Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 Fréttir DV Tekin á Litla- Hrauni með e-pillur og amfetamín Kona á þrítugsaldri var tekin með e-pillur og am- fetamín á Litla-Hrauni á miðvikudag. Hún var í venjulegri heimsókn til sambýlismanns síns sem afplánar dóm í fangelsinu. Um var að ræða 20 e-pillur og ca 5 grömm af am- fetamíni. Samkvæmt upplýsing- um frá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi lék grunur á að hún væri með fíkniefnin innanklæða. Þau fundust svo við leit á henni og var lögreglan á Selfossi kölluð til. Við yfirheyrslur hjá lögreglu viðurkenndi hún brot sitt og var sleppt úr haldi að því loknu. Lögreglan segir að ekki sé endanlega staðfest að duftið sem hún var með sé amfetamín en fyrstu próf- anir bentu til þess. Var duftið sent til tæknirann- sóknarstofu lögreglunnar. Stakktvo með skrúfjárni Héraðsdómur Reykja- víkur dæmdi í gær rúmlega tvítugan mann í átta mán- aða fangelsi skilorðsbundið fyrir líkamsárás gagnvart tveimur mönnum. Atburð- urinn varð fyrir utan skemmtistaðinn Diablo við Austurstræti í mars 2002. Maðurinn lenti í rifr- ildi við tvo menn sem endaði með því að hann stakk annan þeirra þrisvar og hinn tvisvar með stjörnuskrúf- járni. Héraðsdómur segir manninn „sannanlega" vera upphafsmann átak- anna og hafnar því að um sjálfsvörn hafl verið að ræða. Refsingin lækkar þar sem maðurinn hefur farið í áfengismeðferð. Síbrotamaður dæmdur Héraðsdómur dæmdi karlmann á fertugsaldri í nfu mánaða fangelsi í gær fyrir að hafa brotist inn á hárgreiðslustofu í apríl í fyrra og stolið ýmsum munum, svo sem bart- skurðarvél, hárblásara, snyrtivörum og hnffapör- um. Maðurinn var jafn- framt ákærður fyrir fjögur tilvik þar sem hann var staðinn að verki við að brjótast inn á Elliheimilið Grund og í húsnæði leikfé- lags við Laufásveg. Maður- inn játaði brotin fyrir dómi. Hann hefur hlotið níu refsi- dóma frá 18 ára aldri og nokkrum sinnum verið dæmdur í fangelsi. Framkvæmdastjórinn á veitingastaðnum Hard Rock bannaði starfsfólkinu að borða hamborgara í þeim tilgangi að megra það. Sami framkvæmdastjóri er til meðferðar hjá stéttarfélögum vegna kjarabrota á ungu fólki. Hard Roek Starfí- fálk itar sett á megr- unarfæði i haust vegna meintrar of- nn • ■fHf fpEI HkgII fpr BI 8 h^K HH, WF 1, ' 91 ; B H^H- W ‘| íí Hk í:1 'i i m Y-Jvm /L * II *B^H ' JlBÍ HH l 1 i • I jypgff; Starfsfólki á Hard Rock Café var bannað að borða hamborgara í haust til að bæta holdarfar sitt. Að því er nokkrir starfsmenn segja mun fram- kvæmdastjórinn, Jón Garðar ögmundsson, hafa lýst því yfir á fundi að starfsfólkið væri of feitt og í kjölfarið var komið á megrunarfæði £ þeim til- gangi að megra það. Aður hafði starfsfólkið neytt þess matar sem Hard Café hefur upp á að bjóða, mestmegnis hamborgara og franskra kartaflna. Á nýja matseðli starfsfólksins var boðið upp á salat, súpur og brauð, sem sérstaklega var eldað fyrir starfsfólkið. Nokkrar kvartanir bárust til stéttarfélaga vegna breytinganna, en þær beindust einkum að því að fyrstu vikur heilsuátaksins var óreiða ríkjandi um matinn og starfsmenn fengu á köflum ekki máltíð yfir daginn, en fyrirtækið átti að útvega tvær mál- tíðir á dag. „Starfsfólkið átti að hætta að borða hamborg- ara og franskar. Það var vissulega hugsun á bak Framkvæmdastjórinn Jón GarðarÖgmundsson fram- kvæmastjóri á Hard Rock er til meðferðar hjá stéttarféiögum vegna fjölda kæra frá starfsmönnum á Pizza Hut um kjara- brot. við það, af því að það væri óhollt að borða svona mikið af hamborgurum. Hins vegar eru starfs- mennirnir flestir þvengmjóar stúikur á við- kvæmum aldri og það er ekki rétt að kalla þær feitar," segir Svava Þorsteinsdóttir BS í hótel- og veitingastjórnun og fyrrum veitingastjóri á Hard Rock og Pizza Hut. