Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Qupperneq 36
3, 36 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004______________________________________________________________________________________ Sport DV Erum á eftir öðrum - Morten Olsen, lands- liðsþjálfari Dana í knatt- spyrnu, hefur miklar áhyggjur hvert dönsk knattspyrna er að stefna og telur að það sé ekki hlustað á orð hans þegar hann lýsir eftir betri tækni hjá dönsk- um leikmönnum og betri unglingaþjálfun. Olsen segir að jafnvel bestu leikmenn dönsku úrvals- deildarinnar hafi ekki næga tæknilega getu til þess að spila á alþjóðlegum vettvangi. „Ég hef sagt það um það bil 117 sinnum en það er greinlegt að það nennir enginn að taka það ^alvarlega eða skilur það hvernig á að þjálfa unga leikmenn. Við erum góðir í því að verjast, snúa vörn í sókn og pressa en leikmenn okkar skortir tæknilegan skilning og getu til að sækja. Við erum ekki nógu góðir tæknilega. Eins og staðan er í dag verð ég að viðurkenna að Bandaríkin eiga betri leikmenn heldur en við,“ sagði Olsen eftir tap, 3-1, gegn B-liði Bandaríkjamanna í Los Angeles. Tindastóll frá Sauðárkróki varð fyrsta liðið til að sprengja launaþakið sem Körfuknattlei Tindastólsmenn fóru yfir þakið þegar Bandarikjamaðurinn David Sanders kom til liðsin: auk þess sem þeir hafa viku til að koma sér á nýjan leik undir launaþakið. Vantar kraft í fæturna Stefan Lövgren, fyrirliði ®Sænska landsliðsins í handknattleik, var ekki svipur hjá sjón í fyrsta leik liðsins á EM gegn Úkraínu á fimmtudaginn. Lövgren tapaði sjö boltum, fékk dæmd á sig skref, átti misheppnaðar sendingar, náði fáum gegnumbrotum og skoraði aðeins þrjú mörk, nokkuð sem er ekki vanalegt fyrir þennan snjalla leikmann. Hann hefur verið meiddur og ^ viöurkenndi eftir leikinn að *hann hefði vantað allan kraft í fæturna f leiknum. Kæru Spánar vísað frá Spánverjar kærðu sigurmark Króata á Evrópu- mótinu í Slóveníu á fimmtudaginn á þeim forsendum að leiktíminn hefði verið úti þegar Ivan Balic skoraði mark beint úr aukakasti sem tryggði Kró- ötum sigur í leiknum, 30-29. Spánverjar höfðu þó 'ekki erindi sem erfiði því að kærunni var vísað frá í gær. Eftirlitsnefnd KKÍ komst að þeirri niðurstöðu í gær að Tindastóll hefði brotið reglur um launaþak sem sett var áður en tímabilið hófst sfðastliðið haust en þær kveða á um að ekki megi borga meira en ákveðna upphæð á mánuði í laun fyrir leikmenn og spilandi þjálfara. Tindastóli rauf launaþakið með tilkomu nýs Bandaríkjamanns, Davids Sanders, en sökum þess að félagið var ekki að svindla heldur misreiknaði sig þá var það aðeins dæmt til að greiða 100 þúsund króna sekt. Pétur Hrafn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleiks- sambands Islands, sagði í samtali við DV Sport í gær að þetta atvik væri óheppilegt fyrir sambandið en að hann liti ekki svo á að þetta væri einhver áfellisdómur yftr liðunum í Intersportdeildinni. „Ég hefði haft miklar áhyggjur ef að Tindastólsmenn hefðu beinlínis verið að reyna að svindla og fela að þeir væm komnir yfir launaþakið. Það var hins vegar ekki raunin því að þeir vom mjög samstarfsfúsir, skiluðu inn öllum gögnum á réttum tíma en misreiknuðu sig í launaútreikningum. Það vom þeirra mistök en engin önnur," sagði Pétur Hrafn. Ekki einlægur brotavilji „Við sáum það þegar sambandið fékk leikmannasamninginn hjá nýja Bandarfkjamanninum þeirra, David Sanders, að þeir væru komnir yfir launaþakið. Við óskuðum eftir skýringum á því frá forráðamönnum Tindastóls en fengum ekki skýringar sem við gátum sætt okkur við. í ljósi þess að ekki var um einlægan brotavilja að ræða heldur misskilning þá ákváðum við að beita ekki hörðustu refsingum sem lagaramminn segir til um. Við ákváðum að sekta félagið um 100 