Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Page 12
12 MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 Fréttir DV Þjóns- hlutverk Markúsar „Nei. Ég held að hann ætli ekki að svara mér,“ segir Leoncie tónlistarmað- ur sem sendi Markúsi Erni Antonssyni útvarpsstjóra bréf á dögunum þar sem hún krafðist þess að fá fund með þessum æðsta yfir- manni RÚV. Þar kom fram að það gæti hentað henni ágædega að hitta Markús Örn á föstu- daginn var og þá klukkan hálf þrjú eða jafnvel klukkan þrjú. Mark- ús örn hefur ekki haft fyrir því eða séð ástæðu til að svara erindi Icy Spicy Le- oncie en hún á ýmislegt vantalað við Markús. „Ég vil hafa fund með honum. Hann er alls ekki Guð al- máttugur að á ekkert með að vera með svona hroka gagnvart mér eða almenn- ingi, sem er að borga af- notagjaldið af því sem á að heita sameign allra lands- manna. Hann er bara þjónn minn og almenn- ings. Ekkert annað," segir Leoncie sem er algerlega þeirrar skoðnar að Markús Örn ræki illa þjónshlutverk sitt. Sigurjón Jóhannesson fyrrver- andi skólastjóri á Húsavik. „Það er alltafnóg að gera hérna í Húsavik," segir Sigur- Landsíminn jón Jóhannesson, fyrrverandi skólastjóri.J dag var vélsleða- mót og gaman að sjá kapp- ana svífa tignarlega rétt hjá gömlu síldarverksmiðjunni. Fjöldi fólks var saman kominn á bakkanum að fylgjast með þeim þrátt fyrir ellefur stiga frost og mikið fannfergi. Þetta eru greinilega vel þjálfaðir strákar og svo eru unglingarn- ir heilmikið á sklðum hérna í fjallinu. Svo er maður farinn að heyra ávæning afþessum átökum um Laxárvirkjun. Ég átti nú sjálfur kunningja sem tóku þátt í átökunum 73. Þetta er ekki eitthvað sem menn taka þegjandi og við erum aftur að sjá náttúru- verndarsjónarmið togast á við hagnýtissjónarmið. Það er því viðar eldfimt en bara hjá for- seta og forsætisráðherra." Eldborgarhátíðin var umdeild á sínum tíma. Einar Bárðarson, athafnamaður og forsvarsmaður hátíðarinnar, hrópar á hjálp en talar fyrir daufum eyrum. „Það hvorki gengur né rekur. Þetta er með hinum mestu ólíkindum. Við vorum rændir um fjórar og hálfa milljón um hábjartan dag og eng- inn virðist láta sig það hinu minnsta skipta," seg- ir Einar Bárðarson athafnamaður. Þolinmæði Einars og félaga hans Ingvars Þórðarsonar í fyrir- tækinu Okey er á þrotum en hængurinn er sá að þeir vita ekki hvernig bregðast skuli við og leita nú til fjölmiðla í því sem heita má fullkomið ráðaleysi. Um verslunarmannahelgi árið 2001 stóð fyr- irtækið fyrir umdeildri Eldborgarútihátið á Kald- ármelum á Snæfellsnesi. Okey gerði um það samning við Miðavef ehf. að annast sölu miða á hátíðina. Sá samningur var uppfylltur nema að því leytinu til að Miðavefur virtist líta á tiltækið sem greiðasemi við sinn erfiða rekstur. Þær tæpu fimm milljónir (4.725.500 kr.) sem Þorvaldur E. Sigurðsson og Hafdís Gísladóttir (sem nafn- greind eru í kærunni) seldu fyrir komu aldrei til reksturs í tengslum við hátíðina sjálfa heldur, að því er virðist, notaðar til að reka fyrirtækið vis- ir.is síðasta spölinn í gjaldþrot. Okey kærði mál- ið fyrir einu og hálfu ári sem sakamál - þjófna - en hjá lögreglu virðst málið ætla að stranda. „Én þetta hreyflst ekki á borðinu hjá þeim. Kannski nýtur þetta ekki samúðar vegna þess að hátíðin var umdeild. Menn virðast líta svo á að þeir geti skákað í því skjólinu," segir Einar Bárð- arson í samtali við DV og nefnir til sögunnar Baldvin Einarsson rannsóknarlögreglumann, sem hefur með málið að