Akranes - 01.11.1946, Blaðsíða 6

Akranes - 01.11.1946, Blaðsíða 6
114 AKRANES BRÉF frá Þorsteini Briem Undaníarið hef ég tekið á tmóti mörgum murmlegum kveðjum frá Þor- steini Briem og fjölskyldu hans, og skila ég þeim hér með í einu lagi. Nýlega hitti ég vin minn, sem hafði slíka kveðju meðferðis, en hann var farþegi í söanu flugvélini í sumar. Hann sagði eitthvað á þessa leið: „Strax er við vorum búin að koma okkur fyrir í flugvélinni, vakti þessi maður — þ. e. Þorsteinn Briem — óskipta athygli mína. Ég var lengi að hugleiða hverrar þjóðar maður sá væri. Útlit hans, látbragð allt og mikli persónuleiki tók hug minn allan, svo að ég gat ekki haft augun af hon- um. Sköanmu seinna heyrði ég að maðurinn talaði íslenzku, og fékk ég að vita að þetta var sr. Þorsteinn Briem. Þegar ég svo kom heim úr þessari ferð og sá blaðið „Akranes" stóð þessi mynd mér enn ljóslifandi fyrir sjónum. Af þeirri augnabliksmynd fannst mér ég ekki vera í vafa um réttmæti þeirrar myndar, sem þú dregur upp af þessum mæta manni, sem ég hef svo margt heyrt um, en aldrei fyrr séð.“ Bréf það, sem hér birtist sendi sr. Þorsteinn sóknamefndinni, en er stílað til allra Akurnesinga eins og þið sjáið. Þarf það ekki frekari skýr- inga við. Ó. B. B. Stokkhólmi, 8. sept. (og næstu daga) 1946. Kæru vinir. Fyrir fám nóttum dreymdi mig að ég var heima á Skaga og var þar í stórum systkinahóp þar sem einn bróðirinn var sjúkur þegar við fórum að heiman. Þetta var mér áminning um að taka pennann til að skrifa bréf. En þá vandast málið. Ég fæ ekki einu sinni talið upp alla þá, sem ég vildi senda línu eða kveðju. Mér hefur því dott- ið 1 hug að skrifa ykkur fyrst sameiginlegt btéf, sóknar- nefndarmönnunum, og biðja ykkur að fá svo Ólafi Björns- syni bréfið, ef hann gæti komið þvf, í blaðinu Akranes, til minna gömlu sóknarbarna, svo að allir fái frá mér línu þrátt fyrir ódugnað minn. * Það mun vera gamall siður að segja ferðasögu, ef farið er til útlanda. Og þó að ekki gerist stórtíðindi á 7V2 tíma ferð, þá var það mér a. m. k. mikil nýjung að „fara í loftinu“. Klukkan 7 hinn 18. júlí stigum við inn í flugvélina á Kefla- víkurvelli. — Dimmt í lofti og súld. Merkilegast þótti mér að þess varð varla vart þegar vélin lyfti sér, — hún rann lengi eftir vellinum eins og bifreið og eiginlega fann maður ekki hvort heldur það var völlurinn eða vélin sjálf, sem lyftist, en allt í einu vorum við komin upp úr þokunni upp í glaða sólskin, en þokan, sem byrgði landsýn, var niður að sjá sem skafrenningskóf á alhvítri jörð á vetrardag. Austur undan Landeyjum tóku fjallatindar og jöklar að rísa úr þokunni og voru þeir öllu öðru bjartari, er sólin skein á. Undan Eyjafjöllum birti svo, niður að sjá, að sást yfir lág- lendið. Þótti mér þá fagurt að sjá heim að Holti og sendi ég manna og kynkvísla getur haft á öllum tímum. Hjá ein- hverjum og allmörgum hennar færustu manna á að vera fólgin upphvatning til góðra verka, með aðstoð hins sígilda orðs Drottins. En hjá öllum kristnum almenningi á að þroskazt sá manndómur, sem tryggi örugga framgöngu hinnar dáðrökku forystu, sem sífellt hafi að leiðarstjörnu hagsmuni heildarinnar, en ekki fárra valdasjúkra heimsk- ingja, hverri þjóð eða kynkvísl sem þeir tilheyra.' Mannkyninu er nú meiri þörf á að líta upp, en að lúta sí- fellt lægra og lægra. eftirmanni mínum þá kveðju mína og bið ykkur að skila henni, ef hún hefur ekki komizt beina leið til hans þá þegar. Þá horfðum við í glampandi sólskini yfir allar hinar fögru sveitir, er við flugum skammt undan landi, austur á móts við Öræfi. Þar sáum við ekki nema þrjú bæjarhverfi, en úr því huldi þokan allt nema fjallatoppana, er