Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Page 24
24 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004
Fókus DV
DV Fókus
LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 25
Fátt er meira rætt innan leikhúsheimsins íslenska en hver mun verða næsti Þjóðleikhússtjóri.
Skipað verður í stöðuna eftir tæpt ár en gera má ráð fyrir að frá ráðningunni verði gengið mun
fyrr. Lausleg athugun DV leiddi í ljós að ein manneskja þykir langlíklegust í stöðuna þó vissu-
lega séu margir taldir koma til greina.
Næsti Þjóðleikhússtjóri íslands verður, ef marka má álitsgjafa DV, Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona.
En það er mjótt á mununum því fast á hæla henni kemur Baltasar Kormákur leikari og leikstjóri og í
röðinni á eftir honum ryðst Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri. I lnífjafnir í fjórða til fimmta sæti eru svo
þeir Hilmar Jónsson leikstjóri og Magnús Ragnarsson leikari og viðskiptafræðingur.
DV talaði við 16 sem þekkja vel til i leikhúsheiminum. Þeir voru beðnir um að nefna þrjá til sögunn-
ar og forgangsraða. Spurningin var einfaldlega: Hver verður næsti Þjóðleikhússtjóri? Vissulega bland-
ast óskhyggja í valið upp að vissu marki og viðmælendum var jafnframt gerð grein fyrir því að tilnefn-
ingarnar væru hálfgildings atkvæðagreiðsla. Þessi kosning reyndist æsispennandi en einfaidlega var
gripið til þess að sá sem nefndur var fyrstur fékk þrjú stig, annar tvö og þriði eitt. Margir kallaðir en fáir
útvaldir.
Þjóðleikhúsráð mun mæla með manni í starfið og þar sitja nú Matthías Johannessen formaður, Krist-
ín Ástgeirsdóttir, Haraldur Ólafsson, Edda Backman og Þórhallur Sigurðarson. í kjölfarið skipar Þorgerð-
ur Katrín menntamálaráðherra í starfið.
„Ég skil ekki þann mann sem sækist eftir þessu starfi," segir Pálmi Gestsson leikari og ráðgjafi DV.
„Það þarf rosalegan töffara í þetta sem nennir að standa í slagsmálum fyrir vini sína og óvini daginn út
og inn. Auðvitað kæmi ekki til tals að ég færi í þetta, en ef svo væri myndi ég aldrei ljá máls á því. Ekki
innan míns áhugasviðs, svo mikið er víst."
„Ráðningasamingur minn gildir til 1. janúar 2005 þannig að ég á eftir eitt og hálft ár - þá er ég líka far-
inn,“ sagði Stefán Baldursson Þjóðleikhússtjóri í samtali við Fréttablaðið í haust. Það þýðir einfaldlega að
nýr Þjóðleikhússtjóri verður skipaður eftir tæpt ár. Þessi staðreynd hefur ekki farið fram hjá leikhúsfólki og
velta menn nú mjög vöngum yfir því hver muni skipa þessa stöðu sem er líklega sú áhrifamesta og þar með
kannski sú eftirsóknarverðasta sem um getur í íslensku leikhúsi. En það er á orði, ekki á borði eins og lesa
má úr orðum Pálma. Ekki verður tekið út með sitjandi sældinni að taka við. Endurbygging hússins má ekki
tefjast umfram það sem orðið er og Þjóðleikhúsið á við fjárhagsörðugleika að etja. En skoðum nánar þá sem
voru nefndir af sérfræðingum blaðsins.
djörfung og dugur
„Hann hefur látið mikið að sér kveða á undanfömum árum.
Virðist vera uppi á borðinu sem nafn núna." Já, rétt er það.
tasar Kormákur hefúr einkum verið aö hasla sér völl á sviði
lyndageröar undanfarin ár og menn settu það helst sem
þegar hann var annars vegar, að hann hefði hreinlega
tfma né nennu til að standa f þessu. Baltasar fylgdi fast á
hæla Tinnu með 12 atkvæði.
