Akranes - 01.11.1946, Page 27
AKRANES
133
ANNÁLL AKPANESS
Gja/ir og greiðslur til blaðsins, sem
Það þakkar innilega:
Hrá Árna Jónssyni Vestmannabraut 63 Vest-
hiannaeyjum V. árg. 25 kr.
Halldóri Fjalldal Keflavík f. V. og VI. árg.
50 kr.
V.
Ólafi Lárussyni Keflavík f. V. árg. 25 kr.
Karli Sigurðssyni skipstjóra Reykjavík fyrir
arg. 50 kr.
Elías Þorsteinsson útgm., Keflavík, f. Akranes
°S Verðadi.
Sverrir Júlíusson framkvstj. 100 kr.
Karvcl Ögmundsson útgm. 50 kr.
öuðm. Jónsson útgm., Garði, 100 kr.
Ólafur Óiaísson kaupim. frá Belgsholti 100 kr.
öuðjón Rögnvaldsson oddviti, Tjörn, fyrir 4
eint., sem hann borgar árlega með 100 kr.
Jóhann Skaptason sýslumaður 100 kr.
Ólafur Ó. Lárusson læknir 50 kr.
^únarfregnir.
Hinn 31. okt. andaðist Sigurður Jónsson fiski-
haatsmaður í Melshúsum. Hann var fæddur þar
2- febrúar 1865. Kona hans, Kristín Árnadóttir,
lifir mann sinn.
Hrú i. íuðjónína Jónsdóttir, kona Jóns Bjarna-
s°nar j Garðbæ, andaðist 4. nóv. s. 1. Hún var
fædd i Pálsbæ í Leirársveit 13. marz 1887.
Halisteinn Ólafsson bóndi í Skorholti andað-
lst hinn 11. maí s.l.
Gísli Gíslason, oddviti í Lambhaga, er nýlega
tátinn. Hann var fæddur 5. febr. 1884.
Hinn 3. sept. s.l. andaðist í hárri elli (rúml.
^9 ára) Halla Árnadóttir í Vogatungu.
Hinn 2. des. s.l. andaðist í Reykjavík Morten
öttesen frá Ytra-Hólmi. Hann var jarðsettur að
öörðum 11. desember.
Kirkjuhátíðin.
Hin árlega kirkjuhátíð var haldin svo sem
venja
er til fyrsta sunnudag í nóv. Auk hir.s
Venjulega tilefnis var nú minnst 50 ára afmælis
líirkjunnar, en hún var vígð hinn 23. ágúst 1896
Hiskup landsins, dr. Sigurgeir Sigurðssnn var
viðstaddur. Hélt hann ræðu og þjónaði í'yrir
aUari. Auk hans fluttu þeir ræður, prófasturinn,
Sr- Sigurjón Guðjónsson, og sóknarpresturinn,
Sr; áón Guðjónsson. Söngurinn var góður, og fór
l'átíðin í heild vel fram og virðulega.
1 niessulok afhenti biskup kr. 6048,29, gjöf frá
v°hu, sem ekki vildi láta nafn síns getið. Fénu
skal verja til kirkjulegrar- og bindindisstarf-
:eihi meðal æskulýðs á Akranesi. Umsjón sjóðs-
ltls hafa með höndum sóknarprestur og héraðs-
l*knir á Akranesi og prófastur Borgarfjarðar-
h^ófastsdæmis. Þegar sjóðurinn er orðinn 50
lnis. kr. skal verja hálfum vöxtum til þessa
Harfs. En helmingurinn leggist ávallt við höf-
hðstól.»
■^ð lokum þakkaði safnaðarfulltrúinn, Jóhann
Guðnason, þessa ágætu gjöf, sem og biskupi
tyrir komuna. Þarna var líka mættur cand.
theol. Pétur Sigurgeirsson, ritstjóri Kirkjublaðs-
ltls- Að þessu sinni urðu gjafir fólksins til
lrkjunnar um 4000 kr. Allmargir urðu frá að
^yerfa vegna þrengsla.
F r r
r gjaldeyrisúthlutunin rettlát?
