Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 Fókus DV Krár • Plötusnúðarnir Palli og *feiggi úr hljómsveitinni Maus leika slagara á 22 fram eftir nóttu. • Gömlu brýnin í SSSól sjá um að starfsfólk Gauksins komist ekki heim til sín fyrr en í morgunsárið. • Dj Valdi spilar á Felix. • Hljómsveitin 3-some spilar á Celtic Cross. Aldrei að vita nema Kristján Gísla taki Júróvisjónlagið sem kom hon- um svo eftirminnilega á kortið. • Hunang skemmtir á Players í Kópavogi. • Hinir einu sönnu Gullfoss & Geysir verða í Leikhúskj allaranum. • Spilafíklamir skemmta á Dubíiner. • Dúett Óskars Einarssonar skemmtir í kvöld á Ara í Ögri í Ing- ólfsstræti. Dúettinn hefur leik um klukkan 23. • DjAki verður á efri hæðinni á Pravda á meðan Dj Sóley sér urn neðri hæðina í rólegri kantinum. • Dóri er plötusnúður kvöldsins á Vegamótum. Tónleikar* Kvartett Ómars • Atli skemmtanalögga verður í stuði á Hverfísbamum. • Spútnik spilar í Klúbbnum við Gullinbrú. • Hermann Ingi stígur á stokk á Búálfinum um klukkan 22. Guð einn veit hvenær sú skemmtun tek- ur enda. Guðjónssonar heldur djasstónleika á Kaffi Iist klukkan 22, í djasstón- leikaröðinni þar, sem hefur hlotið svo góðar viðtökur að næstu vikur verða tónleikar bæði á Ellefubíó eftir vinnu fimmtudags- og laugardagskvöld- um. Aðgangur verður áfram ókeyp- is. • Þungarokksveitin Dark Harvest leikur á Grand Rokk eftir miðnætti. Klassík • Hörðtu: Askelsson leikur á Klais-orgelið í Hallgríms- kirkju verk eftir J.S. Bach, Léon, Boéllman og Kjell Mörk Karlssen klukkan 12. Aðgangur er ókeypis fyrir skólafólk. Hádegishressing í suðursal að tónleikunum loknum. • Kórinn StavangerVocal- ensemble heldur tónleika í Nor- ræna húsinu í tilefni af opnun sýn- Nýr dagskrárliður verð- ur kynntur til sögunnar áBar 11, Ellefui að kvöld. Það er Ellefubíó, vikuleg bíó- kvöld þar sem sýndarverða gamlar og góð- ar tónlistar- og költmyndir. Á þessu fyrsta #kvöldi verður boðið upp a hina stórkostiegu Spinal Tap og svo horr- or-klassíkina Evil Dead 1. Sýningin hefst klukk- an 21 og aðgangur er ókeypis. Golden Globe Bein útsending verður frá afhendingu Golden Globe verðlaunanna á Stöð 2 aðfaranótt mánu- dagsins. Stjörnurnar mæta á svæðið og klappa hver annarri á bakið og veittar verða viðurkenn- ingar fyrir gerð sjón- varpsþátta og kvik- mynda. Þetta er í 61. sinn sem hátíðin er haldin. Útsendingin hefst á miðnætti. REM í Rokklandi Rokkland heldur áfram að vera einn af betri þáttunum í íslensku út- varpi nú um stundir. Það *er að sjálf- sögðu Ólafur Páll Gunnars- son sem heldur um taumana í þættinum, sem er á dagskrá Rásar 2 eftir fréttir klukkan 16 á sunnudögum. Á morgun verður aðaláherslan lögð á hina sögufrægu sveit REM, sem sendi á dög- unum frá sér plötu með bestu lögunum sínum. Jaeja i, ann- Birgir Örn Steinarsson og Páll Ragnar Pálsson eru nýjasta plötusnúðaparið hér í borg. í kvöld gefst fólki færi á að hlusta á þá félaga þeyta skífum á veitingahúsinu 22. Þeir segjast al- veg ófeimnir við það að spila Madonnu og fila það bara vel. Reynum ekki aö vera kúl Biggi og Palli Felagar úr hljám- sveitinni Maus til tiu ára. Hafa nú hafið samstarf sem plötu- snuðar og skemmta á 22 i kvöld. Segjast ekki hika við spila Cindy Lauper i bland við Pixies. DVmynd Teitur „Við höfum verið að spila tveir saman, ég og Palli," segir Birgir örn Steinarsson en hann og Páll Ragnar Pálsson, sem eru