Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Side 32
32 LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2004 Fókus DV Voðaverk geðklofans Peters Griffith vekja enn sama hroll og þegar þau voru framin fyrir hálfri öld Hjúkrunafræðingurinn hafði rétt litið á hina þriggja ára June Devan- ey, allt virtist vera í lagi og öll börn- in voru steinsofandi. June hafði komið daginn áður vegna brjóst- verkja en átti að útskrifast á morg- Sérstæð sakamál un. Hún var elsta barnið á barna- deild spítalans þennan dag og sú eina sem farin var að tala. Korter yfir eitt eftir miðnætti fór hjúkkan enn eina ferðina til að athuga um börnin. Henni til mikillar skelfingar var June horfin. Það fyrsta sem upp kom í huga hennar var hvernig í ósköpunum þriggja ára barn hefði komist upp úr þessu háa rimlarúmi en því næst leiddi hún hugann að því hver hefði getað rænt henni. Hver hefði haft tækifæri til þess. Það sem hjúkkan vissi ekki á þessari stundu en staðfest var seinna af dómara var að sá seki hafði læðst inn skólaus milli klukk- an 12.15 og 1.15 en hvernig það tókst skipti ekki máli núna. Farið hafði verið með June út og við hlið- arvegg sjúkrahússins var henni nauðgað á viðstyggilegan hátt á meðan höfuð hennar slóst í vegg- inn. Lögreglan lýsir hinni ömurlegu atburðarás: „Það voru stórir mar- blettir yfir allt andlitið og hauskúp- an margbrotin. Annar fóturinn var þakinn mari sem auðveldlega hefði getað myndast vegna fastra hand- taka. Blóðslettur voru upp um allan vegginn og aðkoman þannig að greinilegt var að haldið hafði verið um fætur barnsins á meðan því var slegið utan í vegginn." Hver sem var gat getið í eyðurn- ar. Sterkbyggður karlmaður hafði greinilega svalað brengluðum fysn- um sinum á viðkvæmum líkaman- um og drepið barnið í látunum. Mesta lögreglurannsókn til þessa Aldrei áður hafði almenningur í Blackburn.orðið jafn reiður og fyllst jafn miklum viðbjóði og aldrei áður hafði lögreglan ráðist í jafn viðamikla rannsókn. Það eina sem lögreglan hafði til að komast á sporið var eitt mikil- vægasta sönnunargagnið, fingraför- in. Sá seki hafði tékið utan um ÍJösku, sem var á borði við hliðina á rúmi June, og sett hana á gólflð. En til þess að fingraför komi að notum verður lögreglan að finna önnur sem passa. Fingraför allra afbrota- manna Skotlands voru athuguð en engin pössuðu, sem þýddi að morð- inginn hafði hreina sakaskrá. Eftir „Þegar ég setti hana niðurá grasið öskraði hún enn hærra og ég missti stjórn á mér og þið vitið restina að hafa sent afrit til allra fingrafara- sérfræðinga heimsins voru allir karlmenn bæjarins eldri en 16 ára athugaðir, sem þýddi meira en 46 þúsund fingraför. Sérfræðingar eyddu ótal stundum í að bera förin saman og staðnæmdust loksins eft- ir tvær umferðir. Sá grunaði var 22 ára atvinnulaus fyrrverandi nætur- vörður sem bjó hjá foreldrum sín- um. Önnur atriði rannsóknarinnar smullu nú saman eitt af öðru. Skó- far Peters Griffith var það sama og fannst inni á sjúkrastofunni og þræðir sem fundust á líkinu voru af sömu tegund og einu fötin sem Griffith átti. Stuttu eftir handtöku hans lá játning fyrir. Rólyndur einfari Á yfirborðinu virtist Peter Griffith allt annar maður en voða- verk hans bar vitni um. Flestir lýstu honum sem snyrtilegum og rólynd- islegum ungum manni. Fjölskylda hans var fátæk en heiðarleg, bak- grunnur hans lýtalaus. Hann átti enga vini og eina stelpan sem hann hafði verið með hafði sagt honum upp vegna drykkjuskapar. En hann hvorki drakk mikið né gerðist of- beldisfullur með víni. I játningu sagði Griffith: „Ég fór inn og heyrði að hjúkkan var að þvo upp svo ég beið þar til hún var farin. Þá fór ég inn og náði í stelpuna. Hún hélt utan um hálsinn á mér en grét á meðan ég fór með hana út. Þegar ég setti hana niður á grasið öskraði hún enn hærra og ég missti stjórn á Barnaníðingur Peter Griffith var geðklofi. mér og þið vitið restina." Griffith dró játningu sína tii baka en vegna sönnunargagna fékk hann ekki að stíga í vitnastúkuna. Geð- læknar töluðu hins vegar fyrir hans hönd. Þeir sögðu hann geðklofa og að sá persónuleiki, sem tekið hafði yflr, hefði ekki getað gert sér grein fyrir óhugnaðnum í verknaðnum sem hann framdi. Saksóknarinn sótti að geðlækn- unum og spurði hvort þeir álitu ekki að geðveikin hefði yfirtekið Griffith þegar hann missti stjórn á skapinu. „Rétt,“ sögðu geðlæknarnir. „En af hverju nam hann hana úr rúminu?" Þvf gátu geðlæknarnir ekki svarað. Eftir nokkrar flækjur með játn- inguna sá Griffith loks að baráttan var töpuð og sagðist vona að hann fengi það sem hann ætti skilið. Hann fékk það. Yfirlitsmynd yfir sjúkrahúsið A sýnir hvaðan June var rænt. B sýnir hvar likið fannst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.