Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Qupperneq 35
r
LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2004 35
DV Sport
Slegist um bikarinn Húsviking-
urinn Guölaugur Arnarsson, fyrir-
liöi Fram, tekst hér á um bikarinn
eftir-sótta viö Akureyringinn
Jónatan Magnússon, fyrirliða KA.
Þeir félagar verða báðir í
sviösljósinu i Höllinni idag og
annar þeirra mun síðan lyfta
bikarnum i leikslok.
var illfáanlegur til þess að spá því
hvort liðið færi með sigur af hólmi
en gaf sig að lokum eftir mikinn
þrýsting frá blaðamanni.
„Þetta verður mjög skemmti-
legur leikur og ég geri ráð fyrir því
að hann verði mjög jafn eins og
venjulega. En ef ég yrði að setja
pening á leikinn þá myndi ég setja
hann á Eyjaliðið," sagði Stefán
Arnarsson landsliðsþjálfari.
henry@dv.is
Enn er óljóst hvort Veigar Páll Gunnarsson fer til norska liðsins Stabæk.
Farmiði Veigars til Spánar hefur verið afpantaður á meðan Stabæk og KR ræða
saman. Veigar er ekki sáttur og segist staðráðinn í að fara til Noregs.
Otilokar ekki að hætta hjá KR
Óánægður með KR og ætlar út Veigar Páll vandar stjórn KR ekki kveðjurnar og segir hana svlkja gefin loforð. Hann útilokar ekki að
hætta hjá KR gefi félagið sig ekki.
Illindi eru hlaupin í deilu
Veigars Páls Gunnarssonar og KR.
Veigar vill ganga í raðir norska
félagsins Stabæk, sem hefur boðið
honum að koma, en KR segir
hann samningsbundinn félaginu
og því megi hann ekki fara án
greiðslu. Veigar er á öðru máli
þótt hann hafi skrifað undir
leikmannasamning við KR í
byrjun árs. Hann gerði nefnilega
aldrei svokaUaðan KSÍ-samning
við Vesturbæinga og því telur
hann sig lausan allra mála kjósi
hann svo. Veigar er hundfúll út í
stjórnarmenn KR og telur þá
standa í vegi fyrir því að hann
komist í atvinnumennsku. Veigar
er það fúll að ekki er víst að hann
spili með KR næsta sumar jafnvel
þó að hann komist ekki til Noregs.
„Staðan er þannig að KR og
Stabæk eru núna í viðræðum og ég
ætla ekkert að skipta mér af því. Ég
bíð bara og sé hvað gerist í málinu
en ég vona að það fari allt á góðan
veg,“ sagði Veigar í samtali við DV
Sport í gær.
Upphaflega stóð til að Veigar
færi til Spánar um helgina þar sem
hann ætlaði að æfa með Stabæk. Af
því verður ekki.
„Ég fer ekkert út fyrr en KR og
Stabæk hafa náð að leysa þennan
hnút sem stendur í vegi fyrir því að
ég komist út. Það var sameiginleg
ákvörðun allra sem koma að
málinu," sagði Veigar, sem er ekki
orðinn svartsýnn á að málin gangi
upp.
Vilja kannski ekki borga
Hann er aftur á móti ekki
ánægður með gang mála.
„Eg er ekkert viss um að Stabæk
vilji borga einhvern pening fyrir
mig. Þeir vissu að ég var eiginlega
frjáls og þeir stóðu í þeim skilningi.
Ég hélt það reyndar líka,“ sagði
Veigar en það vekur vissulega
athygli að hann skuli segja að
„Ég veit ekkert hvað
ég geri efsú staða
kemur upp að ég
kemst ekki út. Ég
útiloka ekki þann
möguleika að spila
ekki með KR efég
kemst ekki út."
Stabæk-menn hafi talið sig
ósamningsbundinn þar sem þeir
hafa sent KR-ingum fax þar sem
þeir óska eftir viðræðum við
félagið um Veigar. „Ég þekki það
ekki nógu vel en það sem ég veit er
að leikmaður sem er ekki búinn að
skrifa undir KSÍ-samning er ekki
samnings-bundinn.
Leikmannasamningurinn tekur
ekki gildi fyrr en búið er að skrifa
undir KSI-samninginn," sagði
Veigar, en af hverju var hann ekki
búinn að skrifa undir KSÍ-
samninginn?