En hæfileikana þótti sérfræöingum ekld vanta þegar Baltasar
annars vegar. Hann sagður mfirill og duglegur framkvæmda-
ur sem gæd hrist verulega upp í þessu. Einn sérfræðing-
Þórhildur - ein af foringjunum
„Hún er kona. Hún virðist alltaf vera í umræðunni. Með
langa reynslu þó hún hafi ekki gert neinar sérstakar rósir sem
Borgarleikhússtjóri." Já, enn er það kynferðið sem skiptir máli.
Þórhildur er í þriðja sæti með 11 stig, aðeins einu færra en
Baltasar. Fleiri athugasemdir féllu, þegar Þórhildur var annars
vegar, sem voru lofsamlegri og var henni reiknað til tekna mikil
reynsla. „Reynslubolti sannarlega. Hefur einhvern veginn tekist
að halda dampi þrátt fyrir margvíslegt og íjölbreytilegt mót-
læti." Annar sem aðhylltist Þórhildi sagði: „Og hún er einn af
okkar foringjum í íslensku leikhúsi. Hún er frekja eins og marg-
ur foringinn en hún hefur einhverja snilligáfu í þetta. Það sem
hún hefur lagt til leikhúslífsins, hefur stjórnunarhæfileika, ef
hún mýkjir félagslegu hliðina. Henni var ómaklega bolað út úr
Borgarleikhúsinu."
Þórhildur þykir sem sagt öðrum fremur hafa til að bera
stjórnunarreynslu og röggsemi sem þarf í starfið. Samkvæmt
heimildum DV hefur Þórhildur tiltölulega takmarkaðan áhuga á
starfinu sem stendur en enginn veit hvað gerist í þeim efnum.
Hilmar - frá-
bær listrænn
stjórnandi
Hnífjafnir í 4.-5. sæti eru þeir Hilmar
Jónsson og Magnús Ragnarsson með 9
stig. Og ljóst þykir að hvorugur sé frá-
hverfur starfinu. Báðir eru þeir ungir og
metnaðargjarnir menn og einhverjir urðu til
að fullyrða að Magnús muni sækja um enda
hafi verið gengið fast á eftir honum þar um. En
um Hilmar höfðu menn þetta að segja: „Honum
hefur tekist vel til með Hafnarfjarðarleikhúsið.
Hefur gott lið í kringum sig. Vinsæll og vel lið-
inn og hefur skýra listræna stefnu." Og: „Ef
hann sýnir áhuga þá á hann mikla möguleika.
Búinn að vinna gott starf í Hafnaríjarðarleikhúsinu
og sýnt góða tilburði að stjórna svona batteríi." Og
enn einn velviljaður Hilmari sagði hann framsýnan i
sinni listrænu stefnumótun og færan leikstjóra. „Ein-
stakur leikhúsmaður, hæfileikaríkur og frábær list-
rænn stjórnandi."
Magnús -
draumakandídat
Magnús þykir einnig hafa margt til
brunns að bera sem prýða má eins og
einn Þjóðleikhússtjóra. „Hann hefur
þessa listrænu sýn, eða hvað á að
kalla það, sem þarf. Svo hefur hann
einnig framkvæmdastjórahlið sem
hefur ekki minna að segja í þessu
starfi." Og enn blandast Gunnar Eyj-
ólfsson í þetta en þá með áðurnefnd-
um fyrirvara. „Gunnar er mjög hrif-
inn af honum. Magnús mun örugg-
lega sækja um.“ Og ein ummælin eru
á þessa leið: „Magnús er draumak-
andídat sem hefur alla þá þætti sem
gagnast. Fyrrum starfsmaður húss-
ins, þekkir til erlendis og þar með
tengingu inn á stærsta leildistarmark-
að heims. Og var formaður leiklistar-
ráðs, sem sér um styrkveitingar til
sjálfstæðra atvinnuleikhúsa, og stóð
sig frábærlega þar."
