Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Side 30
30 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 Fókus 0V Edda útgáfa varð til með samruna Máls og menningar og Vöku-Helgafells árið 2000. Mál og menning hafði áratugina á undan verið öflugt útgáfufyrirtæki með góða markaðsstöðu enda útgefandi margra vinsælustu höfunda landsins. Fyrirtækið rak sig nánast sjálft og átti ekki að geta klikkað. Þá fengu forsvarsmenn Máls og menningar hins vegar draumsýn - íslenska risaútgáfu sem gæti keppt við erlenda aðila og nýtt sér Netið til tekna. Sameining Máls og menn- ingar og Vöku-Helgafells fórþví afstað og endaði með stofnun Eddu miðlunar og útgáfu árið 2000. Ári síðar var allt komið í þrot og sjálfseignarstofnunin, sem Mál og menning hafði verið, var komin undir einn helsta auðjöfur landsins. Guðmundsson Fórlengifyrirhinu stöðuga bókaforlagi Máli og menningu áður en félagið sameinað- ist Vöku-Helgarfelli. Draum- órarnir um risaútgáfufyrirtæki urðu honum þó að falli og nú er Mál og menning minnihlutaeig- andi i Eddu og Halldór sjálfur haldinn á brott til að skrifa um nafna sinn Laxness. Edda útgáfa varð til með samruna Máls og menningar og Vöku-Helgafells árið 2000. Sameininguna má rekja til drauma forsvarmanna fyrirtækjanna um að koma á fót öflugu íslensku út- gáfufyrirtæki sem hefði burði til að keppa við erlend fyrirtæki sem menn óttuðust að gætu rutt sér til rúms á ís- lenska bókamarkaðnum. Einnig voru mikiar vonir bundnar við nýja tækni og hvers kyns margmiðlun sem sést best á nafninu sem fyrirtækið upp- haflega fékk, Edda miðlun og útgáfa hf. Menn ætluðu sér stóra hluti með hið nýja fyrirtæki en eitthvað fór úrskeið- is á leiðinni. Samdráttur varð í þjóðfélag- inu og alls kyns viðbótarkostnaður vegna sameiningarinnar kom síðar í ljós. Þá átt- uðu menn sig á þvf að netbólan var sprungin - enda hefur fyrirtækið nú klippt orðið „miölun" aftan af nafn- Halldór m s §lÉ|í V, • i ' 'TDV^ IJ § 1 mmgf i&mm Wá - r-' . . • • ÍS|g:-:: ■ > 'SáiillÍÉÍÍÍ *«MP* mmsom wvmmmmm . inu. Fljótlega varð ljóst að allt of geyst hafði verið farið í sameininguna og betur hefði mátt huga að mörgum þáttum. Ekki leið á löngu þar til hið nýja fyrirtæki þurfti á 100 milljóna króna hlutafjáraukningu að halda til að geta haldið áfram starf- semi. Bókaklúbbur verður stórveldi Bókmenntafélagið Mál og menning var stofnað árið 1937. Að stofnun þess stóðu bókaútgáfan Heimskringla og Félag byltingarsinnaðra rithöfunda, með þá Kristin E. Andrésson, Halldór Laxness og Jóhannes úr Ködum í broddi fylkingar. Mál og menning starfaði fyrst sem bóka- klúbbur þar sem menn gengu í félagið, greiddu félagsgjöld og fengu bækur send- ar í staðinn. Þessi fyrstu ár félagsins voru mikil uppvaxtarár og 1942 var verslunar- rekstri bætt við starfsemina undir forystu Kristins sem á þessum tíma var formaður félagsins. Hann gegndi formennsku og framkvæmdastjórn allt fram til 1971 þeg- ar Sigfús Daðason tók við. Ýmsir komu svo að stjórnun Máls og menningar árin á eftir uns Halldór Guðmundsson og Árni Einarsson komu til starfa 1984; Halldór sem útgáfustjóri og Árni sem ffamkvæmdastjóri. Fé- lagið hafði þá náð mjög góðri fótfestu á hinum íslenska bókamarkaði. Mál og menning var sjálfseignarfélag með stöðugan rekstur sem stóð undir sér og næsta áratuginn átti félagið eftir að vaxa enn frek- Vaka-Helgafell stækkar við sig Ári eftir að Halldór Guðmundsson tók við starfl útgáfustjóra Máls og menningar festi bókaútgáfan Vaka, sem var stofnuð árið 1981 af hjónunum Ólafl Ragnarssyni og Eh'nu Bergs, kaup á bókaforlaginu Helgafelli. Úr varð Vaka-Helgafell sem hafði marga af þekktustu rithöfundum landsins á sínum snærum. Eftir það færð- ist starfsemi Vöku inn á sffellt fleiri svið útgáfu og miðlunar. Almenna bókafélagið varð svo hluti af Vöku-Helgafelli árið 1997 og bókaforlagið Lögberg ári síðar, ásamt tímarita- og bókaútgáfunni Iceland Review. Kreppa hafði samt sem áður ver- ið í bókaútgáfu árin á undan og útgefend- um hér á landi fækkað verulega. Þrátt fyr- ir það hafði rekstur Vöku-Helgafells alltaf skilað hagnaði. Mál og menning rekur sig sjálft Þrátt fyrir að illa gengi hjá mörgum bókaforlögum á tíunda áratugnum hafði Mál og menning alltaf sterka stöðu á markaðnum. Reksturinn gekk upp og var alltaf réttu megin við strikið, utan árið 1994 þegar halli varð á rekstri félagsins. Félagið átti sig að mestu sjálft og var utan- aðkomandi aðilum svo gott sem óháð. Höfðu menn á orði að félagið væri komið í þá stöðu að það ræki sig sjálft - hafði góða markaðsstöðu og stöðugar tekjur þannig að erfitt var að klúðra rekstrinum. Árið 1995 hafði Sigurður Svavarsson tekið við starfi framkvæmdastjóra hjá Máli og menningu af Árna Einarssyni, sem var gerður að verslunarstjóra. Sig- urður og Hafldór fóru því fyrir félaginu síðustu árin fyrir sameininguna við Vöku- Helgafell og gegndu mikilvægu hlutverki við sameiningarferlið. Loftkastali Halldórs Sameining Vöku-Helgafells og Máls og menningar kom til vegna draumóra forsvarsmanna fyrirtækjanna um eitt öflugt útgáfufyrirtæki á íslandi sem gæti keppt við erlenda aðila. Mál og menning hafði stuttu áður misst sinn helsta markaðsmann, Jóhann Pál Valdi- marsson, út úr fyrirtækinu sem var í raun stefnulaust eftir það. Þá leitaði Mál og menning inn á ný svið - sóttist m.a. eftir sameiningu við Vöku-Helgafell til að bjarga markaðsmálum fyrirtældsins, og það gerði Halldór f andstöðu við fé- lagsráð Máls og menningar. Þá æduðu menn að hefja stórsókn íslenskra bók- mennta á erlendum vettvangi og nýta sér Netið til miðlunar á upplýsingum - allt í takt við þá bjartsýni sem á þessum tíma ríkti í viðskiptalífinu. Halldór Guð- mundsson var einn helsti hugmynda-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.