Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004
Fréttir JJV
18 milljónir í
bætur
Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri hefur verið stefnt
tíu sinnum á síðustu flmm
árum vegna meintra lækna-
mistaka. Fimm af þeim mál-
um fóru fyrir dómstóla og í
tveimur tilvikum var spítal-
inn sakfelldur. Þau mál
tengdust bæði Jónasi Frank-
lín fæðingarlækni sem ný-
verið játaði að hafa borið
ábyrgð á dauða bams í
Keflavík. Af hinum málun-
um sem spítalinn lenti í
náðist dómsátt í einu tilviki
og fimm sinnum náðust
samningar um bótagreiðsl-
ur án þess að til dóms
kæmi. Alls námu bóta-
greiðslur 18 milljónum
króna á þessum fimm
árum.
Stungin í
brjóstið
Kona um fertugt var
flutt á slysadeild um hálftíu
á laugardagskvöldið með
stungusár á brjósti. Maður
sem var handtekinn á
veitingastað
klukkutíma síðar
virtist saklaus af
verknaðinum. Kon
an var stödd í heima-
húsi í miðbænum þegar
verknaðurinn átti sér stað
en ekki er enn vitað hver
hafi verið að verkí eða jafn-
vel hvort einhver annar hafi
verið að verki en konan
sjálf. Hún hefur verið góð-
kunningi lögreglunnar um
áratugaskeið.
Hestur á
hraðbraut
Hestur á miðjum aldri
kastaði knapa sfn-
um við Breiðholts-
brautina skömmu
eftir hádegi á laug-
ardag. Hestur tók
síðan sprettinn upp
á brautina og val-
hoppaði á móti um-
ferðinni. Talsverð
ringulreið hlaust af þegar
bílar mætti hestinum en
snarráðum ökumönnum
tókst að forðast að ienda í
árekstri við gripinn. Knap-
anum tókst með aðstoð að
fanga hestinn.
Dóphringur í
Árnessýslu
Fjórir menn og ein kona
voru handtekin í Ár-
nessýsíu á föstudag-
inn vegna rann-
sóknar sem tengist
gruni lögreglunnar
um sölu og dreif-
ingu fíkniefna í sýsl-
unni. Þeim hefur nú
verið sleppt. Lög-
reglan leitaði í nokkrum
húsum á föstudaginn og
fannst nokkuð magn af
hassi, lítilræði af af-
metamíni og tól tengd
fíkniefnaneyslu. Fíkniefna-
hundurinn Fenrir lék lykil-
hlutverk í leitinni, en rann-
sókn heldur áfram.
Prestur Seljakirkju lagði hendur á fermingardreng eftir messu. Biðst afsökunar á
framferði sínu. Hann segir drenginn hafa látið ófriðlega í messunni. Faðir piltsins
fundaði með biskupi íslands og kærði til lögreglu.
Prestup biönr Mngnr-
dreng fyrirgefningar
„Ég bað drenginn afsökunar strax eftir að þetta
gerðist," segir séra Valgeir Ástráðsson, sóknar-
prestur í Seljakirkju. Séra Valgeir er sakaður um
að hafa lagt hendur á fermingar-
dreng sem að hans sögn hafð'
látið ófriðlega í messu. í
kjölfar atviksins fóru for-
eldrarnir með dreng-
inn á slysadeild og
fengu áverkavott-
orð. Þau hafa nú
lagt fram kæru á
hendur Séra
Valgeiri til lög-
reglunnar í
Reykjavfk.
„Ég er
ekki kæru-
glaður mað-
ur en þegar
svona er gert
á hlut barn-
anna manns
verður maður
að grípa til
sinna ráða,“ seg-
ir Sindri Sveins-
son, faðir drengs-
ins. Hann segir séra
Valgeir hafa tekið í •
upphandlegg sonar
síns. Dregið hann eftir
kirkjunni og upp á skrif
stofu. I áverkavott-
orðinu
kemur fram að drengurinn hafi hlotið húðrof og
nokkuð mar á upphandlegg.
Sindri segir jafnframt að enginn
alvarlegur ófriður
hafi verið af
stráknum. Þeir
hafi setið þrír
saman og eitt-
hvað verið að
pískra - eins og
krakkar geri oft
á þessum aldri.
„Aðalatrið-
ið er samt ekki
hvort krakk-
arnir hafi látið
illa í messunni
eður ei,“
segir
Sindri.