báðir úr hljómsveitinni Maus, hafa ný- lega hafið samstarf í plötusnúðaheiminum. „Þetta er fínt fyrirkomulag og maður þarf ekki að sitja við spilar- ann allt kvöldið. Svo þarf maður ekki að labba á milli staða, fær frían bjór og svo fær maður að ráða tónlist- inni og fær borgað fýrir það,“ segir Biggi og segir þá fé- lagana vera afar hrifnir af því að spila slagara. „ Við erum ófeimnir við að spila allt frá Madonnu og Cindy Lauper yfir í Nirvana og Pixies. Við reynum að spila mik- ið af slögurum af því við erum ekki að reyna að vera neitt kúl plötusnúðar, því við erum það ekki,“ segir hann. Dj síðan í desember „Ég hef alla tíð verið óþolandi gæinn í partýum þar sem ég hef límt mig við græjurnar og reynt að stjórna tónlistinni með misjöfnum árangri, þannig að ég er hugsanlega á réttri hillu með því að fá að vera plötu- snúður," segir Biggi. „Ég hef þörf fyrir að leyfa fólki að njóta góðrar tónlistar." Aðspurður af hverju þeir byrj- uðu á að starfa sem plötusnúðar segir hann: „Við vorum beðnir um að spila saman fyrst á Bar 11 í desember þannig að við erum tiltölulega nýbyrjaðir. Undirtektirn- ar hafa verið svo góðar að þeir sem eru að stjórna stöð- unum vilja alltaf fá okkur aftur. Við höfum verið að spila nokkuð reglulega síðan þá.“ Spila aldrei vangalög Biggi segir stemninguna alltaf vera frábæra þegar þeir eru að spila. „Fólk byrjar að hoppa inn upp úr mið- nætti og svo er mannskapurinn farinn að dansa um eitt- leytið. Þaðjrefur hingað til verið opið til kl sex og ég býst við að stuðið eigi eftir að haldast svo lengi," heldur hann áfram. „Svo hefur þetta æxlast þannig að maður vill ekki hætta að spila, stuðið er svo mikið og fólk á það alveg til að verða hálffúlt þegar við hættum." Hann segir að þeir séu alveg hæfilegir í óskalögunum en láti ekki stjórnast. „Ef það er eitthvað sem við eigum til og okkur langar til að spila það sjálfum, spilum við það,“ segir Biggi. „Við endum alltaf á einhverju brjálæðislegu stuðlagi þannig að fólk sofni ekki. Það er miklu skemmtilegra en að spila vangalög sem að mínu mati eiga bara heima á sveitaböllum." Blaðamanni liggur forvitni á að vita hvort Maus sé á hverfanda hveli: „Nei, Maus er eins og Bubbi Morthens: We Ain't going nowhere," segir hann að lokum. Loksins eitthvað fyrir danssjúklingana Árslistapartí útvarpsþáttanna Par- ty Zone og Kronik verður haldið í kvöld á Kapital. Philadelphia-plötu- -^’iúðurinn King Britt mun standa á bak við plötuspilarana eitthvað fram eftir kvöldi en auk hans mun Margeir taka eitthvað í spilarana af sinni al- kunnu snilld. Á neðri hæðinni verður hip hop hjörðin svo að skemmta sér við tónlistarflutning þeirra Kronik- manna Dj Rampage og B-Ruff. Djarfur jazzkenndur-klassísk- ur hip hop snúður King þessi Britt er hingað kominn gagngert til þess að skemmta á þessu árslistakvöldi Party Zone en hann hefur víða komið við á farsæl- um ferli sínum. Hann var meðal annars snúður hjá Digable Planets og er í dag talinn vera einhver flott- ^asti snúðurinn á bandarísku dans- senunni. King mun þó ekki bara halda sig við danstónlistina í kvöld því að öllum líkindum mun hann taka nett hip hop djamm fyrir þá fjölmörgu rappaðdáendur sem ef- laust leggja leið sína á Kapital í kvöld. Eins og áður sagði kemur King frá Philadelphia og öðlaðist hann fyrst frægð fýrir að vera það djarfur að blanda saman klassískum tónum úr soul- og jazz-heiminum