Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2004, Blaðsíða 17
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2004 17
Fyrrum þjónustustúlka Michaels Jacksons segir frá
dnengjum
Jackson Áþungan
fangelsisdóm
höfði sér verði
hann fundinn sek-
ur um kynferðis-
legt ofbeldi.
Blanca Francia, fyrrverandi þjón-
ustustúlka á búgarði Michael
Jackscon í Neverland, segir söngvar-
ann oftsinnis hafa farið í bað með
ungum drengjum. Blanca segist sjálf
hafa orðið vitni að þvf þegar Jackson
sat með nakta drengi í kjöltu sinni,
fyrir og eftir bað. Það var hennar
hlutverk að tína upp spjarirnar sem
lágu um öll gólf. Hún segir þetta hafa
valið sér mildu hugarangri og einkum
hafi henni verið umhugað um eigin
son - en honum og Jackson var vel til
vina.
Blanca þagði yfir máiinu á meðan
hún vann hjá Jackson en það var á ár-
unum 1986 til 1991. Hún sagði fyrst
Blanca segist sjálf
hafa orðið vitni að því
þegar Jackson sat
með nakta drengi í
kjöltu sinni.
frá málinu i viðtali við bandaríska
sjónvarpsstöð árið 1993. „Ég sá
margar mæður koma með syni sína
og skilja þá eftir á búgarðinum svo
dögum skipti. Þeir sváfu síðan í
svefnherbergi söngvarans og fóru
bæði í bað og sturtu með honum,“
segir Blanca.
Jackson hefur sem kunnugt er
verið ákærður fyrir að beita tólf ára
dreng kynferðislegu ofbeldi og var
málið þingfest í sakadómi í Santa
Barbara í síðasta mánuði.
Annar fyrrum starfsmaður
Jackson kom fram í fjölmiðlum fyrir
skemmstu. Sá heitir Robert Wegner
og vann við öryggisgæslu á búgarðin-
um. Frásögn hans er á svipaða lund
og þjónustustúlkunnar. Wegner segir
að á árunum 1990 til 1993 hafi um
300 börn, að stærstum hluta piltar,
dvalið á búgarðinum í lengri og
skemmri tíma. Drengimir hafi oft-
sinnis gist í svefnherbergi söngvarans
en hann viti ekki fyrir víst hvað fór
fram fyrir innan luktar dyrnar. Það
veit Blanca hins vegar því hún
var einkaþjónustustúlka
Jacksons og eini starfsmaður-
inn sem mátti fara um
svefnálmu hússins.
Jackson hefur neitað sök í
málinu og sagðist saklaus
þegar hann kom fyrir
dómara í janúar. Ef svo
fer að Jackson verður
fundinn sekur um að
hafa níðst á Gavin
Arvizo þá á hann yfir
höfði sér allt að
ára fangelsi.
arndis@dv.is
Jackson lá í baði með
Kanadískir vísindamenn telja sig hafa komist á snoðir um
„áður óþekkt skilningarvit“ sem þeir kalla „hugarsjón“. Þeir
sem búnir eru henni skynja hluti áður en þeir sjá þá.
Sjötta skilningarvitið
fundið
Fólk skynjar hluti áður en það
„sér" þá. Þetta er niðurstaða ný-
birtra vísindarannsókna við háskól-
ann í Bresku Kólumbíu í Kanada og
gefur til kynna, að sögn sérfræð-
ings, „að hugsanlega búi manns-
heilinn yfir afar merkilegu og áður
óþekktu skilningarviti." Stjórnandi
rannsóknanna sjálfa kallar þetta
skilningarvit „hugarsjón" og telur
að það geti skýrt „sjötta skilningar-
vitið“ sem sumt fólk virðist búið.
Tilraunin fór þannig fram að
fólki var sýnd röð ljósmynda sem
blikuðu á tölvuskjá í um það bil
einn fjórða úr sekúndu hver um sig
en á milli þeirra var skjárinn auður
andartak. Stundum voru allar
myndirnar eins en stundum voru
gerðar á þeim smávægilegar breyt-
ingar í stutta stund. Fólkið átti að
láta vita ef það teldi myndirnar hafa
breyst. í niðurstöðu rannsóknar-
innar kom fram að nálægt þriðj-
ungur þátttakenda skynjaði breyt-
ingar á myndunum án þess að hafa
tíma til að átta sig á hverjar þær
voru. Sömu einstaklingar voru yfir-
leitt alltaf með á hreinu hvenær
myndirnar voru óbreyttar.
