Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Qupperneq 39
1>V Sport LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 3íT Snorri Steinn stendur sig Snorri Steinn Guðjónsson er búinn að standa sig vel í Slóvenlu og hefur skorað niu mörk i fyrstu tveimur leikjunum. Hér fær hann harðar móttökur frá Ungverjunum Diaz og ivancsik í leiknum i gær. DV-mynd L - - ' \ , M * i 1 stáatíí íslendingar hafa tapað báðum leikjum sínum á Evrópumótinu í Slóveníu. í gær tapaðist annar leikurinn með þremur mörkum gegn Ungverjum. Erum komnir í vond mál Það er ljóst að íslenska landsliðið í handknattleik gerir tæplega stórar rósir á Evrópumótinu eftir að þeir töpuðu fyrir Ungverjum í gær, 32-29. Það voru að mestum hluta sömu vandamál og voru fyrir hendi í Sló- veníuleiknum sem urðu liðinu að falli í gær. Vörnin er slök og leik- menn eru að klúðra aragrúa færa á ögurstundu. Leikir í Evrópukeppni eru einfaldlega það jafiiir að ekkert lið getur leyft sér að klúðra dauða- færum í stórum stíl og spila slakan vamarleik. Leikurinn byrjaði ágædega fyrir okkar menn. Jaliesky Garcia hafði greinilega fundið sjálfstraustið því hann byrjaði með miklum látum og að manni læddist sá grunur að þetta gæti orðið okkar dagur en svo var nú aldeilis ekki. Hægt og sígandi tóku Ungverjarnir völdin á vellinum og virtist litlu muna um að þeirra besti maður, Laszlo Nagy, gat ekki leikið vegna meiðsla. Við vorum alltaf ein- hvern veginn skrefi á eftir þrátt fyrir að það hafi verið jafnt í leikhléi. Það var ekki mikið búið af síðari hálfleik þegar hinn alræmdi slæmi kafli kom hjá íslenska liðinu. Á þeim kafia misstum við menn af velli. Ung- verjar gengu á lagið skoruðu fimm rnörk í röð og tóku leikinn hreðjataki. Því taki slepptu þeir næstum í lokin þegar íslenska liðið fékk nokkur tæki- færi til þess að koma sér aftur inn í leikinn en það tælkifæri afþökkuðu þeir með því að klúðra dauðafærum á versta tíma. Því fór svo að lokum að leikurin tapaðist með þrem mörkum og ljóst að íslenska liðið á takmarkaða möguleika að blanda sér í baráttuna um toppsætið. Þeir em ekki einu sinni ömggir um farmiðann í næstu umferð. Vamarleikurinn í fyrstu tveim leikjunum hefur verið langt frá því að vera viðunandi. Það koma einstaka kaflar þar sem hún stendur ágætlega en lengstum er hún slök. Það verður bara að viðurkennast. Ólafur Stefáns- son var fjarri sínu besta varnarlega, og reyndar ekkert sérstakur sóknarlega, en hann lét Ivo Diaz leika sig grátt all- an leikinn. Fyrir vikið kom lítil mark- varsla en Reynir stóð þó fyrir sínu sem og Rúnar en þó ber að hafa í huga að Sigfús gat ekkert leikið í vöminni frá 13. mínútu. Só{cnarleikurinn í gær var skárri en gegn Slóvenum en þó ekki viðunandi. Iitill hraði er í sóknar- leiknum og leikmenn taka ítrekað slakar ákvarðanir ef þeir em einum færri. Það hefur verið að leika liðið grátt því þeir fá nær undantekninga- laust hraðaupphlaupsmark í andlitið í kjölfarið. Ólafur gerði hvað hann gat í þess- um leik en fann sig ekki fullkomlega. Rúnar var sterkur og skilaði góðum mörkum sem og Jaliesky Garcia sem skoraði mjög falleg mörk og sýndi að hann getur meira en hann ömgglega telur sjálfur. Snorri Steinn átti einnig fína innkomu í síðari hálfleikinn en Guðmundur tók hann allt of snemma af velli því hann var að stýra liðinu vel þótt skotin hafi ekki alveg gengið til að byrja með. Mestu vonbrigðin em þó Dagur Sigurðsson og Patrekur Jóhannesson. Nákvæmlega ekkert hefur komið út úr þessum tveim leikmönnum það sem af er og verður að segja lrlutina eins og þeir em - þeir