Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2004, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Þorgeir Jónsson, vélvirki og kafari, hélt að hann væri að fara að
athuga skemmdir á bryggjunni í Neskaupstað í gærmorgun
þegar hann synti fram á lík, innpakkað í plast með keðjur um
brjóst. Þorgeir kafaði ekki meira þann daginn.
Kafarinn fékk sjokk
„Mér brá óskaplega og þetta situr í manni. ekki þó svona hafi farið í þetta sinn enda á ég
Eiginlega fékk ég vægt sjokk," segir Þorgeir ekki von á að lenda í þessum aðstæðum aft-
Jónsson, 32 ára gamall kafari og vélvirki á ur. Ég hef haft mikla ánægju af því að kafa
Neskaupsstað, sem mætti í vinnuna í gær- erlendis og sérstaklega lagt mig eftir að
morgun eins og endranær. Verkefnið var að kafa niður að skipsflökum. Nú síðast við
kanna skemmdir sem orðið höfðu á bryggj- Orkneyjar. En ég vona að það sem ég sá
unni á staðnum eftir árekstur skips. Þorgeir þarna í höfninni eigi ekki eftir að bera
skellti sér sallarólegur í sjóinn en var ekki bú- fyrir augu mín aftur. Þetta er eins og
inn að vera lengi í kafi þegar hann upplifði martröð," segir Þorgeir kafari sem
martröð lífs síns. Hann synti fram á lík af dvaldi að mestu heima hjá sér í gær-
manni sem greinilega hafði verið komið fyrir dag á milli þess sem hann reyndi að
á hafsbotni, innpakkað í plast með keðjur á gefa lögreglunni umbeðnar upp-
fótum. Þorgeir varð stjarfur í kafarabúningn- lýsingar eftir bestu vitund. Þorgeir
um, eins og hann hefði synt inn í bíómynd: hefur kafað í 14 ár og vonast til að
„Ég hef áður kafað eftir líkum, síðast fyrir geta haldið því áfram um ókomin ár.
10 árum í Seyðisfirði, en aldrei lent í neinu í
líkingu við þetta,“ segir Þorgeir sem var fljót-
ur upp á yfirborðið aftur eftir að hafa náð átt-
um í návist líksins í plastinu: „Það var margt
sem fór í gegnum hugann á meðan ég var
þarna niðri og ég treysti mér ekki til að rifja
það allt upp. Þetta situr óneitanlega í manni,“
segir hann.
Þorgeir tilkynnti þegar hvers hann hefði
orðið vísari þegar hann komst upp á bryggj-
una aftur og var þegar hafist handa við að ná
líkinu upp. Þeir sem stóðu í því var verulega
brugðið þegar í ljós kom hvað hafið hafði að
geyma. Harðir naglar litu jafnvel undan. Sjálf-
ur kafaði Þorgeir ekki meira í gær. Hafði feng-
ið nóg:
„Ég veit ekki hvenær ég kafa næst. Ég hætti
Athygli hefur vakið að um síðastliðna helgi var lýst
eftir bil sem talinn var hafa farið yfir Fagradal milli
Egilsstaða og Reyðarfjarðar í vitlausu veðri um
fimmleytið aðfara-
nótt laugardagsins
en kom svo hvergi
fram. Sjálfvirkur telj-
ari við veginn gaf
merki um bílinn en
þrátt fyrir mikla leit
fannst síðan enginn bíll á svæðinu og einskis öku-
tækis var saknað. Var því þá kennt um að teljarinn
hefði bilað en slíks munu raunar engin dæmi fyrr.
Hinn látni
Maðurinn er á milli þrítugs
og fertugs, venjulegur í útlili,
1.80-1.85 m á hæð, sterklega
byggður og samsvarar sér vel.
Hann er með skolleitt hár,
snöggklippt og snyrtilegt. Yfir-
varaskegg, snöggt og snyrtilegt,
lítið, nánast hýjung. Maðurinn
er ekki talinn vera með nein
áberandi sérkenni eða lýti.
Hann er Evrópumaður, trúlega
útlendingur en gæti verið ís-
lendingur.
Senior á vettvangi um helgina.
Héjf vtmíar ahpii-afflrá I ííi
„Við vorum níu þegar við komum til Neskaupstaðar
og níu þegar við fórum þannig að hér vantar engan
um borð," segir Jarle Hansen, skipstjóri á norska
loðnuveiðiskipinu Senior, sem lá við festar i Nes-
kaupstað þegar bryggjumorðið var líklega framið
þar. Um tíma var talið nær víst að lík hins myrta
væri af einum háseta skipsins en þrír úr áhöfninni
höfðu setið að sumbli í Egilsbúð á laugardags-
kvöldið.