KR stóð ekki við sitt
„Ástæðan er sú að KR var ekki
að standa við viðbótina við
launasamninginn sem við höfðum
rætt um. Það voru ákveðnir hlutir
sem hafði verið rætt um munnlega
og ég vildi fá skriflega en þeir stóðu
ekki við það. Þess vegna vildi ég
ekki skrifa undir KSÍ-samninginn.
Ég vildi leysa hitt fyrst," sagði
Veigar en hann neitaði aðspurður
að hafa þegið laun samkvæmt nýja
samningnum. „Nei, ég hef ekkert
fengið greitt írá KR síðan ég gerði
nýja samninginn. Ég hefði átt að
vera búinn að fá borgað en þeir
hafa ekki viljað greiða fyrr en ég
skrifa undir KSÍ-samninginn.“
Veigar játaði að málið væri orðið
mun flóknara og erfiðara en hann
gerði ráð fyrir í fyrstu. Han'n segir ekki
gaman að standa í slíkum deilum og
hann er langt frá því að vera sáttur við
stjórnarmenn KR-inga.
Sviku gefin loforð
„Mér finnst þetta alveg
hundleiðinlegt og ég er hund-
óánægður með þetta. Síðustu þrjú
ár á fslandi hefur ekki einn maður
farið út í atvinnumennsku frá
íslandi og svo loks þegar það gerist
ætlar félagsliðið að hindra að það
geti gerst. Mér finnst það
hálfömurlegt og ég er alls ekki
sáttur við þátt KR-inga í málinu. Ég
mun ekki gefa mig. Eg ætla mér út
og sérstaklega eftir þá framkomu
sem mér hefur verið sýnd.
Forráðamenn KR voru búnir að
lofa mér því að þeir myndu ekki
standa í vegi fyrir því að ég kæmist
út ef ég fengi tækifæri til þess. Það
er nákvæmlega það sem þeir eru
að gera núna,“ sagði Veigar.
Hætti kannski hjá KR
Miðað við þessi orð er ljóst að
það er lítil ást á milli Veigars og KR
þessa dagana. Veigar er jafnvel
tilbúinn að ganga svo langt að spila
ekki með KR næsta sumar standi
félagið í vegi fyrir því að hann
komist til Noregs.
„Ég veit ekkert hvað ég geri ef sú
staða kemur upp að ég kemst ekki
út. Ég útiloka ekki þann möguleika
að spila ekki með KR ef ég kemst
ekki út,“ sagði Veigar, sem annars
hefur liðið mjög vel í KR og hann
hefur hingað til ekki haft neina
ástæðu til þess að kvarta undan
KR-ingunum.
„Mér hefur liðið mjög vel hjá KR
undanfarin tvö ár og verið
ánægður með allt hjá félaginu. Svo
kemur þetta allt í einu upp og mér
fmnst þessi hegðun mjog ólík því
sem ég hef átt að venjast hjá
félaginu."
Boltinn hjá Stabæk
Kristinn Kjærnested, stjórnar-
maður hjá KR-Sport hf., vildi lítið
ræða mál Veigars þegar DV Sport
hafði samband við liann í gær.
Hann sagði KR telja Veigar vera
samningsbundin félaginu enda
hefði hann gert samning ■ við
félagið í byrjun árs.
Félagið hefði fengið senda
fyrirspurn á faxi frá Stabæk um
Veigar sem hefði verið svarað.
Stabæk hefði ekki enn svarað bréfi
KR-inga og því væri boltinn hjá
Norðmönnunum. henry@dv.is
149 kr. skeytiö
ERT PÚ Á LEIÐINNI
T|L VEGAS?
• v&ffíSiÍ*
britn
2
+
SPEARS
PÚOG
VINIR
VEGAS
$1000
Sendu SMS skeytið ^tÆiÍí numeriði | JIll
og þú gætir verið á leiðinni ílúxusferð
til LASVEGAS að sjá BRITNEY SPEARS.
FULLT AF AUKAVINNINGUMI
ICELANDAIR jpm-
Á hverjum virkum degi er einn heppinn þáttakandi dreginn út hjá Svala á
FM 957 og fær hann flugmiða til London fyrir 2 með lcelanþair. 3.mars dregur
Svali út aðalvinninginn í beinni á fm 957 sem er ferð fyrir 3 til Las Vegas,
svíta á MGM hótelinu, miðar á Britney Spears tónleika og 1000 dollarar í
eyðslufé. Með hverri þáttöku eykur þú líkurnar á því að sjá Britney Spears.
y