Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2004, Side 24
24 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004
Fókus DV
Timbaland
& Magoo
Under
Construction
Blackground/Smekkleysa
★ ★★
Þetta er þriðja platan
sem ofur-pródúserinn
Timbaland gerir með rapp-
aranum Magoo. Timbaland
Plötudómar
er búinn að vera einn af
framsæknustu pródúserum
heims síðustu ár og hefur
m.a. átt stóran þátt í vel-
gengni listamanna á borð
við Missy Elliott, Jáy-Z,
Aaliyah og Justin Timberla-
ke. Timbaland er ótrúlega
frjór, stundum hefur verið
meiri sköpunargleði í einu
lagi frá honum heldur en
öllum þrjátíu söluhæstu
rokkplötunum til samans...
Það eru nokkur frábær lög
hér, t.d. fyrsta smáskífulag-
ið Cop That Shit sem Missy
rappar í. Það er hins vegar
eins og það sé eitthvað að-
eins farið að draga úr sköp-
unarkraftinum hjá Timba,
því að inn á milli eru lög
sem eru bara ekkert sér-
stök.
Trausá Júlfusson
Wax Poetic
Nublu Sessions
★ ★★★
Ultra/Smekkleysa
Wax Poetic er hópur
djasstónlistarmanna frá
New York. Hann var stofn-
aður af Tyrkjanum Ilhan
Ersahin árið 1997 og hefur
spiláð stíft á klúbbum borg-
arinnar síðan. Wax Poetic
blandar saman djassi, blús,
hip-hop töktum, soul og
suður amerískri tónlist. Nu-
blu Sessions (sem heitir
eftir Nublu klúbbnum í
NYC) er önnur plata Wax
Poetic, sú fyrri kom út árið
2000. Það sem vekur
kannski mesta athygli á
þessari plötu er að sjálf
Norah Jones syngur tvö lög.
Hún var söngkona Wax
Poetics f stuttan tíma þegar
hún var 19 ára og hér snýr
hún aftur. Á meðal annarra
gesta eru Saul Wiiliams,
N’Dea Davenport og U-
Roy. Hér er engin tíma-
mótaplata á ferðinni, en
þetta er vel unnin og þægi-
leg gæðatónlist sem á skilið
að ná eyrum sem flestra.
Trausti Júlíusson.
I f é I u i
1 . (7) Franz Ferdinand -
Darts OfPleasure
2. (4) N*E*R*D -
She Wants To Move
3. (2) Franz Ferdinand -
Take Me Out
4. (1) TheVon Bondies -
Broken Man
5. (-) Cypress Hill -
What's Your Number
5, (6) Scissor Sisters -
Comfortably Numb
7. (8) Chicks On Speed/Peaches
We Don't Play Guitars
8. (5) TV On The Radio -
Poppy
Q (10) Usher-
Yeahl
10. (3) Missy Elliott -
Tm Really Hot
New York sveitin Scissor Sisters hefur vakið mikla at-
hygli síðustu vikur fyrir útgáfu sína afPink Floyd lag-
inu Comfortably Numb. Fyrsta stóra platan hennar
sem bernafn sveitarinnar varað koma út. TraustiJúlí-
usson tékkaði á systrunum.
f f
hneigð kona. Nafnið er slanguryrði fyrir lesbíur,
en hijómsveitin hét upphaflega Dead Lesbian and
The Fibrillating Scissor Sisters.
Jake og Baby Daddy sem eru búnir að vera vin-
ir frá barnæsku og voru saman í skóla byrjuðu að
búa til tónlist til þess að hressa sig við eftir hryðjú-
verkaárásina 11. septemþer 2001. Jake hafði verið
go-go dansari og hafði gaman að því að koma
„Aphex Twin og Mouse On Mars eru
síðustu nýju tónlistarmennirnir sem mér
fannst eitthvað varið í þannig að ég fór að
leita til baka,“ segir Jake Shears aðal-
söngvari New York sveitarinnar Scissor
Sisters í nýlegu viðtáli. „Svo var ég á sýru
einn daginn og heyrði I Can’t Go For That
með Hall & Oats og Fly Like An Eagle með
Steve Miller Band og ég fékk vitrun. Þetta
var eins og að heyra í englakór."
Tónlist Scissor Sisters sækir mikið í
tónlist áttunda og níunda áratugarsins.
Það hafa sennilega flestir heyrt útgáfuna
þeirra af Pink Floyd laginu Comfortably
Numb. Þetta er diskó-útgáfa sem hljómar
eins ogbjöguð útgáfa af Bee Gees, eðabara
eins og „Bee Gees á sýru“ eins og einhver
kallaði það. Snilldarútgáfa.
