gjörningur - þetta var egó-flipp,“ segir hann... Sjálfúr segist Hannes eiga alla uppákomuna á myndbandi því hann hafi látið taka gjörn- inginn upp. Hið sanna mun vera að upptakan sem var gerð var á vegum Nýlista- safnsins og tengdist ekki á nokkurn hátt gjömingi lista- mannsins. Þegar Hannes varpaði svo gulum klút yfir myndavélina og kom þannig í veg fýrir frekari upptökur sá saiurinn rautt... ðtrúlegt vatn Ráðhernadúttir finnur æskubrunn CÓÐ LÝsinc Ásthildur Sturludóttir, þróunar- ráðgjafi í Stykkishólmi, gefur fengið þýsku vottunarstofnunina Fresenius til að staðfesta að vatnið í heitu pott- unum í sundlauginni í Stykkishólmi sé jafn gott og í heilsulaugunum í Baden-Baden en þær þykja þær heilnæmustu í Evrópu. Ásthildur er dóttir Sturlu Böðvarssonar samgönguráð- herra: „Þetta var langt og mikið ferli," segir Ásthildur sem á sér draum um að vatn- inu verði búin betri umgjörð en nú er. Vatnið er nú í venju- legum sundlaugarpottum en ^sthndur ætlunin er að byggja náttúru- legar laugar úr steini og láta fólk þar njóta þessa einstæða vatns. „Þetta er í raun gullæðin okkar og býður upp á mikla möguleika." Vatnið góða er ættað úr borholu við Hofsstaði, í um 5 kílómetra íjar- lægð frá Stykkishólmi. Borað var eftir vatninu fyrir sex árum og óraði fáa þá fyrir því að slíkt undur sem vatnið er kæmi upp úr holunni. Sturla sam- gönguráðherra baðar sig reglulega í Alveg sturlað vatn! / vatninu og segir dóttir hans að það geri honum gott eins og öðrum. Vignir Sveinsson, sundlaugarvörð- ur í Stykkishólmi, líkir lækningamætti vatnsins í heitu pottunum við það sem best gerist í Bláa lóninu. Og rúmleg það: „Ég held að þetta sé æsku- brunnur," segir hann. Þýska vottunarstofnunin Fresenius er virt um allan heim og hefur þegar vottað ýmislegt í íslensku umhverfi. En að líkja vatninu í heitu pottunum í Stykkishólmi við heilsulindirn- ar í Baden-Baden þykir með ólíkindum enda er sá staður með þekktari heilsubrunnum heims. „f þessu vatni er engin klór eða aukaefni og til að halda pottunum hreinum látum við renna 6 þúsund lítra af vatni í gegnum þá á klukku- stund," segir Vignir í sundlauginni og þakkar sínum sæla fyrir að nóg sé til af vatninu í holunni við Hofsstaði. Vignfr i vatninu Sundlaugarvörð- urinn i Stykkishölmi fínnur æsku- þrótt um sig liða I hvert sinn sem hann baðar s/g i vatninu úr borhol- unni við Hofsstaði. Ásthildur, dóttir ráðherrans, gat þvi miður ekki verið nieð ámyndinni þar sem hún lá heima með 40 stiga hita. Útiveggljós 60w verð óður kr .4,400.- verð nú kr 2.750.- Útiveggljós 60w verð áður kr 4.560.- verð nú kr 2.750. Útiveggljós 60w verðáður kr 4.560.-J verð nú kr 2.750,- Reis hold í Dýrafirði „Hemmi er í stuði og miklu sprækari nú en hann var áður en hann dó,“ segir sjónvarpsmaðurinn Jón Ársæll Þórðarson, sem staddur er í Dýrafirði ásamt goðsögninni Hemma Gunn. Er sá fyrrnefndi að gera sjónvarpsþátt um þann síðarnefnda og þótti við hæfi að taka hann upp á heimavelii Hemma fyrir vestan. „Við erum á orkumesta stað á landinu," segir Hemmi og á þar við línu sem dregin er í Dýrafirði frá Arnarnúpi og yfir í Koturshorn í Haukadal þar sem Gísli Súrsson bjó. „Orkan er þvílík að okkur Hemma hefur báðum risið hold,“ bætir Jón Ár- sæll við. „Annars komumst við vart úr sporunum hér því Hemmi þekkir hvern stein og hól og þarf að kyssa þetta allt eða heilsa. Þá er erfitt að átta sig á því hvað er þessa heims eða annars hér um slóðir. Hér er afturganga sem heitir Gunnhildur og ég er ekki frá því að hún hafi sofið í rúminu hjá mér í nótt." Heimsókn Jóns Ársæls í Dýrafjörðinn kemur beinl ofan í deilur sem í sveitinni eru um meint kvennafar Hemma Gunn. Á vefnum thingeyri.com er því haldið fram að Hemmi hafi sést oftar en einu sinni með bláklæddri konu, hönd í hönd á ísalögðu svelli og saman hafi þau horfið upp í Muso-jeppa: „Þetta er dýrfirskur húmor. Bláklædda konan á að vera níræð og það er of gamalt fyrir mig. Ég er kvenmannslaus eins og er en það kemur," segir hann. Hemmi verður á skjánum hjá Jóni Ársæli á Stöð 2 um næstu helgi ef allt fer að óskum fyrir vestan. GÓÐ ÚTILÝSING SKIPTIR ÖLLU MÁLI. Erum með úrval úti- og innitjósa á góðu verði Kiktu til okkar ef þig vantar réttu lýsinguna, við höfum lausnina fyrir þig FRÁBÆRT VERÐ Á LJÓSUM j 1 « « Utíveggljós 100w verð áður kr 5.999.- Útiveggljós 100w verð áður kr 6.850.- Útiveggljós 100w verð áður kr 6.850.- -= L. _ Útíveggljós 100w verð áður kr 9.550.- verð nú kr 3.450. | \ verð nú kr 7.750. L / Útiveggljós 100w verð áður kr 6.850.- verð nú kr 2.750,- Útiveggljós 100w 1 verð áður kr 6.850,- Iverð áður kr 6.380.- verð nu kr 3.450.- / 11 imJLJ 11 Útiveggljós 100w verð áður kr 6.850.- Útíveggljós 100w verð áður kr-6.850.- verð nú kr 2.750. Utíveggljós 100w verð áður kr 5.999 \ Útíveggljós 100w verð áður kr 5.999,- 750. verö nú . kr 4.450. ■ verð nú kr 4.450.- p: voor frnpurt & Expori ehf Ougguvogur 3/2.hæð • 104 Reykjavík • Símí 581 2222 • Fax 581 2223

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.