Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2004
Fókus DV
Hógvær hug
I eorge Harrison var
ryngsti Bítillinn. Hann
I fæddist í Liverpool 24.
febrúar 1943. Hann lést úr ólækn-
andi afbrigði af heilakrabbameini
29. nóvember 2001, 58 ára að aldri.
Harrison var aldrei áberandi sem
lagasmiður hjá Bítlunum, en sótti
samt í sig veðrið þegar lcið á feril
sveitarinnar. Hans frægustu Bítlalög
eru Taxman, While My Guitar Gently
Weeps, ITere Comes The Sun og eina
Harrison-lagið sem var valið sem aðal-
lag á smáskífu með Bítlunum, Some-
thing. Aðaláhrif George Harrison á tónlist
Bíti-
anna
fólust í gftar-
leiknum, en
iykkjumar og sóló-
in hans vom smá-
atriðin sem full-
komnuðu rnörg
þekktustu lög Bíd-
anna.
Opinn og andlega
þenkjandi
Harrison var strax mjög
leitandi bæði sem hljóðfæra-
leikari og persóna. Hann hafði
t.d. mjög gaman af því að spila
á havaíska smágítarinn ukulele
og hann keypti sér gamlan sítar-
garm sem hann prófaði að spila
á og sem setti mikinn svip á lagið
Norwegian Wood. Seinna kynnt-
ist hann indverska sítar-gúrúinu
Ravi Shankar, sem kenndi hon-
um á hljóðfærið. Harrison var
líka sá Bítill sem var lang-
áhugasamastur um hans heil-
agleika, jógann Maharishi Ma-
hesh, en hljómsveitin dvaldi um
tíma hjá honum á Indlandi árið
1968. Harrison hafði sömuleiðis
mikinn áliuga á kenningum Hare
Krishna-leiðtogans Prabhupada.
Hann var alla tíð mjög andlega
þenkjandi, en sagði samt að hon-
um líkaði ekki trúfélögin og skipu-
lagið sem mennimir byggðu í kring-
um trúna sjálfa.
All Things Must Pass og Bangla-
desh-tónleikarnir
Sólóferill George Harrison hófst með
miklum glæsibrag. Hann gerði tónlist við
kvikmyndina Wonderwall árið 1968 og ári
seinna gaf hann út tilraunakenndu raftón-
listarplötuna Electronic Sounds hjá fram-
úrstefnuútgáfunni Zapple Music, sem var á
vegum Apple-fyrirtækis Bítlanna. Fyrsta
eiginlega sólóplatan hans var hins vegar
hin þrefalda All Things Must Pass sem
kom út í desember 1970, eftir að Bídarnir
höfðu lagt upp laupana. Hún fór í fyrsta
sæti bandaríska vinsældalistans og það
sama gerði fyrsta smáskífan, My Sweet
Lord. Harrison varð þar með fyrstur fyrrum
Bídanna bæði til að koma stórri plötu og
smáskífulagi á toppinn f Bandaríkjunum.
All Things Must Pass, sem var pródúseruð
af snillingnum og fyrirbærinu Phil Spector,
er enn talin besta sólóplata Harrisons.
1971 svaraði Harrison ákalli vinar síns
Ravi Shankar og stóð fyrir stórtónleikum til
styrktar fórnarlömbum hungursneyðar-
innar sem þá ríkti í Bangladesh. Þeir tón-
leikar sem voru haldnir í Madison Square
Garden í New York, 14 árum á undan Live
Aid, tókust sérlega vel. Á þeim komu fram
auk Harrisons og Ravi Shankar þeir Eric
Clapton, Bob Dylan, Billy Preston, Ringo
Starr o.fl. Þreföld plata frá tónleikunum
kom út árið eftir og fékk firnagóðar viðtök-
Vildi ráða sjálfur
AU Things Must Pass kom út hjá EMI,
sem hafði gert samning við Bídana um út-
gáfu á öllu þeirra efni bæði sem hljómsveit-
ar og einstaklinga. Harrison gerði þrjár aðr-
ar plötur fyrir EMI, Living in the Materíal
World (1973), Dark Horse (1974) og Extra
Texture (1975).
