Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Side 27
 DV Fókus LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 27 Filmum brugðið að Ijósi Á blaðamanns- ferli slnum fór Guðni vitt og breitt um land- ið og tók myndir, bæði affréttnæmum við- burðum en ekki siður atvinnuháttum þjóð- arinnar og í dag eru þær myndir afar merk- ar heimildir. „Ég lagði mig sérstaklega eftir að mynda atvinnuhætti þjóðarinnar, ekki síður en fréttnæma viðburði," segir Guðni. „Einhverju sinni fór ég og tók myndir úr fjárleitum á Arnar- vatnsheiði og réri út á Faxaflóa með Þórði á Ökrum á Akranesi. Hann fór til að veiða flsk, en ég til að lýsa sjó- mennskunni og fiska myndir. Síðan get ég auðvitað nefnt ótalmarga fleiri viðburði, svo sem Heklugosið 1947 og Hvalfjarðarsíldina sama ár. Holskurð á sjúkrahúsinu á Akranesi, heimsókn i lokað klaustur Karmel- systra í Hafnarfirði, sögulega flug- ferð með Jóhannesi Snorrasyni flug- stjóra sem flutti pakkaða vél fram í stjórnklefa af lömbum frá Fagur- hólmsmyri upp í Borgarfjörð og tólf mílna þorskastríðið. Alls spannaði þessi ferill einhver fimmtán ár, en vistina á Tfmanum endaði ég með því að gegna starfi framkvæmda- stjóra blaðsins um þriggja ára skeið á miklum umbrotatímum.“ Fiölmiðlun er miklu skemmtilegri í dag Guðni segir sjötta áratuginn hafa verið velmektarskeið í rekstri Tfm- ans og blaðið hafi notið vinsælda, enda hafi efnistökin verið frískleg. „Þegar best lét var blaðið gefið út í 17 þúsund eintökum en Morgun- blaðið í 24 þúsund. Meira var bilið ekki, enda þó svo Mogginn ætti eft- ir að ná afgerandi forystu á mark- aðnum síðar og halda fram á síð- ustu ár,“ segir Guðni. Bætir við að því sé ekkert að leyna að Sambandið og kaupfélög- in hafi með auglýsingum verið öfl- ugur bakhjarl útgáfunnar. „í mín- um huga er engin spurning að Qöl- miðlun er miklu skemmtilegri í dag en hún var áður, því blaðamenn þurfa ekki lengur að hugsa efnistök sín og áherslur út frá pólítískum línum. Menn eru ekki gjörsamlega ruglaðir af pólítík og vissu jafnvel ekki fyrr en um kaffileytið hvort heppilegt væri að skrifa með eða á móti kommúnistum í blað morg- undagsins. Varðandi þá umræðu sem borið hefur hátt að undan- förnu um eignarhald á fjölmiðlum þá er veruleikinn alltaf sá að blaða- menn taka alltaf tillit til þess hver á þann miðil sem þeir starfa á, þó svo hinu gagnstæða sé haldið fram. Það er ekki í mannlegu eðli að snú- ast gegn þeim sem brauðfæðir okk- ur.“ Formið er stutt og knappt Guðni Þórðarson segir að blaða- mennskan haft mótað allt sitt líf. „Ég lærði mikið af Jónasi frá Hriflu, sem gaf okkur í Samvinnuskólan- um þá leiðsögn bækur sem fólk ætti að lesa á hverjum degi væru Nýalinn eftir dr. Helga Pjeturs, Biblían, Njála og Egla. Af þessum bókum mætti best læra íslenskt mál og auðga frásagnarlistina og víst er Biblían afskaplega vel mótuð frásögn. Og íslendingasögurnar sem hann hélt svo uppá eru af- skaþlega mögnuð lesning. Formið er stutt, knappt og hnitmiðað; virkilega góð blaðamennska." í kössum og handröðum á heimili sínu geymir Guðni filmur frá hinum eftirminnilega blaða- mannaferli sínum. „Ég var svo skynsamur að halda filmunum mínum alltaf til haga. Þær voru mín eign og eru einhversstaðar í kringum 30 þúsund talsins," segir Guðni og brotabrot af þessum mikla fjölda mynda má sjá hér á opnunni. Sögur úr svipmikilli sam- tíð og umbrotaskeið í íslandssög- unni. Þegar þjóðfélagið tók á fáum árum breytingum sem ekki eiga sér hliðstæðu á nokkru öðru tíma- skeiði. sigbogi@dv.is Þríburafæðing Fæðing barns er alltafmikið kraftaverk, ekki síst efþau eru þrjú. Mynd þessi er tekin um 1950 og Ijósmóðirin er Margrét Guðmundsdóttir sem á sinum tíma var ein kunnasta Ijósmóðir borgarinnar. Mlig T KRÖKS- M SNj'oA 'l mm SL'AM- * HAFH ii/DSLA 'l \\W<k »jú\\ jfm \ yy7fv*-^ J ÆVI LYKTAR 4 2 1 iliU \\ 'osm- CISLIJ? 5 Fm- ElHO 3 HL5KA ARMUR OjMm- VJ-ÐRl A H KJALL 1 \ f Am /? HOL- SKiWuR ÚMDIST 5 m ti FOfí MS- AlRlfíi /3 ÚTLI JV|S /VÆfil l im- fWO SKRlf- AR m II GsifólR mp T OKILL J r IÍM STÖRF- UfDu He TÆP f {Z JMI5ÖM KOHL- HAfH sn'afa lo [)BIS l LAPPA 10 STW MAT- SKtlO KJÖJKU í> KVflKiíR Gabis ELSKA II ÖTuls mm 8YRJHH HRÚ6A SL /VAuMA W 12 *r- KLAltFSK- L5P/LUM H LÆGiJA /3 fiATlVA SPA U6S 21 N B LOS- NtYTI bsalfi WOTTiltl STofa SAM- STÆfíA KVfN- l)YR VALP-L KÚ6UN KYmR liELtO smo 7 SPRETT- HARM It, L STERK- 11R 'Í AVAXTA- SAFI H 1} H/?æll mep SfflðTI T? 'fíbl (SRutá j, TlPUfT ISolA ' úERLtííl VBALT lH&it« m V S/GAfii P 4 10 msiA TlOlíM 20 ft’lMALO OGiivm Hjúkra KUSK 1 BElTU LtRNAR P'OLP- UN6UR T 21 HULDLh AANN jrm h'AUA- UR HLASS v 22 4 0RÍ>- N'dMuR H'otAR 2 TRYLLA SLÆMA V 2S FRtST' A6l 25 L'IH A nmo- AR HMRh Hftf-LLI H'AB 6ILDAR 25 ÆAA LÆúd akm EKKI G£LT SH'A Ll 12 8Lt YTA SAlir HKYðJA róHií? k í°l ÚT- HMFA FfT- HoLORA SIQ TA UM- 5TANA MÖSR- UN q ELhS KOHú- HAFH mm 6EJJAKA 5— 15 fiittAlR m J HN- YFLI j°j'0TA skjAlft- ANH 21 >> ~ F 0 R F'ifl IÍA I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.