Davíð Oddsson - óvæntarsti kandídatinn
Skemmtilegasta kenningin um
þjóðleikhússstjórastöðuna og kannski sú
óvæntasta var sú að Davíð Oddsson horfði til
þessarar stöðu sem farsællar lendingar fyrir
sig og sín áhugamál. Davíð mun jú láta af
störfum sem forsætisráðherra innan tíðar.
Davíð var leikhúsritari í gamla Iðnó á sínum
tíma og kunni því vel. Þá hefur hann
einnig reynt fyrir sér sem leikskáld
með ágætum árangri. „Gæti
dottið inn í starfið eins
og þetta pólitíska
amstur hefði
aldrei
sér
stað.
Tinna - vinnusöm
og heiðarleg
Eins og áður sagði var Tinna efst á blaði með 15 stig.
Eftirtektarvert vár að fjölmargir reiknuðu henni hik-
laust til tekna það að vera kona. „Nafn sem er á allra
vörum. Hún er kona. Aldrei verið kona í þessu djobbi og
kominn tími til." Og kannski ekki að ófyrirsynju að
þetta sé nefnt í ljósi jafnréttislaga sem kveða á um að
jafnt vérði að vera á komið með kynjunum í hliðstæð-
um störfum á vegum hins opinbera. Þorsteinn Bach-
mann leikhússtjóri LA hefur fengið að kenna á því í
tengslum við sína stöðu fyrir dómstólum. „Hún er úr
klíkunni sem hlýtur að reiknast henni til tekna þegar
verið er að ráða en spurning hvort það gagnist í sjálfu
sér. Ekki miklar breytingar kannski sem munu fylgja
henni," sagði einn sérfræðingur DV.
En vitaskuld þykir Tinna hafa fleira til brunns að
bera en kynferðið eitt og að þekkja vel til í Þjóðleikhús-
inu. „Hún er vinnusöm, hefur yfirsýn og innsæi. Hefur
rétta prófílinn í þetta, var formaður Bandalags íslenskra
listamanna, og er þannig lagað hæfilega öruggur val-
kostur," sagði einn. „Hefur sýnt áhuga á að komast í
stjórnunarstöðu. Hefur setið í Þjóðleikhúsráði," sagði
annar. Og enn einn bætti við: „Tinna gæti verið afskap-
lega góð í þetta, heiðarleg, samviskusöm og vel vinn-
andi manneskja sem hefur góða innsýn í þennan
geira."
Engin kona í stóli
þjóðleikhússtjóra
Eins og fram hefur komið í máli margra
sérfræðinga DV hefur það aldrei gerst að kona hafi
sest í stól þjóðleikhússtjóra. Þykir mörgum tími til
kominn. Fyrsti þjóðleikhússtjórinn var Guðlaugur
Rósinkranz og var hann lengi vel við stjórnvölinn:
1949-1972. Sveinn Einarsson tók við af Guðlaugi og
var hans valdatími á árunum 1972-1983 eða í ellefu
ár. Gísli Alfreðsson tók við af
Sveini og var frá árinu 1983-
1991 eða í átta ár. Þá vöru
lögin einfaldlega þannig
að ekki kom lengri seta
til greina og við starfi
hans tók svo Stefán
Baldursson. Hann hefur
verið rfkjandi nú í tólf ár
en í valdatíma hans
breytti Björn Bjarnason
lögum um tímaramma.
Kolbrún Halldórsdóttir -
sögð ætla sér að sækja um
Fullyrt er að Kolbrún Halldórsdóttir alþingismað-
ur ætli sér að sækja um stöðu Þjóðleikhússtjóra. „Hún
hefur gefið það út í þröngra manna hópi að hún ætli
sér að sækja um starfið." Hins vegar hefur hún ekki
komið fram með það enn því ekki þykir þægilegt fyr-
ir hana að berjast fyrir sínum málefnum ef það er al-
kunna að hún ætli sér aftur í leikhúsið. Kolbrún mun
verða sterkur umsækjandi. Hún starfaði sem leik-
stjóri áður en hún fór á þing og ekki þykir verra að
hún þekki hið pólitíska landslag. Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráðherra mun eiga erfitt
með að líta fram hjá henni auk þess sem það gæti
borið vott um pólitísk klókindi að skipa pólitískan
andstæðing sinn í stöðuna og svo er pólitískt rétt að
skipa konu sem næsta Þjóðleikhússtjóra. Slíkt hefur
ekki gerst enn og þykir mörgum tími til kominn.
