Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004
Fréttir 0V
Stúdentar
krefjast
Fulltrúar stúdenta í há-
skólaráði, æðsta yfirvaldi Há-
skóla fslands,
munu krefjast þess
á fímmtudaginn að
skólinn veiti þeim
greiðslufrest á
skráningargjald til
4. júlí. f tilkynningu frá skrif-
stofu nemendaskrár Háskól-
ans, sem barst flestum nem-
endum á mánudaginn, kom
fram að stúdentar yrðu að
greiða skráningargjald upp á
32.500 krónur á dögunum
22. til 26. mars skilyrðislaust,
en fresturinn hefur verið
framlengdur til 2. maí. Hing-
að til hefur verið frestur til
20. ágúst.
ETAvill ræða
við Zapatero
Basknesku aðskilnaðar-
samtökin ETA hafa gefið út
yfírlýsingu um að þau
vilji viðræður við Jose
Luis Zapatero, leið-
toga Sósíalista, sem
sigruðu í þingkosn-
ingunum í síðustu
viku. Samtökin skora
á Zapatero að grípa
til sterkra og djarfra aðgerða
fyrír friði. Zapatero hvatti til
vitrænna viðræðna og skyn-
semi í baskadeilunni í síð-
ustu viku til að binda enda á
ofbeldi og finna viðunandi
lausn fyrir alla. ETA áskilur
sér enn rétt til að beijast fyrir
sjálfstæði Baskalands, með
ofbeldi eður ei.
Á Davíð að
hœtta í ríkisstjórn?
Ólafur Harðarson
prófessor i stjórnmálafræði.
„Það eru bæði rök með og á
móti. Frá sjónarhóii Davíðs
gæti verið skynsamlegt að
hætta því það er erftitt að sjá
hverju hann getur bætt við
fyrri afrek sín. Hins vegar er
mjög skiljanlegt að margir
sjálfstæðismenn vilji ógjarnan
sjá á eftirjafnöflugum for-
ingja, ekki síst þar sem alltafer
hætta á óróleika og jafnvel
upplausn þegar öflugir leið-
togar hætta."
Hann segir / Hún segir
Strákarnir í 70 mínútum hittu og spjölluðu við stelpurnar í Sugababes. Gullfallegar
og engin óvild milli þeirra, segir Pétur Jóhann Sigfússon. Þær segja meint ósætti
vera blásið upp; þær hafi verið kvefaðar.
Lét Sugababes
herma eftir dýrum
„Það var ekki að sjá að það væri nein óvild á
milli þeirra og þetta eru alveg gullfallegar og
skemmtilegar stelpur," sagði Auðunn Blöndal en
hann og Pétur Jóhann Sigfússon skelltu sér til
Brighton um helgina á tónleika með stelpna-
hljómsveitinni Sugababes. „Við fengum einkavið-
tal við stelpurnar sem var alveg stórskemmtilegt.
Þær gáfu okkur 10 mínútur af sínum tíma sem var
mjög fínt enda virkuðu þær mjög ligeglad." Þegar
þeir 70 mínútna-menn spurðu þær út í meint rifr-
ildi innan hljómsveitarinnar, sem leiddi til frest-
unar tónleika og sagna um að hljómsveitin væri
að hætta, vildu stelpurnar sem minnst um það
tala. „Þær sögðust búnar að tala svo mikið um
þetta og væru komnar með leið á því en sögðu
málið einungis hafa verið blásið upp og í raun
hefðu þær bara verið kvefaðar." Pétri tókst að
plata stelpurnar til að herma eftir dýrum en Pétur
er náttúrulega
frægur sela-
„Heidi, þessi Ijóshærða,
hljómaði eins og hvolpur sem
verið var að stíga ofan á"
eftirhermir. „Tvær þeirra voru til í að reyna. Heidi,
þessi ljóshærða, hljómaði eins og hvolpur sem
verið var að stíga ofan á og Keisha, þessi dökka,
urraði eins og tígrisdýr," sagði Auðunn og bætir
við að þetta verði allt sýnt í þættinum í kvöld og
því mjög forvitnilegur þáttur. Stelpurnar eru
væntanlegar til landsins í sumar og samkvæmt
Auðunni hlakka þær mikið til. „Þær eru mjög
spenntar að koma til Islands og þá sérstaklega að
hitta Ásgeir Kolbeins. Þó hafa þær aldrei hitt
hann,“ sagði Auðunn. Ferðasagan ásamt viðtal-
inu verður sýnd í 70 mínútum í kvöld og segir
Auðunn að enginn megi missa af þessum þætti.