IHargir telja sig hér misrétti beitta, en sjálf-
Sa8t kvartar nú margur um þetta, án þess að
le'ttur hans sé auðsær og tvímælalaus.
Það er vitað, að menn neita al!ra bragða og
fara ótrúlegustu leiðir til aðð komast yfir gjald-
eyri og leyfi til innflutnings. Margt bendir til.
að fleira en sanngjörn þörf og réttar reglur ráði
hver slíkt happ hlýlur, hvort sem um er að
ræða stórar eða litlar íjárhæðir. Hér er sjálf-
sagt svo sem oft vill verða, að þeir aðgangs-
hörðustu og ófyrirleitnustu bera mest úr být-
um. Þingimaður einn valinn kunnur, sagðist ný-
lega hafa (í fyrsta sinn fyrir sjálfan sig) beðið
um 3000 kr. gjaldeyrisleyfi. Hann fékk óðara
neitun. Hann ætlaði að nota þetta til þess að
kaupa til heimilisnota þvottavél, hrærivél og
eldavél. Hann hefur nú fyrst möguleika til þess
að nota rafmagn. Þetta er á stóru sveitaheimili,
þar sem erfitt er með fólk eins og annarsstaðar
og bóndinn (þingmaðurinn) ekki ósjaldan að
heiiman.
Þegar nú aftur fer verulega að þrengjast fyr-
ir dyrum hvað gjaldeyri snertir, verður að gæta
þess, að ekki sé allur „andskotans" óþarfi flutt-
ur inn, og að sem allra mest a. m. k., séu tak-
mörkuð klíkusjónarmið við úthlutun gjaldeyris-
og innflutnigsleyfa.
Gullbrúðkaup
áttu þau hjón Jón Halldórsson og Jónína
Jónsdóttir í Lambhúsum hinn 28. nóv. s.l.
Hjónaefni.
Ungfrú Jóna Viktorsdóttir og Ólafur Elíasson.
Hjónabönd.
Nýlega voru gefin saman í hjónaband ungfrú
Sigríður Pétursdóttir og Björn Viktorsson.
Enn fremur ungfrú Þóra Þórðardóttir og Ól-
afur Vilhjálmsson frá Eístabæ.
Hinn 30. nóv. s. 1. voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Herdís Ebenesersdóttir frá Bol-
ungarvík og Hallsteinn Tómasson Litlu-Brekku.
Hinn 7. des. voru gefin saman af sr. Jóni
Guðjónssyni þau ungfrú Elin Hannesdóttir og
Þorsteinn Þorvaldsson, Ólafssonar.
Bœrinn vill leggja undir sig meira land.
Bæjarstjórnin hefur lengi haft löngun til þess
að bærinn eignaðist meginpart þess lands, sem
næst honum liggur, og ekki fékkst þegar Garð-
arnir voru keyptir. Nú standa yfir samningar
um þetta efni við sóknarprestinn. Hefur kirkju-
málaráðherra tekið málaleitan vorri vel, og
vonandi verður svo og um biskup.
Frú Guðrún Brunborg
hélt hér í Bíóhöllinni nýlega erindi, og sýndi
kvikmyndir af eyðileggingu Þjóðverja í Noregi
á styrjaldarárunum. Enn fremur sýndi hún
myndir af fyrsta skiðamóti Norðmanna eftir
styrjöldina. Frú Brunborg er íslenzk, gift
norslcum manni. Urðu þau fyrir barðinu á
Þjóðverjum eins og fleiri Norðmenn. Þeir
drápu efnilegan ungan son þeirra. Ólaf að
nafni, sem stundaði háskólanám.
Til minningar um þennan son þeirra hefur
frúin stofnað sjóð, sem ætlað er að styrkja fá-
tæka norska og íslenzka háskólastúdenta til
náms við Óslóarháskóla. Frúin flutti þetta er-
indi hér víða um land, og skyldi ágóðinn af
þeim renna í þennan sjóð.
Styrjöld sú, sem Þjóðverjarnir hófu og ráku
af öllum kröftum sálarleysisins, hefur fellt
margt og mikið í rúst. Ekki aðeins í áþreifan-
legum efnum, lieldur engu síður andlegum.
