Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004
Fréttir DV
Sigríður hætt-
ir hjá RÚV
„Mér býðst gott tækifæri
og þeir sem bjóða mér það
hittu á réttu stundina," seg-
ir Sigríður Árnadóttir sem
er að hætta á fréttastofu
Útvarps eftir 20 ára starf.
Hún segist hafa verið farin
að hugsa sér til hreyfmgs
en hún sé langt því frá
þreytt. Sigríður hóf störf hjá
RÚV sem sendill fyrir 29
árum en hefur síðustu árin
verið varafréttastjóri á Út-
varpinu. „Mér finnst frétta-
stofan hafa orðið útundan
síðustu misseri og mér
finnst ekki alveg sömu
áherslur í stofnuninni og ég
vildi hafa,“ segir Sigríður.
Meirihluti útvarpsráðs
mælti með Sigríði í starf
fréttastjóra á Sjónvarpinu í
fyrra en útvarpsstjóri réð
Elínu Hirst. Sigríður segist
ekki vilja upplýsa hvert hún
fari að vinna.
Tekinn aftur
og settur í sex
víkna gæslu
Annar mannanna sem
brutust inn í ljósmynda-
stofú Jóhannesar Long við
Ásholt var tekinn aftur nú í
miðri vikunni og settur í
sexvikna gæsluvarðhald.
Var hann staðinn að ýms-
um smábrotum, m.a. að
hafa framvísað fölsuðum
tékka í banka á miðviku-
dag.
Eins og kunnugt er af
fréttum var brotist inn á
ljósmyndastofuna um
síðustu helgi og þaðan
stolið tækjum og mynda-
vélum upp á milljónir
króna. Mennirnir tveir náð-
ust á eftirlitsmyndavél sem
komið hafði verið fyrir á
stofunni og lögreglan var
fljót að átta sig á um hvaða
menn var að ræða, enda
báðir þekktir vegna fyrri af-
brota. Voru þeir handteknir
skömmu síðar. Annar
þeirra var sendur strax í af-
plánun á nýlegum dómi og
nú er hinn kominn bak við
lás og slá næstu sex vikur.
Anna Katrín Guðbrandsdóttir
Idol-keppandi og menntaskóla-
nemi.
„Ég hefþað alveg ótrúlega
fínt, fyrir utan það að ég er að
byrja í miklum prófum í byrjun
næstu viku. Ég fékk að taka
Hvað liggur á
prófin seinna út af keppninni.
Annars lauk prófunum hjá
öðrum núna í vikunni. Það er
æðislegt að hitta alla vinina
aftur hérnaá Akureyri, “ segir
Anna Katrín, sem er ekki af
baki dottin. „Ég er á fullu að
syngja núna fyrir sjálfa mig og
held mér íæfingu. Ég á tíu ár
ennþá í Kalla Bjarna, þannig
að þetta er ekkert mál."
Lokun bráðamóttökunnar við Hringbraut um helgar hefur vakið hörð viðbrögð.
Ljóst er að sekúndur skilja milli feig og ófeigs þegar kransæðastífla er annars veg-
ar. Á deildinni er starfsfólk með sérþekkingu sem bregst skjótt við og bjargar
mannslífum.
Hallgrímur Árnason
Efekki hefðu komið til skjót
viðbrögð sérþjálfaðs fagfólks
á bráðamóttökunni væri
hann ekki til frásagnar nú.
Eggert Skúlason
talsmaður
Lanssamtaka
hjartasjúklinga
telur niðurskurðinn
þýða það eitt að fleiri
muni deyja
Lokun bráðamóttökunnar á Landspítala við
Hringbraut um helgar hefur vakið hörð mót-
mæli. Hjartasjúkdómafélag íslenskra lækna,
Fagdeild hjartahjúkrunarfræðinga og Lands-
samtök hjartasjúklinga hafa sent frá sér harð-
orðar yfirlýsingar vegna málsins og benda á að
það kunni að kosta mannslíf að hafa deildina
ekki opna áfram um helgar. Bent er á að sek-
úndur skilji á milli feigs og ófeigs og að sjúk-
lingar með bráða kransæðastíflu þurfi tafar-
lausa meðferð.