„Svona
gera
menn ein-
faldlega
ekki.“
Séra Valgeir
það
skyldu sókn-
arprests að
láta krakka
vita af því
þegar þau
haga sér illa
„Mér þykir þetta mjög leiðin-
legt en get ekki séð að ég hafí
gert eitthvað rangt"
og í þessu tilviki hafi hann verið að trufla guð-
þjónustuna. „Ég tók í hendina á honum og hann
reif sig af mér,“ útskýrir Valgeir og segist vita af því
að hann hafi kannski haldið of fast. „Það komu
einhverjir marblettir en þetta heitir hvorki mis-
þyrming né annað."
Henný Gestsdóttir var stödd í umræddri
messu. Hún segist ekki hafa orðið vör við að
krakkarnir höguðu sér illa. „Það voru engin læti
sem hægt er að tala um,“ segir Henný. „Kannski
smá pískur en ekkert alvarlegt."
Valgeir segir þetta atvik vera undantekningar-
tilvik; oftast nær hegði fermingarbörnin sér vel.
„Ef hann hefði ekki rykkt sér frá hefði ekkert séð á
honum,“ segir Valgeir. Hann segist hafa talað við
foreldra drengsins og beðist afsökunar. „Mér þyk-
ir þetta mjög leiðinlegt en get ekki séð að ég hafi
gert eitthvað rangt."
Atburðurinn hefur vakið undrun sóknarbarna
sem mörg hver eiga krakka sem munu fermast hjá
Séra Valgeiri. Sindri segir að nú komi ekki til
greina að strákurinn sinn verði fermdur hjá sókn-
arprestinum. „Ég átti fund með biskupi um þetta
mál og honum þótti þetta leitt," segir Sindri og
bætir við: „Eins og okkur öllúm.“
simon@dv.is
Séra Valgeir Ástráðsson. Prestur Selja-
kirkju ersakaðurum að hafa lagt
hendur á fermingardreng og
biðst afsökunar á fram-
ferði sinu.
Af hverju fær Svarthöfði ekki að skrifa?
Svarthöfði skilur ekkert í því
hvers vegna Ólafur Teitur fékk hann
ekki til að skrifa eins og einn kafla í
stórvirkið sem Bókaútgáfa ríkisins
ætlar að gefa út í haust á D-degi, það
er að segja deginum þegar Davíð
hættir.
Þó er Svarthöfði þaulvanur rit-
höfundur eftir að hafa skrifað þenn-
an fasta dálk sinn áratugum saman
og hefur víðtæka þekkingu á íslensk-
um stjórnmálum bæði að fornu og
nýju. Miðað við ýmsa þá sem nú
hefur verið kynnt að skrifa eigi kafla
í bókinni, þá sýnist Svarthöfða aug-
ljóst að hann sé miklu betur til þess
fallinn að skrifa í bókina en ýmsir
þeirra sem Ólafur Teitur hefur nú
ráðið til starfa.
Látum vera Davíð Oddsson for-
Svarthöfði
sætisráðherra. Hann er náttúrlega
rithöfúndur þó að hann hafi ekki
skrifað mikið um söguleg efni áður.
Það ætti því ekki að vefjast fyrir hon-
um að hripa upp kaflann um Hann-
es Hafstein. Svarthöfði hefur að vísu
nokkrar áhyggjur af því að nýjar
upplýsingar um Dýrafjaröarmálið
kunni að vefjast svolítið fyrir forsæt-
isráðherra. Tilraun Hannesar til að
taka breskan togara 1899 hefur
hingað til verið talin til marks um
hetjulund Hannesar og dirfsku en í
þætti í útvarpinu um daginn kom í
ljós - og var riijað upp í DV - að
Hannes hefði að líkindum bara ver-
ið drullufullur og vart með ráði eða
rænu. Fyrir Davíð að skrifa um þetta
er svolítið eins og nefna snöru í
hengds manns húsi en spá Svart-
höfða er að Davíð muni skauta létt
frá þessu og einbeita sér að fallegri
málum sem Hannes stóð í, ekki síst
húsbyggingum.
En Svarthöfði skilur minna í að
t.d. Birgir ísleifur móttökumeistari
Seðlabankans sé látinn skrifa í bók-
ina. Svarthöfði veit ekki til að hann
hafi stungið niður penna síðan í
menntaskóla. En hann á að skrifa
um Jóhann Hafstein. Blessunarlega
var Jóhann forsætisráðherra mjög
stutt og kaflalengdin mun víst fara
eftir lengd valdasetunnar.
Svarthöfði