Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Page 2
2 MÁNUDAQUR 9. FEBRÚAR 2004 Fréttir DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson, ábm. Ritstjóran lllugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjórar Kristinn Hrafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - Aðrar deildin 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Verkfræði á Sléttu Fjöldi bfla festi sig á sama vegarspottanum á Melrakkasléttu um helg- ina, en spottinn gengur undir nafn- inu „verk- fræðingur- inn“. Þar myndast alltaf stórir skaflar í hvert sinn sem snjóar og þegar heimamenn spyrja hvers vegna vegurinn hafl verið lagður ná- kvæmlega þarna, er svarið allaf hið sama: „Verkfræðingurinn segir að þetta eigi að vera svona - þetta er besta leiðin." Útlit Ruthar Reginalds Eg skal fúslega viðurkenna að Ruth Reg- inalds hefur aldrei beinlínis verið mín týpa. Út af fyrir sig kemur það auðvitað engum við og fyrir skömmu hefði ég á dauða mínum frekar átt von en því að hafa opinberlega skoðun á útliti Ruthar Reginalds. Nú hafa hún og Stöð tvö hins vegar stigið það skref sem leiða mun til þess að á næst- unni mun stór hluti þjóðarinnar finna sig til þess knúinn að hafa skoðun á útliti mann- eskjunnar og því skal þessu lýst yfir strax: Ruth Reginalds er ekki mín týpa. En jafnharðan skal því þá lýst yfir að mér hefur eigi að síður alltaf þótt Ruth Reginalds heldur geðþekk og snaggaraleg í útliti og aldrei í lífinu hefði hvarflað að mér að þessi manneskja þyrfti á heimsókn til lýtalæknis að halda. Því engin lýti hafa verið á henni sjáan- leg. Þær „lýtalækningar" sem Ruth Reginalds ædar nú að leggja út í ættu auðvitað að vera hennar einkamál, nema hvað hún hefur kos- ið - með fulltingi Stöðvar tvö - að gera úr því opinbera leiksýningu sem þjóðin á að fýlgjast með næstu vikurnar: hvernig fullkomlega eðlifeg manneskja í útliti, og meira að segja heldur snotur, Iætur skera sig þvers og kruss til að freista þess að komast nær „staðalútliti" fegrunarfræðinganna. Látum vera þótt Ruth Reginalds sjálf sé af einhverjum ástæðum svo óánægð með údit sitt að hún kjósi að leggjast undir hnífinn vegna þess. Hitt er verra að heil sjónvarpsstöð skuli æda að taka þátt í þessari vitíeysu og gera úr því einhvers konar „hetjusögu" - því það fer ekki milli mála að það verður sá póll sem tek- inn verður í hæðina. Það er jafnvel talið til marks um kjark! Hvernig Ruth Reginalds „sigrast" á „lýtum sínum“ og verður „falleg“. Og með þessari „hetjusögu“ sendir Stöð tvö eftírfarandi skilaboð til ungra stúlkna í þessu landi, og raunar til allra kvenna: Það er eðlilegt að þið þjáist og pínist yfir því ef andlitið á ykkur fellur ekki nákvæmlega að skilgreiningum fegrunarfræðinganna. Það er eðlilegt að þið þráið að líta allar út eins og Britney Spears, eða hvað þær heita. Það er eðlilegt að þið viljið leggjast undir hníf „lýta- lækna“ til að vinna bug á smávægilegri óánægju með smávægileg atriði í útlitinu. Og um leið sendir Stöð tvö þau skilaboð til stúlkna og kvenna að allt annað en „staðalút- litið“ sé „lýti“ - ef ekki beinlínis „sjúkdómur" sem leita þurfi til lækna út af. Fyrirgefiði fjórtán sinnum, Stöðvar tvö- menn: Er þetta það sem ungar stúlkur þessa lands þurfa á að halda? Illugi Jökulsson Kennslustund Stefáns Torfi fær spildu Landbúnaðamefhd Sveitarfélagsins Árborg- ar hefúr samþykkt að veita TorfaÁskelssyni af- not af landræmu á milli Bjarkarlands og Nýborg- arlands á Stokkseyri sem aðkomu að Dalbæjar- landi. Torfi hefur haft ræmuna á leigu og nýtt til skógræktar. Hún er 