Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 Fréttir DV Jafnvinsæll og Jesús George Bush, forseti Bandaríkjanna, er jafnvin- sæll og Jesús ef marka má nýja könnun sem gerð var í háskólanum í Leicester. Alls tóku 2500 manns þátt í könnuninni en markmið hennar er meðal annars að kanna hvaða hvatir liggja að baki þegar frægð og frami eru metin. Allra vinsælastur samkvæmt könnuninni er David Beck- ham, leikmaður Real Ma- drid. Næstir á eftir koma Brad Pitt og Justin Tim- berlake. Michael Jackson er í ijórða sætinu og má það teljast gott en söngvarinn hefur verið ákærður fyrir kynferðislegt ofbeldi gagn- vart börnum. Sá pólitíkus sem skoraði hæst, en komst þó ekki inn á topp tíu, er Nelson Mandela, fyrrum forseti en hann lenti í 14. sæti. Þeir Bush og Jesús eru neðar á listanum en ekki fylgdi sögunni í hvaða sæti þeir lentu. Þyngdist um 13 kíló Breskur skyndibitaaðdá- andi, Morgan Spurlock, tók þátt í allsér- stæðri tilraun nýverið þegar hann borðaði McDonald's fæði í öll mál í 30 daga - og stóð eftir allur í lamasessi. Morgan, sem er 33 ára, hafði á einum mánuði þyngst um tæp 13 kíló, kól- esterólið var komið upp úr öllu valdi og lifrin hafði stækkað. Hann kvartaði jafnframt undan höfuð- verkjum, þunglyndi og minnkandi kynorku. Dr. Daryl Isaacs, sem hafði umsjón með tilrauninni, sagðist ekki hafa gert sér í hugarlund að áhrifin yrðu með slíkum ósköpum. For- ráðamenn McDonald's segja hins vegar að við- skiptavinir geti viðhaldið líkamlegu jafnvægi með því að velja af fjölbreyttum matseðli staðarins. Þess má þó geta að Spurlock borð- aði fleira af matseðlinum en bara hamborgara. Karl Erlendsson Skólastjóri Brekkuskóla á Akureyri „Tilverart hér er dásamieg - það vantar nú ekki. Það er gott veður einmitt núna og gróska í mannlífinu. Það er verið að stækka skóiann okkar og end- urnýja og það gengur allt samkvæmt áætiun. Hluti verð- ur tekin í notkun í Landsíminn sumar og 2005 verðum við komin með alveg nýjan skóia. Hér eru 530 nemendur og yfir 80 starfsmenn og starfið i vet- ur hefur gengið ótrúlega vel miðað aðstæður sem hér eru út af byggingaframkvæmdun- um. Nemendur hafa sýnt mikla tillitssemi og eru kátir og hressir. Þetta er allt saman á afskaplega jákvæðum nótum." Forsætisráðuneyti skýrir 20 milljóna króna mismun á upphaflegri áætlun og end- anlegum framlögum á fjárlögum til Sögu Stjórnarráðsins þannig að i upphafi hafi ekki verið reiknað með útgáfukostnaði. Fyrst hafi verið hugað að þeim málum fyr- ir um ári. Upphaflegu 40 milljónirnar væru aðeins fyrir ritun verksins. Kynferðisofbeldi gegn börnum og unglingum hefur færst mjög í aukana Tvöfaldaðist á tveimur árum Ekki hafði verið gert ráð fyrir útgáfukostnaði þegar ritun Sögu stjórnarráðsins 1964 til 2004 var kynnt í nóvember 2000. Þetta segir Halldór Árna- son, skrifstofustjóri forsætisráðuneytisins. í DV í gær kom frarn að kostnaður við verkið hefði í upphafi verið áætlaður 40 milljónir króna. í dag væri kostnaðurinn kominn úþp í um 60 milljónir. Kostnaður sagður 40 milljónir Fyrri talan, 40 milljónir króna, er frá Birni Bjarnasyni, formanni ritnefndar og þáverandi menntamálaráðherra, sem sagði, aðspurður á blaðamannafundi í nóvember 2000, að kostnaður við verkið yrði um 40 milljónir króna. Seinni talan, 60 milljónir króna, er sú upphæð sem Alþingi hefur samtals eyrnamerkt þessu verkefni til dagsins í dag. Eins og fram kom í DV er seinni talan 50 prósent hærri en sú fyrri. Mismun- urinn er sem sagt 20 milljónir króna. Á hinn bóg- inn er ekki rétt sem sagði í forsíðutilvísun blaðsins í gær að mismunurinn væri 30 milljónir króna. Halldór Árnason Skrif- stofustjóri forsætisráðu- neytis segir eðlilegt að svara ekki spurningum DV um kostnað við Sögu stjórnarráðsins fyrr en ritið