Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2004, Qupperneq 13
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2004 13
Blómin tala
Blómasalar á Indlandi
kvarta seint yfir sölutregðu
enda fáar þjóðir sem nota
blóm við fleiri tækifæri en
Indverjar. Litríkir blóma-
markaðir blómstra enda
verðið afar gott. Hægt er að
kaupa kíló af margvíslegum
tegundum á nokkrar krón-
ur og úrvalið er gríðarlegt.
Blómaskreytingar má finna
á flestum heimilum í land-
inu og enginn er borin til
grafar án þess að honum
fylgi skreytingar af ýmsu
tagi.
Giftist látnum
manni
Christelle Demichel gekk
að eiga sinn heitt-elskaða í
ráðhúsinu í Nice í Frakk-
landi í gær. Brúðguminn,
Eric Demichel, sagði þó
hvorki já né nei þegar spurt
var um ráðahaginn - þar
sem hann er látinn. Brúð-
guminn lést í september
2002 þegar hann varð fyrir
bíl. Parið var þá á leiðinni í
hnapphelduna. Christelle
gekk til fundar við Chirac
Frakklandsforseta og hann
veitti leyfi íyrir giftingunni.
„Ég skil að fólki geti þótt
þetta óhugnanlegt. Mínar
tilfinningar í garð Erics hafa
hins vegar ekki breyst,"
sagði Christelle við fjölmiðla
í gær.
Á fljúgandi
siglingu
Allt bendir tii að John
Kerry, öldungadeildarþing-
maður frá
Massachus-
setts, muni etja
kappi við Geor-
ge Bush í kom-
andi forseta-
kosningum í
Bandarrkjun-
um. Kerry hefur
sigrað í tólf af
fjórtán ríkjum þar sem for-
kosningar demókrata hafa
farið fram. Wesley Clark
tilkynnti í gær að hann væri
hættur baráttunni. John Ed-
wards þykir lfklegt varafor-
setaefni en hann hefur að-
eins unnið sigur í einu ríki,
Suður-Karóhnu.
Könnun Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar WHO sýnir að meira en helmingi lyQa er
dreift og ávísað með röngum hætti. Ekkert bendir til að ísland skeri sig úr hvað
þetta varðar.
| IL c ^ á nr rz ■n
■ M ul v« m sd í i
Læknadagar Ein mesta kynning lyfjafyrirtækja hérlendis fer fram á læknadögum ár hvert.
Andsvar markaðsstjóra
í nýjasta tölublaði Læknablaðsins er birt les-
andabréf frá Bjarna Sigurðssyni, markaðsstjóra
Austurbakka hf., sem andsvar við grein þeirra Egg-
erts og Einars. Fyrirsögnin á bréfinu er „Ófagleg
umfjöilun um lyfjamál" og þar segir m.a.: „Notkun
orðsins ofnotkun er hvorutveggja í senn leiðandi
og órökstudd fullyrðing ... ef ofnotkun er fyrir
hendi hlýtur það að leiða til eftirfarandi spurninga:
Eru stjórnvöld ekki nógu dugleg við að kynna
„eðlilega" lyfjanotkun? Eru læknar ginnkeyptari
hér en erlendis? Eru lyfjakynnar á Islandi mikið öfl-
ugri en kollegar þeirra erlendis?
Fullyrði ég að hér á landi er ekki eytt hlutfalls-
lega meiru til markaðsstarfs en í nágrannalöndun-
um nema síður sé.“
Ofnotkun þunglyndislyfja
Minnst er í grein þeirra Eggerts og Einars á
mikla notkun þunglyndislyfja hérlendis, svokall-
aðra lukkupillna, en dæmi um ofnotkun þeirra hafi
oft verið rakin í blaðinu. Þessu svarar Bjarni m.a.:
„Títt hefur verið rætt um meinta ofnotkun þung-
lyndislyija en spyrja má hvort það hafi leitt til færri
veikindadaga af völdum þunglyndis og kvíða sam-
anborið við nágrannalönd? Ef ávinningur þjóðfé-
lagsins, einstaklingsins og aðstandenda er minni
en kostnaður þá getum við talað um ofhotkun
lyíja."
Nokkur umræða hefur farið fram í Læknablað-
inu að undanförnu um óskynsamlega notkun og
ofnotkun á lyfjum hérlendis. Fram hefur komið að
Alþjóða heilbrigðisstofnunin WHO telur að meira
en 50% lyfjanotkunar í heiminum teljist vera
óskynsamleg, þ.e. að rúmlega helmingi lyfja sé
ávísað og dreift og þau afgreidd eða tekin með
röngum hætti. Eggert Sigfússon, deildarstjóri í heil-
brigðisráðuneytinu, segir að ekkert bendi til að fs-
land skeri sig úr hvað þetta varðar og því megi
segja að þetta vandamál sé til staðar hérlendis í
sama mæli og WHO metur það vera í öðmm lönd-
um. Því mætti spara milljarða króna á þessum vett-
vangi.
Þeir Eggert og Einar Magnússon, yfirlyfjafræð-
ingur heilbrigðisráðuneytisins, rituðu grein um
málið í Læknablaðið við lok síðasta árs. Þeir fjalla
einnig um ofnotkun lyfla hérlendis og segir m.a. í
greininni: „Hér á þessari síðu hafa á undanförnum
ámm verið nefnd ýmis dæmi um notkun lyfja sem
er langt umfram það sem gerist í þeim löndum sem
við kjósum helst að bera okkur saman við ... Of-
notkun einstakra lyfja umfrarn það sem annars
staðar þekkist segir ekkert um dómgreind lækna
sem þeim ávísa en þeim mun meira um snjalla
markaðssetningu sem miklu fé er varið til og greitt
er fyrir með einum eða öðrum hætti í háu lyfja-
verði, bæði af sjúklingum sem og skattgreiðendum
og notendum."
Rúmlega helmingi lyfja er
ávísað og dreift og þau af-
greidd eða tekin með röngum
hætti.
Ný og dýr lyf oft ekki betri en þau gömlu
Eggert Sigfússon segir í samtali við DV að ein af
megin ástæðum fyrir hækkun lyfjakostnaðar sé að
sífellt komi ný og dýrari lyf á markaðinn sem leysi
ódýrari lyf af hólmi. Hins vegar séu þessi nýju og
dýrari lyf oft ekkert betri en gömul og góð lyf. Hann
tekur sem nýlegt dæmi notkun coxíb-lyija sem
notuð eru gegn gigt. í upphafi hafi verið talið að
þessi lyf hefðu í för með sér minni aukaverkanir
fýrir sjúklinga, einkum óþægindi í maga, en reynsl-
an hafi sýnt að svo er ekki. Grunnhugsunin að baki
skynsamlegu vali lyfja á lyfjalista byggist á því að
nýta áfram gömul og góð lyf meðan þau reynist vel
og taka þau nýrri og dýrari ekki í gagnið nema
sannað þyki að þau séu betri.
Einnig kemur ffam hjá þeim Eggert og Einari í
fyrrgreindri grein að „óskynsamleg notkun lyfja
geti valdið alvarlegum skaða, dauðsföllum,
langvarandi sjúkdómum og örorku. Auk þess sem
misnotkun og ofnotkun lyfja veldur verulegum
óþarfa kostnaði fyrir bæði sjúklinga og almanna-
tryggingar..."
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
MIKIÐ ÚRVAL
Gítarinn ehf.
Stórhöfða 27, sími 552-2125 og 895 9376
www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is
Klassískir gítarar
frá 9.900,- stgr.