Rannsókninni stjórnaði Ronald
Rensink og hann heldur því fram að
sjónkerfi mannsheilans geti - að
minnsta kosti hjá sumum- skynjað
breytingar án þess að menn geti
beinlínis „séð“ hvað hefur breyst.
Rensink leggur áherslu á að þessi
hæfileiki sé ekki einungis til marks
um „betri" eða „sneggri" sjón hjá
sumu fólki en öðru, því ekkert sam-
hengi reyndist vera milli þess
hversu stuttan tfma það tók fyrir
fólk að skynja breytingar og hvenær
það gat svo áttað sig á hverjar þær
breytingar væru.
„Áður óþekkt aðvörunar-
kerfi"
„Ég held að þessi hæfileiki - hver
sem hann er - útskýri að verulegu
leyti það sem fólk á við þegar það tal-
ar um sjötta skilningarvitiðsegir
Rensink. Dan Simons, sérfræðingur í
sjónfræðum við háskólann í lllinois í
Bandaríkjunum, segir að niðurstöð-
ur Rensinks gefi til kynna hið fyrr-
nefnda „óþekkta skilningarvit", þótt
frekari rannsókna sé þörf áður en
nokkru verði slegið föstu. Hann
bendir á að fólk telur sig stundum
hafa séð eitthvað, en svo kemur á
daginn að það hefúr ekkert verið.
Fólkinu, sem Rensink rannsakaði,
skjátlaðist líka stundum og tilkynnti
breytingar að ástæðulausu.
Rensink viðurkennir að til að
„hugarsjónin", sem hann telur sig
hafa orðið varan við, geti lalist stað-
reynd ættu allir menn að vera búnir
henni en ekld aðeins þriðjungur.
Hann varpar hins vegar fram þeirri
getgátu að í raun hafi mun fleiri
skynjað umræddar breytingar en
ekki tilkynnt þær vegna þess að þeir
treysti ekkj tilfinningu sinni fyrr en
auganu hefur gefist tími til að „sjá“
þær.
„Hér gæti verið um einhvers
konar áður óþekkt aðvörunarkerfi
að ræða,“ segir Rensink á vefritinu
NewScientist, „og það gæti skýrt
hvers vegna fólk kemur stundum
inn í herbergi og finnst eitthvað
vera að þótt það geti ekki skilgreint
hvað það er. Og hann bætir við að
þetta hugsanlega aðvörunarkerfi
gæti sem hægast starfað með fleiri
skilningarvitum en sjóninni einni.
Þegar maður skynjar á óútskýran-
legan hátt að einhver er fyrir aftan
mann gæti þetta „aðvörunarkerfi"
til dæmis verið .að verki í samvinnu
við heyrnina.
5SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi og aðalskipulagi í
Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til
kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagsáætlun í
Reykjavík og breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-
2024 samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997:
Fellagarðar, Drafnar- Eddu- og Völvufell.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001 -
2024, vegna Fellagarða sem lítur að því að bætt er inn
þéttingarsvæði nr. 14.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Fellagarða.
Tillagan gerir m.a., ráð fyrir að við Drafnarfell 2-18 verði
heimilt að byggja tvær íbúðarhæðir ofan á húsin og bíl-
geymslu fyrir allt að 20 bíla á hluta lóðarinnar, að Eddufelli
2-6 verði einnig heimilt að byggja tvær íbúðarhæðir ofan
á húsin og húsinu að Völvufelli 13-21 verði breytt í íbúðar-
hús með bílgeymslu að hluta í kjallara hússins. Lóðin að
Yrsufelli 44, sem áður var gæsluvöllur verður gerður að
opnu svæði til afnota fyrir nálæga íbúðarbyggð. Áætlaður
íbúðafjöldi á svæðinu er 58.
Landnotkun svæðisins verður blanda af verslunar-
þjónustu- og íbúðarsvæði. Heimilt verður að vera með
veitingastað á svæðinu en þó ekki skemmtistaði, krár,
dansstaði og næturklúbba, sbr. 9., gr. laga um veitinga-
og gistingastaði nr. 67/1985. Nánar er gerð grein fyrir
landnotkun einstakra hæða í umfjöllun um einstakar lóðir.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 8.20 - 16.15, frá 11. febrúar 2004 til 24.
mars 2004. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins,
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og
athugasemdum við hana skal skila skriflega til skipulags-
og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en
24. mars 2004.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 11. febrúar 2004
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur