Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Side 9
DV Fréttir MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 9 Kerry sigrar enn John Kerry stefndi að því að sigra í þremur for- kosningum demókrata í Bandaríkjunum um helg- ina. Á laugardag sigraði hann í Washington-fylki og Michgan og í gær leit út fyrir að hann myndi sigra í Maine, en úr- slit lágu ekki fyrir þegar DV fór í prentun. Kerry hefur mikið forskot á keppinauta sína. Howard Dean er með næstmest íylgi hingað til og John Ed- wards er í þriðja sæti. Kerry sagði að dagar George Bush í forsetaembætti væru tald- ir og að breytingar væru á næsta leiti. Á morgun verð- ur kosið í Tennessee og Virginíu en næsti stóri slag- urinn í forkosningunum verður í byrjun mars þegar kosið verður í Suðurríkjun- um. Þar vonast John Ed- wards til að geta velgt Kerry undir uggum. Fyrsta skipti í fimm ár Aðalskrifstofa forsætis- ráðuneytisins fór ekki fram úr fjárlögum á síðasta ári og er það í fyrsta skipti í flmm ár sem slíkt gerist. Frá árinu 1999 og fram til árs- loka 2002 hefur skrifstofa for- sætisráðuneyt- isins þurft á aukafjárlögum að halda á hverju ári og nemur heild- arupphæðin á þessum fjór- um árum um 75 milljónum króna. Einkum er um að ræða aukakostnað við opin- berar heimsóknir erlendra þjóðhöfðingja og bflakaup á vegum ráðuneytisins. 21 milljón 2000 Fjárlaganefnd Alþingis fór fram á það við fjárlaga- skrifstofu ráðuneytisins á síðasta ári að fá upp gefið hvaða stofnanir hefðu farið frarn úr fjárlögum oftar en þrisvar sinnum á síðustu fimm árum. I minnisblaði sem fylgdi með yfirlitinu kom m.a. fram, hvað skrif- stofu forsætisráðuneytisins varðar, að á árinu 1999 var framúrkeyrslan tæplega 10 mflljónir kr. Á árinu 2000 var upphæðin hinsvegar 21 milljón kr. George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, fór mikinn í viðtali á NBC-sjónvarpstöð- inni í gær. Hann sagði Íraksstríðið nauðsynlegt og blés á gagnrýnisraddir. Auk þess sagðist hann þess fullviss að hann myndi vinna komandi kosningar. Bush ætl- ar sér að vera forseti áfram. .. - .. Ég er stríðsforseti „Saddam Hussein var hættulegur og ég ætla ekki að láta hann vera við völd og treysta brjáluð- um manni,“ sagði George W. Bush Bandaríkjafor- seti í gær í viðtali við NBC-sjónvarpsstöðina um Iraksstríðið. Bush nefndi Íraksstríðið „stríð nauð- synjarinnar" og sagði Irak á margan hátt hafa ver- ið hættulegra en talið var fyrir innrásina. Hann vísaði til orða Davids Kays vopnaeftirlitsmanns, sem að hans mati lýsti Irak sem hættulegra landi en áður var talið. Kay sagði af sér sem vopnaeftir- litsmaður og lýsti því yfir í síðasta mánuði að þeir hefðu allir haft rangt fyrir sér um gereyðingar- vopnaeign Saddams. Bush beindi orðum sfnum til foreldra fallinna hermanna. „Við erum í stríði gegn þessum hryðjuverkamönnum sem gætu skaðað Ameríku alvarlega, og ég hef beðið þessa ungu menn að fórna sér fyrir það.“ Stríðsforseti „Ég er stríðsforseti," sagði Bush í viðtalinu. „Ég sé hættur sem eru til og það er mikilvægt fyrir okkur að taka á þeirn." Bush sagðist aldrei hafa sagt að hættan af Saddam Hussein væri beinlínis yfirvofandi. Hins vegar hafi þær upplýsingar sem voru fyrir hendi fyrir innrásina eindregið bent til þess að frak annað hvort hefði undir höndum kjarnorkuvopn eða væri að þróa þau. Hann sagði að ekki væru til neinar óvefengjanlegar sannanir sem gætu sprottið úr einræðisríkjum líkt og ríki Saddams. „Sannanirnar sem ég hafði voru bestu mögulegu sannanirnar um að hann hefði vopn. Það sem ekki var rangt var sú staðreynd að Saddam hafði getuna til að búa til [gereyðing- ar]vopnin.