Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Síða 43
DV Fókus
Afram
ísland
Evrópukeppnin í handbolta hófst á fimmtudaginn. Á meðan landsliðsmennirnir
berjast við að halda uppi heiðri þjóðarinnar sitja eiginkonur þeirra flestra og fjöl-
skyldur heima á klakanum og geta ekkert annað en vonað það besta. Nokkrar
þeirra hittust yfir fyrsta leiknum og leyfðu DV að fylgjast með.
Rafmögnuð stemning hjá eiginkonum landsliðsmannanna Eiginkonurog börn nokkurra landsliðsmanna hittustyfir fyrsta leiknum á fimmtudagskvöldið. Að sjálfsögðu varborðiðvel
dekkað með veitingum og ekki laust við að smá saumakiúbbsbragur væriyfir þessu. Frá vinstri eru Helga Sigriður Lárusdóttir, Birna Ósk Hansdóttir, Hlín Halldórsdóttir, Þóra Þorsteinsdóttir og
Marin Sörens.
kelsson sýndi góð tilþrif á þrettándu
mínútu. Einni mínútu síðar stal
Guðjón Valur boltanum af Slóven-
um í hraðaupphlaupi. „Þetta var
þessi sæti þarna númer níu,“ sagði
Þóra þegar blaðamaður spurði hver
hefði verið að verki. Spennan var
rafmögnuð hjá stúlkunum þegar
þær horfðu á leikinn, þótt sumar
þyrftu að skipta um bleiur á börnun-
um inni á milli.
Strákarnir stóðu sig vel í íyrri
hálfleik og makarnir voru ánægðir
með frammistöðuna. I seinni hálf-
leik fór aftur á móti að harðna á
dalnum. „Dómarinn er að skemma
allt fyrir okkur," sagði Marín.
Þegar tíu mínútur voru liðnar af
seinni hálfleik stefndi í ósigur:
„Hvernig á fertugur maður að geta
ráðið við þetta allt einn, þeir verða
að taka fráköstin," sagði Birna Ósk
þegar Guðmundur varði hvert skot-
ið af öðru. „Stemningin er eins og
við séu tíu mörkum undir,“ hélt hún
áfram á milli þess sem hún sinnti
níu mánaða syni þeirra Einars, Agn-
ari Daða. Sá var afar hrifinn af
innstungum og öllu því sem hann
mátti ekki snerta.
Þegar leið að lokum leiksins
fengu strákarnir hverja tveggja mfn-
útna brottvísunina af annarri.
„Hann kom varla við hann,“ sagði
Þóra þegar maðurinn hennar var
sendur í tveggja mínútna hvíld.
Stemningin dalaði smám saman eft-
ir því sem ljósara varð að við mynd-
um tapa. Betri helmingarnir voru
frekar ósáttir. „Ég þoli ekki að tapa,“
sagði ein og önnur bætti við: „Ég
hringi ekki í hann í kvöld, hann er
pottþétt í fylu.“
íhann
íkvöld,
Fituirtii
og freistandi
Fyrsta markið í leiknum við
Slóvena kom ekki fyrr en um það bil
þrjár mínútur voru liðnar af leiknum
og það var strax kominn skjálfti í
konurnar. Þegar rúmar sex mínútur
voru liðnar var íslenska liðið búið að
skora tvö mörk. „Hei, við erum kom-
in með tvö mörk, hver skoraði
seinna markið?" sagði Þóra Þor-
steindóttir, eiginkona hornamanns-
ins Guðjóns Vals. Stelpurnar voru að
sjálfsögðu með börnin sín með að
horfa á leikinn og gátu af þeim sök-
um ekki setið eins límdar við skjáinn
og þær hefðu eflaust viljað.
„Hann er svo mikill „match-
winner hann Gummi þegar á þarf að
halda,“ sagði Birna Ósk Hansdóttir,
kona hins hornamannsins, Einars
Arnar, þegar Guðmundur Hrafn-
Áhyggjufullar steipurnar Hlin Halldórs-
dóttirog Þóra Þorsteinsdóttir eru frekar
áhyggjufutiar vegna sinna manna.
'
a
TOUAGE-CHEE.Sf
* MEÐANANASKURU
fiá^íÍÉsssiS'<
HWs
^ .^^öOTTAGE-C/ygfXyj
'I
MEBHVÍTLAUK
. ■ m
www.ostur.is
Eg hpingi ekki
hamep
potthétt í fýlu