Hann stofnaði sitt eigið plötufyrirtæki
árið 1974 og gaf m.a. út plötur með Ravi
Shankar og hljómsveitunum Attitude og
Splinter. Aðalástæðan fyrir stofnum Dark
Horse var samt að Harrison vildi ráða sér
sjálfur og gefa út sínar eigin plötur. Þegar
samningurinn við EMI rann út árið 1976
hófst hann strax handa við að gera sína
fyrstu plötu fyrir útgáfuna. Það var Thirty
Three & 1/3 sem kom út í nóvember 1976.
Hún innihélt m.a. lögin This Song og
Crackerbox Palace og þótti betri en síðustu
plöturnar hans fyrir EMI.
Viðamikil endurútgáfa
George Harrison gaf alls út sex plötur
hjá Dark Horse. Þær eru nú allar endurút-
gefnar endurhljóðblandaðar með áður
óútgefnum lögum, en að auki kemur út
kassi með öllum plötunum og DVD-disk
sem ekki er hægt að fá annars staðar. Plöt-
urnar eru Thirty Three & 1/3 frá 1976,
George Harrison (1979), Somewhere In
England (1981), Gone Troppo (1982),
Cloud Nine (1987) og tvöfaldi tónleikadisk-
urinn Live In Japan (1982), en hann er
hljóðblandaður fyrir SACD-kerfi.
Somewhere In England og Cloud Nine
voru vinsælastar af þessum plötum. Sú
fyrri inniheldur m.a. minningarlagið um
John Lennon, All Those Years Ago, en
Cloud Nine er unnin með ELO-forsprakk-
anum og Bítlafíklinum Jeff Lynne og hefur
að geyma lög eins og ddllagið, When We
Was Fab og Got My Mind Set On You. Á
DVD-disknum eru viðtalsbrot við Harri-
son, öll myndböndin hans, nokkur lög frá
tónleikaferðinni til Japan 1982 og lög úr
kvikmyndinni Shanghai Surprise. Tónleik-
arnir í Japan þóttu takast með afbrigðum
vel, en í hljómsveitinni var m.a. einn besti
vinur Harrisons í gegnum allan ferilinn,
Eric Clapton. Þer tekur hann sín þekktustu
lög frá sólóferlinum og Bítlalögin Taxman,
Something, Here Comes the Sun, While My
Guitar Gently Weeps og Roll Over Beet-
hoven að auki.
Bjargaði The Life Of Brian
Eins og sjá má hér að ofan gat liðið langt
á milli platna hjá George Harrison. Hann
hafnaði því algjörlega að gera tónlist fyrir
markaðinn og hafði það sem meginreglu að
búa ekki til tónlist nema hann langaði til
þess. Hann fékkst líka við ýmislegt annað.
Hann var t.d. mjög duglegur við að leggja
góðum málefnum lið og hann stofnaði kvik-
myndafyrirtækið Handmade Films árið
1978. Þegar framleiðandi Monty Python-
myndarinnar Life Of Brian stöðvaði gerð
hennar af trúarlegum ástæðum og það leit
út fyrir að hún yrði ekki kláruð steig Harri-
son fram á sjónarsviðið og dró upp veskið,
en hann hafði kynnst Monty Python-geng-
inu nokkru fyrr og tók m.a. þátt í Bídastæl-
ingu Eric Idle, All You Need Is Cash.
Eldist vel
George Martin sagði eftir fráfall Harri-
sons að hann haft alveg getað samið lög, en
að hann hafi bara þurft að hafa meira fyrir
því heldur en Lennon og McCartney, enda
voru afköstin hjá þeim félögum engu lík
En þó að plötur George Harrison hafi
margar fengið lélega dóma hjá gagn-
rýnendum og hann hafi alltaf staðið í
skugganum á Lennon og McCartney
hljómar sóló-efnið hans furðu heilsteypt og
sannfærandi þegar maður hlustar á það í
dag. Og það er alveg hiklaust miklu meira
spunnið í þessar sólóplötur hans heldur en
langflestar plötur Paul McCartney síðustu
25 árin eða svo.
George Harrison Kvikmyndin The Life Of
Brian er eitt afþví sem við eigum honum að
þakka, en Harrison dró upp veskið þegar
framleiðandi myndarinnar stöðvaði gerð
hennar af trúariegum ástæðum.