Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Page 3
DV Fréttir LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 3 Fræðimaður deyr Spurning dagsins Forstjórar gráðugir úr hófi fram? Jakob F. Ásgeirsson, alræmdur fáni í munni almennings (ég er ekki sú pempía að telja það óviður- kvæmilegt að víkja orðum að því í virðulegu blaði sem fólk er að tala um sín á milli úti um allt í þjóðfélag- inu í kjölfar greinaskrifa hans), hefur lagt sig í líma við að fremja akademískt sjálfsmorð á síðum blaðanna undanfarið. Ástæða þess hve mikinn hann hefur farið með penna sínum er sú að allir sem ætla má að hafi meira vit á bókmenntum og sagnfræði en hann virðast vera á einu máli um að ævisaga Valtýs Stef- ánssonar, sem hann færði í letur, sé afleit. Stjórnmálafræðifúx Vissulega er það broslegt þegar stjómmálaffæðifúx, ef marka rná Fréttablaðið, þykist vita betur hvað geri ævisögur góðar heldur en þeir sem getu hafa haft til að standast doktorspróf í sagnfræði og bók- menntafræði. Einkum eru viðbrögð hans þó brosleg vegna þess hve vel þau lýsa vænisýkinni sem einkennir viðbrögð harðsvíraðra Sjálfstæðis- ílokksíhalda eins og Jakobs við gagnrýni á verk þeirra. Þau eru svo Davíð Þór Jónsson gagnrýnir Jakob F. Ásgeirsson harðlega. Kjallari sannfærð um að í hvert sinn sem þeim er ekki hossað að tilefnislausu, eins og þau eiga að venjast, Séu þau að gjalda stjórnmálaskoðana sinna og leita ástæðnanna fyrir gagnrýn- inni alls staðar annars staðar en í því sem gagnrýnin beinist að; verkun- um sjálfum. Og það jafnvel þótt hægt sé að sýna fram á það með ein- földum hætti að verkin brjóti í bága við flestar viðurkenndar reglur fræð- anna um fagleg vinnubrögð - ef ekki landslög. Fúllyndur gagnrýnandi Hvað telur Jakob liggja að baki neikvæðri umfjöllun honum fróð- ari manna um bók hans? Jú, hann hefur tínt það til: Gagnrýnandinn, doktor í sagnfræði, er óuppdreg- inn, fúllyndur, smásmugulegur og hefur óaðlaðandi sjónvarpsfram- komu. Einkalíf sjónvarpskonunnar, Menntamálaráðherrann Velgerð mann- eskja og hæfileikarik. Þorgerður í meðbyr Lesandi skrífar. Miklar væntíngar eru bundnar við störf Þorgerðar Katrínar Gunn- arsdóttur í embætti menntamála- ráðherra og hér fylgja henni góðar óskir um að vel takist til. Aftur á móti er best að allir hafi varann á, þó svo Lesendur að Þorgerður sér einkar vel gerð manneskja og hæfileikarík. Þannig hefur hún verið í meðbyr allan sinn stjórnmálaferil. Aðeins notið já- kvæðrar athygli og auðvitað blómstra allir við slíkar kringum- stæður! Þegar stjórnmálamaður er hins vegar kominn í umsvifamikið ráðu- neyti og hefur undir málaflokka sem ólíkar skoðanir eru uppi um er trú- legt að siglingin verði ekki jafn auð- veld. Þorgerður Katrín þarf sem ráð- herra menntamála að sigla í gegnum brimgarð og meðfram boðum og sú spurning er áleitin hvort hún komi fleyinu heilu í höfn þegar kjörtíma- bilið er á enda. Fígúrur og fiskur undir steini Sigríður Pálsdóttir hríngdi: Keppni Stöðvar 2 um Idol-stjörnu ársins, sem nýlega er afstaðin, snerist ekki nema að óverulegu leyti um hver keppenda kynni best að syngja eða gæti af mestri snilli umgengist þá tólf tóna sem þarf að raða saman svo úr verði lag. Öllu heldur snerist keppnin um að búa til fyrirmyndir í þjóðlífinu, sem sfðan verða notaðar sem auglýs- ingafi'gúrur eða fyrirmyndir í hinum aðskilanlegustu málum. Áður en að lokakeppninni kom voru þeir þrír söngvarar, sem hana þreyttu, til dæmis farnir að sjást í auglýsingum um Kókakóla og kartöfluflögur - og í framhaldinu munum við sjá þau víð- ar. Allt ber þetta vott um hræðilegt menningarleysi og að baki Idol- keppninni sé ekki mildl innistæða. Sigurvegarinn kemur úr Grindavík og þar í bæ hefur honum verið fagnað innilega. En hvað býr að baki? Rifja má upp að fyrir tæpum þrjátíu árum var gerð sjónvarpsmyndin Fiskur undir steini, en boðskapur hennar var að hvergi sem þar væri mannlífið jafn menningarsnautt. Fólkið stritaði í fiskinum dagana langa en lyfti sér svo á kreik um helgar og það með lág- kúrulegum hætti. Ekki skal dæmt um hvort sigur- gleði Grind- víkinga helg- ast af lágkúru, en undarleg er hún engu að síður. Vonum samt að Kalli Bjami haldi lagi og syngi Suðurnesin inn á kortið - enn betur en orðið er. Kalli Bjarni Syngur Suðurnesin inn ó kortið sem hafði það hlutverk að spyrja gagnrýnandann hvað honum fynd- ist, hefur verið til umfjöllunar í Séðu og heyrðu og hún því verið