Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1958, Side 12
42
TÍMARIT VFl 1958
Iðnaðarmálastofnun Islands hefur nú nýlega hafið und-
irbúning á stöðlun á byggingarvörum og hlutum, en
annars hefur byggingariðnaðurinn enn ekki notið þeirr-
ar stofnunar svo um muni.
Húsnæðismálastofnunin er ný stofnun, sem hefur tólf-
þætt markmið, en er þó ennþá aðeins skrifstofa til út-
hlutunar á ríkistryggðum byggingarlánum.
—•k—
Ýmis konar gagnasöfnun hefur verið framkvæmd öðru
hverju á ýmsum atriðum iðnaðarins, en úrvinnsla þeirra
gagna er mjög af skornum skammti.
Staðbeztu upplýsingarnar um byggingariðnaðinn mun
að finna í ársyfirlitum byggingarfulltrúans í Reykjavík.
1 skýrslu hans fyrir árið 1957 má sjá, að 2533 íbúðir hafa
verið I smíðum á árinu, en þar af var lokið við 935. Á
1000 íbúa hefur þannig verið lokið við 14.3 íbúðir í
Reykjavík, en til samanburðar má benda á, að í norð-
vestur Evrópu, að Noregi og V-Þýzkalandi frátöldu, er
hún frá 4—6 íbúðir á 1000 íbúa. 1 Noregi komst talan
1953 upp í 10, en hefur síðan verið lækkuð með hömlum.
Auk þessa er meðalíbúðin á Islandi heilu herbergi
stærri en meðalíbúðir nágrannalandanna, og er auk þess
vandaðri að öllum frágangi.
Margvíslegar fleiri upplýsingar má vinna úr þessari
einföldu skýrslu byggingafulltrúans, og það hefur freist-
að margra að draga af henni ákveðnar ályktanir, sem
ýmist fordæma eða ofurgylla íslenzkan byggingariðnað.
Þetta er þó mjög varhugavert, því miklu fyllri upplýs-
inga er þörf, til þess að hægt sé að taka skynsamlegar
ákvarðanir í byggingamálum. Þessara upplýsinga verð-
ur að leita, og leitin er vinna sérhæfra manna 5 stofn-
unum, sem hafa það eitt hlutverk að vinna iðnaðinum
í heild gagn.
Það kostar að vísu átak að setja á laggirnar stofn-
anir af því tagi, sem hér hefur verið rætt um, en dýrt
verður það ekki. Þessari fullyrðingu til áréttingar skal
sett hér eftirfarandi innskot.
Áætlað er, að leggja í Bandaríkjunum á þessu ári
um 7 milljarða dala í rannsóknir, og samsvarar það
nærri 2% af þjóðartekjum þeirra. Bandarikjamenn telja
sér þó mikinn hagnað af þessum framlögum, og há-
værar raddir eru um stóraukningu þeirra.
Væntanlega liggur það ljóst fyrir, að ekki er þörf
framlaga, sem nema hundraðshluta af framleiðslu bygg-
ingariðnaðarins til þess að koma á laggirnar rannsókna-
stofnun, sem þjónaði iðnaðinum skaplega. Hitt má eins
vera ljóst, að vert er að leggja eitt prósent í þann lið
iðnaðarins, sem likur eru til að spari 20%.
—k—
1 viðhorfunum, sem rakin hafa verið hér að framan,
hefur ekki verið gerð tilraun til að kryfja þessi mál til
mergjar, heldur hefur verið brugðið upp svipmyndum
af einstökum atriðum. Ályktanir af þessum ihugunum
verða engar teknar, nema sú, að skorturinn á vitneskju
um eigin hag og eigin iðnað dregur úr eðlilegri þróun
byggingartækninnar í landinu.
Byggingariðnaðurinn í landinu er mjög þróttmikil at-
vinnugrein, og störfin í honum eru leyst af hendi af kost-
gæfni og dugnaði. Hæfni hinna ýmsu stétta iðn-
aðarins er heldur ekki verulega ábótavant. Framfarir í
þessum iðnaði eru líka þjóðfélaginu svo nauðsynlegar,
að freista ætti allra leiða til þess að greiða fyrir heil-
brigðri þróun hans.
Skýrsla um störf VFÍ 1957—58
Stjóm félagsins var þannig skipuð:
Sveinn S. Einarsson, formaður,
Snæbjöm Jónasson, varaformaður,
Hannes B. Kristinsson, meðstjórnandi,
allir kosnir á aðalfundi VFl 28. febrúar 1956, og
Björn Sveinbjörnsson, ritari,
Magnús Reynir Jónsson, gjaldkeri,
kosnir á aðalfundi 27. febrúar 1957.
Vegna dvalar Hannesar B. Kristinssonar erlendis, hef-
ur varamaður hans, Guttormur Þormar, mætt á flestum
fundum stjórnarinnar.
Alls hefur stjórn félagsins haldið 18 bókaða fundi á
árinu og tekið fyrir nær 90 mál.
Félagsmenn VFl voru á síðasta aðalfundi 241
1 félagið hafa gengið á árinu þessir menn:
Björn E. Pétursson, vélaverkfr. frá
Ólafur Gunnarsson, byggingaverkfr. —
Sigurður Björnsson, byggingaverkfr.
Bragi Sigurþórsson, byggingaverkfr.
Björgvin Sæmundsson, byggingaverkfr. —- DTH
Halldór Helgason, matvælafr. frá Oreg. State Coll.
Gyözö Pölöskei, námavélaverkfr. frá Leningrad
Gunnar M. Steinsson, byggingaverkfr. frá DTH
Gústav Arnar, rafmagnsverkfr. frá Edinborg hásk.
Baldur Jóhanness., mælingaverkfr. frá T. H. Múnch.
Gunnar H. Kristinsson, vélaverkfr. frá Edinb. hásk.
Haukur Pálmason, rafm.verkfr. frá KTH Stokkh.
Sigurður Vilh. Hallsson, efnaverkfr. frá Glasg. hásk.
Hörður Jónsson, efnaverkfr. frá Edinborg háskóla
Markús Þórhallsson, rafmagnsverkfr. frá NTH 15
256
Látizt hafa 3 félagsmenn, þeir:
Bjarni Jósefsson, efnaverkfræðingur
Axel Sveinsson, byggingaverkfr.
Ólafur Dan Danielsson, dr. phil., stærðfr. 3
DTH Ór félaginu hefur gengið 1 félagsmaður:
DTH Willy Norup, byggingaverkfr. 1 4
DTH
DTH Félagsmenn em nú
252