„Við fengum að hafa
myndavélina á tónleik-
_. unum og auðvitað
vorum við alveg
fremst. Það ......
oF '' vK“'\ m**i i "'>.111
hversu góðar á
,, x vi.'lk sviði þær eru
U '\ Æi . % °g égætla a|-
jak-* ve8 pottþétt
' að sjá þær
Auðunn Blöndal Strákarnir 170 mínútum fengu einkaviðtal
við stelpurnar I Sugababes.
þegar hljómsveitin kemur hingað." í þættinum í
kvöld er líka glæný falin myndavél þar sem strák-
arnir klæddu sig upp sem vottar jehóva og segir
Auðunn gaman
að sjá fólk
hurð-
inni á
Sugababes Auðunn sagði
að stelpurnar væru greini-
lega búnar að semja frið og
að þær hlakki mjög til að
ii koma til landsins.
„Mér hefur virst að stjórn-
máiamenn og valdamenn al-
mennt eigi ofoft erfitt með að
hætta. Davíð Oddsson á að
baki glæstan feril á marga
mælikvarða. Það kann að vera
skynsamlegt fyrir hann að
hætta á tindi þess ferils í stað
þess að taka þá áhættu að
héðan afliggi leiðin niður í
móti. Svo er ég almennt þeirr-
ar skoðunar að fæstum sé
hollt að vera oflengi við völd."
Margrét S. Björnsdóttir
Forstöðumaður Stofnunar stjórn-
sýslufræða og stjórnmála.
Sat í gæsluvarðhaldi með sonum sínum
Pabbi Skeljagrandabræðra
vill skaðabætur
Sívar Sturla Bragason hefur
höfðað skaðabótamál á hendur ís-
lenska ríkinu vegna gæsluvarðhalds
sem sat f ásamt sonum sínum
tveimur árið 2002. Fer hann fram á
þrjár milljónir króna í skaðabætur.
Sívar er faðir Skeljagranda-
bræðranna svokölluðu, Stefáns
Loga og Kristjáns Markúsar, en þeir
voru ásamt föður sínum handtekn-
ir í byrjun ágúst árið 2002 vegna
stórfelldrar líkamsárásar á rúmlega
tvítugan mann. Árásin átti sér stað
á heimili feðganna við Skeljagranda
í Reykjavík og þótti afar fólskuleg.
Maðurinn sem ráðist var á hlaut
meðal annars heilablæðingu og
fannst hann í blóði sínu á göngustíg
skammt frá heimili feðganna.
Bræðurnir voru dæmdir síðastliðið
vor og sitja nú í fangelsi - annar
hlaut tveggja ára dóm og hinn
þriggja og hálfs árs dóm. Sívar var
hins vegar ekki ákærður í málinu og
er það ástæða þess að hann sækir
mál gegn ríkinu. Gæsluvarðhald
hans varði í tæpan mánuð og var
hann mestallan þann tíma í ein-
angrun. Aðalmeðferð málsins fer
fram fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í
dag. Hann á að baki langan sakafer-
il, hefur oftsinnis hlotið dóma fyrir
Héraðsdómur Reykjavíkur Skeljagrandabræður voru dæmdir I fangelsi fyrir hrottafengna
llkamsárás. Faðir þeirra var úrskurðaður I gæsluvarðhald vegna málsins en siðar kom i Ijós að
hann tengdistekki árásinni.
líkamsárásir, þjófnaði, hötanir, 2002 fyrir að stela videóspólum á
fjársvik, rán, skjalafals og fíkniefna- myndbandaleigu og áfengispela í
brot. Síðast var hann dæmdur árið ríkinu.