Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Page 4
4
Fréttir DV
Lögreglan í Keflavík, í
samstarfi við lögreglu og
tollgæslu á Keflavíkurflug-
velli, lögregluna í Reykja-
vík.Tollstjórann í Reykjavík
og lögregluna á Húsavík,
hefur undanfarið unnið að
rannsókn máls sem varðar
innflutning á 1000 E-töflum
og um það bil 130
grömmum af kókaíni. Lögð
var fram krafa um að átta
einstaklingar yrðu úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald og
voru sex þeirra úrskurðaðir
í 3-14 daga gæsluvarðhald
á föstudag. Lögregla verst
allra frekari frétta af mál-
inu.
Al Qaeda á
kjarnorkju-
sprengju
Arabíska dagblaðið al-
Hayat greindi frá því í gær
að hryðjuverkasamtökin A1
Qaeda hefðu keypt kjarn-
orkuvopn af aðilum í Úkra-
ínu árið 1998. Heimildir
blaðsins eru hátt settir aðil-
ar innan A1 Qaeda. Kaupin
eiga að hafa átt sér stað
þegar úkraínskir vfsinda-
menn heimsóttu afgönsku
borgina Kandahar sem var
ein af höfuðstöðvum Tali-
bana. Sprengjan kemst fyrir
í skjalatösku og er talin vera
leifar úr sovésku vopnabúr-
unum. Sprengjur af þessu
tagi er taldar vera jafn öíl-
ugar og þúsund tonn af
TNT og geta drepið um
100.000 manns.
Bandaríski herinn hefur
tilkynnt um samdrátt hjá
farþegaflugfélagi hersins,
Patriot Express, sem þýðir
að á árinu 2006 hættir það
að fljúga til íslands. Patriot
Express hefur verið notað
til að flytja bandaríska her-
menn og fjölskyldur þeirra
milli herstöðva. Frá árinu
1960 hefur flugfélagið sinnt
fólksflutningum milli 27
staða og með því hafa
meira en 340.000 farþegar
ferðast á ári.
Á næsta ári ætlar Patriot
Express að draga mjög úr
flugi til Keflavíkur og
Guantanamo-flóa á Kúbu.
Flugi til Rínarstöðvar í
Þýskalandi verður hætt. Á
árinu 2006 verður svo hætt
að fljúga til ýmissa staða,
þar á meðal Keflavíkurflug-
vallar.
Keflavík fagnaði tveimur bikarmeistaratitlum í körfuknattleik með stæl í Stapan-
um á laugardagskvöldið. Kvöldið endaði þó ekki eins og menn hefðu helst viljað
því einn leikmanna liðsins, Fannar Ólafsson, varð fyrir hrottafenginni líkamsárás
á leiðinni út af staðnum og uppskar ellefu skurði og yfir fjörtíu spor í andlitið.
áll
góða á milli Keflvíkinga
og Njarðvíkinga í körf-
unni en aldrei hefur
rígurinn brotist
fram á þennan hátt
þó menn hafl
stundum tekist á,
eins og einn
heimildarmaður
DV orðaði það.
Mikil reiði ríkir í
Keflavík vegna
málsins og
hefur DV
heimildir
fyrir því að
nokkrir ein-
staklingar
ætli að safna
liði og hefna
árásarinnar
á Fannar.
Hins vegar
hefur DV
einnig heim-
ildir fyrir því
að faðir
Fannar missti tvo og hálfan
Utra afblóði og sauma þurftí
yfir 40 spor í andlit hans.
Odds hafi hitt Fannar í gær og rétt fram sátta-
hönd.
Fannar, sem lék ekki með Keflvíkingum í bik-
arúrslitaleiknum þar sem hann er að jafna sig
eftir fingurbrot, sagði í samtali við DV í gær að
hann hefði verið á leiðinni út af staðnum þegar
hann sneri við til að kasta kveðju á Pál Kristins-
son, leikmann Njarðvíkur. Þá hefði umræddur
Oddur vikið sér að honum og reynt að æsa hann
upp. Fannar sagðist hafa ýtt honum frá sér og
beðið hann um hætta þessu en þá héfði Oddur
slegið hann með glasi með áðurnefndum afleið-
ingum. Fannar segist hafa ætlað að svara fyrir
sig en að það hefði liðið yfir hann. „Það fóru
tvær eða þrjár æðar í sundur og ég missti svo
mikið blóð að það leið yfir mig. Að sögn þeirra
sem voru þarna var þetta eins og í sláturhúsi -
blóðið flaut um allt gólf.“
Fannar sagði að það lægi beinast við að kæra
Odd fyrir líkamsárás, enda væri ekki hægt að
láta mann komast upp með svona. „Ég vil hins
vegar ekki reka þetta mál í fjölmiðlum heldur
mun það hafa sinn vanagang í dómskerfinu,"
sagði Fannar.