„Ég fór í Egilsbúð ásamt HalvarTomasen háseta og
Björn Egil Mikkelborg vélstjóra. Við snerum allir
aftur til skips og erum enn um borð, allir við góða
heilsu," staðhæfir skipstjórinn en Senior liggur nú
í höfn í Noröur Noregi. í Egilsbúð hittu Norðmenn-
irnir nokkra skipverja af loðnuveiðiskipinu Súlunni
og urðu þeir samferða til skipa sinna. Kvöddust
þeir eftir nokkra kveðjusnafsa. „Það fór vel á með
okkur og við skildum i góðu," fullyrðir skipstjórinn
á Senior. „En í höfninni lágu þrjú önnur norsk skip
fyrir akkerum ef ég man rétt. Það voru Hvannöy,
Nybo og Södis."
Bryggjaní Neskaupstað, þar sem likið fannst í gær,
er utan við myndsvið vefmyndavélar sem staðsett
er ofan á rnjöltönkum Síldarvinnslunnar hf. og
sendir út á heimasíðu Fjarðabyggðar.
Að sögn Björgólfs Jóhannssonar, forstjóra Síldar-
vinnslunnar, er vefmyndavélinni eingöngu beint
að athafnasavæði fyrirtækisins sjálfs við hafnar-
bakkann. Bryggjan við Netagerð Friðriks Vilhjálms
sonar sé ekki innan myndrarnmans.
Aðspurður segist Björgólfur ekki vita til þess að lík-
ið sem fannst sé af starfsmanni Síldarvinnslunnar.
Sjálfur var Björgólfur í Reykjavík í gær. Hann segir
heimamenn slegna óhug: „Ég er auðvitað búinn að
heyra í þeim. En menn fá engar fréttir," segir for-
stjóri Síldarvinnslunnar.
úuí synrmymffl
„Það læðist óneitanlega að manni
grunur um að þessi staður gæti
hafa verið vandlega valinn til þess
að losna við lík," sagði Magni Krist-
jánsson fyrrverandi skipstjóri í
Neskaupstað. „Líkið fannst í sjón-
um út af lítilli bryggju þar sem
segja má að aldrei sé neinn á ferli eftir að kvölda
tekur. Á bryggjunni stendur hús sem skyggir vand-
lega á allt það sem þar fer fram. Þar að auki eru
þarna háir nótabingir svo það má heita öruggt að
ekkert sést frá bænum út á bryggjuna. Húsið er
hátt, þrjár hæðir og áreiðanlega tíu metrar á hæð.
Þar er starfsemi sem lýkur klukkan fjögur á daginn
og eftir það er enginn i húsinu. Á húsinu eru stórir
gluggar og ef ske kynni að einhver væri þar á ferli á
kvöldin, væri húsið allt upplýst svo það færi ekkert
á milli mála. Við komust eiginlega að þeirri niður-
stöðu, félagarnir, þegar við ræddum málið að þessi
staður væri svo vel til einhverra myrkraverka fall-
inn á kvöldin eða nóttunni að það væri eiginlega
ómögulegt annað en einhver vel kunnugur á
staðnum hefði valið hann."
./jfajyil
Lögreglan spurðist í gær fyrir hjá ítalska verktak-
arisanum Impregilo vegna líkfundarins í Neskaup-
stað. Impregilo hefur þá stefnu að tjá sig ekki við
DV en samkvæmt heimildum blaðsins mun lausleg
athugun fyrirtækisins i gær hafa leitt i Ijós að
einskis starfsmanns fyrirtækisins við Kárahjnúka
var saknað. Alisherjar manntal mun þó ekki hafa
fariðfram.
„Fólk er ekki i neinu sérstöku upp-
námi. Þetta hlýtur að vera ein-
hver algerlega utanaðkomandi.
Þetta er enginn úr samfélagi okk-
ar hér," segir séra Sigurður Rúnar
Ragnarsson, sóknarprestur i Nes-
kaupstað, sem telur fullvíst að
líkið sem fannst i bænum í gær sé ekki af heima-
manni.
„Ég held að fólkið sé bara undrandi enda óviðbúið
svona uppákomu. Við vitum ekki við hverju er að
búast eða hvað þetta vindur upp á sig. Menn eru
ekki farnir að tengja nein atvik eða átta sig á hvað
þarna er á ferðinni," segir presturinn. Að sögn Sig-
urður ræddu bæjarbúar líkfundinn mikið sin á milli
i gær. „Það veit eng-
innhvaðþarnaliggur
að baki. En það er
engin panikk heldur
eru menn afskaplega
yfirvegaðir og bíða
bara eftir að gefinn
verði út einhver úr-
skurður og að eitthvað komi fram sem geti leitt til
þess að málið verði upplýst. Á meðan gengur lífið
sinn vanagang hér nema á þeim vettvangi sem lög-
reglan er að rannsaka."
„Þetta er fyrsta meinta morðmálið sem kemur til
minna kasta eftir að ég varð sýslumaður hér," seg-
ir Inger Jónsdóttir, sýslumaður á Eskifirði, sem fer
með yfirstjórn bryggjumorðsins i Neskaupsstað.
Inger varð sýslumaður 1992 en hafði áður starfað
sem fulltrúi sýslumannsins á Eskifirði frá árinu
1980. „Þetta mál vekur mikið umtal hér og ég skil
að það sé uggur í fólki," segir hún.