Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Qupperneq 3
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 3
Af miðborg Reykjavíkur
Nú er svo komið að mikið af því
verslunarhúsnæði sem stendur til
boða við Laugarveginn og víðar í
miðbænum stendur autt. Má þar
nefna hið svokallaða Top Shop hús,
sem staðið hefur autt svo mánuðum
skiptir. Húsnæðið þar sem verslunin
Eva var til húsa árum saman stefnd-
ur líka autt. Þá er húsnæði báðum
megin við veitingastaðinn ftalíu
autt, sem og húsnæðið við hliðina á
Sævari Karli, þar sem íslandsbanki
var áður til húsa. Fasteigna- og
leiguverð á þessu svæði hefur þess
vegna lækkað.
Nýr og betri Laugarvegur?
Ein af ástæðunum fyrir dræmri
uppbyggingu á Laugarveginum er
sú að þar er mikið af húsnæði sem
byggt var á fyrri hluta síðustu aldar
og svarar engan veginn þeim kröf-
um sem gerðar eru um verslunar-
húsnæði í dag. Mikið af þessu hús-
næði er orðið lélegt, jafnvel hriplekt,
og aðgengi fyrir viðskiptavini ábóta-
vant. Stefnan hefur verið sú að þess-
ir kofar sem þar standa eigi allir að
vera friðaðir og hefur þetta staðið
frekari framþróun á þessu svæði
mjög fyrir þrifum. Nú stendur til að
breyta út af þessari stefnu, rífa mörg
þessara húsa og byggja upp.Er von-
Kjallari
TinnaTraustadóttir
skrifar um
miðborgarmál.
andi að fjárfestar taki þeim mögu-
leikum, sem við það skapast, fegins
hendi. Margir eru hins vegar illa
brenndir af áhuga- og skilningsleysi
R-listans og því hætt við að þessi
áform séu alltof seint fram komin.
Það er t.d. óskiljanlegt af hverju
ekki hefur verið byggð í miðbænum
smærri verslunarmiðstöð þar sem
væri bílastæðakjallari og nokkrar
hæðir þar sem á einni hæðinni
mætti kaupa matvöru og vín, fatnað
á annarri, búsáhöld og annað sem
við kemur heimilinu á einni hæð og
veitingastaði og kaffihús á þeirri
efstu. Víða erlendis er að flnna slíkar
verslunarmiðstöðvar og má þar
nefna Strikið í Kaupmannahöfn,
Stokkhólm, London, París og
Mílanó.
Hugmyndasamkeppni Lands-
bankans
Það góða framtak sem Lands-
banki íslands tók sér fyrir hendur á
dögunum, þegar efnt var til hug-
myndasamkeppni um miðbæ
Reykjavíkur, er lofsvert og öðrum til
eftirbreytni. Öllum var gefinn kostur
á að taka þátt og viðbrögðin létu
ekki á sér standa því um 500 manns
skiluðu inn tillögum áður en frestur
til þess rann út. Það verður því fróð-
legt að sjá út á hvað þessar hug-
myndir ganga og hvort einhverjar
þeirra verða í framtíðinni að veru-
leika og munu þannig styrkja mið-
bæinn.
Bílastæðaskortur og stöðu-
mælasektir til trafala
Nú er bara að bíða og sjá hvort R-
listinn mun láta kné fylgja kviði í
málefnum miðborgarinnar því það
er ekki nóg að ætla sér að hefja þar
loks uppbyggingu ef bflastæðamál
eru ekki í lagi. Það heyrist glöggt á
þeim sem stunda verslun í miðbæn-
um að skortur á bílastæðum, og sú
pólitík sem bílastæðasjóður hefur
rekið með því að ganga hart fram í
að sekta og rukka þá sem miðbæinn
sækja, hefur komið mjög niður á
verslun í miðborginni. Það verður
því að fjölga bílastæðum í miðborg-
inni og taka t.d. upp skífukerfi þar
sem menn gætu lagt bílum sínum
án þess að greiða háar sektir fyrir.
Spurning dagsins
Ef þú ættir kost á lýtaaðgerð, þér að kostnaðar-
lausu, hverju myndir þú láta breyta?
Andlitið erskráð
vörumerki
„Ég myndi fá mér... nei, það má
víst ekki segja það opinberlega.
Bíddu, ég get ekki breytt andlitinu
þvíþað er skráð vörumerki. Það
væri of kostnaðarsamt og ég er
tiltölulega sáttur við lógóið.
Kannski láta laga á mér neðri góm-
inn og lita skeggið og hárið - efþað
væri til staðar. Jú, og einn fæðingarþlett
máttu fjarlægja. Nöglina á stóru tá
hægri fótar má laga og hluta þumal-
putta á hægri hönd vantar."
