Akranes - 01.05.1949, Page 15

Akranes - 01.05.1949, Page 15
verður á að setja upp þegar hann á að horfast í augu við vélina hjá ókunnugum ljósmyndasmið. Á mannamyndum er andlitið aðalatrið ið. Það verður þvi umfram allt að gæta þess, að vera ekki svo nálægt þeim, sem verið er að mynda, að höfuðið komist ekki fyrir á myndinni. Til þess að slíkt og því líkt komi ekki fyrir, er bezta ráðið að kynna sér vélina vel, sem notuð er, nefni- lega hvað myndin sem á að komast fyrir á ljósmyndaflögunni má taka .yfir mikið svæði í myndsjánni. Á meðan að menn eru óvanir vél sinni, virðist þeim mynd- sjáin lofa meiru en vélin, þegar búið er að taka með henni myndina. En það orsakast af þvi að augað er of nálægt myndsjánni. Byrjendum er það áríðandi, ef þeir eiga að vera nokkurn veginn ánægðir með árangurinn af fyrstu tilraunum sínum, að taka aðeins augnabliksmyndir, eða snarmyndir öðru nafni, í sólskini og góðu veðri, hvort sem þeir taka mannamyndir eða landmyndir. Þegar um mannamyndir er að ræða, getur ýmislegt orðið til þess að aflaga eða umbæta, ekki síður en á öðrum myndum. Ekki þarf annað t. d. en að hliðhallt aftan við manninn, sem verið er að mynda, standi kvartel eða kirna, eða þá að stólpinn, sem þvottastagið er fest í, beri þannig við, að hann virðist standa uppi úr öxlinni á manninum, þegar búið er að framleiða myndina. Til þess að ná góðum andlitsmyndum úti, er birtan hagkvæmust þegar himin er skýjaður; sé sólskin, verður bezt að sá sem verið er að mynda, standi þar sem skugga ber á, en slika mynd þarf þá auðvitað að lýsa lengur en myndir þær, sem teknar eru í sólskini, t. d. 1/5 úr sekúndu í stað 1/50 eða jafnvel 1/100, ef sólskinmynd er tekin. Þegar að því kemur að ekki verður kom- ist hjá að reyna að taka myndir inni í herbergjum, verður að hafa það hugfast, að birtumagnið þar er hér um bil 60 sinn- um minna en úti. Á tímabilinu frá kl. 10 f. h. til 2 e. h. er birtan bezt, og ætti helzt að nota þann lýma. Birtan úr glugg- anum, sem bezt er að sé sem stærstur, þarf að falla vel á persónu þá, sem verið er að mynda, og þótt að tveir eða fleiri gluggar séu á herberginu, er aðalbirtan aðeins notuð úr einum þeirra, og til þess að sú hliðin á andlitinu sem frá glugg- anum snýr, verði ekki of dimm, verður að hengja hvítan dúk eða annað hvítt til hliðar við persónuna, þannig að endur- skinið frá hvíta dúknum varpi sem mestu ljósi á skuggahliðina, við það verða skugg- arnir mildari og myndin betri. Sjálfur verður myndasmiðurinn að vera hæfilega langt frá með vélina og koma henni svo fyrir, að hún liorfi ekki í glugga.“ Þessi kafli, sem og kverið í heild, ber gott vitni um glöggskyggni Magnúsar og listasmekk sem og áberandi skapgerðar- einkenni í fari hans. Hversu hið listræna auga hans er opið fyrir þeim „motivum“ sem fæztir hafa þá veitt efítirtekt eða lagt mikið upp úr. Þá er annað sem stingur mjög í stúf við það sem við eigum nú að venjast, og sýnir bezt frjálslyndi hans og viðhorf til listamennsku almennings án tillits til eigin atvinnu og ávinnings. Þarna er ekki verið að hugsa um einokun- araðstöðu, eða halda leyndri reynslu sinni og þekkingu, heldur þjóna listinni og mönnunum án tillits til eigin hagsmuna. Hér kemur og fram ein hlið enn á Magn- úsi, það er viðhorf hans til tungunnar. Þessa hlið hefur hann ekki látið sér i léttu rúmi liggja, sem m. a. má marka af því, að hann kemur þarna fram með mörg nýyrði í iðninni, sem sýnilega eru ekki sett fram óhugsuð, því bæði eru þau falleg og fara vel í munni. HeimiliS. Heimili þeirra hjóna var stórt, en efn in voru alla tið lítil. Það þurfti því að fara vel með það litla, sem fyrir hendi var. Nýtni og sparsemi skipuðu lika öndvegi, en lægni og listhneigð heggja hjónanna gerðu svo mikið úr þessu litla, að ókunn- ugum fannst