gera. Það er hugsanlega eftir öðru að þegar DV leitaði eftir samtaii við Baldvin - þá var hann ekki við vinnu. Eldborg Krakkarnir kúrðu í tjöldum og skemmtu sér vel, en aðstandendur hátíðarinnar sitja eftir með sárt ennið. Ekki bara að rekstur hátiðarinnar hafi staðið á siéttu heldur segja þeir að fimm milljónum hafi verið stolið frá þeim. „Rekstur hátíðarinnar stóð á sléttu því aðsókn var undir væntingum og kostnaður reyndist miklu meiri en okkur óraði fyrir. Við ákváðum að þrífa og ganga frá til að þetta yrði okkur ekki til skammar. Það er kannski lýsandi að lögreglan tók fimm milljónir og björgunarsveitirnar fyrir vestan annað eins, fyrir gæslustörf og umsjón. Svo vorum við hengdir í fjölmiðlum fyrir að standa ekki okkar plikt en erum nú að borga fyrir tiltekt með lánum sem tikka á vöxt- urn. Ömurlegt að vera rændur um hábjartan dag.“ Einar segist ekki skynja mik- ið samviskubit hjá þeim mönnum sem hann telur bera á því ábyrgð að miða- sölupeningarnir skiluðu sér aldrei í rétta átt og nefnir þá Þorvald Jakob- sen, framkvæmda- stjóra Miðavefs, og nafna hans Þorvald Sigurðsson sem ábyrga. „Við erum í eiiífðar vandamál- um við að greiða upp lán á vöxtum meðan þeir þykj- ast í góðum gír. Sem betur fer er maður athafna- samur, nýtur vel- vildar hjá bankan- um, en ég hef þurft að taka verulega á til að missa ekki þakið ofan af mér." jakobíaidv.i: Einar Bárðarson Honum er ekki skemmt; sakar lögregu um að draga iappirnar i kæru sem hann skitaði inn fyrir einu og hálfu ári - kæru sem tekur til þjófnaðar á tæpum fímm miltjónum. „Kannski nýtur þetta ekki samúðar vegna þess að hátíð- in var umdeild." Ryanair vill taka upp ferðir hingað til lands gegn niðurfellingu gjalda Samrýmist ekki eðlilegri samkeppni Áætlunarflug írska lággjaldaflug- félagsins Ryanair hingað til lands mun að líkindum ekki auka ferða- mannastraum mikið umfram það sem spár gera þegar ráð fyrir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Axel Hall og Ásgeir Jónsson frá Hagfræðistofnun tóku saman fyrir samgönguráðherra. Var hún tekin saman vegna beiðni Ryanair flugfé- lagsins sem sýnt hefur áhuga á að bjóða ísland sem áfangastað en ein- göngu ef ríkið fellir niður flugvallar- gjöld. Ryanair er stærsta lággjaldaflug- félag í Evrópu en það býður ferðir til um eitt hundrað mismunandi áfangastaða á degi hverjum. í skýrslunni kemur fram að fjöldi ferðamanna muni aukast hvort sem Ryanair flýgur hingað eður ei. Bent er á að erfitt sé að meta þá raunveru- legu landkynningu sem slíkt yrði en Ryanair auglýsir sína áfangastaði að jafnaði aðeins á vefsíðum sínum. Enn fremur er bent á að þegar sé lággjaldaflugfélag starfandi hér á landi og fargjöld þess séu svipuð og Ryanair hyggst bjóða. „Við fögnum öllum sem áhuga hafa á að fjölga hér ferðamönnum," segir Magnús Oddssón ferðamála- stjóri. Hann vill ekki taka neina af- stöðu til tilboðs Ryanair og bendir á að slíkt sé stjórnvalda að ákveða. „Það sem er gleðilegast fyrir Ferða- málaráð er að áhugi Ryanair sýnir að kynning okkar á íslandi erlendis er að skila tilætluðum árangri. Varð- andi þá kröfu flugfélagsins að fá nið- Lægra verð á flugmiðum Samgönguráðherra kynnti niðurstöðurskýrslu um fiug og ferða- þjónustu á Islandi. urfellingu á gjöldum verður ein- hvers staðar að taka þá peninga sem þarf til að byggja upp aðstöðuna í Leifsstöð og flugvallargjöldin eru notuð beint til uppbyggingar aftur." albert@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.