Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2004, Blaðsíða 23
DV Fókus
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2004 23
Hin árlega baðfataútgáfa af tímaritinu Sports Illustrated kom út í gær. Þessi dagur
þykir með þeim merkilegri í Bandaríkjunum og flykkjast menn í blaðsöluturna til
að ná sér í eintak. Þetta er í fertugasta skiptið sem baðfatablaðið kemur út og því
ríkti óvenju mikil eftirvænting að þessu sinni.
i
Alex Rodriguez
Eddie George
Iþpónalólhiö tækkar fötum
Einn af árlegum merkisdögunum Bandaríkj-
anna var í gær en þá kom tímaritið Sports Illu-
strated út. Þetta var þó ekkert venjulegt íþrótta-
blað heldur hin árlega baðfataútgáfa tímaritsins
sem ávallt er beðið með mikilli eftirvæntingu. Þar
gefur að líta myndir af léttklæddu íþróttafólki -
eitthvað sem fáir Bandaríkjamenn láta fram hjá
sér fara.
Væntingar vegna viðhafnarútgáfu
Þetta er í fertugasta skipti sem blaðið kemur út
og þess vegna var sérstaklega vandað til útgáf-
unnar í ár. Það skapaði jafnframt meiri eftirvænt-
ingu meðal lesenda blaðsins sem voru farnir að
mynda raðir við blaðsöluturna mörgum klukku-
tímum áður en blaðið fór í sölu. Þeir urðu heldur
ekki fyrir vonbrigðum þegar þeir fengu blaðið í
hendurnar - forsíðuna prýðir hin unga Veronika
Varekova en auk hennar fá tennisstjörnurnar Ser-
ina Williams og Anna Kournikova ítarlega um-
fjöllun bæði í máli og myndum, þótt hið síðar-
nefnda hafi verið fyrirferðarmeira.
Kvenkynslesendur blaðsins sem ekki hneigjast
að eigin kyni fá þó líka eitthvað fyrir sinn snúð því
í blaðinu má finna myndir af mörgum af helstu
karlkynsíþróttahetjum Bandaríkjanna í kynlegum
stellingum. Meðal þeirra er hjólabrettakappinn
Tony Hawk, Petr Nedved leikmaður New York
Rangers, Eddie George leikmaður Tennessee
Titans, Alex Rodriguez leikmaður Texas Rangers
og knapinn Jose Santos. Allir eru þeir umkringdir
léttklæddum baðstrandargellum og virðast njóta
sín vel.
Ánægðir með Önnu
Boðið var til mikilla veisluhalda vegna útkomu
blaðsins þar sem öll helstu módelin létu sjá sig.
Talsverður sirkus myndaðist í kring um teitið lfkt
og oft vill verða þegar margir frægir koma saman á
einn stað. Aðdáendur fjölmenntu fyrír utan en eins
og áður sagði verður allt vitlaust vestanhafs þegar
þjaðið kemur út. Æsingurinn var þó óvenju mikill í
ár og segja fróðir menn áð það sé tilkomið vegna
Onnu Kournikova sem nýtur mikilla vinsælda í
Bandaríkjunum. Stelpan skaust ung upp á
stjörnuhimininn þar sem hún þótti með efnilegri
tenniskonum heims. Hún varð þó aldrei meira en
efnileg og nú hefur hún meira að segja gefið það
út að hún sé hætt að leika tennis. Vinsældir henn-
ar verða þó seint raktar til tennishæfíleikanna því
það fer varla fram hjá nokkrum manni að stúlkan
er myndarleg í meira lagi. Þetta veit hún sjálf og
hefur alla tíð gert mikið út á útlitið, jafnt innan
vallar sem utan. Ástæða þess að hún hefur gefíð
tennisferilinn upp á bátinn er sögð vera langvar-
andi meiðsli en fyrir utan það hefur tennisinn
einfaldlega verið að taka of mikinn tíma frá Önnu
sem hefur nóg að gera í módelstörfum og öðru.
Margir aðdáenda hennar eru þó sáttir við þá
ákvörðun stúlkunnar að hætta tennisnum líkt og
einn sem beið í röð eftir að fá blaðið í hendurnar
sagði: „Ég hef verið aðdáandi hennar lengi og beð-
ið eftir að sjá hana á síðum þessa blaðs. Nú þegar
hún er hætt þessu tennisrugli vona ég bara til þess
að ég muni sjá meira í þessum dúr á komandi mán-
uðum."
Landsins
Mikið er ég feginn, að Hótel Holt
skuli vera til og hafa verið jafn gott
og traust veitingahús eins lengi og
elztu menn muna, ýmist bezti eða
næstbezti staður landsins. Verið get-
ur, að Vox sé jafngóður á kvöldin, en
ekki í hádeginu. Og kannski fleiri
Veitingarýni
hús, en enginn staður er betri en
Holtið. Þar á ofan er það ekki lengur
eitt af þeim allra dýrustu, heldur
bara eitt af dýrari veitingahúsunum,
6100 krónur þríréttað án drykkja. Á
Vox er verðið 6800 krónur.
Samt var Holtið betra fyrir ára-
tug, þegar matreiðslan var ný-
frönsk. Nú er hún nýklassísk. Það
felur í sér, að hin flókna og klassíska
skólamatreiðsla, sem menn fá
verðlaun fyrir í keppni matreiðslu-
bezti flækjustíll
manna, hefur innbyrt ýmis atriði úr
nýfrönskunni, en þó ekki ýmis
meginatriði hennar, svo sem að
nota nýja matseðla daglega með
ferskum hráefnum dagsins, forðast
upphitun og óhóflega forvinnu,
leggja áherzlu á físk og grænmeti,
svo og að virða eðlisbragð hráefna
og þyngdarvandamál matargesta.
