Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Side 6
6 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 Fréttir DV Heimir Gunnar Hansson og Svanur Karl Friðjónsson björguðust þegar bátnum þeirra hvolfdi í Grinda- víkurhöfn í gær. Þeir lentu í sjónum og héldu að þeir myndu deyja. Björgunarmenn úr Grindavík komu þeim til bjargar. Svanur sagði konu sinni að hann hefði þraukað fyrir börnin sín. Heimir hugsaði mest um bjargarlausan félaga sinn á meðan hann hélt sér á floti í öldurótinu. Skjót viðbrögð heimamanna „SVo steyptist skipið fram yfir sig og við hringdum strax i ra Neyðariinuna. * íjá mínúta gæti skilið milli lífs og dauða," segir Sigurður, sem vegna mikils öldugangs gat lítið annað gert en að kalla á hjálp. „Það er hræði- legt íyrir sjómann að standa og horfa á félaga sína berjast fyrir lífi sínu en sem betur fer end- aði þetta vel.“ Sjómennirnir hinar sönnu hetjur Viðmælendur DV eru sammála um að björgunarsveitin hafi unnið ótrúlegt starf. Heiðar Elís Helgason björgunarsveitarmaður komst í hann krappan þegar stór alda gekk yfir þá meðan hann var að fjarlægja netaflækjur úr Sigurvini GK. „Við fengum stórt brot yfir okk- ur,“ segir Heiðar. „Ég kastaðist til og fékk þungt högg á höfuðið." Þrátt fyrir slæma kúlu á enninu eru meiðsl Heiðars ekki talin alvar- leg. „Maður harkar þetta auðvitað af sér,“ seg- ir Heiðar og gefur ekki mikið fyrir að björgun- arsveitin hafi drýgt sérstaka hetjudáð. „Hinar Sigurvin GK 61 „Það siðasta sem flaug Igegnum huga hans var að hann yrði að þrauka fyrir börnin sin. “ sönnu hetjur voru sjómennirnir tveir sem gáfust aldrei upp,“ segir Heiðar. „Aðalatriðið er að þeir eru heilir á húfi." Vonaði hið besta Eins og áður kom fram er Heimir Gunnar Hansson þegar kominn heim af spítala. Hann segist ætla að taka því rólega næstu daga en býst við að leggja aftur frá bryggju á mánudag- inn kemur. Félagi hans, Svanur Karl Friðjóns- son, er verr á sig kominn og treysti sér ekki til að tala við fjölmiðla. „Hann var voðalega hvít- ur og þjakaður þegar ég sá hann á spítalanum í dag,“ segir Sigríður Ingólfsdóttir, unnusta Svans. „Ég var samt svo glöð að sjá hann á lífi að allt annað sjcipti ekki máli.“ Sigríður segist hafa fengið sjokk þegar hún heyrði fréttimar. „Maður vonaði bara hið besta enda ekkert annað hægt," segir Sigríður. „Hann sagði svo við mig áðan að það síðasta sem flaug í gegnum huga hans var að liann yrði að þrauka fyrir börnin sín. Þetta er hörku- sjómaður." simon<a>dv.is Flaggað í hálfa Blessunarlega lést enginn islysinu en skipstjóri varjarðaður og bærinn syrgði, allursem einn. Heimir og Guðbjörg Aðalbergsdóttir, eiginkona hans Bjargaðist naumlega úr sjávarháska og segir það kraftaverki llkast að ekki fór verr. hvern veginn hélt maður sér alltaf á floti." Að sögn björgunarsveitarmanna eiga björgunar- vesti stóran þátt í því að Heimir og Svanur sluppu lifandi. „Ég held að það hafi líka skipt máli að ég reyndi alltaf að halda ró minni," segir Heimir. Honum tókst að komast upp á brú Sigurvins og ýta á neyðarsendi. „Það vom samt viðbrögð björgunarsveitarinnar sem skiptu höfuðmáli. Þetta em þvílíkir menn og ég á þeim mitt líf að þakka." Guðbjörg Aðalbergsdóttir, eiginkona Heimis, fékk fréttirnar í hádeginu. „Þetta var auðvitað aigjört sjokk," segir Guðbjörg. „Ég treysti mér ekki niður á bryggju til að skoða að- stæður og það var afar erfitt að þurfa að út- skýra fyrir dóttur minni að pabbi hennar hefði lent útbyrðis." Guðbjörg segir að Heimir hafi verið í miklu sjokki þegar hún talaði við hann skömmu eftir slysið en nú væri hann kominn heim af spítalanum. „Ég er norðanmaður og hef óbeit á sjúkra- húsum," segir Heimir og bætir við: „Ef ég get labbað og talað þá skiptir annað ekki máli." Heimir er búinn að stunda sjóinn með hléum síðan hann var 16 ára og er ekki á því að leggja sjómennskuna á hilluna. „Ekki á morgun, alla- vegana," segir Heimir, þreyttur og þrekaður eftir örlagaríkan dag. Börðust fyrir lífi sínu Sigurður Garðar Steindórsson, sjómaður á Sólnesinu, varð vitni að því þegar Sigurvini GK hvolfdi við brimgarðinn. „Eg var í bíltúr með konunni minni og vissi strax að eitthvað var að gerast," segir Sigurður. „Svo steyptist skipið fram yfir sig og við hringdum strax í Neyðar- línuna." Sigurður varð fyrstur til að tilkynna um slysið og segir að reynsla sín af sjómennsk- unni hafi hjálpað sér að meta aðstæður. „Um leið og ég sá mennina í sjónum gerði ég mér grein fyrir því hve alvarlegt ástandið var; að „Ég var gjörsamlega búinn á líkama og sál,“ segir Heimir Gunnar Hansson, 28 ára sjómað- ur á Sigurvini GK 61, sem hvolfdi í innsigling- unni við Grindavíkurhöfn í gær. „Við vorum úti en ákváðum að snúa við þegar við heyrðum spána sem var afar vond,“ segir Heimir. „Svo kom yfir okkur brotsjór og það næsta sem ég vissi var að við vorum í lausu lofti.“ Bátnum hvolfdi. Heimir og félagi hans Svanur Karl Friðjónsson lentu báðir í sjónum. Heimir reyndi að komast um borð í gúmmf- björgunarbát sem hvolfdi einnig. „Meðan ég lá þarna í sjónum fóru ótrúlega margar hugsanir um höfuðið á mér,“ segir Heimir. „Aðallega var mér annt um félaga minn sem rak frá mér og ég vissi að hann var þarna bjargarlaus." Heimir segir erfitt að gera sér grein fyrir því hve lengi hann var í sjónum. „Maður missir allt tímaskyn og mér fannst mínúturnar ógur- lega lengi að líða," segir Heimir, sem var rúm- lega tuttugu mínútur í köldum sjónum áður en björgunarsveitarmenn komu á staðinn. Björgunin var kraftaverk „Mér finnst það í raun vera kraftaverk að þeim tókst að bjarga okkur," segir Heimir. „Ég var sjálfur löngu búinn að gefast upp en ein- Sjóslys í Grindavík „Svo kom yfir okkur brotstjór og það næsta sem ég vissi var að við vorum i lausu lofti."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.