Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Side 25
DV Fókus LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2004 25 Halldór Ásgrímsson Hefur verið mjög duglegur sem utanríkisráðherra, en ég er þó ekki alltaf sammála hon- um. Samviskusamur og hefur alla burði til að standa sig vel sem forsætisráðherra ef hann fær ekkrmikinn mótbyr. Við það mun hann eiga erfitt með að sætta sig. Jón Kristjánsson Hinn mætasti maður sem setur manngildið ofar auðgild- inu einsog mér var ungum kennt. Strangheiðarlegur mað- ur sem ég vænti að verði áfram í heilbrigðisráðuneytinu og nái að leiðrétta þau mistök sem ég tel að hafl verið gerð með nið- urskurðinum á Landspítalan- um - háskólasjúkrahúsi. Valgerður Sverrisdóttir Hefur að mörgu leyti staðið sig vel þótt ég sé ekki sammála ýmsum áherslum hennar. Var helst til fljót á sér að samþykkja sölu Landsbankans þegar Rússapeningar buðust. Eignar- aðild bankanna þarf að vera dreifð, eins og tíðkast í ýmsum löndum. Guðni Ágústsson Gengur ekki opinberlega í berhögg við formann flokksins, en það kæmi mér á óvart ef þeir væru sammála í Evrópu- málum og fleiri máium raunar. Hefur náð ágætum tökum á landbúnaðarmálunum og það er einn helsti styrkleiki Guðna að tala sama tungumál og bændurnir. Framsóknarmaður á svipaðri línu og ég. Siv Friðleifsdóttir Er harðdugleg og hefur verið vaxandi í umhverfis- málum. Stíf á sinni meiningu, en hefur mildast í allri af- stöðu, svo sem gagnvart um- hverfisverndarsamtökum, þar sem ég hef átt samstarf við hana á vettvangi Landvernd- ar. Virkjunarmálin eru um- deild; ég vona að ekki verði af Norðlingaölduveitu eða stíflugerð við Laxá. Mér finnst mikil áherslubreyting hafa orðið í íslenskum stjómmálum síðan ég hætti afskiptum af þeim fyrir ára- tug. Mikils um vert er að þjóðarsáttin, sem náð- ist í tíð minnar ríkisstjórnar, hefur haldið þótt stjórnarherrarnir taki allan heiðurinn af þeirri hagsæld sem við búum við í dag. Hins vegar finnst mér einkavæðing í atvinnulífinu og frelsi í peningamálum hafa gengið óþarflega hratt fram. Leikeglurnar hefur skort og jafnframt þyrftu eftirlitsstofnanirnar að vera öflugri," seg- ir Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi for- sætisráðherra. Árni Magnússon Framtíðarmaður í flokknum, víðsýnn og alþýðlegur. Fór í sumum málum óvarlega af stað, sem ég skrifa á reikning reynslu- leysis. Þar nefni ég meðaf annars skerðingu atvinnuleysisdaga, sem síðan var fallið frá. Mál sem er dæmi um hve langt peninga- öflin seilast í niðurskurði í fé- lagslegum velferðarmálum. Árni er næsti formaður. „Þáð hefur lengi verið útbreidd skoðun innan Fram- sóknar að ekki sé affarasælt að vera oflengi í stjórnar- samstarfi undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Þetta við- horfnær alveg aftur til tíma þeirra Eysteins og föður míns, sem störfuðu eftirþví kjörorði að allt væri betra en íhaldið." Græðgin má ekki ráða ferðinni Um þessar mundir eru liðin tíu ár síðan Steingrímur Hermannsson hvarf af vettvangi íslenskra stjórnmála, þar sem hann hafði verið í forystu um iangt skeið. Lengi sem forystumað- ur í Framsóknarflokknum og í forystu ríkis- stjórnar í sjö'ár. DV heimsótti Steingrím í vik- unni, þar sem rætt var um stjórnmálaviðhorfin um þessar mundir. Talið barst fyrst að miklum umsvifum ýmissa fjáraflamanna, sem oftar en ekki hafa skapað miklar deilur í þjóðfélaginu. „Það hefur alltaf setið í mér frá mínum fýrsta þingvetri, árið 1971, þegar Ólafur Björnsson prófessor, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, flutti ræðu þar sem hann sagði að frjálshyggjan mætti aldrei verða svo eindræg og frelsið slíkt að verstu eiginleikar mannsins, eigingirni og græðgi, fengju lausan tauminn. Græðgin mætti ekki ráða ferðinni. Þessum orðum háfa menn gleymt. Þau hefðu þeir átt að hafa í huga í sam- bandi við þá miklu einkavæðingu sem ráðist hefur verið í, ekki síst einkavæðingu bankanna, sem ég var þó alltaf hlynntur. En ég taldi, og tel