50x15 metrar. Fínar myndir ísflrsku ljósmyndaramir Spessi og Halldór Svein- bjömsson mynduðu um 100 pör á Sunnukórs- ballinu sem haldið var á fsafirði í síð- asta mánuði. Ljósmyndar- arnir vildu nota tækifær- ið og mynda fólkið í sínu fínasta pússi þegar allir vom í hátíð- arskapi. Em myndirnar nú boðnar fólkinu til sölu á 3.500 krónur stykkið og þykir gott verð. Verða þær afhentar í papparömmum. Málið ímugustur „Stóra forsetamálið" hefur vakið upp grun- semdir um að þeir Ólafur Ragnar Grímsson og Davíð Oddsson kunni að hafa ímugust hvor á öðrum. Orðtakið„að hafa imugust á einhverjum" hefur að ósekju farið halloka að undanförnu, en það er bæði gott og fagurt, þótt orðið „ímugustur" sé ill- skiljanlegt. Ima merkir tröilkona og gustur þýðir í þessu tilviki „hugsun" eða „hugur". Skáld til forna kölluðu hugsunina „vind (gust) tröllkvenna". Þegar tröllkonur féllu síðan í ónáð varð „hugur þeirra" eðli máls samkvæmt nei- kvætt fyrirbæri og ímu- gustur þýðir því í raun„illur hugur" eða eitthvað álíka. <V <V -C 3 cc *o «o <v Pálssonar „Kommon Guðjón [Fríðríksson]! Nú áttu að heita sagnfræðingur. Hvers vegna stopp- arðu þessa féiaga þína ekki afþegar þeir byrja að mjáima um að þetta sé... ald- arafmæli þingræðis í landinu? Þú veist jafnvel og við að Hannes Hafstein hefði ekki þekkt þing- ræði þótt það hefði bitið hann í rassinn „Stóra forsetamálið" enn og aftur? Já, við vitum að allir em orðnir hund- leiðir á því, en við getum samt eklá á okkur setið að birta hér eina litla kennslustund fyrir okkur fjölmiðlafólk sem Stefán Pálsson, dómari í Gettu betur, tók okkur í á Múmtnn sínum nú nýverið. Þótt við getum ekki hugs- að okkur héðan af að fýlgja fyrirmæl- um Stefáns upp á punkt og prik, mun- um við hafa þau bak við eyrað og spyija þeirra næst þegar tilefni gefst. Stefán skrifaði á Múrinn: „Mikið er þrefað um rfkisráðsfúnd þann sem haldinn var um helgina. Heilu frétta- tfmamir em undirlagðir af þessum kortérsfúndi, hveijir hafi mætt, hverjir ekki og hvers vegna. í þessu fári hafa menn spurt margra spuminga, en því miður ekki réttu spuminganna. Svo virðist sem eina ferðina enn komi það í hlut Múrsins að kenna fjölmiðlafólki að vinna vinnuna sína. Undan því verkefrú skal ekki vikist og hér fylgir því lisú yfir þær spumingar sem fjöl- miðlamenn hefðu átt að spyrja - en gerðu ekki: 1. spurning: (til Halldórs Blöndals, ráðherra rikisstjórnarinnar og Júlíusar Hafsteins) „I ljósi þess að allir vita að þú hatar Ólaf Ragnar eins og pestina, er það þá ekki hræsni'að þykjast vera sár yfir að hann hafi ekid komist í partýið þitt?“ 2. spurning: (til forsetans) „í ljósi þess að þú hatar hálfa ríkisstjórnina og forsæúsráðherra sýnu mest, er það þá ekki hræsni að þykjast vera spæld- ur yfir að hafa ekki þurft að sitja í tutt- ugu klukkutíma í flugvél til að sitja fyr- ir á einni ljósmynd með þeim og drekka hálft kampavínsglas?" 3. spurning: (til Sjálfstæðismanna) „Af hverju í ósköpunum hefðuð þið þurft á aðstoð forsetans að halda? Eins og þið séuð ekki einfærir um að breima um karlmennsku, hetjulund og sexapíl Hannesar Hafsteins án þess að klakabandaræður Ólafs Ragnars komi til.“ 4. spurning: (til íslensku þjóðar- innar) „Hvernig í ósköpunum á það að geta talist móðgun við þjóðina þótt ein silkihúfan mæti í kokteilboð í stað- inn fyrir aðra? Hvenær varð þjóðin síðast fojj yfir að það væm ekki nógu margir mektarmenn að skála í einu í Þjóðmenningarhúsinu?" 