Oddur pípari vildi ekkert tjá sig
um málið þegar DV hafði sam-
band við hann og vildi hvorki
neita því né játa að hann hefði
ráðist á Fannar, þrátt fyrir að
fjölmörg vitni tengdu hann við
líkamsárásina. Lögreglan í
Keflavík staðfesti að maður
hefði verið í haldi í nótt vegna
líkamsárásarinnar en honum
verið sleppt þar sem málið væri
talið upplýst.
Fann
landslii
Fannar fagur og fríður FannarÓlafsson,
landsliðsmaður í körfuknattleik, sést hér fagna ís-
landsmeistaratitlinum með Keflavík árið 1999.
Hann er ekki jafn fagur og friður í dag eftir hrott-
lega og tilefnislausa likamsárás sem hann varð fyr-
ir aðfaranótt sunnudags i Stapanum i Reykjanesbæ
Keflvíkingar voru á skemmti-
staðnum Stapanum að fagna
tveimur bikarmeistaratitlum
sem karl- og kvennalið félags-
ins unnu á laugardaginn.
Karlaliðið vann granna sína
í Njarðvík í úrslitaleik og
heldur hefur það farið í
taugarnar á Oddi
Jónassyni, 22ja ára
pípara úr Njarðvík, því
að hann réðst á Fann-
ar Ólafsson, ieikmann
Keflvíkurliðsins og
landsliðsmann, þegar
hann var á leiðinni út
af Stapanum og braut
glas á höfði hans með
þeim afleiðingum að
æðar fóru í sundur, hann
missti tvo og hálfan lítra af
blóði og að sauma þurfti yfir
40 spor í andlit Fannars. Að sögn
heimildarmanns DV var árásin
hrottaleg og algerlega tilefnislaus.
Heimildamaðurinn sagði í gær að
fólk, sem hefði orðið vitni að þess-
ari árás, væri enn slegið ve
hrottaháttarins sem við-
hafður var. Það hefur
lengi verið
grunnt á því
Nefið á John Kerry
Svarthöfði er með böggum hildar
þessa dagana.
Annars vegar fylgist hann auðvit-
að grannt með forkosningum
demókrata í Bandaríkjunum og af
því Svarthöfði er óneitanlega búinn
að fá sig fullsaddan á Bush forseta,
þá óskar hann þess heitt að
demókratar beri gæfu til að velja
einhvern sterkan frambjóðanda. í
bili virðist næsta víst að John Kerry
verði fyrir valinu, þótt Svarthöfði
geri sér grein fyrir því að margt geti
enn gerst á langri leið.
Hins vegar hefur Svarthöfði
fylgst síðustu dagana með auglýs-
ingaherferð Stöðvar tvö sem ætlar
að setja Ruth Reginalds í „Extreme
Makeover" og barnastjarnan knáa
hefur meðai annars lýst því yflr að
hún ætli að nota tækifærið til að láta
laga á sér nefið.
Þótt Svarthöfði hafi svo sem
alltaf getað bæði vatni haldið og
sofið vært fyrir tilhugsunum um
nefið á Ruth Reginalds, þá hefur
honum alltaf þótt söngstjarnan
bara vera með hið ágætasta nef.
Svarthöfði er að minnsta kosti
þeirrar skoðunar að hið prúða og
fallega nef Ruthar eigi sinn þátt í því
að hún hefur aldrei fallið honum úr
minni, meðan aðrar barnastjörnur
og „venjulegri" í útliti eru honum
með öllu gleymdar.
Ekki gæti Svarthöfði til dæmis
með nokkru móti rifjað upp hvernig
Hanna Valdís leit út, þótt hún hafi
án efa verið smáfríðari en Ruth,
samkvæmt hefðbundinni skilgrein-
ingu.
Svarthöfði hélt sem sagt að allt
væri í stakasta lagi með nefið á
Ruth. En fyrst það er greinilega mis-
skilningur og heil sjónvarpsstöð sér
ekkert athugavert við að kosta miklu
til að „laga" á henni nefið, svo henni
líði vel og öðlist sjálftraust, þá renn-
ur um leið upp fyrir Svarthöfða að
nefið á John Kerry hlýtur að verða
honum mikill fjötur um fót í barátt-
unni um forsetastólinn í Bandaríkj-
unum.
Því það sama hlýtur að gilda um
konur og karla, er það ekki?
Svaithöföi