við nýja strauma í hip hopi og house-tónlist snemma á síðasta áratug. Síðan þá hefur hann ferðast vítt og breitt um heiminn og leikið þessa samsuðu sína við ágætis viðtökur áheyrenda. Þá hefur hann einnig starfað sem pródúsent, endurhljóðblandari og tónlistarmaður, fyrir utan að vera plötusnúður. Ekki alveg ókunnugur landi og þjóð Fólk má því eiga von á góðri skemmtun á Kapital í kvöld enda King Britt Plötusnúðurinn King Brítt hefur lagt á sig langa leið til þess að leika í sér- stöku árslistapartii útvarpsþáttarins Party Zone sem verður haldið á Kapital I kvöld. ekki á hverjum degi sem frægir kall- ar frá Bandaríkjunum leggja leið sína á klakann til að spila fyrir dans- sjúk ungmenni. King Britt mun stoppa stutt hér á landi en hann er á miklu ferðalagi um þessar mundir. Eftir partíið í kvöld mun hann halda beint til London þar sem hann leik- ur á morgun, en í gær var hann staddur í Frakklandi þar sem hann gerði allt vitlaust. Þessi alþjóðlega dansstjarna mun svo fljótlega setjast niður til að vinna að nýrri plötu sem hann ætlar að vinna með sérvöldum tónlistar- mönnum. Hann hefur þegar starfað með mörgum af frægari nöfnum tónlistarbransans, s.s. Macy Gray, Tori Amos, Yoko Ono, Femi Kuti og Gus Gus þannig að hann er ekki al- veg ókunnugur landi og þjóð. Árslisti Party Zone verður svo fluttur í kvöld í sérstökum fjögurra og hálfs tíma löngum þætti á Rás 2 kl. 19.30. Þar verða 50 bestu danslög ársins kynnt en listinn hefur verið valinn með dyggri aðstoð hlustenda. Að því loknu er svo tilvalið að halda á Kapital þar sem dansað verður framundir morgun. ingar norsku listakonunnar Siri Gjesdal. Tónleikarnir hefjast klukk- an 13. • Helga Rós Indriðadóttir sópran og Elisabeth Föll píanóleikari flytja norræn og þýsk ljóð á Tíbrártónleik- um í Salnum, Kópavogi, klukkan 20. Mínus GefurAngel in Disguise út á vinyl. Mínus með sjötommu Takmarkað upplag af sjö tommu vínylplötu með Mínus verður gefin út þann 2. febrúar næstkomandi. Um er að ræða smáskífuna Angel in Disguise og verða herlegheitin auðvitað einnig fáanleg á geisladiski. Á smáskíf- unni verður líka að finna sérstaka útgáfu þeirra Mínus- manna á lag- inu Nice Boys sem Rose Tattoo flutti á sínum tíma en lagið var sér- staklega flutt fyrir Rock Show á BBC Radio 1. Einnig verður þarna að finna órafmagnaða útgáfu af laginu Insomniac sem tekin var upp á Student Broadcast Network í Bretlandi. Eins og áður sagði er um takmarkað upplag að ræða og því vissara að hafa hraðar hendur. Þeir sem engan veginn treysta sér til að bíða geta tryggt sér eintak á heima- síðu Smekkleysu, www.smekk- leysa.net, strax eftir helgina. Söngleikur um Hljóma Söngleikur um sögu hljómsveit- arinnar Hljóma úr Keflavík verður settur upp á vegum Nemendafélags Fjölbrautarskóla Suðurnesja þegar líður á vorið en þessa dagana er verið að ráða í hlutverk. Tónlist hljómsveitarinnar mun væntalega verða áberandi í uppfærslunni enda eiga Hljómar mikið magn vinsælla laga frá því á árum áður. Ekkert hef- ur þó verið gefið upp um söguþráð- inn en búast má við að eitthvað sniðugt verði spunnið í kringum tónlist Hljómanna. Með þessu munu nemendurnir heiðra ein- hverjar skærustu stjörnur heima- byggðar sinnar og verður væntan- lega hart barist um hver fái að leika ódauðlega töffara á borð við Gunn- ar Þórðarson og Rúnar Júlíusson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.