Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Page 27
DV Fókus
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 27
K 8 1 N 6 L A N I
HUNTED MANSION
kl. 4.45 Og 9 j |LAST SAMURAI
kl. 6 og 9 : . |
lltillilll'IillHll
\-> www.5ombioin.is
Something’s
GottaGwe
SÝNDkl. 6.30, 9 og 11
Finnbogi í Heklu heiðrar Stefán í Litlu kaffístofunni í Svínahrauni, sem hann segir
gestrisinn í besta lagi og starfa í sönnum anda Hávamála:
Gestrisni viö
bjóðbraut pvera
„Bætír grátt ofan á
svart að hitta á af-
greiðslufólk sem
skortír allan reisn við
störfsín; að taka
þannig á móti gest-
um aðþeim fínnist
þeir vera innilega
velkomnir."
Vinafundur við þjóðveginn Finnbogi Eyjólfsson, til vinstri, afhentiStefáni Þormar i Litlu kaffistofunniskjal með tveimur erind-
um Hávamáia. Greiðasölumaðurinn Stefán dregur marga að með gestrisni sinni, góðu kaffi og enn betri kieinum. DV-mynd sbs
„í mínum huga er Litía kaffístofan í Svína-
hrauni greiðasölustaður eins og þeir gerast bestir.
Hér ríkir sannur andi góðrar gestrisni og andblær-
inn er afar heimilislegur. Kemur þar til lund veit-
ingamannsins, Stefáns Þormar Guðmyndssonar,
og hans fólks. Þau hafa sanna gleði af því að taka
vel á móti gestum," segir Finnbogi Eyjólfsson,
löngum kenndur við bflaumboðið Heklu. Hann
gerði sér á föstudag ferð í hinn vinsæla áningastað
í Svínahrauninu og afhenti Stefáni skjal þar sem
eru rituð tvö af erindum Hávamála. í öðru þeirra
segir meðal annars að mats og voðar sé þörf....
þeim er hefur um fjall farið," og segir Finnbogi að
sér þyki þessi hending eiga svo einstaklega vel við
einmitt á þessum stað.
Vantar góðan íslenskan mat
Finnbogi Eyjólfsson er tæplega áttræður að
aldri og hefur í áratugi verið á ferðinni um landið.
„Ég man fyrst eftir mér snemma á fjórða áratug
síðustu aldar þegar ég var ferðaðist með föður
mínum sem hélt uppi áætlunarferðum austur í
Mýrdal. Áningarstaðirnir á leiðinni voru margir,
en líklega rís greiðasölufólkið hæst í minning-
unni. Það var ailtaf raunsarlegt og gott að koma til
Valgerðar Þórðardóttur á Kolviðarhóli og til Guð-
laugs í Tryggvaskála við Ölfusárbrú. Austur í
Fljótshiíð var áð hjá Guðbjörgu í Múlakoti og
Mangi póstur tók á móti okkur í Vík í Mýrdal. AOt
þetta fólk var frábærir gestgjafar, rétt eins og mér
finnst Stefán vera,“ segir Finnbogi.
Hann bætir því við að sér þyki margt mega bet-
ur fara í söluskálum vítt og breitt um landið. „Mér
finnst vanta að þar geti maður fengið góðan ís-
lenskan mat, í stað þessara fitusteiku hamborgara
sem á sumum stöðum eru það eina sem býðst.
Mér finnst hræðilegt að koma inn í söluskála þar
sem djúpsteikingarlykt leggur fyrir vit manns þeg-
ar inn fýrir dyr er komið. Það bætir síðan gráu
ofan á svart að hitta á afgreiðslufólk sem skortir
alla reisn við störf sín; að taka þannig á móti gest-
um að þeim finnist þeir vera innilega velkomnir.
Þetta fólk gæti margt lært af Stefáni Þormar, sem
veitir góðan beina hér við þjóðbraut þvera."
Hundruð gesta í heimabakað
í öðru tveggja erinda Hávavmála á skjalinu
góða frá Finnboga, sem nú hefur verið fest upp á
vegg við útidyrnar f Litlu kaffistofunni segir: Mað-
ur er manns gaman. Stefán Þormar segir að þessi
orð eigi vel við sig og sín viðhorf; starfið veiti sér
mikia ánægju og þá ekki síst samskipti við hundr-
uð manna sem hafa viðkomu hjá sér á hverjum
degi.
„Ég er kominn hingað um klukkan sex á
morgnana og strax um það leyti koma fyrstu gest-
irnir. Síðan er hér jafn straumur gesta alveg fram
að lokun klukkan níu á kvöldin," segir Stefán
Þormar, sem hefur starfrækt þennan greiðasöiu-
stað fyrir Olís frá 1992. Hafa vinsældirnar aukist ár
frá ári og dregur heimabakkelsið, kaffi og pylsurn-
ar að, en líklega þó helst hinn góði andi gestrisni
sem Finnbogi í Heklu og svo margir aðrir kunna
vel að meta.