Gauji litli
„Engu. Ég vil
hafa þetta ná-
kvæmlega eins
og það er!“
„Ég er hið full-
komna sköp-
unarverk og er
alltafmjög
sátturþegar
ég lít í spegil.
En ekki hvað?“
Sverrir Hermannsson.
fyrrum alþingismaður
Pálmi Gestsson leikari
„Ég held ég
myndi láta
minnka nefið á
mér, láta slípa
það aðeins til.
Kannski myndi
ég skoða fleira
eftir svona tíu
ár, en ég er þokkalega sátt núna. Ég er
samt á móti svona lögðu nema það sé
eitthvað virkilega mikið að.“
„Ég er algjör-
lega sátt við
það sem ég
hef. Þó finnst
mér alveg
sjálfsagt að
fólk fari í lýta-
aðgerðir, mér
finnst ekkert athugavert við það. En ég
er allavega ekki á leiðinni. Þótt ég fengi
það frítt."
Rakel McMahon,
ungfrú island.is árið 2003
Ragnhildur Gísladóttir
tónlistarmaður
Smárar nútímans
Unnur Jónsdóttir skrifar:
Ég las athyglisverða grein í Helg-
arblaði DV þar sem fjallað var um
Ragnar í Smára
og sýningu á
listaverkum úr
hinu merka
safni sem hann
gaf ASÍ á sínum
tíma. Þessi
grein var fróð-
leg og sömu-
leiðis er virð-
ingarvert að
nafni Ragnars sé haldið á lofti, á
þessum tímamótum þegar 100 ár
eru liðin frá fæðingu hans.
í þessu sam-
bandi megum
við þó ekki
gleyma því að
margir af sam-
tíðarmönnum
okkar eru miklir
velgjörðarmenn
menningar og
lista og hafa
veitt henni
stuðning, hvort
heldur er móralskt eða með pening-
um. Á engan er hallað þótt þar séu
Björgólfsfeðgar sérstaklega nefndir.
Sýningu Ólafs Elíassonar hefðum
við ekki fengið hingað heim nema
með stuðningi litla Björgólfs og fyrir
helgina kynnti Landsbankinn, undir
Björgúlfur
Guðmundsson.
Lesendur
forystu gamla Björgólfs, úrslit í hug-
myndasamkeppni um framtíðarnýt-
ingu miðborgarinnar.
Mörg fleiri dærni af þessum toga,
sem öll sýna að þótt við lifum á
hverfulum tíma þar sem græðg-
isvæðingin er yfir og allt um kring,
eru í hópi þeirra sem loðnir eru um
lófana líka til menn sem gefa með
sér og styðja við góð málefni. Hins
vegar er spurning hvort þeir þurfa
alltaf að fá íjölmiðla til að greina frá
slíku. Stundum er best að gera hlut-
ina í hljóði.og hver veit nema sú sé
raunin í mörgum tilvikum hjá þess-
um mönnum.
Þunglyndi Aldrei sannast að geðlyflækni.
Skilningsleysi á
geðsjúkdómum
Jónas Gunnarsson, skrifar.
Ég er einn af þeim sem eru and-
lega laskaðir og fæ ékki skilning frá
mínum nánustu. Ég missti heilsu
þegar ég vann til sjós og fór að verða
þunglyndur þegar ég hafði ekkert
fyrir stafni. Mér þykja geðlæknar á
íslandi óhóflega örlátir á geðlyf. Fólk
getur orðið geðveikt á notkun þess-
ara lyfja ef það er andlega tæpt fyrir.
Það hefur aldrei sannast að geð-
lyf lækni fólk. Á sínum tíma leið mér
vel í Gunnarsholti, nema af lyfjun-
um sem mér voru gefin. Geðhjúkr-
unarkona kom hálfsmánaðarlega úr
Reykjavík til að gefa mér sprautur,
þessi lyf voru einnig til í töfluformi.
Ég varð fyrir mótorhjóli þegar ég
var sex ára. Fótbrotnaði og hlaut
heilaskemmdir. Ég hef notað rispi-
tal, það er vel auglýst lyf eins og
fontex, sem átti að vera töfralyf en
gerði ekkert gagn. Draga ætti úr
notkun á róandi og örvandi lyfjum.
Slíkt yrði stórsparnaður fyrir ríkið,
því ekkert af þessum lyfjurn sem ég
nefndi hafa gert mér gagn.
DV tekur við lesendabréfum og
ábendingum á tölvupóstfanginu
lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að
stytta allt það efni sem berst til blaðsins
og birta það í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds.
Ruth Reginalds fer í ókeypis lýta- og fegrunaraðgerðir á vegum
Stöðvar 2.
&RÓBERTBANGSI
B AR/V/AFAT AVER5L0N
Bæjarlind 1-3 Kópavogi Sími 555 6688