enn, mikilvægt að binda eignarhlut hvers aðila við ákveðið hámark, eins og gert er í ýmsum löndum í kringum okkur, segir Steingrímur. Góð áhrif á umræðuna Hann segir að margir þeir sem mest fer fyrir í atvinnulífinu um þessar mundir séu menn sem hann beri mikla virðingu fyrir. ,Jón Helgi Guðmundsson í BYKO er næsti nágranni minn hér í Mávanesinu og mér hefur fundist ánægjulegt að fylgjast með hvernig hann hefur byggt upp sín fyrirtæki. Ég get held- ur ekki séð hvaða ógn stafar af umsvifum Baugs, svo sem í rekstri fjölmiðla. Var staðan betri þegar Morgunblaðið hafði algjöra yfir- burðastöðu á markaðnum og réð lögum og lof- um? Hafði enga samkeppni, nema frá þessum litlum flokksblöðum sem komu út svona að nafninu til. Fréttablaðið virðist blómstra og vonandi tekst ykkar tilraun með útgáfu DV. Allt hefur þetta góð áhrif á umræðuna." Á Alþingi fyrir fimmtán árum Steingrímur Hermanns- son dregurýsur undir einhverri ræðunni sem virðist ekki hafa verið ýkja skemmtileg, efmarka má myndina. Of langt til hægri Meðal markmiða í stefnuyflrlýsingu núver- andi ríkisstjórnar eru skattalækkanir, sem fjár- málaráðherra hefur sagt að komi til framkvæmda strax að lokinni gerð kjarasamninga. Steingrímur segir það sitt mat að sú ráðagerð sé óskynsamleg og rími ekki við að einmitt á sama tíma sé verið að skera niður framlög og þjónustu, svo sem á Landspítalanum, í menntakerfinu og hjá lögreglu - svo dæmi séu teknin. „Mér hugnast þetta ekki. Sjálfur skal ég glaður greiða mína skatta, verði áfram haldið uppi þeirri velferðarþjónustu sem ég hef talið einn helsta styrkleika okkar þjóðfélags. Varðandi niðurskurð á Landspítalanum hefur raunar verið bent á að útgjöldin þar hafi ekki aukist á undanförnum ámm, sé tekið tillit til verðbólgu og annarra þátta," segir Steingrímur og bætir við að niður- skurðurinn sé að sínu mati dæmi um þau tök sem fjármálaöflin og auðhyggjan hafi alltof víða. „Áherslur ríkisstjórnarinnar em komnar lengra til hægri en ég get sætt mig við. Ég vænti þess þó að lón Kristjánsson, sá mæti maður, muni leggja sitt af mörkum til að breyta þessari þróun. Hann setur manngildið ofar auðgildi, eins og alltaf hefur verið mín lífssýn," segir Steingrím- ur. Allt er betra en íhaldið Þann 15. september í haust verða, sem kunn- ugt er, þær breytingar á ríkisstjórninni að Hall- dór Ásgrímsson tekur við forsæti hennar og Davíð Oddsson fer væntanlega í dómsmálaráðu- neytið. „Það hefur iengi verið útbreidd skoðun inn- an Framsóknar að ekki sé affarasælt að vera of lengi í stjórnarsamstarfi undir forystu Sjálfstæð- isflokksins. Þetta viðhorf nær alveg aftur til tíma þeirra Eysteins og föður míns, sem störfúðu eft- ir því kjörorði að allt væri betra en Ihaldið. Mið- að við kringumstæður - þær að vera í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, jafn öflugan og með jafn sterkan leiðtoga og hann er í dag - held ég að framsóknarmenn hafi þurft að sýna mjög mikla seiglu til að verða ekki undir með sín stefnumál. Þetta hefur þó tekist sæmilega, sýnist mér, þótt stefnu Sjálfstæðisflokksins, frjálshyggjunnar, gæti mun meira í stjórnarsamstarfinu en mér flnnst gott," segir Steingrímur. Um utanríkismálin segir hann að Halldór Ásgrímsson hafi verið samviskusamur og kom- ið miklu tii leiðar. „Umsvifm eru kannski helst til of mikil. Sníða þarf stakk eftir vexti. Og í Evr- ópumálunum er ég miklu frekar á lfnu Davfðs en Halldórs. Innganga í ESB er fráleit fyrir ís- lendinga. Ég fæ ekki séð neitt sem mælir með inngöngu. Til dæmis eru meðaltekjur íslend- inga hærri en í öllum aðildarlöndum ESB utan Lúxemborgar og atvinnuleysi miklu minna, svo eitthvað sé nefnt." Davíð verður bakhjarl í ævisögu sinni segir Steingrímur Her- mannsson að einn helsti veikleiki Halldórs Ás- grímssonar sé einþykkni og það að geta illa tek- ið gagnrýni. „Ég hef í engu breytt þessari skoð- un minni. I okkar langa samstarfi komu oft upp slík mál. Hann vill keyra mál í gegn þegar á móti blæs. Kannski