Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2004, Qupperneq 16
1 6 FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Auglýsingastríð Skjás eins og RÚV harðnar. Samtök auglýsenda segja RÚV nánast stríð á hendur, for-
dæma vinnubrögð stofnunarinnar og telja 20. grein samkeppnislaga augljóslega brotna. Þetta kemur
meðal annars fram í harðorðu bréfi til útvarpsstjóra.
„Neitun RÚV að birta auglýsingu Skjás Eins
brýtur í bága við góða viðskiptahætti og telst
því brot á 20. greinar samkeppnislaganna. Á
meðan RÚV er að reyna að ná áttum í þessu
máli, það er að átta sig á hvað stofnunin getur
gert og hvað ekki er þess aftur krafist að Skjár
Einn fái að birta títtnefnda auglýsingu."
Þetta kemur fram f bréfi sem DV hefur und-
ir höndum og er stílað á Markús Örn Antons-
sonar útvarpsstjóra. Undir það ritar Eriðrik Ey-
steinsson fyrir hönd Samtaka auglýsenda.
Sverrir Agnarsson auglýsingastjóri Skjás eins
vísaði máli sínu til Samtakanna eftir að mark-
aðsstjóri RÚV, Þorsteinn Þorsteinsson, hafði
neitað að birta svohljóðandi auglýsingu frá
Skjá einum: „"Greiðendur afnotagjalda athug-
ið - Skjár 1 er alltaf ókeypis. Skjár 1“.
Vanda betur val á útvarpsstjóra
„Auglýsingar eru ferskvara og auglýsendur
eiga ekki að þurfa að bíða vikum saman meðan
RÚV ritskoðar þann boðaskap sem þeir vilja
koma á framfæri. Auðvitað á RÚV að birta aug-
lýsingu SkjásEins meðan stofnunin er ekki viss
um réttmæti þess að banna hana,“ segir Sverrir
og ljóst má vera að hann er orðinn afar lang-
þreyttur á óbilgirni Þorsteins og RÚV. Það sem
við viljum fá á hreint er: Hvaða reglur gilda um
birtingar auglýsinga á RÚV og hver túlkar þær?
Hverjar eru verklagsreglur RÚV við ritskoðun
auglýsinga? Fer RÚV eftir þessum reglum? Og
síðast en ekki síst, er þessi ritskoðun lögleg?"
Samtök auglýsenda hafa nú tekið afstöðu til
deilunnar og hún er eindregin. I bréfinu segir
RÚV - drottnar og deilir Friðrik Eysteinsson ritar fyrir hönd Samtaka auglýsenda harðort bréf, stilað á Markús Örn
Antonsson, þar sem hann segir allar reglurþverbrotnar þegar Skjá einum var neitað um birtingu auglýsingar, hann seg-
ir auiaháttinn ekki riða við einteyming og Skjár einn eetti að kæra stofnunina til Samkeppnisstofnunar og menntamála-
ráðherra.
að næstu skref Skjás eins hljóti að vera að kvarta „skipaði þig (þarf að vanda betur valið í fram-
undan vinnubrögðum Markúsar Arnar til út- tíðinni) og kæra stofnunina til Samkeppnis-
varpsráðs og menntamálaráðherra sem ... stofhunar."
Óhlutdrægni einkennir málið
I bréfinu er vísað til fundargerðar út-
varpsráðs dagsett 10. febrúar þar sem fram
kemur að útvarpsráð ætli að óska eftir lög-
fræðilegu áliti frá lögfræðingi RÚV vegna
máls Skjá Eins. í 11. grein reglna um flutning
auglýsinga í útvarpi og sjónvarpi frá 1. nóv-
ernber 1983 segir: „Ef vafi leikur á hvernig
með auglýsingu skuli fara samkvæmt regl-
um þessum skal bera auglýsinguna undir út-
varpsstjóra. Heimilt er útvarpsstjóra að
skjóta vafaatriðum undir úrskurð útvarps-
ráðs. Leiki vafi á um óhlutdrægni sker út-
varpsráð úr.“
Þetta þykir Friðriki og Samtökum aug-
lýsenda með öllu ótækt og segja ljóst að aug-
lýsingin hafi upphaflega ekki verið borin
undir útvarpsstjóra. Ljóst sé einnig að út-
varpsstjóri hafi ekki skotið vafaatriðum til
útvarpsráðs. Ljóst er líka að útvarpsstjóri
hefur ekki leitað lögfræðilegs álits lögfræð-
ings RÚV. „Dagljóst er að mikill vafi leikur á
óhlutdrægni RÚV."
í bréfinu segir að af ofangreindu megi
augljóslega draga þá ályktun að ekki einu
sinni hafi verið að fara eftir þeim hluta
reglna RÚV sem ekki brjóta í bága við Stjórn-
arskrána (gr. 73) eða er Samkeppnisráðs að
taka á. „Aulahátturinn verður nú ekki öllu
meiri! Neitun RÚV að birta auglýsingu Skjás
Eins brýtur í bága við góða viðskiptahætti og
telst því brot á 20. gr. samkeppnis-laganna."
jakob@dv.is
„Aulahátturinn verður nú
ekki öllu rheiri! Neitun RÚV
að birta auglýsingu Skjás
Eins brýtur í bága við góða
viðskiptahætti og telst því
brot á 20. gr. samkeppnis-
laganna."
'
Friðrik Eysteinsson
Formaður Sam taka
auglýsinga segir fram-
komu RÚV i garð Skjás
eins fyrir neðan allar
hellur og afgreiðsla
mátsins afhálfu stofn-
unarinnar forkastanleg.
Markús Orn Ant-
onsson Stenduri
ströngu en honum
hefur nú boristafar
harðort bréffrá Sam-
tökum augiýsenda
þar sem gengið er
svo langt að láta að
þvi liggja að ráðning
hans hafi verið mistök.
Sverrir Agnarsson Segir
auglýsingar ferskvöru og
auglýsendur eiga ekki að
þurfa að biða vikum sam-
an meðan RÚV ritskoðar
þann boðaskap sem þeir
vilja koma á framfæri.
Dorrit
Leoncie
(LE)
GAMANDV
>LE
jSveppj (s„
SGAMAN
-DVSI I
Birgitta
iHaukdal (BH)j
“gamandv
|bh
Nú stendur yfir SMS-leikurinn
Stjörnu-Survivor 0V en hann f er
þannigfram að á hverjum
laugardegi verður tveim
keppendum vísað af síðum DV.
Naesta laugardag eru því tveir
keppendur á leiðinni út. lesendur
5 eru beðnir að senda SMS í numenð
1900 og skrifa GAMAN DV og s
upphafsstafiþesskeppandas
þeimiíkarverstviðí
fjölmiðlafrumskógi landsins.
mm« m%*
,. .. „ —Jsirrý (
'■-------H-igdis Finn- r,„,
.Kalli Bjarni ““bogadóttír (VF) GAM
(KB) GAMANDVVF
Wk&mm ’páii ósk
Siv Friðleifs- ar(P0)
dóttir (SF) GAMAN
GAMAN DV DV P0
SF
GAMAN DV
KB
Hrafn Gunn-
laugsson (HG)
SV0
gaman dv hg
sem
ArniJohn- ,D|
sen (AJ) G,
.GAMANDV of
:aj
teirH
Björgólfur
Guðmunds
»rson (BG)
fifGAMAN dv
ill’BG
Skeytiö
kostar 99 krónur