er komið út. Svör bíða þar til eftir útgáfu Óskað var eftir því við forsætisráðuneytið á miðvikudag að fá gefinn upp kostnað við sögurit- unina. Svar hefur ekld borist. Halldór Árnason segist telja eðlilegt að bíða með að upplýsa kostn- aðinn þar til fyrstu tvö bindin koma formlega út sunnudaginn 1. febrúar. Halldór segir, að þó hann hafi ekki tekið ajll endanlega saman, geti hann fullyrt að kostnaður við verkið verði innan upphaflegrar áætiunar. m Ritun eitt og útgáfa annað „DV er að bera sam- an epli og appelsínur. Eitt er ritun sögunnar og annað er útgáfa á bók- inni. Það var bara talað um ritun sögunnar þeg- ar þessi blaðamanna- fundur var. Það voru ákveðnar áætlanir sem lágu til grundvallar. Það var ekki fyrr en fyrir svo sem einu ári síðan að það var tekin ákvörðun um ■ það nteð hvaða hætti þetta yrði gefið út,“ segir Halldór. Skrifstofustjórinn á þannig við að upphaílegu 40 milljónirnar hafi eingöngu verið ætlaðar í ritunina sjálfa. Það sem síðan hafi bæst við sé útgáfukostnaðurinn. Fimm höfundar eru að verkinu sem samtals verður um 1500 síður í þrem- ur bindum. 60 milijónir íyrjr söqu Stiórnarraðs Endar líklega í 57 milljónum Til skýringar er rétt að geta þess að á áðurnefndum blaðamannafundi í nóvember 2000 kom fram hjá Davíð Oddssyni forsætisráðherra að verkið yrði gefið út af Sögufélaginu - eins og DV í gaer DV greindi frá því igær að fyrstu tvö bindin afþremur afSögu Stjórnarráðs Is- lands 1964 til 2004 koma út sunnudaginn 1. febrúar. „Það var ekki fyrr en fyrir svo sem einu ári síðan að það var tekin ákvörðun um það með hvaða hætti þetta yrði gefið út." fyrri hlutar Sögu Stjórnarráðs íslands. Af frásögn af fundinum að dæma var útilokað að skilja rnálið öðrum skilningi en þeim að um heildarkostnað við verkið væri að ræða. Eins og áður segir hafa um 60 milljónir króna verið ætlaðar í fjárlagaliðinn Ritun sögu Stjórnar- ráðsins. Halldór segir ljóst að kostnaðurinn verði innan þeirra inarka. Hann vill ekki gefa upp ná- kvæma tölu fyrr en verkið er komið út. Samkvæmt heimildum DV verður sú upphæð um 57 milljón- ir króna. gar@dv.is engan utgáfukostnaö Kynferðislegt ofbeldi gegn börn- um og unglingum hefur færst-mjög í aukana á undanförnum árum. Um voru tvöfalt fleiri tilfelli voru tilkynnt til Barnaverndarnefndar Reykjavík- ur á sfðasta ári en árið 2001. Þannig voru 48 tilfeUi um kynferðislegt of- beldi gegn börnum og unglingum tilkynnt árið 2001 en slík tilfelli voru orðin 98 talsins í nóvember í fyrra. Halldóra Gunnarsdóttir verk- efnastjóri hjá Barnaverndarnefnd segir að tilkynningar um ofbeldið gefi ekki nákvæma mynd af vanda- málinu því eftir eigi að kanna fjölda af tilfellum til að fá úr því skorið hvað liggi að baki tilkynningunni. Þannig rnegi nefna sem dæmi að árið 2002 komu um 90 tilkynningar af slíkum málum til kasta barna- Úr Barnahúsi Árið 2002 komu um 90 tilkynningar afkynferðisbrotamálum til kasta barna- verndarnefndar en eftir könnun voru raunveruleg tilfelli 72 talsins. verndarnefndar en eftir könnun voru raunveruleg tilfelli 72 talsins. Aðspurð um ástæður þess að til- feUunum fjölgar svona mikið segir Halldóra Gunnarsdóttir að það sé einkum hin mikla opinbera umræða sem orðið hefur í þjóðfélaginu. „FóUc er orðið mun meðvitaðra um þessi mál og leitar betur réttar síns en áður fyrr,“ segir Halldóra. „Við höfum eng- ar rannsóknir tU að styðjast við en teljum að áður fyrr hafi þetta vanda- mál í þjóðfélaginu verið meira í fel- um en nú gengur og gerist." Tölur frá síðasta ári ná til nóvem- ber sem fyrr segir og eiga því eftir að hækka. Ekki var hægt að fá upplýs- ingar um síðustu mánuði ársins þar sem verið er að endurskipuleggja tölvukerfi Barnaverndarstofu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.