stóðu traustir og tryggir á verði yfir hverri byggð þar fyrir austan. Þegar komið var lengra út á hafið var sem við liðum yfir breiða krapablá, þar sem „augaði“ í vatn undir. Það var þokan, sem hélzt óslitin yfir hafinu austur undir Noreg, þó að við vær- um sjálf í sífelldu sólskini ofan við ský. Við komum „að landi“ þar sem heitir Ytrieyjai’viti, — eft- ir því sem ég gat greint á landabréfi síðar. Er vitinn á litlum hólma utan við skerjagarðinn út af svonefndum Förðafirði, skammt norður af Sognsæ. Á öllum hinna stærri eyja í skerjagai'ðinum er nokkur byggð, ýmist lítil þorp eða smábýlahverfi, en mest mun þar stuðst við fiskveiðar. Allt brosti þetta við augum, eyjar, sund og vogskorin srandlengjan í sólskininu. Við komum að Noregi þar sem nefnt var Firðafylki til forna. Hér höfðu feður vorir áður stundað bú sín og veiði- föng. Héðan höfðu þeir lagt út í víking og héðan hafði ævin- týralöngun og frelsisþrá knúð þá út til íslands. Munur er á farkostum þá og nú. Fyrr en segir erum við komnir inn yfir land og horfum yfir fjöll og firnindi — hrikaleg fjöll milli mjórra fjarða, er teygja álmurnar inn eftir öllu svo að erf- itt er að átta sig á hvort heldur er um stöðuvötn að ræða, eða krókóttar fjarðarálmur. Langt inn í landi sýnast mér vera stöðuvatn lengst niðri í djúpum þrengslum milli þver- brattra fjalla. Ég sé síðar á landabréfinu að þetta hafa verið álmur norður úr Sognsæ og hefur þar sem víðar við Nor- egsstrendur verið margur felustaður fyrir ránsmenn og vík- inga, er áttu einhvers í að hefna á höfðingjum eða land- stjórnarmönnum. Nú eru þar friðsælar byggðir, þótt skammt sé frá firði til fjalls. Mér hefur liðið ágætlega á leiðinni — betur en í bifreið. En nú tekur að þrengjast um brjóstið, andardrátturinn verður þyngri og tíðari — jú, við höfum hækkað flugið svo ég verð móður, þó að hin verði þess ekki vör. Við líðum áfram inn yfir syðstu fannaálmur Jostedalsjökuls og svífum von bráðar yfir Jötunheima. Segir nafnið til landslags. Mun óvíða sundurtættari og hrikalegri fjallgarður. Eru þar mörg skuggabjörg og sannkallaðar tröllabýggðir. Fyrr en frá segir fijúgum við austur yfir þenna hrikaheim og inn yfir Upplönd. Er þar strjálbyggt efst. Mun þar erfitt um kornyrkja í ofanverðri byggð, en allgott til beitar og grasræktar og skógur er þar nokkur að sjá. Nú þéttist smám saman byggðin og verður æ blómlegri unz komið er austur yfir Guðbrandsdali. Þar lækkar vélin flugið og mér verður léttara. Er nú björgulegt um að litast. Blómlegustu byggðir og þéttbýlt meðfram ám og vötnum, en skógar í hlíðum og á holti hverju. Þangað flytja og árnar í vorleysingum ógrynni timburs ofan úr efri fjalldölum og skógarbyggðum. Er timbrið höggvið og merkt að vetrinum og því ekið niður á ísinn, en síðan fleytt ofan árnar að vor- inu, þangað til sögunar- eða pappírs- og trjákvoðumylnur taka við. í Leginum í Guðbrandsdölum mátti og víða sjá timburflota og mikla viðarhlaða við sögunarmylnurnar. Mundi þar mörgum smið þykja björgulegt umhorfs og feg- inn vilja ná sér í kubb og fjöl. Þá er líka sjón að sjá timbrið við Glaumelfi, nokkru austar. Ber hún og nafn með rentu, því að allvíða syngur þar í fossum og flúðum og hátt lætur sjálfsagt í henni er hún ryður sig eða þegar timburstokkum er fleytt eftir henni að sögunarmylnunum á vorin. Nú svífum við von bráðar út yfir landamærin og inn í Sví- þjóð. Verður þar fyrst fyrir Vermaland, láglent fremur úr lofti að sjá með ógrynni vatna og elfa. Sér þar hvarvetna fagrar byggðir. Eru þar blómlegir akrar, en skógarhálsar eöa holt í milli Sjást vel úr lofti vetrarbrautir, sem ruddar

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.