Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 Sport DV P -V Gustavo Poyet Tvö efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar, Manchester United og Arsenal, héldu áfram sigurgöngu sinni á laugardaginn. Ensku meistararnir komust í hann krappan á Goodison Park en innbyrtu sigur að lokum, þökk sé Ruud Van Nistelrooy sem náði merkum áfanga. Arsenal vann auðveldan sigur á Wolves og er enn í efsta sætinu. Tveir Frakkar og einn Hoilendingur Frakkarnir Louis Saha og Mikael Silvesue fagna hér ásamt Hollendingnum Ruud Van Nistelrooy i leik Monchest- er United og Everton urh ' helgina. Reuters Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy skráði nafn sitt á spjöld sögunnar hjá Manchester United þegar hann rauf 100 marka múrinn með fyrra marki sfnu gegn Everton á laugardaginn. Það tók hann aðeins 129 leiki að ná þessum áfanga en honum hefur þótt mikilvægara að skora 101. markið því það tryggði ensku meisturunum sigur í ótrúlegum leik þar sem Everton vann upp þriggja marka forystu Manchester United til þess eins að tapa síðan leiknum á síðustu mínútunni. „Ég hefði orðið veru- lega reiður ef við hefðum tapað þess- um leik. Það er erfitt að meta leikinn en ég er sannarlega ánægð- ur með að hafa farið með þrjú stig héðan." Menn þurfa að hafa heppnina með sér en þeir líka andlegan styrk til að gera sig kláran fyrir næsta leik," að sögn Wengers. Hetjan Hasselbaink ■J< Jimmy- Floyd Hasselbaink var hetja -Chelsea en hann skoraði sigurmark liðsins gegn Charlton í gær úr vítaspyrnu sem hann flskaði sjálfur. Sigurinn gerir það að verkum að Chelsea er fjórum stigum á eftir Manchester United og er enn með í baráttunni um enska meistara- titilinn. Eiður Smári Guðjohnsen, sem kom inn á sem varamaður þegar sextán mínútur voru til leiksloka, sagði í samtali við sjónvarpsstöðina Sky Sports í gær að stigin þrjú væru það sem skipti máli. „Ég ætlaði mér að koma inn á og reyna að breyta leiknum. Mér fannst við vera orðnir þreyttir undir lokin og þá hættum við að skapa okkur færi. Sem betur fer náðum við að halda markinu hreinu. Við vorum alltaf að reyna að ná öðru markinu sem hefði gulltryggt sigurinn en þá er alltaf hætta á að fá mark á sig. Það eru hins vegar stigin sem skipta máli, við þurftum á þeim að halda. Við eigum eftir að spila gegn bæði Arsenal og Manchester United og getum því enn haft áhrif á gang mála á toppi deildarinnar," sagði Eiður Smári. Strax í takt við leikinn Eiður Smári skapaði eitt færi íyrir Adrian Mutu en Rúmeninn náði ekki að nýta sér það og spyrnti knettinum beint í fang Dean Kiely, markvarðar Charlton. „Mér fannst ég vera fljótur að komast f takt við leikinn, eiginlega strax við fyrstu snertingu og reyndi að leggja hann vel fyrir Adrian.. Það gekk ekki hjá honum en vonandi fer hann að skora mörk,“ sagði Eiður Smári. Claudio Ranieri, knattspyrnu- stjóri Chelsea, viðurkenndi eftir leikinn að hans menn hefðu ekki spilaðvel. • „Þegar staðan er svona þá skipta stigin þrjú öllu máli - allt annað er aukaatriði. oskar@dv.is Framan af benti fátt til þess að Everton myndi veita Manchester United einhverja keppni í leik liðanna á laugardaginn. Leikmenn Manchester United fóru hreinlega á kostum í fyrri hálfleik og höfðu yfir, 3-0, í hálfleik með tveimur mörkum frá Louis Saha og einu frá Ruud Van Nistelrooy, hans hundraðasta marki fyrir félagið. David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, hristi