Réttir Holts eru skólabókardæmi
um vandaða útfærslu á flóknum
verðlaunaréttum frá kokkasýning-
um. Hugsið ykkur ristaða hörpuskel
í rauðrófuraspi með kóríander
rauðrófusósu, kryddjurtaturni og
lárperumauki. Eða andarbringu
með kaffi- og fíkjusósu, sætukart-
öfluþynnum, fíkju- og fuglakjöts-
slitrum. Þetta er hvort tveggja afar
langskólagengið, en var saml sem
áður einstaklega gott.
Betri og jarðbundnari var raunar
svört blóðpylsa með kálfabrisi,
dúfulæri, kanínutægjum og spínat-
böku. Og bezt var kálfasteik í rauð-
vínssósu og maukhrísgrjón með
daufum jarðsveppakeim, klettasal-
ati, ætiþistli og of bragðsterkum
tómötum. Sérstæð var
heslihnetukaka með
súkkulaðikremi, kaffiís og
eggjafroðu, dæmigerður
verðlaunaréttur.
Hlutirnir eru einfaldari
og betri, svo og ódýrari í há-
deginu, þegar matur kostar
aðeins 1900 krónur með vali milli
fjögurra forrétta og fjögurra aðal-
rétta og 2600 krónur, ef eftirréttur
fylgir. Þetta er bæjarins bezti matur
á hverja krónu og á skilið fullt hús á
hverjum degi.
Heitreyktur lundi var góður og
enn betra var hreindýrakæfa með
eplamauki og vínberjasósu. Ofn-
bökuð bleikja og karrísósa með
Hótel Holt
★★★★
-léttreyktu blómkáli
var óvenjuleg, en
gufusoðin rauð-
spretta flutti mér daufan ilm af
stórveldistíma nýfrönskunnar.
Hún minnti mig á, að ég sakna ný-
frönsku línunnar og jafnvel hinnar
tízkuþrungnu blandstefnu alda-
mótanna og er farinn að kikna
undir yfirþyrmandi einræði ný-
klassískrar eldamennsku, sem mér
fínnst við hæfi að kalla flækjustíl.
Jónas Kristjánsson
París Hilton Hvað heldurhún eiginlega
að húnsé?
Neðarlega á
stjörnulistanum
París Hilton, erfingi Hilton hót-
elkeðjunnar, er eitthvað að mis-
skilja tilveru sfna þessa dagana.
Henni til mikillar undrunar barst
henni ekki boðskort í hið fræga
partý sem J Records hélt á undan
Grammy verðlauna hátíðinni en all-
ir sem máli skipta fá boðskort. París
reyndi allt sem hún gat til að lag-
færa þennan „misskilning" en eftir
að hafa grátbeðið forstjóra J
Records um miða komst hún að því
hversu neðarlega á stjörnulistanum
hún virkilega er því henni var ein-
faldlega ekki boðið. En til allrar
lukku fyrir París barst kærasta
hennar, sem er meðlimur í hljóm-
sveitinni Backstreet Boys, boðsmiði
og hún gat troðið sér inn með hon-
um. París kann greinilega ekki að
skammast sín því þegar inn var
komið lét hún eins og hún hefði
verið á toppi gestalistans. Hin
meinta frægð Parísar sem aðallega
samanstendur af því að vera fræg
fyrir að vera fræg, ásamt hallæris-
legum raunveruleika þætti og kyn-
lífsspólu er greinilega búin að stíga
henni til höfuðs.
Meatball deyr úr
hjartaáfalli
Bolabíturinn Meatball eða „Kjöt-
bolti'' lést úr hjartaáfalli í janúar að-
eins 4 ára að aldri. Bandarfski leik-
arinn Adam
Sandler var eig-
andi Meatballs og
er sagður sakna
hans sárt. Meat-
ball var meðal
annars hringberi
Sandlers þegar
leikarinn gekk í
það heilaga í júni Adam sandler
á síðasta ári og Sandler lék d móti
var hundurinn föður Meatball, Mr.
þar klæddur í Beefy í kvikmynd-
kjólföt. Meatball inni Little Nicky
hefur komið fram í kvikmyndum en
varð þó ekki eins stór stjarna og
faðir hans, Mr.Beefy. Sá lék stórleik
sem hinn talandi bolabítur í kvik-
mynd Sandlers, Little Nicky.
Sandler er eyðilagður yfir missirn-
um en á þó enn Matzoball sér til
huggunar, ungan bolabít sem hann
fékk frá konu sinni í brúðkaupsgjöf.
Gullmolar í ASÍ
„Sú myndlistasýning sem mér er
efst í huga em Gullmolar í íslenskri
myndlist, sem er í Listasafni ASI í til-
efni 100 ára fæðing-
arafmæli Ragnars í
Smára. Þarna eru verk
okkar frumlierja og
gömlu meistara líkt og
verk Kjarvals, Ásgríms
og Jóns Stefánssonar
og vil ég til dæmis
nefna Fjallamjólkina
hans Kjarvals, sem Museum of
Modern Art í New York bauð tugi
milljón króna í á sínum tíma. Verka-
lýðshreyf-
ingin ætti
að sjá metnað sinn í að byggja nýtt
húsnæði yfir safnið, Ásmundarsalur
er að mínu mati orðinn allt of l/till fyr-
ir þetta mikla safn.“
Einar
Hákonarson
Gott í myndlist