Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Síða 48
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090 SKAFTAHLÍÐ 24 10S REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMISS05000 • Galleríeigendur í Reykjavík eru í sjöunda himni yfir því •teimsfræga fólki sem Dorrit Moussaieff býður til landsins og tjúttar með á Bessastöðum. Gest- irnir ryksuguðu svo gott sem allt sem til var af listaverkum í Gallerí i8 við Klapparstíg. Þar keypti frægasti arkitekt Evrópu verk eftir Rögnu Róbertsdóttur og barónessa Francesca von Habs- burg pantaði verk eftir Gjörningaklúbbinn og hljóðverk eftir Finn- boga Pétursson. Þá seldust myndir eftir Kristján Guðmundsson og svo 1 **að sjálfsögðu allt sem var inn- an seilingar eftir Ólaf Elíasson. „íslenskir kaupendur standa aldrei undir gallerírekstri eins og þessum. Það eru svona gest- ir sem við þurfum," segir Edda Jónsdóttir í Gallerí i8 ... X-Dorrit! Kasnlnnap óMr Dorrit í stuði Sumir hafa áhyggjur af því að Ástþór og geggjaði myndlistar- maðurinn frá Akureyri ætli í for- setaframboð á móti Ólafl Ragnari. Svoleiðis kosningar myndu kosta 30 milljónir, segir Ingvi Hrafn á Sögu og má vart mæla vegna hneykslunar. Menn gleymá því hins vegar að það mætti spara miklu meira fé með því að sleppa alþingiskosningum. En það er önnur saga. Þó skal hugga með því að engin ástæða er til að skipta um forseta í kosningum í sumar. Það er þegar búið að því. Dorrit Moussaieff hef- ur tekið völdin á Bessastöðum með átaki á heimsmælikvarða og for- setasetrið er fyrir bragðið á öllum betri vörum í Evrópu. Ekki er nóg með að Dorrit tjái sig um utanríkismál og segi þar hug þjóðarinnar svo bergmálar um heim allan. Hún stefnir einnig hingað öllum helstu listaspírum af meginlandinu til að vera við opn- un myndlistarsýningar í Hafnar- stræti. Og slær svo upp ballli á Bessastöðum á eftir með bítla- (5 Á bakinu með Eiríki Jónssyni hljómsveit í borðsalnum. Með þessu öllu færir hún ekki aðeins forsetaembættið nær fólkinu held- ur einnig og ekki síður nær heims- byggðinni. Allt í einum pakka með útsjónarsemi heimskonunnar sem veit hvað klukkan slær. Dorrit fetar á nútímalegan hátt í fótspor Kristjáns Eldjárns og Vig- dísar Finnbogadóttur sem bæði breyttu forsetaembættinu á sinn hátt. Kristján með því að ganga Austurstrætið og heilsa fólki að al- þýðusið. Vigdís með kankvísu samneyti við helstu stjórnarherra heims sem allir féllu fyrir henni - og landinu. Dorrit gerir það sama á sinn hátt. Hún er kona nýrra tíma og skilur betur en nokkur annar eðli og tilgang forsetaembættisins. Vangaveltur um væntanlegar forsetakosningar má láta lönd og leið. Dorrit hefur stimplað sig inn á Bessastaði og í þjóðarsálina til frambúðar. Hún er forsetinn sem við þurftum. VISA-kreditkorthöfum stendur til boða að setja fasteignagjöldin í boðgreiðslur þ.e. greiða þau með reglulegum færslum af VISA-korti. Þeir sem nýta sér þennan þægilega kost fá ekki lengur sendan reikníng en þess í stað er kort þeirra skuldfært og færsla á yfirliti gildir sem kvittun. Þeir korthafar sem hafa áhuga á að notfæra sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir um að hafa einhvern eftirfarandi hátt á til að tilkynna það: • Með símtali: 560 0300,560 0350,563 2062 • Með tölvupósti: tollstjori@tollstjori.is • Með símbréfi: 562 5826 • Með bréfi: Tollstjórinn í Reykjavík, Afgreiðslu- deild, Tryggvagötu 19,150 Reykjavík Athugið að þeir sem þegar eru að greiða fasteignagjöld með boðgreíðslum þurfa ekki að tilkynna það aftur. Allir korthafar sem eru með Vildarkort VISA og lcelandair fá punkta af boðgreiðsluviðskiptum Greiðendur fasteignagjalda í Reykjavfk Ferðapunktar: Korthafar sem eru með Vildarkort VISA og lcelandair fá Ferðapunkta af boðgreiðsluviðskiptum eins og af allri innlendri notkun kortsins. Punktana er hægt að nota til kaupa á flugfarseðlum út í heim. Sklptikjör: Sérstök skiptikjör eru í boði fyrir þá sem vilja skipta yfir í Vildarkort. Til þess skal hafa samband við banka eða sparisjóð. BOÐGREIÐSLUR - sjálfvirkar færslur á VISA-kreditkort * m\ V/SA , mm 1 |boðgreiðslur|

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.