Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004
Fréttir jjV
Ozzy hittir
Marsbúa
Gamli rokkhundurinn
Ozzy Osbourne hefur verið
valinn sá hentugasti til
að taka á móti geim-
verum. Þetta er niður-
staða könnunar sem
gerð var á Netinu eftir
að vatn fannst á Mars.
Rokkarinn sigraði Tony Bla-
ir sem fékk næstflest at-
kvæði en Ozzy fékk alls 26%
atkvæða. Bush Bandarfkja-
forseti fékk jafnmörg at-
kvæði og sílikongellan Jord-
an en þau fengu aðeins 9%.
Dauðir óskast
Leikhópur í London hef-
ur óskað eftir dauðum leik-
urum í uppsetningu sína á
leikriti sem fjallar um hin
ýmsu tabú dauðans. Með
því að hafa lík á víð og dreif
um sviðið telur leikstjórinn
trúverðugleika verksins
magnast. „Hinir dauðu
munu liggja á gólfinu í friði
og ekki snertir af öðrum
leikurum," sagði leikstjór-
inn. Hann vonast til að fár-
sjúkt fólk bjóði sig fram.
Prinsinn
yfirheyrður
Karl Bretaprins verður ef
til vill yfirheyrður af lögregl-
unni vegna rannsóknar á
dauða Díönu prinsessu. „Ef
sönnunargögn
benda til þess að
prinsinn sé við-
riðinn málið verður
hann að sjálfsögðu
yfirheyrður eins og
aðrir. Þær ásakanir sem
gerðar hafa verið á hendur
honum verða rannsakaðar
og þá kveðnar niður ef þær
eru rangar," sagði yfirlög-
reglumaður bresku lögregl-
unnar. Rannsóknin fer fram
meðal annars að beiðni Mo-
hameds Fayed, föður Dodis
Fayed, sem lést ásamt
prinsessunni í bílslysi fyrir
rúmum sex árum síðan.
„Maður er varla búinn að ná
sér eftir voðaskotið hérna
um daginn, “ segir Ragnar
Björnsson, rakari á Selfossi.
„Þetta var hræðilegur at-
burður sem varla er hægt að
tíunda mjög mikið. Ég hef
alla tíð verið hræddur við
byssur og vil helst að menn
eigi ekki helvítis byssur því
hættan eralltaffyrirhendi..
Annars er mikið um að vera
hérna
í bæn-
um. Leikfélagið var að setja
upp Gaukshreiðrið og ég leit
á sýningu hjá þeim um helg-
ina. Svo er fjölbrautaskólinn
með söngleik þarsem lög
Skítamórals eru tekin fyrir.
Þeir eru óskabörn okkar Sel-
fyssinga og voru auðvitað
klappaðir upp í lok sýningar-
innar. Að lokum verð ég að
minnast á veðrið en það er
afar gott og greinilegt að vor
erílofti."
Landsíminn
Baldvin Jónsson undrast neikvætt viðhorf bóndans og viðskiptaráðherrans
Valgerðar Sverrisdóttur varðandi möguleika á sölu á fersku lambakjöti til útlanda.
Sjálfur sér hann mikla möguleika og bendir á að salan hafi aukist verulega.
Gordon Blair, sérfræðingur frá Bandaríkjunum, tekur í sama streng.
pimngur
„$ala fersks fambakjöts héf-
m tífaidast # Bandaríkjunum
ftáárim 199**
„Ég er ákaflega hissa á því að hún telji betra að
selja þorramat en ferskt lambakjöt til útlanda. Á
hverju einasta ári reyna íslendingafélögin að fá
þorramat fluttan út en fá ekki heimild til þess,"
segir Baldvin Jónsson framkvæmdastjóri verkefn-
is sem heitir Áform og gengur út á að flytja til út-
landa ferskt lambakjöt.
..saia á lambakjöti á erlenda
markaði hefur ekki náð
árangri og mun ekki
ná árangri sem
nokkru nemur.
Enda hefðum
við ekkert kjöt
til þess að
mæta slíkum
mörkuðum ef
að það mundi
allt í einu ger-
ast, sem stefnt
hefur verið að,
þ.e.a.s. að lamba-
kjötið mundi slá
gegn erlendis. Ég v
því fyrir mér hvort það
er ekki líklegra til ár-
angúrs að mark-
aðssetja íslensk þorrablót en að eyða miiljónatug-
um í að reyna fyrir sér á erlendum mörkuðum
með sölu á lambakjöti," sagði sjálfur sauðfjár-
bóndinn og iðnaðarráðherrann Valgerður Sverr-
isdóttir á heimasíðu sinni fyrir skemmstu.
Baldvin er alveg undrandi því Valgerður hefur
stutt þetta verkefni af heilum hug. Hann hefur þó
engar áhyggjur því gengið hefur verið frá því til
næstu fjögurra ára að áfram verði haldið. Um það
var þverpólitísk samstaða á þingi. „Þetta hlýtur
að vera tilfaflandi pirringur í Valgerði. Fólk
verður stundum pirrað og þá bitnar það á
einhverjum, þessu verkefni í þessu tilfelli.
