Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Side 32
32 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004
Fókus 0V
Debbie Tatum fannst hún hafa himin höndum tekið þegar hún hitti Charles Daniels. Þau voru yfir sig
ástfangin og Debbie taldi að baslið væri að baki. Hún vissi ekki að maðurinn átti sér skuggalega fortíð.
Hann hafði verið dæmdur fyrir nauðgun og morð.
Charles Daniels hafði eytt mestum
hluta ævi sinnar á bak við lás og slá.
Árið 1965 var hann dæmdur í fangelsi
fyrir að nauðga og myrða unga stúlku
á hrottafenginn hátt. Janet Harris var
aðeins nítján ára þegar hún lenti í
klónum á Charles Daniels. Hún var á
leiðinni á heimavistina sína í New
Orleans eitt kvöld þegar hún varð á
vegi Charles. Hann réðst á ungu
stúlkuna og misþyrmdi henni þar til
hún var ekki lengur með lífsmarki.
Sérstæð sakamál
Hann fleygði líkinu síðan í skurð þar
sem það fannst þremur dögum síðar.
Charles var handtekinn skömmu
síðar og ákærður fyrir morðið. Hann
hélt því fram fyrir rétti að hann hefði
verið illa haldinn umrætt kvöld vegna
mikillar neyslu áfengis og lyfja. Hon-
um hefði ekki verið sjálfrátt. Kvið-
dómur tók skýringarnar trúanlegar og
dæmdi Charles í ævilangt fangelsi.
Flestir áttu von á að hann yrði dæmd-
ur til dauða fyrir hinn skelfilega glæp.
Charles hóf afplánun og þótti
standa sig vel í fangelsinu. Honum
tókst að vinna úr erfiðum málum, svo
sem kynferðislegri misnotkun í æsku.
Hann tók sig til og lærði að lesa og
skrifa í fangelsinu og var auk þess
duglegur að sækja ýmis önnur nám-
skeið.
Hann var sannkallaður fyrirmynd-
arfangi. Það var þess vegna ekki skrýt-
ið að beiðni hans um náðun árið 1990
átti góðan hljómgrunn. Fangelsis-
stjórinn gekk fram fyrir skjöldu og
mælti með því að Charles yrði sleppt.
„Ég tel að Charles Daniels sé ekki
lengur ógn við samfélagið. Hann hef-
ur hins vegar margt að gefa samfélag-
inu," sagði fangelsisstjórinn.
Skrifaði upp á lán
Charles hóf nýtt líf. Hann kynntist
ungri konu, Debbie Tatum, og með
þeim tókust ástir. Debbie var einstæð
móðir ijögurra barna og líf hennar
hafði verið mikið basl um nokkurra
ára skeið. Hún tók þvf hinum við-
kunnanlega Charles fagnandi og trúði
því að nú gæti lífið orðið léttara.
Charles var í ágætri vinnu sem vöm-
flutningabílstjóri. Hann var reyndar
tíðum að heiman en dvaldi ávallt hjá
Debbie á milli ferða. Hann lét henni í
té hluta launa sinna og það kom sér
sannarlega vel á barnmörgu heimil-
inu.
Lífið gekk sinn vanagang og
nokkur tími leið þar til vandræði
steðjuðu að. Það gerðist þegar
Charles tók stórt lán í nafni Debbi-
ar. Hann sagði unnustu sinni, sem
satt var, að hann hefði ekki láns-
traust í bankakerfinu. Debbie tók
þessu vel og skrifaði upp á lánið.
Hún vissi að öðm leyti ekkert um
skuggalega fortíð ástmanns síns. Að
fáeinum vikum liðnum tóku
gluggaumslögin að berast Debbie.
Lánið var í vanskilum og svo fór að
bankinn hótaði að selja ofan af
henni íbúðina. Hún óttaðist um af-
drif barna sinna ef bankinn léti til
skarar skríða.
Að kvöldi 22. apríl árið 2000 fór
Debbie svo ásamt Charles í gleðskap
hjá vinafólki. Debbie hafði áhyggjur
af peningamálunum og óttaðist að
lenda á götunni. í partíinu trúði hún
vinkonu sinni fýrir öllu saman.
Trukkurinn Virmutæki Charles Daniels. Bill-
inn var búinn GPS-staðsetningartæki. Það
átti eftir að koma sér vel.
Fyrirmyndarfangi Charles Daniels sýndi
allarsínar bestu hliðar í fangelsinu. Hann
lærði að lesa og skrifa. Hann stóð sig svo vel
að beiðni hans um náðun var samþykkt.
Charles heyrði á tal vinkvennanna
og varð allt annað en glaður.
Óþekkjanleg eftir barsmíðar
Tveimur sólarhringum síðar
fannst illa útleikið lfk ungrar konu
skammt frá New Orleans. Unga kon-
an hafði augljóslega sætt miklum bar-
smíðum og var með öllu óþekkjanleg.
Tannlæknaskýrslur leiddu í ljós að
um var að ræða Debbie Tatum.
Bömin hennar íjögur vom orðin
móðurlaus og ekkert sást til verðandi
stjúpa þeirra, Charles Daniels.
Rannsóknarlögreglan hóf þegar að
yfirheyra vini og kunningja Debbiar.
Lögreglumenn höfðu samband við yf-
irmann Charles og var tjáð að hann
væri víðs fjarri við störf. Grunur lög-
reglunnar beindist engu að síður að
honum, enda mönnum kunnugt um
fortíð hans. Fáeinum dögum síðar skil-
Einstæð með fjögur börn Debbie Tatum
varð ástfangin afCharles Daniels. Hún vildi
losna úr eilifu peningabasli og Daniels virtist
vera rétti maðurinn.
Tveimur sólarhríng-
um síðar fannst illa
útleikið lík ungrar
konu skammt frá New
Oríeans. Unga konan
hafði augljósiega
sætt miklum barsmíð-
um og var með öllu
óþekkjanleg.
aði Charles sér aftur til New Or-
leans og var þá færður til yfirheyrslu.
Hann sagði lögreglu að vissulega hefði
hann farið í teitið með Debbie umrætt
kvöld. Hann sagðist hafa ekið Debbie
heim og síðan haldið beint af stað í
vinnuferð. Hann hefði því hvergi verið
nærri sólarhringana á eftir.
Laug að lögregluni
Málið virtist hafa siglt í strand
þegar lögreglumenn urðu þess
áskynja að vörubfll Charles var bú-
inn GPS-búnaði - eins og reyndar
allir bílar hjá fyrirtækinu sem hann
starfaði hjá. Rannsóknin komst á
skrið því nú gátu lögreglumenn
skoðað nákvæmlega allar ferðir
Charles frá því daginn sem þau
Debbie fóru saman í teitið. Kom í
ljós að Charles hafði logið til um
ferðir sínar. Hann gafst upp og játaði
á sig morðið. Ástæðuna sagði hann
hafa verið þá að Debbie hefði hótað
að kæra hann fyrir fjársvik vegna
lánsins.
Charles Daniels var dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi, og í þetta skipti var bætt
við klausu um að hann ætti ekki
möguleika á náðun. Saksóknari sagði
að loknum réttarhöldunum að málið
væri einstakt fyrir þær sakir að GPS-
staðsetningarbúnaður hefði komið
upp um morðingjann. Hann sagði
þetta hugsanlega fýrsta málið af slík-
um toga en vafalítið ekki það síðasta.