Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2004, Side 15
: Vvrbv'.
DV Fréttir
KDS.,S.\ °UÐKQM
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2004 75
Flestar spár gera ráð fyrir næstum óbreyttu atvinnuleysi í ár miðað við árið í fyrra. Tveir hópar skera
sig úr hvað aukið atvinnuleysi varðar en það er á meðal þeirra sem hafa litla menntun og þeirra sem
lokið hafa háskólaprófi.
Atvinnuleysi er mest meðal
ómenntaðpa on hámenntaðra
Atvinnuleysi Atvinnuleysi vex mest meðal þeirra sem aðeins hafa grunnskólaprófeða þeirra sem lokið hafa há-
skólaprófi.
Flestar spár gera ráð fyrir næstum óbreyttu
atvinnuleysi í ár, eða í kringum rúmlega 3% af
mannafla, sem er á svipuðu róli og meðalat-
vinnuleysi á landinu var í fyrra eða 3,4%. Tveir
hópar skera sig nokkuð úr hvað aukið atvinnu-
leysi varðar en það eru annarsvegar þeir laun-
þegar sem aðeins hafa lokið grunnskólaprófi
og hinsvegar þeir sem lokið hafa háskólaprófi.
Á vefsíðu Vinnumálastofnunnar er að finna
yflrlit yflr þróun atvinnuleysis og spár um slíkt
fyrir árið í ár. Sjálf gerir Vinnumálastofnun ráð
fyrir að atvinnuleysi í ár verði að meðaltali rétt
yfir 3%. í nýrri þjóðhagsspá ASI er hinsvegar
gert ráð fyrir að atvinnuleysið verði 3,7% í ár,
OECD gerir ráð fyrir 3,3% og endurskoðuð
þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins í janúar
gerir ráð fyrir um 3% atvinnuleysi.
Lítil skólaganga og mikil
Fram kemur í yfirliti Vinnumálastofnunn-
ar að atvinnuleysi vex hraðast meðal lítt
menntaðs fólks og hámenntaðs. Þannig eru á
milli 60-70% af þeim sem eru á atvinnuleysis-
skrá aðeins með grunnskólapróf sem mennt-
un en þessi hópur telur um 35% þjóðarinnar.
- Atvinnulausu fólki með háskólapróf fjölg-
aði hratt frá lokum árs 2001 þar til í byrjun síð-
asta árs. Fjöldinn hefur verið nokkuð stöðugur
eða milli 450-500 manns í fyrra og nákvæm-
lega 500 manns með háskólapróf voru skráðir
atvinnulausir í lok nóvember. Hlutfall há-
skólamenntaðs fólks af heildarfjölda atvinnu-
lausra hefur sveiflast nokkuð milli 7 og 9% síð-
ustu ár en var rétt yfir 10% nú síðustu mán-
uði.“
Mest á Suðurnesjum
Þegar skoðaðar eru tölur um atvinnuleysi
eftir landshlutum á síðasta ári og aldurskipt-
ingu atvinnulausra kemur m.a. fram að at-
vinnuleysi hefur verið mest á Suðurnesjum og
mest meðal ungs fólks á aldrinum 16-24 ára. 1
nóvember s.l. var atvinnuleysi á Suðurnesjum
þannig 3,4% samanborið við 3% á landinu öllu
og 3,3% á höfuðborgarsvæðinu.
Á Suðurnesjum var mjög mikið atvinnu-
leysi meðal ungs fólks framan af árinu en síð-
an batnaði ástandið mjög yflr sumartímann.
Nú aftur á móti er atvinnuleysið aftur tekið að
aukast. Hvað landið í heild varðar á síðasta ári
er atvinnuleysi ungs fólks að meðaltali um
3,5% á móti 2,6% í öðrum aldurshópum. Af
þessum sökum stendur nú yfir sérstakt átak
vegna atvinnuleysis ungs fólks og verður sjón-
um beint sérstaklega að Suðurnesjum til að
byrja með.
helgarblaði daginn eftir útdrátt.
Ferð fyrir 2 til London eða
Lf O I I Á hverjum föstudegi til páska
■Ll j{LI 111 IIIIQ11 ö l l l o l verður dregjð úr önum
áskrifendum DV og sá heppni
fær ferð fyrir 2 með lceland
Express til London eða
Kaupmannahafnar.
Vinningshafar verða kynntir í
Með DV fylgist þú betur með
þjóðmálaumræðunni hverju
sinni. Helgarblaðið fylgist með
þeim einstaklingum sem skara
fram úr. Helgarviðtalið,
krossgátan, sérstæð sakamál og
margt fleira. DV tekur á málum
af harðfylgi og áræðni. DV veitir
stjórnvöldum hverju sinni
kröftugt aðhald. Á DV duga
engin vettlingatök.