Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Blaðsíða 21
r
py Sport
MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 21
Hið stórkostlega lið Arsenal skráði sig í sögubækurnar um helgina þegar þeir
lögðu Bolton á Highbury, 2-1. Eiður Smári skoraði stórkostlegt mark fyrir Chelsea
og undur og stórmerki gerðust á Old Trafford þegar Man. Utd hélt hreinu
Eitt besta lil sögunnar
Það þýðir ekkert að rífast um þetta lengur. Liðið sem Arsenal
teflir fram í dag er eitt það besta í sögu ensku úrvalsdeildar-
innar. Eftir sigur á Bolton hafa þeir leildð 29 leiki í röð án þess
að tapa. Það hafa aðeins tvö lið í sögunni gert áður - Leeds
tímabilið 1973-74 og Liverpool tímabilið 1987-88. Þeir fá svo
guilið tækifæri til þess að sanna sig og taka metið einir þegar
þeir mæta Manchester United á Highbury um næstu helgi. Þá
verður allt lagt undir hjá báðum aðilum.
Arsenal var samt ekkert
sérstaklega sannfærandi um helgina
þegar þeir mættu Bolton en eins og
svo oft áður í vetur gerðu þeir það
sem til þurfti.
„Ég sé ekkert lið stöðva Arsenal í
dag,“ sagði Sam Allardyce, stjóri
Bolton. „Þeir eru með þrennuna í
höndunum og virðast styrkjast í
hverri viku.“
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
gat iítið annað en hrósað sínum
mönnum eftir leikinn.
„Þetta er stórkostlegt afrek hjá
mínum mönnum. Þeir hafa sýnt
einstaka þrautseigju með því að
spila 29 leiki án þess að tapa. Þeir
eiga skilið mikla virðingu. Ekki
aðeins fyrir að vera góðir heldur
einnig fyrir að vera sterkir andlega
um hverja einustu helgi," sagði
Wenger sem mætir Chelsea í
Meistaradeildinni á miðvikudag.
Fergie hrósar Giggs
Leikmenn Man. Utd girtu sig í
brók á laugardag er þeir fengu
Tottenham í heimsókn. Þeir höfðu
ekki unnið heima síðan í janúar og
þar að auki höfðu þeir ekki haldið
hreinu f síðustu 10 leikjum. Það
breyttist allt á laugardag. Það var
Ryan Giggs sem stal senunni í
leiknum með frábærri frammistöðu.
„Þegar Ryan leikur svona er hann
hreint einstakur," sagði Sir Alex
Ferguson, stjóri Man. Utd. „Hann er
búinn að eyða fjórtán árum í að
hlaupa upp vinstri kantinn og við
ætlumst kannski stundum til of
mikils af honum. Það má ekki
gleyma öllum meiðslunum sem hafa
áhrif á menn en hann hefur hrist
það allt af sér og ég er einstaklega
ánægður með hann í dag.“ sagði Sir
Alex og bætti við að Roy Keane ætti
einnig stóran þátt í sigrinum. David
Pleat, stjóri Spurs, tók í sama streng.
Frábært mark hjá Eiði Smára
Eiður Smári skoraði stórkostlegt
mark gegn Fulham í 2-1 sigri.
Damien Duff gerði sigurmarkið í leik
þar sem Claudio Ranieri, stjóri
Chelsea, gerði sitt besta í að spara
stjörnurnar fyrir leikinn gegn
Arsenal í Meistaradeildinni á
miðvikudag.
„Eiður skoraði ótrúlegt mark og
ég er verulega ánægður með stigin
þrjú. Damien fékk líka fi'n færi en
þetta var alls ekki auðveldur leikur,"
sagði Claudio Ranieri eftir leikinn.
Chris Coleman, stjóri Fulham,
var fúll.
„Ég er mjög vonsvikinn því
Chelsea voru ekkert sérstakir og við
áttum möguleika að ná í stig hérna.
Annars erum við slakir á útivelli og
höfum í raun ekkert getað síðan við
unnum á Old Trafford."
Houllier andaði léttar
Hinum hjartveika stjóra
Liverpool, Gerard Houllier, var
mikið létt eftir að Liverpool marði
sigur gegn Wolves á heimavelli.
Sami Hyypia skoraði eina mark
leiksins á síðustu mínútu leiksins.
„Ekki kvarta, við unnum leikinn,"
sagði Houllier. „Annars gerði sterkur
vindur okkur erfitt fyrir og svo
hefðum við átt að fá víti þegar
Heskey var dreginn niður. Ég skil
„Ég ræð bara ekki við
mig.Égerað gera
það næst besta á eftir
því að vera leikmaður
og ég myndi gefa
mikið tilþess að geta
skipt og orðið aftur
leikmaður."
ekki hvemig var hægt að sleppa því, “
sagði Houllier en Dave Jones, stjóri
Wolves, sá atvikið ekki með sömu
augum.
„Mér fannst fyrst að þetta hefði
átt að vera víti en eftir að hafa séð
þetta í sjónvarpinu þá sé ég að
dómarinn gerði rétt. Okkar maður
fór í boltann."
Shearer eins og Herkúles
Alan Shearer „breytti til“ og fór á
kostum með Newcastle er þeir lögðu
Charlton á St. James's Park, 3-1.
Shearer skoraði tvö mörk og var
verulega frískur.