5. spurning: (til allra Gettu betur- nörda landsins) „Bíddu, hvenær varð Fyrst og fremst 1. febrúar 1904 svona merkilegur dag- ur í sögu þjóðarinnar? Ókey, 17. júní og 1. desember - en 1. febrúar??? - Hafði einhver heyrt minnst á þessa dagsetningu áður?" 6. spurning: (til Hannesar Hólm- steins) „Sko, nú vita allir að þvert á viðteknar skoðanir, telur þú að Jón Þorláksson hafi ekki verið þver og súr, heldur heillandi maður og skapandi pólitíkus - en í ljósi þess að árið 1904 var hann rétt rúmlega hálfþrítugur, nýskriðinn heim frá námi og algjört nóboddý, hefði þá ekki mátt sleppa því að troða nafni hans inn í þessa af- mælisdagskrá?"" Hér er rétt að skjóta inn í spum- ingaflóð Stefáns að þessi spuming vís- ar úl sjónvaipsþáttarins um upphaf heimastj ómarinnar sem fluttur var á undan liúu listaháúð Sjálfstæðis- flokksins í Þjóðmenningarhúsinu. Þar var Jón Þorláksson (forsæúsráðheira í rúmt ár 1926-1927) kynntur sem hið eina sanna og eðlilega framhald af hinum mikla og ástsæla leiðtoga, Hannesi Hafstein. En áfram heldur Stefán svo: „7. spurning: (til JúlfusarHafsteins) „Jæja Júlli minn, er ennþá verið að svína á þér innan íþróttahreyfingar- innar? Búinn að kíkja yfir öxlina á mörgum félögum þínum í atkvæða- greiðslum upp á síðkasúð til að athuga hvort þeir séu nokkuð að svíkja þig?" 8. spurning (til Guðjóns Friðriks- sonar) „Kommon Guðjón! Nú áttu að heita sagnfræðingur. Hvers vegna stopparðu þessa félaga þína ekki af þegar þeir byrja að mjálma um að þetta sé ekki bara fullveldisafmæli, heldur lfka aldarafmæli þingræðis í landinu? Þú veist jafnvel og við að Hannes Hafstein hefði ekki þekkt þingræði þótt það hefði bitið hann í rassinn. Af hverju segirðu ekki neitt? Og úr því að við emm með þig hérna - hvernig er hægt að skrifa mörghund- mð blaðsíður um Jón Sigurðsson og vera með þá uppljóstmn helsta að hann hefði verið með sýfilis? Megas var búinn að benda á þetta fyrir löngu." 9. spurning: (til Illuga Gunnars- sonar) „Af hverju? Af hverju í ósköp- unum er Júlíus alltaf ráðinn þegar á að rigga upp veislum? Hefur hann ein- hverja hæfileika sem almenningi eru huldir? Veit hann eitthvað sem ekki má koma fram í dagsljósið? Er það kannski málið - gamaldags blakk- meil? Eitthvað hlýtur það að vera!“ 10. spurning: (til íþróttadeildar Sjónvarpsins) „Skítt með þessa hand- boltakeppni í Slóveníu - af hverju vor- uð þið ekld með myndatökumann í skíðabrekkunum í Ameríku og Evrópu að ná myndum af Ólafi Ragnari og I-Ialldóri Ásgrímssyni á skíðum? Ára- mótaskaupinu hefði verið reddað!" Afnot af þessum spurningum em öllum frjáls. Hér hefðu sumir freistast til að setja brandara um að geta heim- ilda eða hafa hluti innan gæsalappa, en það er löngu búið að blóðmjólka þá umræðu." XXX Annar ritstjóri vor skrifaði „Pressu- dálk“ á laugardaginn um grein sem Páll Vilhjálmsson ritaði í Moggann á föstudaginn um Stöð tvö og meinta þjónkun fréttastofunnar þar gegnum tíðina við eigendur sína. Við hinir óbreyttu höfðum hins vegar meiri áhuga á framhaldi greinar Páls þar sem hann gaf í skyn að einhver „blaðamannasamtök" hefðu farið fram á lagasetningu um eignarhald á ijölmiðlum eða einhver önnur áhuga- mál Páls. Og hann kaus að orða það svo: „Blaðamannasamtökin ákalla stjómvöld og biðja um að þau tryggi fjölbreytta fjölmiðlun og hamli gegn fákeppni." Bíðum nú við. Höfum við misst af einhveiju? Hvenær gerðist það að „blaðamannasamtökin" hafi ákallaö stjómvöld? Vera má að einhver hugs- anleg samtök „blaðamanna" sem vinna hjá Rannsóknarráði „ákalli" stjórnvöld reglulega, en raunverulegir blaðamenn „ákalla" hvorki einn né einn. Ekki við að minnsta kosú.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.