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV liggja einnig tugir kæra á borði stéttarfélaga vegna kjarabrota Jóns Garðars framkvæmdastjóra þegar hann stýrði veitingastaðnum Pizza Hut. Málin varða brot á lögboðnum 11 tíma hvfldartíma og eru til meðferðarhjástéttarfélögunum. Starfsfólk- ið kvartar meðal annars undan því að hafa ekki fengið greitt þegar það kom til starfa að morgni innan 11 tíma frá því störfum lauk kvöldið áður. Auk þess var f nóvember sfðastliðnum til- kynnt til stéttarfélags um árás framkvæmda- stjórans á starfsmann Hard Rock og lagt fram áverkavottorð því til sönnunar, auk þess sem lögregla tók skýrslu af starfsmanninum. Starfs- maðurinn og framkvæmdastjórinn eru tvísaga um atburðarásina, en sá fyrrnefndi samþykkti sátt í málinu, lét af störfum og hlaut uppsagnar- frest borgaðan. Jón Garðar framkvæmdastjóri neitar því í samtali við DV að um árás hafi verið að ræða, hins vegar hafi komið til orðaskaks og var starfsmaðurinn látinn fara vegna þess að hann hafi ekki staðið sig í starfi. jontrausti@dv.is Lifi bókaútgáfa ríkisins Svarthöfði stökk hæð sína í loft upp í fullum herklæðum eftir að DV birti af því fféttir að fyrstu tvö bindin af sögu stjórnarráðsins væru eftir allt saman væntanleg á hundrað ára af- mæli heimastjórnarinnar í byrjun febrúar. Svarthöfði var farinn að ótt- ast að ekkert yrði af útgáfu verksins, enda hafði lítið til þess frést síðan það var kynnt með mikilli viðhöfn fyrir mörgum árum. Og það hefði Svarthöfða þótt afleit niðurstaða, enda er hann sérstakur aðdáandi hinnar vönduðu útgáfu sem hið op- inbera stundar, einkum á sínum eig- in afmælum. Svarthöfði er til dæmis einlægur aðdáandi þeirrar glæsilegu kristni- sögu sem hið opinbera gaf íslensku Svarthöfði þjóðinni á 1000 ára afmæli kristni- tökunnar á íslandi árið 2000. Það voru þrjú eða fjögur glæsileg bindi og þar skrifuðu ýmsir höfundar af því- líkum þrótti og svo persónulegum stfl að - eins og Gunnar Karlsson prófess- or benti einhvers staðar á, og taldi verkinu til tekna - að ekki var nokkur leið að segja til um það hvar texti Lofts Guttormssonar endaði og hvar texti Þórunnar Valdimarsdóttur byrj- aði, en þau hafa þó ekki þótt beinlín- is lflcir sagnfræðingar hingað til. Að takast að fletja svo út texta þeirra beggja að engin misfella var á, það þykir Svarthöfða glæsilegt afrek. Hann er að vísu ekki búinn að lesa bækurnar til enda, þrátt fyrir ítrekað- ar tilraunir, enda eru þær næsta ger- ilsneiddur þuludómur, en þær fara mjög vel í hillu og það var nú líklega það sem að var stefnt. Þá dáist Svarthöfði takmarkalítið að þeirri glæsilegu útgáfu Alþingis sem heildarútgáfa á verkum Snorra Sturlusonar var, en þar var fyrirvara- laust fylgt þeirri kenningu Halldórs Blöndals forseta Alþingis að Snorri hefði skrifað Egilssögu. Búast hefði mátt við umræðum og jafnvel kvört- unum fræðimanna vegna þessarar djörfu niðurstöðu, sem vissulega hef- ur þótt lfkleg en enginn treyst sér til að slá föstu fyrr en Blöndalinn tók af skarið. En engir fræðimenn nenntu að gera veður út af þessu, því þetta var bara íslenska rfldð að delera í einu gæluverkefninu enn. Og nú er sem sagt von á sögu stjórnarráðsins, sem án efa verður spennandi verk, sér í lagi vegna þess að Björn Bjarnason er ritstjóri og hann er auðvitað alveg hlutlaus, enda í bókunum ijallað bæði um ráð- herradóm hans sjálfs og föður hans, og Björn er auðvitað rnanna best fall- inn til að hafa umsjón með því verki. Ekki verður síður spennandi að sjá þriðja bindið þar sem Jakob F. Ás- geirsson mun íjalla af hlutlægni og þó gagnrýnni afstöðu um forsætis- ráðherratíð Davíðs Oddssonar. Svaithöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.