upp í sínum mönnum í hálfleik og skipti þeim Gary Naysmith, Wayne Rooney og Tomasz Radzinski inn á. Þessar skiptingar virkuðu eins og vítamínsprauta á Everton-liðið sem náði að jafna leikinn á 35 mínútum. Leikmenn Manchester United eru þó ekki þekktir fyrir að gefast upp og þeir náðu að tryggja sér sigurinn á síðustu mínútu leiksins með marki frá Ruud Van Nistelrooy. Hefði orðið verulega reiður „Ég hefði orðið verulega reiður ef við hefðum tapað þessum leik. Það er erfitt að meta leikinn en ég er sannarlega ánægður með að hafa farið með þrjú stig héðan. Við áttum skilið að sigra því að frammistaða liðsins í fyrri hálfleik er ein sú besta undir minni stjórn. Við hefðum ekki getað farið fram á meira eftir fyrri hálfleikinn en David Moyes breytti liði sínu í hálfleik og þeir gerðu okkur lffið leitt eftir það,“ sagði Alex Ferguson stjóri United. David Moyes sagði að frammistaða sinna manna í fyrri hálfleik hefði verið óásættanleg. „Ég hefði getað skipt öllu liðinu út af í hálfleik með góðri samvisku en sagði mönnum í hálfleik að þeir yrðu að sýna að þeim væri ekki sama um félagið og að þeir mættu ekki líta á þetta sem hverja aðra vinnu. Þeir tóku við sér í síðari hálfleik og auðvitað er gremjulegt að tapa leiknum eftir að hafa haft fyrir því að vinna upp þriggja marka forskot," sagði Moyes. 24 leikir í röð án taps Gott gengi Arsenal heldur áfram. Á laugardaginn lék liðið sinn 24. leik í deildinni í röð án þess að tapa. Arsenal mætti Wolves á Moulinex- leikvanginum og sigraði örugglega, 3-1. Arsene Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, var sáttur við sína menn og sérstaklega ánægður með að liðið sé enn taplaust eftir 24 leiki á tímabilinu. „Ég er afskaplega stoltur af mínum mönnum því þessi árangur sýnir stöðugleika og er sönnun þess að leikmenn leggja sig fram í hverri viku. Það er ekki auðvelt að spila svona marga leiki án þess að tapa, því alltaf getur komið babb í bátinn. „Hvað ertu að segja? Ertu að segja að ég hafi sent mína menn út á völlinn með þau skilaboð að skjóta ekki á markið? Ég sagði þeim ekki að fara út og verjast / 90 mínútur. Það er ekki hægt að tala um leið- inlega leikaðferð þegar liðið er í sjöunda sæti með 35 stig," sagði Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, eftir að blaðamenn ásök- uðu hann um að láta sína menn spila leiðinlega gegn Southampton. Lið umferðarinnar 7.-8. febrúar 2004 Gustavo Poyet er hetja helgarinnar. Þessi 36 ára gamli úrúgvæski miðjumaður Tottenham kom inná sem varamaður fyrir framherjann Jermain Defoe á 82. mínútu og skoraði síðan sigurmark liðsins gegn Portsmouth á laugardag- inn á síðustu mínútu leiksins. Þessi sigur Tottenham var gríð- arlega miJdlvægur eftir von- brigði liðinnar viku þegar liðið tapaði fyrir Manchester City, 4-3, í bikarnum eftir að hafa verið, 3-0, yfir í hálfleik. URVALSDEILD ...SKÚRKURINN Brett Ormerod Brett Ormerod framherji Southampton er skúrkur helgarinnar að þessu sinni. Hann fékk fjölmörg gullin tækifæri til að tryggja sínum mönnum sigur gegn Fulham en tókst ekJd nýta eitt þeirra. Það verður að segjast honum til vorkunnar að hollenski markvörðurinn Edwin van der Saar var í banastuði í marki Fulham og varði allt sem á markið kom. Það breytir því þó ekki að framherjar í ensku úrvalsdeildinni eiga að nýta slík færi sem Ormerod fékk. Bestu ummæli helgarinnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.