Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Qupperneq 20
20 LAUOARDAGUR 24. JANÚAR 2004 Fókus DV Sú var tíðin að karlar voru einráðir við boðun fagnaðarerindisins. Ekki eru nema um 30 ár síðan fyrsta konan tók vígslu á íslandi. En nú sækja þær svo rækilega fram að saga þykir til næsta bæjar; staða prests við Mosfellsprestakall var aug- lýst laus við umsóknar fyrir skemmstu og af21 umsækjendum eru konurnar sautján. Við slógum á þráðinn til nokkurra kvenna íprestastétt - eða þeirra sem hafa guðfræðimenntun - og spurðum þær um trúna, þær sjálfa og viðhorfsín til Guðs og manna. Nafn: Helga Soffía Konráðsdóttir. Aldur: 43ja ára, Hjúskaparstaða/böm: Fráskilin og á tvö börn, ísak sem er þrettán ára og Önnu Maríu tíu ára. Fyrri störf: Ég hef sinnt prestþjón- ustu alveg frá því ég lauk námi við guðfræðideild Háskóla íslands fyrir sautján árum. Fyrstu árin í Keflavík og Söðulsholti á Snæfellsnesi, en síðustu tíu árin hef ég verið prestur við Háteigskirkju í Reykjavík. Af hverju ertu prestur: Prestur er ég vegna þess að ég vil hafa áhrif á hvernig trúin á Guð mótar allt okk- ar líf, hvort heldur er í hversdagslíf- inu eða á gleði- og sorgarstundum. Hver er Guð: Faðir okkar allra. í hverju felst starfið: I að boða orð Guðs við ýmsar aðstæður og í fyrir- bænum fyrir sóknarbörnum mín- um. Uppáhaldshljómsveit/tónlist: Sú hljómsveit sem ég held mest upp á er Sinfóníuhljómsveit íslands. Af einstökum tónlistarmönnum er ég ein- lægur aðdáandi þeirra Paul Simon og Leonard Coen. Almennt er ég alltaf hrifm af fallegum lögum og góðum textum og svona almennt talað mjög veik fyrir fallegumkarlmannsröddum. Uppáhaldsrithöfundur: Af erlendum höfundum nefni ég hinn tékkneska Milan Kundera en af íslenskum skáldum hlýt ég að nefna Þórarin Eldján sem er stílsnillingur og hefur alveg makalaust vald á íslenskri tungu. Uppáhaldsbók Biblíunnar. Davíðssálmarnir, sem eru fallega ortir og þannig að hver manneskja getur fundið samsvörun með yrkisefnunum og sínum eigin aðstæðum. Þjónusta í . sorg og gleði Kærleiksríkur oq umnví og umnyggjusamur Nafn: Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir. Aldur: Ég er 42ja ára, fædd árið 1961. Hjúskaparstaða/böm: Ég er gift Lárusi S. Marinussyni, yfirheilsuþjálfara á Reykjalundi, og við eigum þrjú börn. Þau eru: Einar Daði, sem er þrett- án ára, Guðný Helga er tíu ára og yngstur er Elías Hlynur sem er fimm ára. Fyrri störf: Áður en ég varð sjúkrahúsprestur Þjóðkirkjunnar starfaði ég hjá Félagsþjónustunni í Reykjavfk sem prestur við öldrunarþjónustu. Ég lauk námi frá guðfræðideildinni árið 1988. Af hverju ertu prestur: Ég fékk köllun til þess, sem lýsir sér í því að manni finnst Guð beina sér í ákveðnar áttir og til þjónustu í kirkju hans. Hver er Guð: Hann er góður, kærleiksríkur og umhyggjusamur. Til hans er alltaf hægt að leita, enda er hann alltaf nálægur og lætur sér annt um velferð okkar og hvað eina sem við tökumst á við í okkar daglega lífi. í hveiju felst starfið: Ég er sjúkrahúsprestur Þjóðkirkjunnar, sem fyrr seg- ir. Er í 50% starfi á líknardeild Landspítalans - háskólasjúkrahúss í Kópa- vogi og hinn helmingurinn felst í störfum á ýmsum deildum á Hring: braut. Starfið felst fyrst og fremst í sálgæslu við sjúka og aðstandendur þeirra, sem og helgihaldi. Þá sinnum við einnig sálgæslu og stuðningi við starfsfólk, sem vinnur frábært starf, oft undir miklu álagi. Uppáhaldshljómsveit/tónlist: Bítlarnir, enda eru þeir sígildir og ná til allra, þó svo að ég sé ekki af þeirri kynslóð sent við þá er kennd. Uppáhaldsrithöfundur: Þegar ég las skáldsöguna Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson, sem fjallar um atburðina á Sjöundá, varð ég fyrir miklum áhrifum og æ síðan hefur Gunnar verið í miklu eftirlæti hjá mér. Uppáhaldsbók Biblíunnar: Davíðssálmarnir. Þeir eru stórkostleg bæna- bók sem ég nota mikið, bæði í starfi og einkalífi. Guðe o ar aiira Nafn: Guðbjörg Jóhannesdóttir, sóknarprestur á Sauðárkróki Aldur: Alveg að verða 35. Hjúskaparstaða/böm: Vel gift og börnin okkar eru Berglind, 12 ára, Hekla, 10 ára, Ketill, 7 ára, Tindur 6 ára og Esja, 1 árs Fyrri störf: Öll flóran af vinnu hér og þar og leiðbeinendastörf í kirkjunni. Af hverju ertu prestur: Köllun til að gera gagn. Hver er Guð: Sá sem elskaði mig fyrst. I hvetju felst starfið: Þjónusta í hversdeginum, í sorg og gleði, við þau sem þurfa, óháð trúfélagi. Uppáhaldshljómsveit/tónlist: Buena vista, Norah Jones, Páll Óskar,U2. Uppáhaldsrithöfundur: Gabriel Garcia Márques, Minette Walt- ers. Uppáhaldsbók Biblíunnar: Jó- hannesarguðspjall. Nafii: Bryndís Valbjarnardóttir. Aldur: 47 ára. Hjúskaparstaða/böm: Ég er ógift og barnlaus. Fyrri störf: Ýmis skrifstofu- og sölustörf. Hef starfað sem útfararstjóri hjá Útfararstofu íslands síðastliðin- þrjú ár. Af hveiju ertu guðfræðingur: Meðan ég var í frönskunámi við Háskóla íslands starfaði ég sem að- stoðarmaður prófessors Péturs Péturssonar við guð- fræðideildina. Það varð til þess að ég fékk mikinn áhuga á guðfræði og hóf nám í deildinni, sem lauk með embættisprófi árið 2001. Hver er Guð: Guð er ljósið, kærleikurinn og vonin. Með því að meðtaka ljósið og hafna því ekki, störfum við í anda kærleikans, sem er Guð. í hveiju felst starfið: Það felst í öllu sem hafa ber í huga þegar andlát og útför ber að höndum. Ræða við aðstandendur um undirbúning útfarar og sjá til þess að farið sé að óskum þeirra. Uppáhaldshljómsveit/tónlist: Mér þykir gaman að ýmiss konar tónlist, svo sem blús, klassískum ein- söng og sígildri tónlist. Uppáhaldsrithöfundur: Einar Kárason. Uppáhaldsbók Biblíunnar: Prédikarinn, þar er að finna mikla lífsspeki sem höfðar til okkar allra. \ Ljósið, kærleikurinn og vomn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.