Öll lögiii á nýju Scissor Sisters plötunni
minna mann á eitthvað sem maður hefur
heyrt áður. Sums staðar minnir þetta á
Elton John, annars staðar á Bee Gees,
Wham, Erasure, Thompson Twins eðajafn-
vel Donnu Summer... En svo bæta þeir við
þetta og blanda saman á frábæran hátt
þannig að úr verður ein af skemmtilegustu
plötum síðustu mánaða. Algjörlega skotheld
poppplata.
Flöktandi lesbíur...
Scissor Sisters er fimm manna sveit skipuð áð-
urnefndum Jake, Baby Daddy, Del Marquis,
Paddy Boom og Ana Matronic. Þrír hommar, einn
gagnkynhneigður karlmaður og ein gagnkyn-
fram, en langaði að breyta til. Þeir höfðu
séð til Önu þar sem hún stjórnaði drag-
sjóum á klúbbnum Knock-Off og buðu
henni að vera með. Þau þrjú byrjuðu að
koma fram saman og spiluðu m.a. á
hommaklúbbnum The Cock. Útsendari A
Touch Of Class útgáfunnar sá til þeirra og
bauðst til þessað gefa þau út. Fyrsta smá-
skífan þeirra Elextrobix vakti nokkra at-
hygli, en þegar Comfortably Numb kom
út hjá A Touch Of Class varð allt vitlaust
og Polydor gerði samning við sveitina um
útgáfu út um allan heim.
The Darkness glyspoppsins?
Scissor Sisters sækja ekki bara áhrif frá
fortíðinni í tónlistinni, heldur líka í útliti
og umgjörð. Þau líta út eins og gömul
diskó hljómsveit og minna kannski einna
helst á hina ofur-hýru og glaðlyndu
hommasveit The Village People. Scissor
Sisters hefur reyndar oft verið Jíkt við
The Darkness. The Darkness tekur allar
klisjurnar úr þungarokki áttunda áratug-
arins og búa til sína útgáfu á meðan Sc-
issor Sisters tekur allar klisjurnar úr diskóinu og
glanspoppinu. The Darkness leitar í Queen og
AC/DC, Scissor Sisters í Bee Gees og Elton John.
Scissor Sisters platan hefur fengið frábæra
dóma, t.d. fimm stjörnur í Uncut og 9/10 í NME.
En það eru ekki allir sem kunna að meta sveitina.
Útvarpsmenn á Rás 2 hafa t.d. fengið ófá símtölin
frá hneyksluðum og húmorslausum Pink Floyd
aðdáendum vegna Comfortably Numb.
Eilífúarvel Blixa Bargeld
Þýska hljómsveitin Einstúrzende
Neuhauten (nafnið þýðir „hrynjandi
nýbyggingar”) hefur haft nokkra sér-
stöðu allt frá því að hún var stofnuð
sem framsækinn listahópur seint á
áttunda áratugnum. í upphafi var
tónlistin þeirra kaótísk hávaðaorgía
framleidd með gítar og ýmsum
málmplötum og verkfærurii sem eru
frekar notuð í byggingariðnaði held-
ur en til þess að búa til tónlist. Á
fyrsta skeiði sínu gaf hljómsveitin út
nokkrar mjög eftirminnilegar plötur
sem þó verða seint taldar til hefð-
bundinnar rokktónlistar, þ.á.m. má
nefna Kollaps, Zeichnungen des
Patienten O.T., Halber Mensch og
safnplötuna Strategies Against
Aechitecture.
Gítarleikarinn og söngvarinn Bl-
ixa Bargeld er búinn að vera leiðtogi
sveitarinnar frá upphafi. Hann gerð-
ist gítarleikari í hljómsveit Nick
Cave, The Bad Seeds 1984 og spilaði
með henni þar til í fyrra.
Einstúrzende hélt samt áfram (spil-
aði t.d. hér á landi 1986), en síðustu
ár hefur aukinn kraftur færst í starf
Einsturzende NeuMen
Frægasta hávaðahljómsveit sögunnar
farin að róast.
sveitarinnar. Einstúrzende Neu-
bauten var að senda frá sér nýja
plötu, Perpetuum Mobile (latína,
þýðir ,,eilífðarvél“). Á henni er tón-
listin rólegri og tærari heldur en í
upphafi ferilsins, en tilrauna-
mennskan sem alltaf hefur einkennt
sveitina er enn til staðar.
Á umslaginu er mynd af endur-
vinnslurusli og Blixa segir í nýlegu
viðtali að einhvers konar endur-
vinnsla sé viðfangsefni plötunnar og
bætir við að Einstúrzende hafi
reyndar alltaf verið í endurvinnslu,
t.d. iðulega notað hluti til tónlistar-
sköpunar sem voru framleiddir til
einhvers allt annars.