má líka segja að þetta sé styrk- leiki og minn veikleiki sé að vera of eftirgefan- legur. Það hvernig Haildórs spjarar sig í forsæt- isráðuneytinu mun að talsverðu leyti ráðast af aðstæðum og hvernig vindar blása í Sjálfstæðis- flokknum. Þetta ræðst mikið af því hvort Davíð verður áfram í ríkisstjórn og heldur utan um sína hjörð," segir Steingrfmur, og vísar í þessu sambandi til ríkisstjórnarinnar sem sat 1983. Þar var hann í forsæti sem leiðtogi minni stjórnarflokksins. „Samstarfíð þar gekk vel, sérstaklega til að byrja með. Þá var Geir Hallgrímsson formaður flokksins og sat í utanríkisráðuneytinu. Geir er einhver heiðarlegasti maður sem ég hef unnið með og meðan hann réð gekk samstarfið í ríkis- stjórn vel. Geir fór úr ríkisstjórninni haustið 1985 og Þorsteinn Pálsson, sem þá var orðinn formaður, kom inn í hans stað. Þá fór drauga- gangurinn af stað. Ég vona að þessi saga endur- taki sig ekki núna. Davíð er heill maður, eins og ég þekki hann, og sitji hann áfram í ríkisstjórn verður hann bakhjarl Halldórs." Magnússynir framtíðarmenn Ráðherrar Framsóknarflokksins, allir utan Halldór, eru sem standandi á heitum kolum í þeirri óvissu sem ríkir um hver þeirra víkur þeg- ar ráðherrum Framsóknarflokksins fækkar um einn í september næstkomandi. Steingrímur kveðst engu vilja spá um hver þeirra þurfl að víkja, en palladómar hans um ráðherrana sex birtast hér á síðunni. Hvað varðar lengri framtíð kveðst hann telja líklegt að Árni Magnússon, eða bóðir hans Páll, veljist til forystu í flokknum. „Þeir eru alþýðlegir, fé- lagsiega sinnaðir og öfgalausir, rétt einsog þeir eiga kyn til," segir Steingrímur, sem kveðst lítil afskipti hafa af málum í Framsóknarflokknum. Slíkt sé kannski affarasælast þegar menn hafi ekki lengur þau áhrif og tök á hlutunum sem metnaður þeirra standi til." Það sem sannara reynist Stundum hefur verið sagt að nöfn og per- sónur manna sem hafa verið í forystu í stjórn- málunum gleymist fljótt þegar þeir hverfa af sjónarsviðinu. Steingrímur segist að nokkru leyti finna fyrir þessu, að minnsta kosti sé hann í mjög litlu sambandi við þá menn sem ráða málum í Framsóknarflokknum í dag. „Vissulega gremst manni stundum þegar hlutur manns í sögunni er jafnvel vísvitandi gerður smærri en efni standa til. Til dæmis sárnar mér að þáttur minn og ríkisstjórnar minnar sem sat frá 1988 til 1991 við að koma á þjóðarsátt í efnahagsmálum með kjarasamn- ingunum 1990 sé fyrir borð borinn. lafnvel hef- ur verið sagt að ríkisstjórn Davíð Oddssonar hafl komið á stöðugleika í efnahagsmálum. Það er eins og þjóðarsáttinni hafl verið stolið frá mér og minni rikisstjórn. Þessu hafa Framsókn- arflokkurinn og fleiri raunar ekki mótmælt sem vera skyldi. Hafa skal það sem sannara reynist." Hlutlausari en ég bjóst við Fjölmörg viðfangsefni mæta Steingrími Her- mannssyni á degi hverjum. Hann situr í stjórn- um ýmissa samtaka, svo sem á sviði umhverfis- mála sem eru honum mjög hugleikin. „Raunar kem ég það víða við að ég þarf frekar að gæta þess að færast ekki of mikið í fang," segir Stein- grímur, þar sem við sitjum á heimili hans í Mávanesi. Þaðan blasir forsetasetrið Bessa- staðir við, þar sem situr Ólafur Ragnar Gríms- son. „Ég hef þekkt Ólaf Ragnar í nær fjörutíu ár, eða alveg frá því hann fór fyrst að láta að sér kveða í stjórnmálum. Þegar hann var kjörinn forseti sagði ég honum að hlutleysið myndi reynast honum erfitt. Ólafur er þeirrar gerðar að hann á erfitt með leyna afstöðu sinni eða vera hlutlaus. Þó verð ég að segja að hann hef- ur staðið sig betur í því en ég bjóst nokkru sinni við. Hins vegar þykja mér þær deilur milli for- setans og forsætisráðherra sem upp komu á dögunum slæmar og bera vott um einhvern stráksskap sem ég kann ekki að skýra. Ríkis- ráðsfundir voru í minni tíð alltaf haldnir með góðum fyrirvara og í fullu samráði við forseta Islands," segir Steingrímur Hermannsson að síðustu. sigbogi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.