Heimurinn er helvíti, án þess að rækta og ryðja
braut hinum andlegu eilífu fjársjóðum mann-
anna. Og verður það svo lengi sem þau hin
góðu öfl verða ekki nógu vakandi og samstillt
til þess að verjast hinum djöfullegu áformum
þessara sálarlausu vilfirringa. Það er hörmulegt
þegar gáfuð þjóð með góða eiginleika selur
slíkum djöfluon sjálfa sig.
Götunöfnunum breytt.
Eins og lesendum blaðsins er kunnugt, hefur
það imjög komið til mála að breyta götunöfnum
í bænum. Skipaði bæjarstjórn þriggja manna
nefnd til þess að koma fram með tillögur í
málinu. Hefur hún fyrir nokkru skilað áliti. Á
bæjarstjórnarfundi hinn 9. des. var endanlega
gengið frá málinu, og tillögur nefndarinnar
samþ. að langmestu leyti.
Verður í næsta blaði gerð nánari grein fyrir
mólinu. En ætlast er til að breytingin komi til
framkvæmda við þessi áramót.
Gleðileg jól.
Blaðið óskar öllum lseendum sínum, hjálpar-
mönnum og tryggðavinum gleðilegra jóla og
farsæls komandi árs. Það verður margvíslega
vart velvilja yðar og skilnings, t. d. í fjölda
bréfa, er því berast. Einn vinur þess skrltar 11.
nóv. s.l.: „Ég þakka innilega fyrir „Akranes".
Það segir mér alltaf eitthvað af blessuðu gamla
nesinu mínu. Og það gleður mig hjartanlega
hve fast þið sækið fram að manndómi og
mennt. Og í trúnaði ætla ég að segja þér hvað
mér þykir alltaf bezt og langvænst um, að
handleiðsla þín við blaðið er kristileg, kæri Ól-
afur. Sá andi finnur hljómgrunn innst inni í
hugskoti margra. Andinn þarf alltaf sitt. Innstu
sælunnar næringu. Við íslendingar lifum nú á
hræðilega andlausum tímum. Engin kirkja sótt
víðast hvar, engir helgisiðir á heiimilunum og
einangrun átakanleg þeim, setn trúa og þrá
samneyti. Ég hlakka til jólablaðsins, þó ekki
verði þar nema ein setning jólaleg, þá er hún
hjartanlega þegin." Blaðið þakkar innilega
þessum vini sínum andann og ummælin. Það
vonar að því aukist þor og þróttur ásamt innra
eldi til þess að bera birtu og yl sannrar menn-
ingar og guðstrú. r sem víðast út um byggðir
okkar ástkæra lands.
Gleðileg jól. Ól. B . Björnsson.
Stórkaupmaður Lauritz Jensen,
St. Kongensgade 72, Kaupmannahöfn, sem í
rúmlega 25 ár hefur verið meðeigandi og fram-
kvæmdarstjóri í heildsölufélaginu Jakob Gunn-
lögsson & Co., rekur nú heildsölu fyrir eigin
reikning. Hr. Lauritz Jensen er nú formaður
fyxár „Dansk-Islandsk Handelsforening" í Kaup-
mannahöfn.
í blaðinu Heimskringlu
6. nóv. s. 1. alllöng og rækileg umsögn um
blaðið „Akranes", og einkar velviljuð. Er hún
eftir próf. dr. Richard Beck. Blaðið þakkar þann
hlýhug, sem þar kemur fram. Það vildi mjög
gjarnan eiga þátt í að knýta og treysta kynn-
ingar- og vináttubönd íslendinga austan hafs
og vestan, og óskar öllum íslendingum vestan
hafs heilla og blessunar.
ÞEIR AKURNESINGAR,
*
sem enn eiga eftir að greiða
brunabótagjöld fyrir yfirstand-
andi tryggingarár, eru hér með
áminntir um að greiða gjöldin
fyrir áramót, ef losna á við að
reikna þeim dráttarvexti.
UMBOÐSMAÐUR.