á milli tannanna á kjaftatífunum sem Jakob umgengst. Alltjent hafði ég ekki heyrt hana kallaða tálkvendi fyrr en Jakob gerði það. Hvernig hægt er að setja samasemmerki á milli þess að vera tálkvendi og vera illa við Jakob er síðan öllum nema honum sjálfum hulin ráðgáta. Enn fremur eru þau bæði illa innrætt og dæmdu bækurnar eftir innræti sínu. Guðni Elísson, doktor í bók- menntafræði, gagnrýndi þetta, en Jakob telur þá gagnrýni ekki byggða á neinu sem hann sagði heldur ein- göngu því að Guðni sé hugsanlega kjósandi Samfylkingarinnar (sann- leikann um það veit Guðni einn) og hafi aukinheldur einu sinni farið með ýkjur í frásögn af litskyggnu- sýningu hjá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni. Brenglað raunveruleikaskyn Auðvitað þarf alveg sérstakfega brenglað raunveruleikaskyn til að telja þessar skýringar á neikvæðri gagnrýni sennilegri en þá sem liggur í augum uppi - að bókin sé vond. Það skal viðurkennt að ég hef ekki lesið hana, enda er hún ekki til um- fjöllunar hér. Sé hún hins vegar jafn- vönduð og greinaskrif Jakobs upp á síðkastið efast ég ekki um að hún verðskuldi fyUilega að hafa verið til- nefnd til verðlauna fyrir að vera næstum því jafnmerkilegt afrek og að ljósrita æviminningar HaUdórs Laxness. Framvegis mun enginn með viti lesa orð af því sem hrýtur úr penna Jakobs nema í þeim tilgangi að glotta að því hvaða blóraböggla hann hafi nú fundið íyrir getuleysi sínu. Það gefur augaleið að hann er að leita afar langt yfir skammt þegar hann finnur ástæður þess að hann nýtur ekki þeirrar virðingar, sem hann telur sjálfur að honum beri, í fasi, einkalífi og stjórnmálaskoðun- um annarra en sjálfs sín. DV tekur við lesendabréfum og ábendingum á tölvupóstfanginu lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að stytta allt það efni sem berst til blaðsins og birta það í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Laun alltaf þrætuepli „Almennt eru þeir það ekki. Mér fínnst það t.d. ekki tákn um græðgi að forstjóri SlF, stærsta fyrirtækis á íslandi, fái rúmar 2 milljónir á mánuði.Að vísu telég menn teygja sig óþarf- lega langt með því að hann þiggi full for- stjóralaun í rúmlega þrjú og hálft ár eftir að hann lætur afstörfum. Yfírleitt er um eitt ár að ræða í samningum forstjóra. En menn gleymi því ekki að forstjórar ákveða ekki laun sín sjálfír. Það erí verkahring eigenda fyrirtækja að ákveða laun forstjóra. Því meiri kröfursem eigendur gera um hagnað þeim mun meiri líkur eru á að þeir umbuni forstjórum sínum. Laun forstjóra eru og verða alltafþrætuepli." Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar. „Forstjóri SÍF virðist hafa lið- lega húsbænd- ur úr því hann fær svona samning. Sjálf- um finnst mér þetta einum of. Aimennt launafólk fær ekki svona samninga. Verkalýðshreyfíngin hefur oft mótmælt þessu en ég býst ekki við að við mótmælum þessu tiltekna máli." Halldór Björnsson, formaður Starfsgreinasambandsins „Viðgetum ekki dæmt hópinn, en margir starfs- lokasamning- ar, sem og sér- stakar ívilnanir forstjóranna, eru í engu samræmi við það samfélag sem við lifum í. Og alltafborga neyt- endur; í þjóðfélagi sem þekkt er fyrir fá- keppni og hátt vöruverð." Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB „Svona samn- ingar eru gerð- ir sameigin- lega afstjórn og forstjórum og vissulega vitna þeir um sérstakt verð- skyn. Athyglis- vert er að þessi umræða skuli koma upp nú, þegar verið er að skera hvarvetna niður í ríkiskerfinu og við teljum okkur ekki hafa efni á að sinna sjúkum, á meðan t.d. utanríkisþjónust- an tútnar út." Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM „Ekki endilega. Þeir ráða því ekki nema að hluta til sjálfír hver laun þeirra eru; taka því sem að þeim er rétt en reyna eins og allir aðrir að fá jafn mikið og býðst. Stjórnir fyrir- tækja bera ábyrgðina og æsa upp græðgina í annars oft hófsömum ágæt- ismönnum." Jóhannes Sigurjónsson, ritstjóri á Húsavík Forstjóri SfF segir upp og fær 84 milljóna starfslokasamning. Fleiri forstjórar hafa verið leystir út með greiðslum upp á milljónatugi. TILBOÐ I HÁDEGINU VIRKA DAGA OLD WE5T ÓDÝRT OG GOTT STEIKMUS LAUGAVECH J7G * GAMLA SJÓNVARRSHÚSINU FRÍ ÁBÓT Á GOS SVINARIF HAMBORGARAR KJÚKLINGABORGARAR KJÚKL1NGABRINGUR NAUTAS 11IKLJR SALAT ALVÖRU FRANSKAR -NÝTptíMHVERFI ^NÝTT BRAGÐ fasteignasölur habil.is -fasfe/gn/rá notinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.