Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Blaðsíða 46
#?6 LAUOARDAOUR 28. FEBRÚAR 2004 Síðast en ekki síst DV Skákeinvígi herra og ungfrú íslands Ha? Hingað til hefur það ekki þótt skipta máli að vera fríður í hinni göf- ugu íþrótt skák. Nema reyndar hefur það komið til umræðu að skáknördar, jafnvel hörðustu keppnismenn, liggi á liði sínu þegar falleg kona er andstæðingurinn. í dag verður reyndar nokkuð jafnt á komið. Á mikilli skákhátíð sem Hrókurinn efnir til og er á Broadway munu herra og ungfrú ísland 2003, Garðar Gunn- laugsson og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, mætast í einvfgi í skák. DV hefur ekki heimildir fyrir því að þau eigi að baki afrek á svörtu og hvítu reitunum en það kann að breytast í náinni framtíð. Fyrirkomulag skákarinnar sem þau munu tefla er svokölluð tvískák, sem þýðir að íjórir tefla, tveir gegn tveimur, og þeir sem eru í liði leika til skiptis. Þannig mun undrabarnið ffá Englandi, sjálfur Luke McShane, sem varð heimsmeistari barna tíu ára og yngri þegar hann var 8 ára, tefla við hlið Ragnhildar Steinunnar og við hlið herra Islands verður skákdrottning Hróksins, Regina Pokorna, en hún var Evrópumeistari 18 ára ogyngri. Annars kemur mikið úrvalslið skemmtikrafta og tónlistarmanna fram á hátíðinni: KK og Andrea Gylfa- dóttir troða upp saman í fyrsta sinn, Ómar Ragnarsson og Haukur Heiðar sprella, og skáktríó JFM spilar ásamt Ragnhildi Gísladóttur. Þá munu Birgitta Haukdal og Jónsi stíga á svið og taka lög úr Grease. Og sjálfur Gísli Marteinn Baldursson og Svanhildur Hólm munu kynna. Carðar Gunn- laugsson Teflirvið Ungfrú Island á hátið Hróksins á Broad- way. Ragnhildur Stein- unn Jónsdóttir Hún mun i dag setj- astað tafliog takast á við Herra Island. • Nú er í undirbúningi mikil mynd- listarsýning í Gerðubergi en forráða- menn safnsins hafa farið þá skemmti- legu leið að fá þjóð- þekkta einstaklinga til að velja verk eftir listamenn sem eru þeim að skapi og slá upp sýningu. Nú er komið að þeim ^Spaugstofumönnum að velja verkin ög segir sagan að þeim þyki sér mik- ill heiður með því. Eins og alkunna er vefjast listgreinarnar ekki fyrir fs- lendingum séu þeir listamenn á annað borð og í röðum Spaugstofu- Síöast en ekki síst manna eru miklir myndlistarmenn. Þannig er Sigurður Sigurjónsson annálaður frístundamálari og þykir liðtækur með pensilinn... • Leikhópurinn Vesturport vinnur nú hvern sigurinn á fætur öðrum, stóra sem smáa. Rífandi viðtökur voru þegar hópurinn hélt til Vestmanna- eyja með nýtt leikrit, Brim eftir JónAtla Jónasson, í fartesk- inu. Var aðsókn slík að setja þurfti á aukasýningu. Um helgina verður svo hópurinn með sama verk til sýnis á ísafirði: Fyrir utan að foringinn Gísli öm Garðarsson er að leita hófanna með að fara víðar um heim með loftfimleikasýninguna Rómeó og Júlíu en til London er nú verið að leggja drög að hrollvekjandi áhættuatriði í tengslum við Lista- ^iátíð í Reykjavík. • Þrátt fyrir mót- byr og andstöðu ýmissa nemendafé- laga heldur Ásdís Rán Gunnarsdóttir hjá model.is sínu striki með Isdrottn- inguna - fegurðar- samkeppni fram- haldsskólanema. Hún boðar nú til prufu fyrir þær stúlkur sem hafa áhuga og eiga þær að mæta á Kaffi Reykjavík milli 13-16 á sunnudag- Inn næsta, þar sem viðtöl fara fram... B4L ER MERKI MITT, MERKI VEIÐIDELLUKARLA. JEPPINN MINN ER JEPPINN MINN OG TEKUR MIS TIL FJALLA. EF ÉS NÆL'Í STÓRAN LAKSH MEÐ NÝJU Gettu betup Stefán Pálsson sakaðup um hlutdrægni „Það er náttúrlega fúlt að vera að- eins hársbreidd frá sigrinum," segir Andri Egilsson í Gettu betur-liði Menntaskólans