líta mjög illa út á vellinum. Virka í engri leikæfingu og skottilraunir þeirra em eins og æf- ingaboltar fyrir varnir andstæðing- anna. Það er ekki öll nótt úti enn fyrir íslenska liðið en ljóst að þeir verða að gera mUdð betur á sunnudag því þeir hafa ekki staðið undir væntingum það sem af er og það er engan veginn ásættanlegt að þeir fari heim sigur- lausir á mánudag. henry@dv.is Guðmundur Guðmundsson landsliðs- þjálfari eftir tapið gegn Ungverjum. Verðum að fara yfir okkar leikfráAtilÖ Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var niðurlútur á blaðamannafundinum eftir leik- inn enda bar sig þó ágætlega er blaðamaður ræddi við hami. „Ég er sársvekktur. Við vomm í nokkuð góðri stöðu lengi í þess- um leik en það kom mjög slæmur kafli frá 36.mínútu sem gerði von- [íýSjHfSMÍfTg ir okkar þegar upp er staðið að engu. Þar fóm menn að stytta sóknimar of mikið og færðu and- stæðingunum boltann. Þann mun brúuðum við aldrei. Svo má ekki gleyma að við vomm ansi nærri því að ná muninum upp í lokin. Fengum vömina í gang og vomm komnir virkilega nálægt því að jafna. Fengum tækifæri til þess að minnka muninn í eitt mark einu sinni eða tvisvar en því miður kláruðum við ekki færin okkar og það hefur einkennt okkur í þessari keppni. Svona er þetta bara og við verðum að fara yfir okkar leik ffá a til ö“, sagði Guðmundur sem er langt frá því að vera ánægður með varnarleikinn í fyrstu tveim leikj- unum. Ekki ánægður með vörnina „Hann er ekki nógu grimmur. Hann var köflóttur í þessum leik en á heildina var ég ekki ánægður með hann. Slíkt dugir hreinlega ekki gegn svona sterkum liðum. Við verðum að átta okkur á því að við vomm að spila á móti Ung- verjum sem urðu í 5,sæti á síðasta HM og eru verulega sterkir. Við erum samt ekki að spila nægilega vel til þess að verðskulda sigur í þessum leikjum. Það er einfalt , mál. Slæmi kaflinn hefur iðulega komið þegar íslenska liðið er manni færri en það er staða sem íslenska liðið er að klára mjög illa." Dauðafærin klikka „Það hefur gerst í báðum leikj- unum þótt í fyrri leiknum hafi ver- ið í við erfiðari staða þegar við vomm tveim og þrem mönnum færri. Við höfúm ekki verið nægi- lega agaðir í þessari stöðu. Þessi staða gekk mjög vel á HM í fyrra en að þessu sinni hefur mér fund- ist vera óðagot á mönnum og í rauninni emm við að henda ffá okkur boltanum of snemma í stað þessaðlátaþáfrekardæmaáokk- -«► ur leiktöf og komast f vörn í stað þess að fá alltaf hraðaupphlaup og mark í andlitið. Þetta hefur elt okkur og við förum betur yfir mál- ið. Svo em það dauöafærin og ég veit ekki af hverju þau klikka svona mikið. Við hefðum getað aukið forskotið í þrjú mörk á tíma- bili. Nýtum það ekki og alltaf í krítískri stöðu emm við að fara illa með dauðafærin og í svona jöfn- um leikjum gengur það ekki. Við ætlum aðeins að sleikja sárin og fara yfir okkar mál og við höfum núna smá tíma til þess. Það verður að halda reisn og klára Tékkaleikinn. Fara svo í milliriðil- inn og selja okkur eins dýrt og við getum." henry&dv.is VÍNSÝNING VÍNÞJÓNASAMTAKA ÍSLANDS ÞINGSÖLUM HÓTEL LOFTLEIÐA 24.-25. JANÚAR 2004 Opið laugardag og sunnudag frá 14.-00 - 18:00 Á laugardeginum keppa vínþjónar í Ruinart keppninni kl. I4.-00 A sunnudeginum erufyrirlestrar frá 14:30 Kynnir: Þorri Hringsson vínrýnir Sýningin er haldin í samvinnu við alla helstu innflytjendur vtna og er mikil áhersla lögð á samspil víns og matar Miðaverð er 1000 kr. Riedel-glas fylgir á medan birgdir endast Aldurstakmark er 20 ár

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.