“ Notkun ameríska valdsins „Ég ætla mér ekki að tapa," sagði Bush um komandi forsetakosningar í nóvember. „Ég vil leiða þennan heim til meiri friðar og frelsis. Og í Bandaríkjunum eru líka tímar breytinga." Hann sagði bandarískan almenning hafa nægan tíma til þess að dæma hann. Bush hefur verið gagnrýnd- ur fyrir að nefnd sem fjalla á um sannanirnar um gereyðingavopn Iraka eigi ekki að skila niður- stöðu fyrr en í mars 2005, eða eftir forsetakosn- ingarnar. Að hans mati varðar stærsta spurning kosninganna „hver geti almennilega notað bandaríska valdið á þann hátt sem gerir heiminn betri stað.“ Bush hefur misst stuðning meirihluta þjóðar- Saddam Hussein Bush sagði að ekki væru til neirtar óvefengjaniegar sannanir sem gætu sprottið úr einræðis- rikjum likt og riki Saddams. innar, en minna en helmingur Bandaríkjamanna styður hann sem forseta, samkvæmt nýjustu könnunum. John Kerry, öldungadeildarþingmað- ur Demókrataflokksins, hefur 5 til 7 prósenta for- skot á Bush í skoðanakönnunum þar sem spurt er hvorn þeirra kjósendur myndu vilja sem forseta. Kristnitakan kostaði sitt Á árinu 2001 var upp- hæðin einnig um 21 milljón kr„ m.a. vegna tímabundins álags í tengslum við 1000 ára afmælis kristnitöku á fs- landi og til að minnast landa- funda. Árið 2002 var upp- hæðin hæst, eða rúmlega 23 milljónir kr. Þar af voru tæpar 10 milljónir kr. vegna opin- berrar heimsóknar forseta Kína og tæpar 9 milljónir vegna heimsóknar forsætis- ráðherra Víetnams. Aðrir liðir hér eru 2,5 milljónir kr. til endurnýjunar á bifreið og sama upphæð vegna endurgreiðslu flugfargjalda félagsmanna Falun Gong. Baldvin Nielsen borgaði 150 krónur fyrir tveggja sekúndna símtal heim frá Danmörku Ódýrara að fljúga heim en hringja Baldvin Nielsen, stýrimaður úr Keflavík, kom með óvænta birði í farangrinum heim frá Danmörku á dögunum. I ijós kom að símtölin hans heim höfðu kostað meira held- ur en flugfarið sjálft. Á reikningi frá Landssímanum kemur rneðal ann- ars fram að tveggja sekúndna símtal úr farsíma Baldvins í farsíma hjá Og- Vodafone á íslandi kostaði 150 krón- ur. Baldvin hringdi heim 69 sinnum. Flest símtölin voru afar stutt, enda er Baldvin maður orðviss og knapp- ur í máli. „Ég get ekki sagt annað en ég hef gaman af því að tala. En svo þurfti ég að borga 5 krónur fyrir nokkur sím- töl sem stóðu í núll sekúndur. Það skil ég reyndar ekki,“ segir Baldvin. Flugfarið fyrir Baldvin og son hans kostaði rúmar 40 þúsund krón- ur, eða litlu meira en símreikningur- inn. „Ég hefði getað flogið heirn tvisvar ffam og til baka til að tala við fólkið. Maður bara áttaði sig ekki á því að það gæti kostað 150 krónur að tala í tvær sekúndur." Á reikningi Baldvins er fjöldi samtala á 130 til 150 krónur sem stóðu í nokkrar sekúndur. Svo virð- ist sem rukkað sé fyrir mínútu í þeirn tilvikum, en í eitt skiptið var Baldvin heppinn og talaði í 59 sekúndur fyr- ir 130 krónur. Baldvin hefur greitt reikninginn með fyrirvara, þar sem hann skráir að hann efist um réttmæti reikn- ingsins. Hann hefur reynt að fá skýr- ingar hjá þjónustuveri Símans, en gengið brösulega. „Svo er ekki hlaupið að því að fá upplýsingar hjá þjónustuverinu. Manni er vísað frá manni til manns. Allir eru í vörn og enginn getur sagt mér hvort þetta er eðlilegt eða ekki. Það hlýtur einhver að hafa vit á þessu. Allir sem fara til útlanda eru með farsíma og fólk ætti að passa sig á þessu. Það er skrítið að farsímatæknin skuli ekki lækka í verði, eins og þetta er búið að vera vinsælt og lengi á markaðnum," seg- ir Baldvin, sem enn hefur ekki gefist upp á að fá botn í málið. jontrausti@dv.is Baldvin Nielsen Málglaðuren skorinorður stýrimaður hringdi 69 sinnum heim frá Dan- mörku og talaði oftast i nokkrar sekúndur, sem kostuðu upp undir 75 krónur hver.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.