þar vera óvenjulegt hefðar- heimili. Handbragði frú Guðrúnar var við brugðið. Hvernig hún gat t. d. margsaum- að upp úr sömu flik af Magnúsi, á eldri drengina og svo á þá minni, er hinir höfðu vaxið upp úr henni. (Þetta gæti ef til vill verið hollt umliugsunar- og viðfangsefni enn i dag fyrir okkar þjóð). Nákunnug kona hefur tjáð mér, að snyrtimennska húsmóðurinnar og nýtni hafi verið ein- stök, hafi einu gilt, hvort hún fékkst við . matartilbúning, saumaskap eða önnur hús- verk, hún hafi verið svo hög og útsjónar- söm, að allt lék í höndum hennar. Frú Guðrún kvað hafa verið stórlynd kona og jafnvel stolt undir vissum kringumstæð- um, en gat þó stillt skap sitt svo vel, að fáir vissu af. Hún var dul kona og fá- skiptin og átti fáa vini. en þeim var hún traustum böndum bundin. Hún var mjög góð stúlkum sínum og leit oft til fátækra og þeirra, sem áttu erfitt, þótt ekki væri ávallt miklu að miðla. — Kunnugri konu virtist, sem ótrúlegir hlutir væru gerðir á þessu heimili af litlum efnum. Sýndi það hvort tveggja i senn, nægjusemi húsráð- endanna, og sérstakar gáfur beggja til að gera mikið úr litlu og svo, að óvenjulega vel færi á. Þannig virtust húsakynnin og innanstokksmunir vera stærra og fegurra en þetta var í raun og veru, vegna þess, hve vel var um gengið og upp byggt. Þessi voru börn Guðrúnar og Magnúsar Ólafssonar: 1) Ásta, rikisféhirðir. 2) Ólafur, kvæntur Guðrúnu Árnadóttur, ættaðri úr Grindavík. 3) Karl, héraðslæknir í Keflavík. Kvænt- ur Elínu Jónsdóttur, frá Kambi í Reykhólasveit. Þau eiga eina dóttur, Guðrúnu. 4) Pétur, bankaritari í Landsbankanum. Kvæntur Ásdisi Magnúsdóttur, frá Bergi í Reykjavík. Þeirra börn: Guð- rún og Magnús Karl. 5) Tryggvi, fulltrúi við Edinborgarverzl- un, dáinn. Ekkja eftir hann er Elín Einarsdóttir. Þeirra dætur: Guðrún og Sigrún. 6) Karólina Þorbjörg, ógift, dáin 7. jan- úar 1942. Eins og áður er sagt átti Magnús einn son áður en hann kvæntist. Hann hét Guð- jón, var skósmiður, en er dáinn. Hann var kvæntur Ketilfríði Dagbjartsdóttur, frá Gröf í Rauðasandshreppi. Þau áttu eina dóttur, Sigurbjörgu að nafni. Um fram allt valmenni. Hér hefur nú verið stiklað á stóru um störf og hæfileika Magnúsar Ólafssonar, ljósmyndara, eins hins fjölhæfas'a lista- manns hér á landi, sem uppi var á íðari hluta aldarinnar sem leið og framan T þessari. Fyrstu 15 starfsárin vann hann með mikilli prýði, verk, sem stóð þó mjög fjarri aðal-hugðarefnum hans. Hann var óvenjulega fjölþættum listrænum hæfi- leikum búinn. Söngmaður, smiður, mál- ari og myndasmiður svo að orð fór af. Hljóðfæraleikari og svo léttur í lund að allir hændust að honum, eldri sem yngri. Hann var allstaðar mannasættir, og gat engin úlfúð risið í nálægð hans. Raun- verulega gerði hann mikilsverðar upp- götvanir, þótt eigi kæmi hann þeim á framfæri. — Hann umsmíðaði fiðlur og endurbætti þannig tóngæði þeirra veru- lega. Þegar hann var í Stykkishólmi, kvað hann hafa teiknað krosssaums-„munstur“ fyrir frúrnar þar. I eðli sínu var Magnús ákaflega dulur og frábitinn því að trana sér fram. Hann var óvenjulega samvizku- samur og góðgjam, trúmaður og trygg- lyndur. Afbragðs heimilisfaðir, enda heimilið í fremstu röð fyrirmyndar heim- ila, þar sem listrænt samræmi ríkti, frið- ur og eindrægni og fagurt fjölskyldulíf. Magnús var því um fram allt valmenni, sem öllum þótti vænt um, og áreiðanlega átti engan óvin. Maður, sem sýndi óvenju- legt fordæmi i lífi, list og starfi. Magnús var meðal þeirra Reykvíkinga, sem fyrstir Islendinga sýndu kvikmyndir hér á landi. Það var árið 1903, aðeins átta árum eftir að farið var að sýna þær úti í heimi. Var hann þar liðtækur sem oftar þótt lærdómur hans á því sviði væri enginn. Ö. B. B. AKRANES 63

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.