Það virðist liggja vel við höggi því þarna
er verið að gera nokkuð sem aldrei hefur
verið reynt áður," segir Baldvin og hefur
tröllatrú á verkefninu.
I gær fór af landi brott gæðastjóri og
innflytjandi kjöts sem er til sölu í Whole
Foods Market, sem er stærsta verslunar-
keðja í Bandaríkjunum með vottaða líf-
rænt ræktaða matvöru. Hann heitir Blair
Gordon og hefur komið reglulega til
íslands á undanförnum árum. Gordon hefur
fylgst með lambinu frá vöggu til grafar ef svo
má að orði komast, verið við sauðburð, smala-
mennsku, réttir og slátrun. Hann er mikill að-
dáandi hins íslenska lambakjöts og segir
borðleggjandi að sala ákjötinu eigi eftir að
aukast verulega. „Byrjaði hægt en
hefur farið stigvaxandi. Enda er
um algerlega einstaka
vöru að ræða,“ segir
Gordon.
Til verkefnisins
Áforma er varið 25
Valgerður Sverris-
dóttir iðnaðarráð-
herra Bóndinn á
Lómatjörn telur
vænlegra að
selja þorra-
tilút-
landa en
ferskt
lamba-
kjöt.
Félagarnir Baldvin Jónsson og Blair Gordon Gordon var
hér staddur á vegum Whole Foods Market. Hann er sérlegur
aðdáandi íslenska lambakjötsins. Baldvin undrast ummæli
Valgerðar og segir að lambakjötssala til Bandarikjanna hafi
tlfaldast frá árinu 1998. A síðasta ári seldust 200 tonn.
milljónum árlega í sex ár, sem Baldvin telur ekki
mikið þegar alls er gætt. „Við erum auðvitað að
vinna á fleiri vígstöðvum en bara í Bandaríkjun-
um. Af þessum 25 milljónum fóru níu þangað og
við erum að auglýsa allt ísland í leiðinni. Á sfðasta
ári seldi Norðlenska ferskt lambakjöt fyrir 50 millj-
ónir. Dollarinn er í sögulegu lágmarki, ef hann
lægi í 90 krónum væru þessar 50 strax orðnar 70
milljónir. Við erum að tala um tíföldun sölu frá ár-
inu 1998 en þá seídust 20 tonn. Síðasta ár seldust
200 tonn og í ár inunum við selja 300 tonn."
Tengsl Áforma og Whole Foods hafa verið
gagnrýnd á þeim forsendum að öll eggin séu í
einni körfu. Éf Whole Föods snúi baki við íslenska
lambakjötinu séu söluáform fyrir bý. Baldvin deil-
ir þessum áhyggjum ekki, segir Whole Foods hafa
staðið sent klett með íslendingum þegar friðar-
samtök ætluðu að berjast gegn íslenskum afurð-
um vegna hvalveiða fslendinga. „Ef eitthvað
klikkar þá verður það okkar megin," segir Baldvin.
Hann bendir jafnframt á að þegar Whole Foods
opnaði verslun nýverið í CNN-byggingunni í New
York var þriggja klukkustunda biðröð til að kom-
ast inn og hleypt var inn í hollum. 48 peninga-
kassar eru í búðinni og má þetta heita til marks
um stærðina.
jakob<s>dv.is
Verðmæti túnfiskkvóta íslendinga er 100 milljónir króna
Ráðherra vill ekki kvóta á bláuggatúnfisk
Árni Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra segir að ráðuneytið muni ekki
setja kvóta á veiðar á bláuggatún-
fiski suður af landinu heldur verða
gefnar út veiðiheimildir eins og gert
var í fyrra. „Ég trúi því ekki að menn
geti ekki veitt þennan fisk án kvóta
þótt kvóti sé góðra gjalda verður,"
segir Árni Mathiesen.
Eins og kunnugt er af fréttum
DV hefur Atlantshafstúnfiskráðið
nú úthlutað Islendingum 40 tonna
túnfiskkvóta en um er að ræða
einhvern dýrasta fisk í heiminum
því Japanir eru reiðubúnir að
borga allf að 4.000 jenum fyrir
kílóið af fyrsta flokki af þessum
fiski. Er verðmæti kvótans því um
100 milljónir kr. Fram hefur komið
hjá einum þeirra er stundað hafa
veiðarnar að enginn hafi haft
áhuga á þeim í fyrra þar sem kvóti
hafi ekki fengist heldur veiðiheim-
ildir.
Árni Mathiesen segir að hann
vilji hvetja þá sem áhuga hafa á
þessum veiðum að sækja um veiði-
heimildir og að ef þeir fara á þessar
veiðar muni það ekki leiða til þess
að annar kvóti sem þeir hafa innan
íslensku fiskveiðilögsögunnar
skerðist á móti.
Ekki munu margir bátar vera út-
búnir til þessara veiða hérlendis en
Árni segir að ef menn telja að eftir
einhverju sé að slægjast hljóti þeir
að útvega sér báta til veiðanna.
Árni Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra Á bágt með
að trúa því að menn geti ekki
veitt án kvóta