Skorað er á framkvæmdarstjórn LSH að end-
urskoða þessa afstöðu sína og óttast læknarnir
að sú sérhæfing, sem hefur þróast á deildinni,
muni tapast með helgarlokuninni. í yfirlýsingu
hjartahjúkrunarfræðinga
segir að skjót og örugg
meðferð geti gjörbreytt
batahorfum hjarta-
sjúklinga og fækkað
legudögum. Því fyrr
sem meðferð hefjist
því minni líkur séu á
alvarlegri skemmd í
hjartavöðva og þar
með dregið úr líkum á
alvarlegum fylgikvill-
um.
„Ég hefði ekki boðið í það ef
þetta hefði gerst um helgi og
ég þurft að þvælast inn í Foss-
vog fyrst og síðan á Hring-
braut."
Bráðamóttakan skipti sköpum
Hallgrímur Árnason er einn þeirra hjarta-
sjúklinga sem hafa fengið afbragðs þjónustu á
bráðamóttökunni við Hringbraut. Hann er að
jafna sig eftir hjartaáfall sem hann fékk fyrir
rúmum tveimur vikum en taiið er að ef ekki
hefðu komið til skjót viðbrögð sérþjálfaðs fag-
fólks á deildinni væri hann ekki til frásagnar
nú. „Ég fékk flensu og var slappur þannig að ég
fór ekki í vinnuna þann daginn. Lfm kvöldið
þegar ég var að fara að sofa fann ég svo til í
bakinu að ég gat ekki sofnað. Ég var kvefaður
og talsvert fast ofan í mér og var hræddur um
að ég væri kominn með lungnabólgu. Eftir að
hafa tekið verkjalyf án þess að verkurinn lagað-
ist hringdi konan á lækni en ég var þá farinn að
kasta upp. Hann kom og var í vafa um hvað
hann ætti að gera en þegar ég sagði honum að
bróðir minn hefði fengið kransæðastíflu 35 ára
þá hikaði hann ekki lengur og kallaði á
sjúkrabíl.“
Meðhöndlun lokið innnan
þrigga stunda
I sjúkrabílnum voru vinnu-
brögðin fumlaus og örugg og
þegar hann kom á spítalann var
tekið fagmannalega á móti hon-
um. „Hver maður vissi hvað
hann var að gera og sérfæðingar
voru til staðar um leið og ég kom,“
segir Hallgrímur
Hann segir að eftir það hafi
allt gerst með ótrúlegum hraða og var hann
kominn á skurðarborðið áður en hann vissi af.
„Ég var drifinn í aðgerð og um það bil tveimur
og hálfum tíma eftir að ég hringdi á lækninn
heima var mér ekið út af skurðstofunni. Ég
fékk að vita það eftir aðgerðina að ekki hefði
mátt neinu muna. Ég hefði ekki boðið í það ef
þetta hefði gerst um helgi og ég þurft að þvæl-
ast inn í Fossvog fyrst og síðan á Hringbraut.
Það hefði þurft að kalla út fólk og guð má vita
hvort ég hefði lifað þá bið af,“ segir Hallgrímur,
sem er aðeins 45 ára en er nú við hestaheilsu
og hefur sjaldan liðið betur. Hann þarf þó að
hafa hægt um sig því hann þarf aftur í aðgerð
til að laga aðra æð sem er stífluð.
Jón Birgir Pétursson blaðamaður hefur
svipaða sögu að segja. Hann var sendur beint á
bráðamóttökuna þegar hann fékk skyndilega
kransæðastíflu seinni hluta dags. „Það var
frábærlega tekið á móti mér og hver maður á
bráðamóttökunni vissi hvað hann var að gera.