sigbogi@dv.is
Hverjir voru hvar
Það var mikil gleði á Hverfisbam-
um alla helgina og nóg af fínu og
frægu fólki sem leit þar inn. Meðal
þeirra sem sást til voru Friðrik
Weisshappel, smiður og sjónvarps-
maður, Bjöm Jörundur Friðbjöms-
son, tónlistarmaður og fiskimaður í
Brasilíu, Sverrir Þór
Sverrisson, Sveppi á
Popptíví, Guðmundur
Jónsson, gítarleikari
Sálarinnar, Svavar öm
tískulögga, Ama Pétursdóttir, Play-
boy-fyrirsæta og verslunarstjóri
Kiss,\1lheimAnton Jónsson, sjón-
varpsmaður og söngvari 200.000
naglbíta, Ragnhildur Gísladóttir,
söngkona í Stuðmönnum, Dóra
Takefusa, fyrmm sjónvarpskona,
Birgitta Haukdal, söngkona í fra-
fári, Þórdfs Anna Oddsdóttir Frels-
isstúlka, Elísabet Ólafsdóttir bók-
menntafræðinemi, lögfræðingarnir
Jón Tynes og Gummi Odds, Ragnar
Jónasar í KB-banka og knatt-
spyrnumarkmaðurinn Birkir Krist-
insson frá Vestmannaeyjum.
Á Grand Rokk var útvarpsmað-
urinn Freyr Eyjólfsson, sem einnig
er í hljómsveitinni Miðnes, auk
þeirra Villa naglbíts og Sveppa á
PopptM'. Geir Ólafsson
stórsöngvari var aftur á
móti á Shooters í Kópa-
vogi þar sem hann var
dómari í karókíkeppni
DV og Fréttablaðsins.
Leikritið 5stelpur.com var fmm-
sýnt í Austurbæ á föstudagskvöldið.
Á frumsýningunni sást til söngvar-
ans Helga Bjömssonar, Sirrýjar á
SkjáEinum, Eddu Bjargar Eyjólfs-
dóttur leikkonu, Ragga Kjartans í
Trabant og Einars Bárðarsonar
framleiðanda. Þar voru líka þau Jó-
hanna Vilhjálmsdóttir sjónvarps-
kona og Geir Sveinsson, fyrrum
landsliðsmaður í handbolta, Inga
Lind Karlsdóttir í fslandi í bftið, Villi
í 200.000 naglbítum, Sveppi á Popp-
tíví, Kormákur Geirharðsson veit-
ingamaður, Karl Th. Birgisson,
framkvæmdastjóri Samfylkingar-
innar, Jónína Benediktsdóttir lík-
amsræktarfrömuður og Ólafur Páll
Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás 2.
Asgeir Friðgeirsson, varaþing-
maður Samfylkingar-
innar, var á ölstof-
unni um helgina og
þar sást líka í Teit Þor-
kelsson, fyrrum fxétta-
mann á Stöð 2, Magn-
ús Geir Þórðarson leikstjóra og
Tinnu Ólafsdóttur forsetadóttur.
Árni Bergmann rithöfundur
í vinnu á
Þjóðviljanum
„Ætli ég hafi ekki bara
verið að vinna á Þjóðviljan-
um. Ég man það ekki sér-
staklega, það var svo mikið
að gerast á þessum tíma.
Ég var miklu uppteknari af
því sem var að gerast hjá
Rússunum. Mér finnst
Hvar varstu
9. nóvemher 1989?
Þjóðverjar ekki merkilegir.
Mér voru hins vegar gefnir
tveir steinar úr múrnum,
einn frá þýska sendiráðinu
og einn frá kunningja mín-
um. Ég var á ráðstefnu
tveimur árum áður um
framtíð Evrópu, og Rúss-
arnir voru mjög opnir og
jákvæðir en Austur-Þjóð-
verjarnir voru fúlir og leist
ekkert á þróunina þar. Það **
eru alltaf miklir fordómar
og klisjur í umfjöllun fjöl-
miðla sem koma í veg fýrir
að lesendur hugsi. En
klisjurnar geta líka verið já-
kvæðar og til dæmis halda
Rússar að allir íslendingar
séu friðsamir og vel lesnir
og rússneskir fræðimenn
líta á ísland sem einhvers
konar paradís. Ég leiðrétti
þá ekki endilega alltaf og
vil fara varlega í að taka af
mönnum trúna, enda allt í f
lagi ef trúin er meinlaus.
Ég las ágæta grein eftir
Gorbatsjof þar sem hann
lýsti því yfir að nú yrðu í
fýrsta skipti í sögunni mikl-
ar breytingar án blóðsút-
hellinga og það gekk eftir.
Mér fannst þetta leiðinlegt
þegar ég frétti svo að Sov-
étríkin hefðu fallið og þótt- «
ist vita að þetta myndi
skapa fleiri vandamál en
það myndi leysa, sérstak-
lega þar sem búa stórir
minnihlutahópar Rússa í
öðrum löndum. En Jeltsín
vildi koma Gorbatsjof frá
og Sovétríkin voru lögð
niður. Það var fyllirísrugl
hið mesta eins og mikið af
stórákvörðunum mann-
kynssögunnar."
Þann 9. nóvember 1989 var
múrinn, sem hafði skilið að
Austur- og Vestur-Berlin rofinn.
Austur-Þýskaland var samein-
að Vestur-Þýskalandi 1990.
I