við Hamrahlíð. Keppnin á fimmtudagskvöld þykir ein sú æsilegasta í langan tíma. Lokaspurning keppninnar hefði get- að skilað MH sigrinum en liðið klikkaði á þvf að segja að Russell Crowe væri fráÁstralíu en ekki Nýja- Sjálandi þar sem hann fæddist. Komið hefur til tals hjá liði MH að kæra keppnina en Stefán Pálsson dómari sver af sér allar sakir. „Það er einfaldlega fáránlegt að hafa MR-dómara,“ segir Jón Helga- son, þjálfari MH. „Dómgæslan mun alltaf orka tvímælis og ýmsir sögðust hafa séð hann fagna þegar MH svar- aði vitlaust í lokin." Félagi Jóns í MH-liðinu tekur í sama streng. „Russell Crowe flutti frá Nýja-Sjá- landi 4 ára gamall og hefur allt sitt lff búið í Ástralíu. Þannig myndu bæði svörin vera rétt að mínu mati.“ Innt- ur eftir því hvort liðið ætli að kæra úrskurð Stefáns Pálssonar dómara segir Andri það hafa komið til tals. „Ég hlýt samt að trúa því að Stefán sé heiðarlegur, þó hann sé gamall MR-ingur og hafi verið viðriðinn lið- ið.“ Stefán Pálsson, dómari keppn- innar, segir það absúrd þegar rætt er um uppruna manns að líta hjá fæð- ingarlandinu. „Russell fæddist á Nýja-Sjálandi, bjó þar á sínum ung- lingsárum og steig þar sín íyrstu skref í leiklist og tónlist." Stefán vís- ar einnig á bug ásökunum um að spurningin hafi verið of létt. „Það að hún féll ekki í fyrstu tilraun hlýtur að afsanna það.“ Að mati sérfræðinga í Gettu betur-keppninni er fátt sem getur stöðvað sigurgöngu Menntaskólans í Reykjavík úr þessu. Ýmsir hafa bent á tengsl Stefáns Pálssonar við MR- liðið og á vefnunt malefni.com má sjá ýmsar samsæriskenningar á lofti. „Það er ekkert svoleiðis í gangi," seg- ir Stefán. „í raun væri það frekar hagur sjónvarpsins að MR myndi tapa keppninni því það myndi tví- mælalaust auka vinsældir hennar." Stefán Pálsson Stenduri ströngu en MH-ingar telja hann hafa hyglað sinum gamta skóla. Oddur Ástráðsson, liðsmaður MR, segir liðið aldrei hafa verið jafn nálægt því að tapa og nú. „Við höfð- um einfaldlega meiri reynslu þegar allt var á suðupunkti." Spurður um samskipti MR-liðsins við Stefán Pálsson dómara segir Oddur að þau hafi verið góð. „Hann gerir ekki upp á milli liða og ef eitthvað er þá gefur hann okkur minni slaka til að vera ekki sakaður um samsæri." Annars segir Oddur að þessi keppni sé fyrst og fremst leikur. „Þetta er ekki nema brot af því sem maður fæst við í lífinu; ekki upphaf og endir alls.“ simon@dv.is Sigurvissir og kampakátir Segjasteinfoldlega búayfirmeiri reynslu og það réði úrslitum. Áskriftarleikur DV Ánægð með blaðið „Ég hef verið áskrifandi í mörg, mörg ár,“ segir Ester Kristjánsdóttir, vinnings- hafi í áskriftarhappadrætti DV. Ester, sem er nemi og húsmóðir, fékk gjafakort fyrir tvo upp í flugferð með Icelandic Espress í vinning og var að vonum mjög ánægð með sitt blað. „Ég væri ekki áskrifandi ef ég væri ekki ánægð með blaðið. Eftir breytinguna eyði ég ennþá meiri tíma í að lesa það spjaldanna á milli og ég missi ábyggilega aldrei af neinu sem í því stendur." Ester er í Menntaskólanum við Hamrahlíð og er að klára stúdentinn. Hún hefur ekki ákveðið hvert eða með hverj- um hún ætlar að fara en segir að það verði minnsta vandamálið. Ester Krisjánsdóttir vann áskriftarhapp- ^ drætti DV Ester tekur við verðlaununum frá * Irisi Pétursdóttur, starfsmanni i þjónustuveri DV. Veðrið O Nokkur’ vindur (f-X fcb y^W +4 Nokkur +2 Nokkur vindur o 6 4*^* Nokki vindur +4* ' Nokkur Nokkur vindur A* * ^ “ * Strekkingur vindur +1 Gola o, Nokkur vindur +4 Gola +5 O Nokkur vindur * *■ Strekkingur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.