Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Síða 9
BV Fréttir
LAUGARDAOUR 28. FEBRÚAR 2004 9
Tólf fermetra teppi í Byko Fermetrinn af
þessu Ijósbláa filtteppi kostar 295 krónurhjá
Byko I Kópavogi. Gæsluvarðhaldsfangarnir I
Neskaupstaðarmálinu keyptu 3x 4 metrá -
eða tólffermetra - daginn áður en þeir tögðu
í hann austur á Norðfjörð.
þeirra sem stjórna rannsókninni,“
segir Jóhann.
Arnar staðfestir að upptökurnar
séu til skoðunar.
gar@dv.is
Þremenningarnir sem nú sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við líkfundinn í Nes-
kaupstað reyndu að fela slóð sína sem þeir best gátu eftir erfitt ferðalag austur á
firði. En hringurinn þrengist með hverjum deginum sem líður og um leið
skýrist atburðarrás sem um margt er með ólíkindum.
Fóni með bílinn í aljril
dagim fyrir líkfundinn
fr am að því að hann var handtekinn,
ber saman um að Jónas hafi verið
niðurdreginn og hljóður:
„Það þótti þó ekki svo undarlegt
þvf Jónas Ingi var óvenju rólegur
maður og svo hægur að engu var lík-
ara en ekki rynnirhonum blóð. Þann
tíma senr ég þekkti hann gerði hann
ekki annað en leika sér í tölvuleikj-
um," segir einn félaga hans. Og um-
Tomas Malakauskas, segja þeir sem
hann hittu: „Tomas var ekki frýnileg-
ur og bauð alls ekki af sér góðan
þokka." Sömu aðilunr ber saman um
að Grétar félagi þeirra hafi hins vegar
komið betur fyrir og verið allt að því
viðkunnanlegur á stundum.
Þremenningarnir sem nú sitja í
gæsluvarðhaldi voru með ráðagerðir
um innflutning á sumarhúsum frá
Litháen og mun Grétar hafa farið íjöl-
margar ferðir iil Litháen og Noregs í
desembermánuði síðastliðnum
þeirra erinda. Það er í þeim ferðum
sem talið er að innflutningur á sum-
arhúsum og amfetamíni muni hafa
blandast saman með þeim óhugnan-
lega hætti sem raun ber vitni.
Húsleit á heimili kærustu Jónasar Inga Þar fundustpappírar með nafnihins látna
Litháa.
Jónas Ingi Ragnarsson og Lithá-
inn Tomas Malakauskas fóm með
bifreið Grétars Sigurðarsonar í alþrif
daginn áður en líkið af Vaidas
Jucevicius fannst I höfninni í Nes-
kaupstað. Þremenningarnir sitja nú
allir í gæsluvarðhaldi, sterklega
bendlaðir við lát Jucevicius.
Jónas Ingi tilkynnti sambýliskonu
sinni að þeir Tómas ætluðu með bíl-
inn í allsherjar hreinsun á þriðju-
dagsmorgni en daginn áður höfðu
þeir komið til höfúðborgarinnar eftir
ferð austur á land sem lögreglan
leggur nú allt kapp á að kortleggja.
Þegar þeir Jónas Ingi og Tomas
fóm með bílinn í alþrif var Grétar
enn staddur austur á Efri Miðbæ í
Norðfirði hjá móður sinni og stjúpa.
Grétar á tvo bíla, einn rauðan sem
kærasta hans hefur ekið um á og svo
annan grænan BMW sem að öllum
líkindum var notaður til að sækja
Jucevicius út á flugvöll þegar hann
kom til landsins. Var það sá bíll sem
Jónas Ingi og Tomas fóm með í alþrif
daginn eftir heimkomuna að austan.
Sambýliskona Jónasar Inga hefur
verið yfirheyrð af lögreglu en gat lidu
svarað enda kom hún af fjöllum þeg-
ar sambýlismaður hennar var hand-
tekinn. Höfðu þau Jónas Ingi aðeins
þekkst í nokkra mánuði og Jónas Ingi
bjó hjá henni af og til. Við húsleit sem
gerð var á heimili hennar eftir hand-
töku Jónasar fann lögreglan meðal
annars pappíra þar sem á stóð nafn
Vaidas án eftirnafns.
Norðfjarðarferð Jónasar Inga var
sambýliskonu hans ráðgáta og þegar
hann hringdi loks og sagðist vera að
koma heim var hann óvenju stuttur í
spuna. Þeim sem umgengust Jónas
Inga næstu daga þar á eftir, og allt
Ferð fyrir 2 til London eða
Kaupmannahafnar
Áskriftarsíminn er 550 5000
Á hverjum föstudegi til páska
verður dregið úr öllum
áskrifendum DV og sá heppni
fær ferð fyrir 2 með lceland
Express til London eða
Kaupmannahafnar.
Vinningshafar verða kynntir í
helgarblaði daginn eftir útdrátt.
Með DV fylgist þú betur með
þjóðmálaumræðunni hverju
sinni. Helgarblaðið fylgist með
þeim einstaklingum sem skara
fram úr. Helgarviðtalið,
krossgátan, sérstæð sakamál og
margt fleira. DV tekur á málum
af harðfylgi og áræðni. DV veitir
stjórnvöldum hverju sinni
kröftugt aðhald. Á DV duga
engin vettlingatök.
-■
Askriftar
happdrætti