Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Síða 19
DV Fókus LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 19 „Þeir neyðast til að heyra og lesa þetta en verða bara að læra að leiða það hjá sér. Bresku fjölmiðlarnir hika nefnilega ekki við að búa til og breyta sögum tilþess að draga menn niður." stúlka hefði átt í ástarsambandi við Eið Smára. Ólöf segir það vissulega hafa verið leiðinlegt en það hafi bara verið annað dæmi um hvernig bresku fjölmiðlarnir reyni að sverta mannorð manna. „Blaðamaðurinn hringdi í hann og spurði út í þetta en hann sagðist ekki vita hvað eða hverja hann væri að tala um. Hann ákvað þess vegna bara að láta það eiga sig, en greinin birtist samt sem áður. Svo var þetta allt dregið til baka nokkrum dögum síðar. Þetta sýnir bara að þeir gera hvað sem er til þess að reyna að draga menn niður. Eiður Smári á náttúrlega konu og tvö börn og þau vissu það öll að þetta var bara kjaftæði. Við ákváðum þess vegna að gera ekkert í þessu, enda leysti málið sig sjálft nokkrum dögum seinna. Maður skilur samt ekki af hverju fólk fer með svona hluti í blöðin. Það geta svo sem verið millj- ón ástæður fyrir því en fólk áttar sig bara ekki á því hvað þetta hefur mik- il áhrif á þá sem hlut eiga að máli. En Eiður Smári vissi alveg að hann gæti átt von á einhverju svona þegar hann ákvað að fara út í atvinnu- mennskuna og þetta er eflaust ekki í síðasta skipti sem eitthvert bull birt- ist um hann í blöðunum," segir Ólöf og bætir því við að í kjölfar þessa hafi hann tekið þá ákvörðun að forð- ast fjölmiðla eins og hann getur. Það hefur gert íjölmiðlafólki, sem oft vill ná tali af honum, mjög erfitt fyrir en Eiður tók þessa ákvörðun til þess að vernda sjáífan sig og fjölskyldu sína. Að lokum berst talið að vali á íþróttamanni ársins. Ólöf segist vera nokkuð vonsvikin yfir því að Eiður skuli ekki hafa orðið fyrir val- inu. „Ég og margir í kringum mig reiknuðu með því að hann yrði val- inn. Bæði hefur knattspyrnumaður ekki.verið valinn síðan pabbi hans fékk þetta árið 1987 og svo tók hann við fýrirliðastöðunni í landsliðinu, sem hefur aldrei spilað betur. Svo komu náttúrlega allar þessar stjörnur til Chelsea en hann hefur samt náð að festa sig í sessi þar sem einn af bestu mönnum liðsins. Þetta kom því nokkuð á óvart en ég dáist líka að Ólafi Stefánssyni sem er frábær íþróttamaður. Óli er góð fyrirmynd og það er Eiður Smári líka - hann hefur alltaf eflst við mótlæti og aldrei gefist upp þótt allt hafi verið á móti honum. Ég vona bara að hans tími muni koma síðar," segir Ólöf að lokum. Nýfæddur Eiður Arnór Guðjohnsen og ÓlöfEinarsdóttir sjást hér með Eið Smára nýfæddan árið 1978. Arnór var á þessum tíma atvinnumaður i Belgiu. Strax farinn að sparka Eiður er hér tveggja ára að sparka bolta eins og pabbi igarðinum heima i Beigiu þar sem hann ólst upp til 12 ára aldurs. að reyna að draga menn niður, en þetta var alltaf á jákvæðu nótunum í Belgíu. Áhorfendurnir í Englandi eru líka fljótir að snúa baki við sínum mönnum ef þeir eru ekki ánægðir með þá, þannig að þetta getur verið mjög erfitt," segir Ólöf sem dáist að því hversu vel Eiður Smári hefur tekið neikvæðri um- fjöllun um hann og hans lið í fjöl- miðlum. „Menn geta aldrei lokað sig al- veg frá þessu. Þeir neyðast til að heyra og lesa þetta en verða bara að læra að leiða það hjá sér. Bresku fjölmiðlarnir hika nefnilega ekki við að búa til og breyta sögum til þess að draga menn niður,“ segir Ölöf, en Eiður Smári hefur orðið fyrir þessu líkt og aðrir í knattspyrnu- heiminum. Stuttu eftir hryðju- verkin í New York bárust fréttir af því að leikmenn Chelsea hefðu fagnað árásunum á hóteli í London með því að drekka ótæpilega og vera með læti. Nafn Eiðs Smára var nefnt í því sambandi. „Ég tók þetta rosalega nærri mér og hringdi í Eið Smára sem spurði mig bara hvort það væri virkilega einhver sem trúði þessu. Eftir það var ég heilan sólarhring að svara í símann til að útskýra fyrir áhyggju- fullum ættingjum og vinum að þetta væri bara rugl. Þetta var líka mjög fjarstæðukennt," segir Ólöf. „Svo kom þetta með spilafíknina f kjölfarið. Þá birtist grein þar sem sagt var að hann væri spilafrkill og hefði tapað 50 milljónum. Það sanna í því máli er að hann sást koma út af spilavíti og svo var hringt í hann og spurt hvort það væri rétt að hann væri spilafíkill. Al- mannatengill Chelsea-liðsins ráð- lagði honum þá bara að segja já og amen við öllu, þvf ef hann færi eitt- hvað að neita þessu myndu þeir bara halda áfram að reyna að grafa eitthvað upp og aldrei hætta að áreita hann. Þess vegna væri bara betra að segja já og láta þetta gleymast, því daginn eftir birtist náttúrlega grein um einhvern ann- an og fólk færi að tala um það. Hann sagði mér svo líka að þessi tala sem hann hefði átt að hafa tapað væri alveg út úr korti og hló bara að þessu. Svona hlutir eru náttúrlega alltaf erfiðir en mótlætið styrkir hann bara." Allt reynt til að draga menn niður Stuttu síðar birtust svo greinar í fjölmiðlum um að ung íslensk Einn af þeim bestu EiðurSmári leikurnú með Chelsea i Engiandi, meðaiþeirra allra bestu. Þvi fylgir mikið álagjafnt innan vallarsem utan, sem Óiöf.móðir Eiðs, segir að strákurinn hafi verið griðarlega dugiegur að takast á við.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.