Það fyllti mig miklu öryggi að vera kominn í
hendur þessa fólks og ég vissi að ég þyrfti
ekkert að óttast. Sérfræðingar biðu eftir mér og
fundu út hvað væri að. Eg fór svo í aðgerð
þremur vikum síðar. Nokkur ár eru nú liðin og
mér hefur aldrei liðið betur,“ segir Jón Birgir
og er alveg gáttaður á stjórnmálamönnum eins
og Jónínu Bjartmarz, sem heldur því fram að
þessar aðgerðir komi ekki niður á neinum.
Eggert Skúlason, talsmaður Landssamtaka
hjartasjúklinga, segir að þessi niðurskurður,
eins og hann komi mönnum fyrir sjónir, þýði
ekki annað á mannamáli en að fleiri muni
deyja. Það sé ekki flóknara en það. „Þetta er
spurning um sekúndur og ef það á að fara að
aka mönnum á milli spítala þá hlaðast upp
sekúndur, en það segir sig sjálft að það mun
hafa áhrif á sjúklinga, fjölskyldur þeirra og
buddu ríkisins áratugum saman," segir Eggert
og bendir á að það sé af og frá sparnaður að
loka deildinni um helgar. Það skili sér annað
hvort í því að menn deyi eða
verði varanlegir
sjúklingar um
alla framtíð.
Jón Blrglr
Pétursson
Skilur ekki í
stjórnmálamön
num að segja
niðurskurðinn
komi ekki niður
á neinum.
Meirihlutanum í Eyjum bjargað. Sparisjóðurinn forðaði bæjarfulltrúa frá gjaldþroti.
Bakaranum bjargað og meirihlutanum með
Meirihlutinn í bæjarstjórn Vest-
mannaeyja er hólpinn eftir að Spari-
sjóður Vestmannaeyja gekk til
nauðasamninga við Andrés Sig-
mundsson bakara og samþykkti að
greidd yrðu 20 prósent upp í kröfur
sem Sparisjóðurinn hafði á hann.
Með samþykktinni hefur stjóm
Sparisjóðsins tryggt áframhaldandi
samstarf Andrésar og Samfylkingar-
innar í bæjarstjórn Vestmannaeyja
því ef Andrés bakari hefði verið setmr
í þrot hefði hann þurft að segja af sér
sem bæjarfulltrúi og varamaður hans
tekið við. Sá viO hins vegar endur-
vekja samstarf Framsóknarflokks við
Sjálfstæðisflokk sem framsóknar-
maðurinn Andrés Sigmundsson rauf
þegar hann myndaði einn meirililuta
með Samfylkingunni. Svo tæpt
stendur meirihlutinn í Eyjum að
Andrés bakari má ekki verða veikur
og missa af fundi því þá fellur meiri-
hlutinn.
Talsverð ólga er í Vestmannaeyj-
um vegna samkomulagsins við
Andrés bakara því forsvarsmenn
annarra fyrirtækja, sem verið hafa í
viðskiptum við Sparisjóðinn, segjast
ekki fá sömu fyrirgreiðslu og þarna
hefur átt sér stað. Dæmi eru þess að
önnur fyrirtæki hafi farið fram á
nauðasamninga þar sem greidd
yrðiu30 prósent upp í kröfur en verið
hafnað og fyrirtækin sett í þrot.
Munu tvö fyrirtæki í Eyjum hafa þurft
að sæta þeim örlögum. Andrés bakari
slapp hins vegar með 20 prósent og
er staðhæft að í dæmi hans hafi verið
kippt í pólitíska spotta ofan af fasta-
landinu. Því neitar Ólafur Elísson
sparisjóðsstjóri: „Það em engin tvö
dæmi eins og við tjáum okkur ekki
um málefni einstakra viðskiptavina,"
segir hann.
Andrés Sigmundsson
Bakaranum bjargað var fyrir horn - enda
mikið í húfi.