Aðrir á blaði
Fjölmargir aðrir voru
nefndir og ber þar fyrst
að nefna Guðjón Peder-
sen sem er sagður hafa
rekið Borgarleikhúsið í
gegnum erfitt tímabil og
staðið sig nokkuð vel.
„Hann hefur náð hópn-
um vel saman og gefst
ekki svo auðveldlega
upp. Svo rak hann Frú
Emelíu með heiðri og
sóma í næstum áratug."
Kjartan Ragnarsson
leikstjóri þykir reynsl-
unnar smiður á þessu
sviði og góður kostur
sem og Þórunn Sigurð-
ardóttir framkvæmda-
stjóri Listahátíðar. Ólík-
legt þykir þó að þau
sæki um. Þá eru nefnd
til sögunnar leikstjór-
arnir María Sigurðar-
dóttir, Magnús Geir
Þórðarson og Benedikt
Erlingsson og þykja þau
öll spennandi kostur.
Þjóðleikhússtjóranám
Þá er nefndur: „Kjartan Bjargmundsson. Það hljómar svo vel.
Kjartan Bjargmundsson Þjóðleikhússtjóri gengur í salinn!" Gísli
Rúnar Jónsson, Edda Björgvinsdóttir og Laddi hlutu öll atkvæði.
„Ótækt að segja fólk ómarktækt þó það hafi húmor. Það ætti að vera
öfugt." Öll þóttu þau líkleg til að leggja eitthvað nýtt til málanna og
gera skemmtilegt leikhús. „Ekki veitir af. Gengur þetta ekki út á
það?"
Ragnheiður Skúladóttir deildarstjóri leiklistardeildar Listahá-
skólans hlaut atkvæði, einnig Ása Richardsdóttir sem og Gísli Örn
Garðarsson svo einhverjir séu nefndir að ógleymdum Viðari Egg-
ertssyni og Kolbrúnu Halldórsdóttur.
Einn sem DV heyrði ofan í í tengslum við þetta sagði ljóst að
margir myndu sækjast eftir starfanum. „Það er talað um að nú séu
margir í „Þjóðleikhússtjóranámi" eins og það er kallað í Háskólan-
um, alls konar stjórnenda og MBA námi í menningarfræðum en þar
eru bæði Tinna og Viddi - svona svipað og námið sem Ása Rich fór í
í Háskólanum i Reykjavik til að verða Tónlistarhússstjóri."
Álitsgjafar
Björg Björns-
dóttir, kynning-
arstjóri Þjóð-
leikhússins.
Björk Jakobs-
dóttir, leikkona
Felix Bergsson,
leikari og leikli-
starfrömuður
Fjalar Sigurð-
arson, fjöl-
miðlamaður
Guðrún Krist-
jánsdóttir,
kynningarstjóri
Listahátíðar.
Vil-
mundardóttir,
kynningarstjóri
Borgarleikhúss-
ins
Hallur Helga-
son, leikhús-
stjóri Loftkast-
alans
Ingibjörg Þóris-
dóttir, leikkona
fram-
kvæmdastjóri
Hafnarfjarðar-
leikhússins.
Jón Gnarr, leik-
ari og útvarps-
maður
Karl Ágúst Úlfs-
son, leikari og
rithöfundur
Magnús Geir
Þórðarson, leik-
stjóri
Páll Baldvin
Baldvinsson,
leiklistargagn-
rýnandi
Pálmi Gestsson,
leikari
Stefán Jónsson
leikari og leik-
stjóri
Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson, dag-
skrárgerðar-
maður
Þórhallur Gunn
arsson, sjón-
varpsmaður.