„Við sýndum ótrúlegan karakter í
þessum leik og maðurinn sem gaf
tóninn var fyrirliðinn. Hann var eins
og Herkúles. Samt var dæmt
ótrúlega gegn honum en alveg sama
hvað gekk á þá hélt hann bara
áfram. Hann er alveg magnaöur,"
sagði Sir Bobby Robson, stjóri
Newcastle, sem er ekki vanur að
spara stóru orðin í garð fyrirliðans.
Newcastle klifraði með sigrinum
yfir Charlton á töflunni. Alan
Curbishley, stjóri Charlton, var
hundfúll í leikslok og kenndi
dómaranum um.
Souness opnarsig
Blackburn kom verulega á övart
um helgina með því að leggja Aston
Villa að velli. Það hefur allt verið í
hers liöndum hjá félaginu undan-
farið og Graeme Souness, stjóri
Blackburn, hefur þurft að glíma við
harðar ásakanir frá Andy Cole og
Dwight Yorke. Þrátt fyrir það var
Cole í liðinu og Yorke á bekknum.
„Ég er fimmtugur og langt frá því
að eiga enga sök á því sem hefur
gerst síðustu viku," sagði Souness.
„Ég hef lært að ég á ekld að spila í
fimm á móti fimm á æfingum jafn
vel þótt það sem gerðist hjá okkur
gerist hjá flestum félögum á landinu
í hverri viku. Ég ræð bara ekki við
mig. Ég er að gera það næst besta á
eftir því að vera leikmaður og ég
myndi gefa mikið til þess að geta
skipt og orðið aftur leikmaður. Það
er alveg klárt að ég verð ekki aftur
með í fimm á móti fimm," sagði
Souness um uppákomuna með
Yorke en hann ræddi líka um Cole.
„Ég sé eftir sumu sem ég sagði við
Andy fyrir tveim vikum síðan. Ef við
lentum aftur í álíka eftir viku
myndum við báðir bregðast öðru-
vísi við því það eina sem skiptir máli
í þessu er Blackburn Rovers."
Fergusontapaðisér
Duncan Ferguson stal senunni
þegar Everton heimsótti Leicester.
Hann lét reka sig út af eftir 40
mfnútur og réðst svo á Steffen
Freund í kjölfarið.
„Mér skilst á dómaranum að
hann hafi verið rekinn út af fyrir
ítrekuð brot. Ég sá það gekk eitthvað
á eftir að hann fékk rauða spjaldið
en sá það ekki almennilega. Ég vil
ekki ræða um það heldur fótbolta,"
sagði David Moyes, stjóri Everton,
um Ferguson.
Micky Adams, hinn magnaði
stjóri Leicester, var eilítið fúll með
að hafa ekki landað öllum þrem
stigunum eftir að hafa verið manni
fleiri í 50 mínútur. „Við gerum
hlutina ekki á auðveldan hátt hér en
við áttum samt skilið stig miðað við
hversu mikið við vorum með
boltann en ég hefði gjarna viljað öll
þrjú." henry@dv.is
Orvalsdeilo
HETJAN...
Sami Hyypia
Sami Hyypia leysti lið Liver-
pool úr fangelsi á lokamín-
útunni gegn Wolves. Liverpool
var langt frá því að vera sann-
færandi í leiknum og lengi vel
leit út fýrir enn eina brodend-
inguna í vetur en þá kom fyrir-
liðinn fyrrverandi svífandi á
vettvang og bjargaði þrem
mikilvægum stigum sem lyftu
Iiverpool upp f fjórða sætið þar
sem þeir vilja vera. Hver veit
nema lukkan sé loksins gengin
í lið með strákunum frá Bítla-
borginni?
Duncan Ferguson
Duncan Ferguson erklár-
lega ekki heill á geði. Hann
gerði sig sekan enn eina ferðina
um brjálæðislega hegðun um
helgina þegar hann lét reka sig
af velli í fyrri hálfleik gegn
Leicester. Hann lét sér ekki
; nægja að fá rautt spjald heldur
| gerði liann sitt besta til þess að
kreista augun úr andlitinu á
Steffen Freund í kjölfarið.
Þannig að í stað eins leiks bann
er þessi skapbráði Skoti
væntanlega á leið í að minnsta
j kosti þriggja leikja bann - ef
j ekkilengra.
Glæsilegt mark Eiður Smári Guðjohnsen skoraði gull afmarki gegn Fulham að heigina. Þrumuskot af25 metra færi sem söng i netinu. Hann
sést hér skjóta boitanum í markið og svo fagnar hann með John Terry á eftir. Reuters
„Paul er fyrsti maðurinn til að játa að
hann var ekki upp á sitt besta í
leiknum. Þetta var ekki sá Paul Dickov
sem við þekkjum. Kannski hélt hann
sér rólegum til að forðast að lenda á
forsíðum blaðanna. Það gengur ekki
og ég verð að hjálpa honum með
þetta,"sagði Micky Adams, stjóri
Leicester, um Paul Dickov sem var að
leika sinn fyrsta leik eftir að hafa eytt
viku íeinu alræmdasta fangelsi
Spánar, Sangonera.
■-*-«« «»-n—«
Newcastle
Steven Gerrard (2) Gaizka Mendieta (3)
Liverpool Middlesbrough
mynum
. í%\
Ryan Giggs (4)
Man. Utd
Sami Hyypia
Liverpool
Roy Keane (2)
Man. Utd
Mark Schwarzer
Middlesbrough
Brett Emerton (2)
Blackburn
Ko{oToure(2)
Arsenal
r
i