þúsund krónur en slepptum því að draga fjögur stig af liðinu eins og nefndinni hefði verið fullkomlega heimilt. Forráðamenn Tindastóls hafa nú viku til að koma sínum málum á hreint og það er ljóst að ef ekkert gerist þá verða refsingarnar harðari. Við gætum verið að horfa á að stig verði dregin af þeim eða að liðinu verði einfaldlega vísað úr keppni ef ekkert gerist. Ég á samt ekki von á öðru en að þeir klári sín mál með sóma,“ sagði Pétur Hrafn. Dýrar 27 þúsund krónur Aðspurður sagði Pétur Hrafn að þeir hefðu ekki farið langt yfir launaþakið. „Tindastólsmenn eru með spilandi þjálfara, Kristin Friðriksson, og annan leikmann, Clifton Cook, sem er að þjálfa. Launaþakið hjá þeim var því 600 þúsund en þeir voru komnir upp í 627 þúsund. Það er því ljóst að þeir þurfa að bregðast við þessu á einhvern hátt til að minnka launakostnaðinn. Ég get nefnt sem dæmi að þeir væru undir launa- þakinu ef Kristinn Friðriksson væri ekki spilandi þjálfari sem er grátlegt fyrir þá þar sem hann hefur ekki spilað síðan 4. desember. Þeir geta líka sent einhvern útlending heim eða endursamið um kaup ogkjörvið ákveðna leikmenn. Þetta eru allt möguleikar sem þeir hafa en hvað þeir gera verður að koma í ljós,“ sagði Pétur Hrafn. Niðurstaðan mikil vonbrigði DV sport ræddi við Hjalta Árnason, stjórnarmann hjá „Það vantar að skýrt sé kveðið á um að öll laun spilandi þjálfara eigi að falla undir launaþakið og okkur finnst súrt í broti að vera refsað þar sem slíkar gloppur eru í reglugerðinni." körfuknattleiksdeild Tindastóls í gær og hann sagði að niðurstaða Eftirlitsnefndar KKI væru mikil vonbrigði fyrir deildina og greinilegt að menn túlkuðu reglugerðina um launaþakið á misjafnan hátt. „Reglugerðin er óljós þegar kemur að launum spilandi þjálfara og hvernig þau eiga að falla undir launaþakið," sagði Hjalti. í grein 2.5 í reglugerð KKÍ vegna þátttöku í úrvalsdeild segir: „Launakostnaður þjálfara mfl. flokks karla fellur ekki undir launaþakið, en bæta skal kr. 50.000 á mánuði við launaþakið sé félagið með spilandi þjálfara, enda skal viðkomandi vera aðalþjálfari liðsins." Óskýr regla Hjalti segir þessa reglu vera mjög óskýra og að auðvelt sé að túlka hana þannig að laun spilandi þjálfara falli ekki undir launaþakið og þannig hafi stjórn Tindastóls túlkað reglugerðina. „Það vantar að skýrt sé kveðið á um að öll laun spilandi þjálfara eigi að falla undir launaþakið og okkur finnst súrt í broti að vera refsað þar sem slíkar gloppur eru í reglugerðinni," sagði Hjalti. Pétur Hrafn sagði hins vegar að í huga hans og Eftirlitsnefndarinnar væri reglugerðin ansi skýr og varla hægt að draga í efa hvað stæði þar. „Það fylgir greinagerð með reglugerðinni þar sem farið er nákvæmlega ofan í hvern einasta lið hennar og í okkar huga var ekki hægt að túlka það á neinn annan hátt en þann að laun spilandi þjálfara ættu öll að fara undir launaþakið." Hlítum ákvörðuninni Hjalti sagði þó að stjórn Tindastóls myndi hlíta þessum úrskurði og laga sín mál þannig að þau féllu innan þess ramma sem Eftirlitsnefnd KKÍ setti. „Við höfum núna viku til að gera grein fyrir okkar málum og munum funda um helgina til að komast til botns í þessu máli," sagði Hjalti Árnason, stjórnarmaður körfuknatt- leiksdeildar Tindastóls í samtali við DV Sport í gær. oskar@dv.is Yfir launaþakinu Bandaríkjamðurinn Nick Boyd, sem sést hér i baráttu við KR-inginn Baldur Ólafsson fyrr I vetur er einn þriggja bandariskra leikmanna Tindastóls en hinir eru Clifton Cook og David Sanders. Auk þeirra er Kristinn Friðriksson spilandi þjálfari liðsins. Samanlagt fá þessir kappar 627 þúsund I laun, 27 þúsund krónum meira heldur en reglugerð KKÍ um launaþak segir tii um. 27 þúsinid yfir lau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.